Morgunblaðið - 27.05.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.05.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987 Lítið niiðar í viðræðum um stjómarmyndmi Kjaramál og efnahagsmál til umræðu í gær LÍTIÐ sem ekkert miðaði í stjómarmyndunarviðræðum Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Kvennalista í gær. Komist ekki hreyfing á þessar viðræður í dag má búast við, að Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem tók að sér stjórnarmyndun fyrir tæpum tveimur vikum, taki til athugunar, hvort ástæða sé til að halda þess- um viðræðum áfram. Á fundi viðræðuaðila í gær vom kjaramál til umræðu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Þorsteinn Páls- son hafa lagt fram ákveðnar hugmyndir um meðferð þeirra en lítil svör fengið frá fulltrúum Alþýðuflokks og Kvennalista. Búast má við að þessar hugmyndir formanns Sjálfstæðisflokksins komi til umræðu á ný í dag. Af hálfu Alþýðuflokksins var samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins lögð áherzla á umræður um stöðu efnahagsmála og aðgerðir í þeim, þ. á m. ríkisfjármálum, áður en afstaða væri tekin til kjaramála. Timburhúsið er gerónýtt. Skagaströnd: Morgunblaðið/ÓB Gatnalt tímburhús eyðilagðist í eldi Kristín Halldórsdóttir, þingmað- ur Kvennalista, kvað „nei“ við, þegar hún kom af viðræðufundinum og blaðamaður Morgunblaðsins spurði hana hvort fulltrúar Kvenna- lista hefðu fengið fullnægjandi svör við kröfu sinni um að ákveðin lág- markslaun væru tryggð í landinu, þannig að þær gætu farið að ræða önnur atriði hugsanlegs stjómar- sáttmála. Þorsteinn Pálsson var í gær spurður hversvegna fulltrúar Kvennalista hefðu ekki fengið skýr svör við lágmarkslaunakröfu sinni: „Það er alveg ljóst að samningar um myndun nýrrar ríkisstjómar geta aldrei snúist um einhveija eina kröfu eins samningsaðila. Ef ein- hver er þeirrar skoðunar, þá fer hann villur vegar, hvort sem það eru einhveijir innan þeirra flokka sem eiga aðild að viðræðunum eða utan. Við höfum haft hug á því að greiða fyrir því að bæta stöðu þeirra lakast settu í þjóðfélaginu. Við vilj- um hins vegar ekki gera það eftir hefðbundnum verðbólguleiðum og við viljum ekki gera það með því að afnema samningsréttinn. Og það liggur í hlutarins eðli að við förum varlega í skattamálum. Auk þess er grundvallarafstaða Sjálfstæðis- flokksins í utanríkis- og vamarmál- um skýr,“ sagði Þorsteinn. Þá hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því úr röðum alþýðuflokks- manna, að þeir séu síður en svo bjartsýnir á að þetta stjómarmynst- ur geti orðið að vemleika. Telja þeir allt eins líklegt að þreifíngum í þá vem ljúki í dag. Samkvæmt sömu heimildum mun vera ágrein- ingur um það á milli fulltrúa Alþýðuflokks annars vegar og full- trúa Sjálfstæðisflokks hins vegar hversu fljótt, á kjörtímabilinu eigi að hrinda ákveðnum aðgerðum í framkvæmd og með hvaða hætti. Viðræðum þessara aðila verður framhaldið kl. 10.30 í dag og er búist við að þær standi fram eftir degi. Ætlunin er að ræða skatta- mál, efnahagsmál og utanríkismál í dag. SÆBÓL, sem er gamalt timbur- hús á Skagaströnd, eyðilagðist í eldi f fyrrinótt. í húsinu var einn ungur maður sofandi er eldurinn kom upp. Slapp hann naumlega út með því að bijóta glugga og henda sér þar út á nærklæðun- um, blóðugur og sviðinn. Hann brenndist illa á höndum og and- Uti og skarst nokkuð. Fékk hann aðhlynningu á héraðshælinu á Blönduósi og var síðan fluttur í sjúkrahús i Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Eldurinn kom upp um klukkan 5.30 í fyrrinótt og kom slökkviliðið á Skagaströnd fljótlega á staðinn. Þá logaði glatt í húsinu. Slökkvi- starfínu lauk á níunda tímanum. Allt innbú í húsinu brann en það var ótryggt og húsið sjálft lágt tryggt _ qB Reynt að ná sam- komulagí við Breta Skreiðarskuldir Nígeríumanna: Óvíst á775 GREIÐSLUR á skreið og hausum, sem undanfarin misseri hafa ver- ið flutt til Nigeríu, að verðmæti um 775 milljónir króna, hafa enn ekki borizt hingað heim og algjör óvissa er talin á þvi, hvort féð berst eða ekki. Skreið þessi er flutt utan af íslenzku umboðssölunni og Samlagi skreiðarframleiðenda. Sambandið hefur flutt út, selt og fengið greidda alla skreið félagsmanna sinna. um greiðslur milljóniim kr. ÍSLENDINGAR munu, í samráði við Dani, senda Bretum orðsend- Tillögur sam- þykktarvegna burðarþols BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögur Daviðs Oddssonar og að hluta tillögur minnihlutans um meðferð byggingarmála í Reykjavík. Tillaga borgarstjóra var samþykkt óbreytt en hún gerir ráð fyrir að burðarþolsreikningar verði undan- tekningarlaust lagðir fram með uppdráttum