Morgunblaðið - 20.05.1987, Page 64
'ALHLIÐA PRENTWÓNUSTA
1 GuójónÓ.hf.
I 91-27233
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 20. MAI 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Fyrsti vamarliðs-
farmurinn á leiðinni
LEIGUSKIP Eimskipafélags ís-
lands, Baltic, lestaði á föstudag-
.- inn fyrsta farminn til vamarliðs-
ins. Skipið lestaði 70—80 gáma í
Norfolk í Bandaríkjunum og er
væntanlegt til Njarðvíkur eftir
helgi.
Eimskip annaðist drjúgan hluta
vamarliðsflutninganna áður en
bandaríska skipafélagið Rainbow
Navigation kom til sögunnar og
yfirtók flutningana í skjóli banda-
rískra laga. Eftir margra missera
samningaumleitanir voru flutning-
amir boðnir út og átti Eimskip
lægsta tilboðið og mun eftirleiðis
flytja 65% af vömm til vamarliðs-
ins.
Vörunum verður skipað upp í
Njarðvíkurhöfn en áður fyrr vom
skip Eimskip losuð í Reykjavík og
vömnum ekið til Keflavíkurflugvall-
ar.
Danskir sjóliðar
stálu nýjum bíl
MIKIÐ annríki var hjá lögregl-
unni í Reykjavík í gærkvöldi.
Undir miðnættið höfðu 15 manns
verið færðir í fangageymslur
vegna ölvunar, tilraunar til inn-
brots, líkamsárásar og bílþjófn-
aðar. Lögreglumenn höfðu í
gærkvöldi enga sérstaka skýr-
ingu á þessum önnum.
Tveir sjóliðar af danska varðskip-
inu „Ingolf" tóku nýjan Benz
ófrjálsri hendi i Skipholti og bmgðu
sér í ökuferð um bæinn. Hún varð
heldur endasleppt því þeir lentu í
árekstri í Breiðholti og stór-
skemmdu Benzinn. Þeir fengu
tímabunda gistingu hjá lögreglunni
fyrir verknaðinn, enda einnig gmn-
aðir um ölvun við aksturinn.
Kona var flutt á slysadeild eftir
að fyrrverandi sambýlismaður hafði
veitzt að henni. Tveir menn vom
teknir við innbrotstilraun við Rauð-
arárstíg og komu þeir lögreglunni
kunnuglega fyrir sjónir. Loks vom
tveir menn gripnir við þá iðju að
skemma bíla við Suðurlandsbraut.
Þeir sváfu ekki heima í nótt.
*
Isafjörður:
Innbrot hjá
rannsóknar-
lögreglunni
BROTIZT var inn í húsnæði
rannsóknardeildar lögregl-
unnar á ísafirði um siðustu
helgi. Málið er ekki upplýst
og virðist tilgangur innbrots-
ins óljós.
Rannsóknardeildin er ekki til
húsa í sömu byggingu og lög-
reglustöðin og því var þar engin
vakt um helgina. Innbrotið hefur
verið framið einhvem tímann á
bilinu frá föstudagssíðdegi til
sunnudags. Pétur Kr. Hafstein,
bæjarfógeti á ísafirði, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
ekki væri hægt að sjá, að neinu,
sem skaðað gæti rannsóknir ein-
stakra mála, hefði verið stolið.
Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti:
FORYSTUMENN Sjálfstæðis-
flokksins og Kvennalistans áttu
könnunarviðræður um stjómar-
myndun í rúmar sex klukku-
'stundir í gær. Að fundinum
loknum sögðu þeir að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar
um framhald viðræðnanna. Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði að ekki
lægi fyrir hvort rætt yrði við
fulltrúa Borgaraflokksins í dag,
en að því kæmi þegar viðræðun-
við Kvennalistann væri lokið.
Fundur Sjálfstæðisflokksins og
Kvennalistans hófst kl. 11:00 í
gærmorgun, en hlé var gert milli
kl. 13:00 og 15:00. Fundinum lauk
upp úr klukkan hálf átta. Af hálfu
Sjálfstæðisflokksins tóku þátt í við-
ræðunum Þorsteinn Pálsson og
Friðrik Sophusson. Af hálfu
Kvennalistans mættu Guðrún Agn-
arsdóttir, Kristín Einarsdóttir og
Danfríður Skarphéðinsdóttir. Þegar
fundinum lauk komu þeir Ólafur
G. Einarsson, Halldór Blöndal og
Birgir ísleifur Gunnarsson, sem eru
í stjórn þingflokks sjálfstæðis-
manna, til viðræðna við Þorstein
og Friðrik.
Forystumenn flokkanna vildu
ekkert láta hafa eftir sér um efnis-
atriði viðræðnanna, en sögðu að
ýtarlega hefði verið farið yfír mikil-
vægustu málaflokka og skipst á
skoðunum. Þorsteinn Pálsson lagði
áherslu á að ekki væri verið að
semja á fundinum og því ekki rétt
að tala um möguleika á samkomu-
lagi flokkanna á þessu stigi.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
sagði að viðræðurnar hefðu verið
„mjög gagnlegar". Guðrún Agnars-
dóttir sagði að stjómarmynstur
hefði borið á góma en vildi ekki
svara því hvort skipan ráðherra-
embætta hefði verið rædd. Hún
kvað Kvennalistakonur eiga eftir
að hittast og ræða það sem fram
hefði komið á fundinum í gær áður
en þær tækju afstöðu til þess hver
ættu að verða næstu skref.
Morgunblaðið/Bjami
Við upphaf viðræðna Sjálfstæðisflokksins og Kvennalistans í Borgartúni 6 í gærmorgun. F.v. Friðrik
Sophusson, Kristín Einarsdóttir, Þorsteinn Pálsson, Guðrún Agnarsdóttir og Danfríður Skarphéðins-
dóttir.
Skipverjar á Ala-
fossi játa smygl
TUTTUGU skipveijar á Álafossi
hafa viðurkennt að hafa smyglað
14-1500 flöskum af áfengi til
landsins á síðasta ári. Nú er unn-
ið að því að upplýsa hvort áfengi
hafi einnig verið smyglað hingað
með Eyrarfossi.
Rannsóknarlögreglan, í náinni
samvinnu við tollgæsluna, hefur
unnið að rannsókn Álafossmálsins
síðustu mánuði. Upphaf þess var
að starfsmenn tollgæslunnar grun-
aði að áfengi væri smyglað til
landsins með Álafossi, en höfðu
ekki erindi sem erfíði þegar þess
var leitað. Upplýsinga var aflað hjá
yfirvöldum erlendis um áfengiskaup
skipverjanna og þegar þær lágu
fyrir sneri tollgæslustjóri sér til
rannsóknarlögreglunnar. Nú hafa
tuttugu skipveijar á Álafossi viður-
kennt að hafa smyglað 14-1500
flöskum af áfengi til landsins á
síðasta ári og í einni ferð nú í maí.
Áfengið var selt hér á landi, fyrir
utan þann hluta sem skipveijar
neyttu sjálfír.
Þórir Oddsson, vararannsóknar-
lögreglustjóri, staðfesti í gær að
einnig væri verið að rannsaka mál
sem tengdist öðru skipi Eimskipafé-
lagsins, Eyrarfossi. Hann kvaðst
þó ekki geta tjáð sig um það á
þessu stigi.
Viðræður í sex tíma og
óljóst um framhaldið