Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987 Minning: * Asgeir Magnússon fv. sakaskrárritari Fæddur 15. desember 1914 Dáinn 21. apríl 1987 Fyrir nokkru andaðist hér í Reykjavík Asgeir Magnússon fv. sakaskrárritari. Að eigin ósk fór útför hans fram í kyrrþey. Foreldrar hans voru Magnús Magnússon, skipstjóri, og Karítas Ólafsdóttir. Magnús var sonur Magnúsar Guðmundssonar og Margrétar Páls- dóttur í Pálsbæ í Reykjavík og var hann meðal stofnenda útgerðarfé- laganna Alliance og Defensor og framkvæmdastjóri hins síðamefnda félags. Um hann var sagt: „Afla- maður góður og í hvívetna meðal merkustu manna í sjómannastétt." Karítas var dóttir Ólafs Guð- mundssonar, útvegsbónda í Mýrar- húsum á Seltjamamesi, og Önnu Bjömsdóttur frá Möðruvöllum í Kjós. Ólafur og næstu nágrannar vom brautryðjendur í útgerð þil- skipa við Faxaflóa. Bjöm, sonur hans og bróðir Karítasar, var þekkt- ur skipstjóri og útvegsmaður og einn af frumherjunum í útvegi tog- ara. Asgeir var borinn og bamfæddur í Vesturbænum og ólst hann upp hjá móður sinni á Vesturgötu. A þessum ámm náði Vesturbær- inn vart suður fyrir Túngötu, Bræðraborgarstíg og Framnesveg. Húsin bám gjaman ákveðin nöfn og vom þá íbúarnir, oft í marga ættliði, kenndir við þau. Aðkomu- fólk settist að í Austurbænum. Vesturbæingar höfðu meiri metnað til að bera fyrir sinn bæjarhluta en aðrir íbúar í bænum. Leikvellir pilta vom aðallega tveir. Annarsvegar íjömmar, einkum úti í Eyju, eins og Örfirisey var þá jafnan kölluð, en þangað var stutt að fara fót- gangandi í hafnargarðinum. Hins- vegar túnin, þar sem fótbolti var vinsælastur leikja. Vesturbæingar höfðu sitt fótboltafélag, KR. í þessu umhverfi ólst Ásgeir upp. Hann gekk að sjálfsögðu í KR og iðkaði hina vinsælu íþrótt undir stjóm Guðmundar Ólafssonar, skósmíðameistara. Minntist hann Guðmundar ávallt með virðingu fyrir hið fómfúsa starf hans í þágu knattspymunnar. Ásgeir keppti á knattspymumótum og átti þátt í sigmm KR á þeim tíma. Haustið 1929 settist Ásgeir í fyrsta bekk gagnfræðadeildar menntaskólans. Hann var ágætur námsmaður og vorið 1935 lauk hann stúdentsprófi úr stærðfræði- deild með góðri 1. einkunn. Honum vom þá margar leiðir opnar til frek- ara náms því að hann var jafnvígur á „humanisk" fræði sem raungrein- ar. Hefur það oftar en ekki gert ungum stúdent erfiðara fyrir en ella að ákveða sémám. Skal ósagt látið hvort svo kunni að hafa verið um Ásgeir, en skólanámi hélt hann eigi áfram. Sigurður Ólafsson, hálfbróðir Ásgeirs, var 13 ámm eldri. Hann hóf ungur störf hjá fyrirtæki Hjalta Jónssonar, Kol og Salt hf. og árið 1932 stofnaði hann eigið fyrirtæki, Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar. Þá var kolasala þýðingarmikil grein verslunar í Reykjavík því að með kolum vom hús og híbýli hituð og togarar kyntir. Segja má með sanni að kol væm bæjarbúum lífsnauð- syn. Að loknu stúdentsprófi hóf Ás- geir störf við Kolaverzlun Sigurðar ðlafssonar. Fyrirtækið gekk vel fram yfir stríðslok, en þá komu nýjir orkugjafar til sögunnar. Hita- veita og olía komu í stað kola til að hita upp ús og knýja vélar skipa. Kolaversíunum fækkaði og þar kom að Sigurður Iagði niður verslun sína eftir tæplega þriggja áratuga rekst- ur. Þannig varð hlutskipti kola- kaupmanna annað en þeirra manna, sem að morgni íslenska efnahags- undursins hófust handa um verslun með bifreiðir, efni til húsbygginga og heimilistæki. Árið 1961 gerðist Ásgeir starfs- maður hjá nýstofnuðu embætti saksóknara ríkisins. Varð hann sakaskrárritari og gegndi því starfi í nærfellt 14 ár eða þar til hann varð að hætta vegna sjóndepm. Við Ásgeir vomm samstarfsmenn sein- ustu starfsár hans. Það er eigi ofsagt að hann hafi verið samvisku- samur starfsmaður og unnið störf sín af alúð og nákvæmni og með stakri snyrtimennsku. Ég, sem