af burðarvirkjum og að með byggingarleyfísumsókn til byggingamefndar fylgi áritun burð- arþolshönnuðar. Burðarþolshönnun einingahúsa, allra opinberra bygg- inga og veitumannvirkja, ásamt iðnaðar-, verslunar- og þjónustuhúsa og íbúðarhúsa hærri en fjórar hæðir, fái sérstaka umsögn. Tillögur minnihlutans um sama mál voru samþykktar með nokkrum orðalagsbreytingum en samþykkt fjórða liðs var frestað. f þeim lið er lagt til að embætti byggingarfulltrúa verði tekið til gagngerrar endur- skipulagningar. ingu þess efnis að þeir leggi áherslu á að samkomulag náist um vísindarannsóknir Breta ann- arsvegar og íslendinga og Dana hinsvegar á Hatton-Rockall-svæð- inu og þeir séu tilbúnir til við- ræðna nú þegar. Bretar hafa tilkynnt íslendingum að þeir sam- þykki ekki fyrirhugaðan leiðang- ur íslendinga og Dana i sumar þar sem hann geti truflað þeirra eigin rannsóknir en írar hafa hinsvegar samþykkt slíkan leiðangur. Matthías Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra gerði ríkisstjóminni og utanríkismálanefnd Alþingis í gær grein fyrir þeirri orðsendingu sem Bretar og írar hafa sent íslendingum vegna rannsóknanna á Hatton Roc- kall-svæðinu og voru næstu viðbrögð íslendinga rædd. „Við munum að sjálfsögðu senda þeim í samráði við Dani orðsendingu þess efnis að við höldum fram okkar rétti, samkvæmt reglugerð sem hér var gefin út 9. maí 1985 um landgrunn Islands. Við leggjum samt áherslu á að samkomu- lag náist um vísindarannsóknir á vegum Breta og fslendinga og Dana,“ sagði Matthías Á. Mathiesen í samtali við Morgunblaðið í gær. Matthías sagði að unnið yrði að samhljóða yfírlýsingu frá fslending- um og Dönum til Breta vegna þessa máls á næstunni. í gær var aðalfundur Samlags skreiðarframleiðenda og var framtíð samlagsins meðal annars rædd þar í Ijósi núverandi að- stæðna. Skreiðardeild Sambandsins fundaði einnig í gær og loks fund- uðu hagsmunasamtök skreiðar- framleiðenda um stöðuna í gærkvöldi. Björgvin Jónsson í Glettingi er formaður hagsmunasamtaka skreiðarframleiðenda. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að algjör óvissa ríkti með greiðslur fyrir 27.000 pakka af skreið og 12.000 pakka af hausum, sem selt hefði verið manni að nafni Naidoo af Skreiðarsamlaginu og íslenzku umboðssölunni. Skilaverðmæti þessa væri um 200 milljónir króna. „Ennfremur ríkir algjör óvissa með greiðslur fyrir 48.000 pakka af hausum, skilaverðmæti 57 milljónir, sem fóru utan á vegum íslenzku umboðssölunnar og 61.000 pökkum af skreið að verðmæti 380 milljónir króna, en sá farmur fór utan með skipinu Horsham, einnig á vegum íslenzku umboðssölunnar. Þá er óvíst að 120 milljónir af þeim 160, sem Nígeríumenn skulda okkur frá árunum 1981 til 1983, skili sér. 31.000 pakkar af skreið fóru fyrir nokkru utan með flutningaskipinu Hvalvík á vegum Skreiðarsamlags- ins. Líklegt er talið, að eitthvað fáist fyrir þá skreið. Skreiðardeild Sambandsins hefur hins vegar selt og fengið greidda alla skreið félags- manna sinna. Staðan er ljót, útistandandi skuldir miklar og auk þess er skreiðin öll seld með 45% afslætti frá því verði, sem áður gilti,“ sagði Björgvin Jónsson. Snarpur skjálfti vaktí Húsvíkinga ALLSNARPUR jarðskjálftakippur fannst á Húsavík um kl. 2.45 aðfaranótt þriðjudags og var hann það snarpur að meiri- hluti bæjarbúa mun hafa vaknað við hann, að sögn Sigurðar P. Björnssonar, fréttaritara á Húsavík. Annar minni skjálfti fylgdi fast á eftir. í gærmorgun varð einnig skjálfti í Vatna- fjöllum og mældist hann um 3,2 á Richter. Samkvæmt mælingum komu samtals tuttugu kippir fyrir norðan. Sá stærsti sem kom fyrst mun hafa verið um 4,2 stig á Richter. Upptökin eru talin hafa verið vestur af Húsavík í stefnu á Flatey á Skjálfandaflóa. Skjálftans mun hafa orðið meira vart í suðvest- urátt og suður en austur. Hans var vart í Aðaldal og allt til Eyjaijarðar og Akureyrar en þeir sem haft var samband við á Kópaskeri og á Raufarhöfn höfðu ekki orðið varir við hann. Að sögn Ragnars Stefánsson- ar jarðskjálftafræðings á Veðurstofu Islands virðast vera tengsl á milli þessa skjálfta og hinna snörpu skjálfta, sem urðu á mánudag. „Þegar jarðskjálfti verður, aukast líkurnar á því að hreyfíng verði annars staðar í kjölfar þess að spenna fer yfír mörkin. Fyrir norðan hefur spennan farið upp fyrir brota- mark og er því spurning, hvort það gerist annars staðar á belt- inu; það ætti að koma í ljós á næstu sólarhringum." Um skjálftann í VatnaQöllum sagði Ragnar, að þarna væri líklega um eftirhreytur af stóra skjálftanum að ræða, sem or- sökuðust af kvikuhreyfingum í kjölfar skjálftans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.