línur þessar rita, kynnt- ist Asgeiri þegar í menntaskóla og vomm við saman í bekk í þijá vet- ur og stúdentar sama ár. Auk skólanámsins lágu leiðir okkar oft saman niður á höfn því að við höfð- um báðir áhuga á skipum og fylgdumst vel með ferðum þeirra og reyndar athafnalífi hafnarinnar. Þá höfðum við báðir áhuga á knatt- spymu og mæltum okkur oft mót á Melavelli. Ásgeir fylgdist einnig með enskri knattspymu, en fyrir stríð vom þeir ekki margir hér á landi, sem það gerðu. Það gat hann með því að lesa bresk blöð, sem komu til' landsins með tveggja til þriggja vikna millibili og á laugardögum hlustaði hann á íþróttafréttir enska útvarpsins. Hann þekkti ekki aðeins einstök knattspymufélög í Bret- landi og í hvaða deild þau vom heldur vissi hann einnig deili á liðs- mönnum og um framgöngu þeirra á leikvelli. En áhugaefni Ásgeirs vom fleiri. Þegar í skóla var hann skákmaður góður. Hann keppti á skólamótum og sótti lengi almenn skákmót. Þá var málaralist honum hugleikin. Honum var einkar lagið að meta verk ungra manna og segja fyrir um framtíð þeirra á listabrautinni. Oftar en ekki kom á daginn að hann hafði sagt rétt fyrir um það efni. En einkafjarskipti vom þó mesta hugðarefni hans. Hann var mikill „radíó amatör" og varði mörgum stundum í viku hverri við tæki sitt. Hann var í loftsambandi við fjölmarga áhugamenn um fjar- skipti víðsvegar um veröldina og margir þeirra vom góðir kunningjar hans. Ásgeir átti ávallt heima við Vest- urgötu. Fyrstu árin í húsi númer 52 en frá 1932 í húsi númer 54A. í sama húsi bjó Sigurður Ólafsson ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Ámadóttur, og fjölskyldu. Eftir andlát móður sinnar í maí 1950 naut Ásgeir nábýlisins við þá fjöl- skyldu, en Sigurður andaðist í október 1969. Seiníista áratuginn var Ásgeir orðinn blindur. Í þeirri raun var umhyggja Guðrúnar hon- um ómetanleg og fómfysi hennar þessi þungbæm ár gleymist eigi þeim, sem til þekktu. Seinustu mánuðina var hann á EUiheimilinu Gmnd við Hringbraut og andaðist þar næst seinasta vetrardag. Ásgeir var enginn hávaðamaður og sýndarmennska var honum fjarri skapi. Hann kunni vel að hlusta á menn skiptast á skoðunum og hann lét ekki uppi álit sitt fyrr en að vel athuguðu máli. Þá var hann hóf- samur í dómum um menn og málefni. Kröfugerðir á hendur öðmm vom honum fjarlægar en hann setti sér sjálfum reglur og lifði í samræmi við þær. Við^ skólasystkini og samstarfs- fólk Ásgeirs Magnússonar og við hjónin sendum frændfólki hans og aðstandendum einlægar samúðar- kveðjur. í hugum okkar lifir minningin um hlédrægan heiðursmann, sem ól sinn aldur í Vesturbænum. Þórður Björnsson 'X. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HILDAR PÁLSDÓTTUR, Skarðshlfð 18G, Akureyri. Jóhann Angantýsson, Gunnar Jóhannsson, Benný Jóhannsdóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Guðlaug Jóhannsdóttir, Númi Jóhannsson, Páll Jóhannsson, Hilmar Jóhannsson, Guðrún Jóhannsdóttir, Heiðar Jóhannsson, Helga Alice Jóhanns, barnabörn og Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Edna Jóhannsson, Haraldur Hannesson, Gary Salow, Sigurður Jónsson, Ásgerður Gústafsdóttir, Svanhildur Árnadóttir, Árni Sigurðsson, Bergrós Ananiasdóttir, Haraldur Pálsson, barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jaröarför JÓNÍNU EGILSDÓTTUR, Skeljagranda 4, Reykjavfk. Guðni Gestsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og systur, MARGRÉTAR KRISTJÁNSDÓTTUR, er lést 2. maí í hjúkrunardeild Grundar, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar. Ingunn Ósk Sigurðardóttir, Kristján Ársœli Sigurðsson, Margrót S. Jóhannesdóttir, Einar Sigurðsson, Ingibjörg Árnadóttir, Gunnþórunn Sigurðardóttir, Sveinn isleifsson, Guöbjörg Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakklæti sendum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför JÓHANNS HAUKSSONAR, Ásbúð 8, Garðabæ. Anna Aradóttlr, Steinunn Jóhannsdóttir, Dóróthea Jóhannsdóttir, Bjarney Jóhannsdóttir, Haukur Vigfússon, Steinunn Jóhannsdóttir Minning: Friðrik Kárason símaflokkssíjóri Fæddur 5. febrúar 1959 Dáinn 10. maí 1987 Já, hann er dáinn, stóri bróðir, sem ég kallaði alltaf Bróa. Hann varð veikur í haust og var skorinn upp, en eftir áramót varð hann svo frískur að allir héldu að hann væri kominn yfir veikindin. Hann fór að vinna og leit björtum augum fram á sumarið. Hann ætlaði að aka alla Vestfírðina í sumarfríinu á bflnum sínum og taka okkur mömmu og pabba með og skoða allt sem hægt væri að skoða. Brói hafi mikið dálæti á bókum og átti stórt og mikið bókasafn. Hann hafði sérstakan áhuga á ætt- fræði og sat stundum dögum saman með margar bækur opnar fyrir framan sig og gruflaði í nöfnum og tölum. Hann vann alltaf hjá Pósti og síma og ferðaðist mikið um landið vegna vinnu sinnar hjá Landsíman- um. Hann fór eitt sumar á Vestfírði að tengja sjálfvirkan síma og þræddi þar alla firði. Annað sumar vann hann á Austfjörðum og víða um Suðurland og þekkti þar af leið- andi mikið af landinu. Brói keypti 3ja herbergja íbúð á Hólel Saga Simi 1 2013 Rauðási 23, sem var tilbúin undir tréverk, og þegar hann hafði tíma og peninga fór hann alltaf og vann við að fullgera íbúðina sem honum entist svo ekki aldur til. Brói var 13 árum eldri en ég og svo langt sem ég man dekraði hann við mig. Þegar hann byijaði að vinna og fékk fyrst útborgað keypti hann handa mér stóran kassa af kubbum sem mér þótti mjög gaman að. Þegar ég varð eldri gaf Brói mér stórt hjól og seinna kassettu- tæki. Á jólunum síðustu gaf hann mér Ensk-íslensku orðabókina og í fermingargjöf gaf hann mér stór og mikil hljómflutningstæki. í páskafríinu fór hann á spítala og var þar sem eftir var. Við systk- inin vorum orðin mjög samrýnd nú síðustu ár. Hann var góður bróðir sem ég mun aldrei gleyma. Guð veri með honum. Systir „Dáinn horfinn harmafregn hvilik orð mig dynur yfir En ég veit að látinn lifir það er huggun harmi gegn.“ (J.H.) Dáinn í blóma lífsins. Dauðinn er grimmur, það finnst okkur oft, en þó er hann í sumum tilfellum miskunnsamur. Við eigum að minnast orða meistarans: „Ég lifí og þér munuð lifa, ég fer til míns föðurs og yðar föðurs". Þetta er dýrlegt fyrirheit. Minningin um þennan elskulega mann er svo björt, að á hana fellur enginn skuggi. Ég man hann Frið- rik sem lítinn dreng með afa sínum og frændum í leik og starfi. Við lambfé á vorin og hejrvinnu á sumr- in, en þó kannski best í alls konar leikjum með öðrum bömum á heim- ilinu. Hann átti gott með að læra og hafði mikla löngun að kaupa bækur og var sífellt að lesa þegar hann var ekki að vinna. Hann vissi hvað hann sagði, bækumar voru vinir hans. Það væri hægt að segja svo margt, því við eigum svo marg- ar bjartar minningar sem em eins og sólargeislar, sem enginn getur tekið frá okkur. Það er gott að geta minnst þess þegar lífið er dimmt og dapurt. Ef til vill stendur hann á ströndinni hinum megin og tekur brosandi á móti ástvinum sínum þegar þeirra stund er komin, hver veit? Þetta er aðeins stundar bið, þó við teljum tímann í áram þá er það örlítið brot af eilífðinni og þó við skiljum ekki af hveiju þessi sorg er lögð á foreldra og systur, þá trúum við samt að guð sé miskunnsamur, guð sé kærleik- ur. Kærar þakkir fyrir samverana. Amma Blóm og skreytingar við öll tœkifœri Olafur Ingibersson HÉR í blaðinu birtíst í gær minningargrein um Ólaf Ingi- bersson. Þau leiðu mistök urðu að foðumafn hans misritaðist í fyrirsögn og stóð Ingibergsson. Um leið og beðist er velvirðingar á mistökunum er þessi misritun leiðrétt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.