Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987
Lind hf.:
Minningarsjóður um
Jean Pierre Jacquillat
Morgunblaðið/Sverrir
Erlendur Einarsson, stjórnarformaður Lindar, afhendir Cecile
Jacquillat stofnskrá minningarsjóðsins að viðstöddum forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbog-adóttur.
MINNINGARSJÓÐUR um
franska hljómsveitarstjórann
og Islandsvininn Jean Pierre
Jacquillat var formlega stofn-
aður í gær að viðstöddum
ekkju hans, Cecile Jacquillat,
frú Vigdísi Finnbogadóttur
forseta og sendiherra Frakka
á Islandi, Yves Mas. Það er
fjármögnunarfélagið Lind,
sem gengst fyrir stofnun
sjóðsins.
Erlendur Einarsson formaður
stjórnar Lindar ávarpaði gesti,
sem viðstaddir voru stofnun
sjóðsins. Gat hann þess, að
stofnfé sjóðsins væri 2.500.000
kr. og greiddist það í áföngum
á 5 árum. Einnig tæki sjóðurinn
við framlögum og gjöfum.
Að sögn Erlends er það hlut-
verk sjóðsins að styrkja tónlist-
arfólk til að afla sér aukinnar
menntunar og reynslu á sviði
tónlistar. „Markmiðið með stofn-
un sjóðsins er fyrst og fremst
að halda nafni Jean Pierre
Jacquillat á lofti og því merka
framlagi, sem hann lagði til
íslenskra tónlistarmála sem að-
alstjórnandi Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands um árabil. Þá vill
stjórn Lindar ekki síður heiðra
minningu mikils íslandsvinar,
sem með störfum sínum ávann
sér virðingu og vináttu fjöl-
margra íslendinga."
Jean Pierre Jacquillat fæddist
í Versölum 13. júlí 1935. Að
loknu tónlistamámi í Conser-
vatoire National Superieur de
Musique í París var hann ráðinn
aðstoðarhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í París.
Árið 1970 var hann ráðinn að-
stoðarhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitannnar í Anger
og ári síðar við Ópemna í Lyon
og hjá Rhone-Alphes-hljóm-
sveitinni. í kjölfar þessa var
hann fenginn til þess að stjóma
óperuuppfærslum víða um heim.
Arið 1975 fluttist Jean Pierre
Jacquillat aftur til Parísar 'og
gegndi um tveggja ára skeið
starfí tónlistarráðgjafa hinnar
frægu Lamoureux-hljómsveitar.
Síðustu árin var Jean Pierre eft-
irsóttur sem gestastjórnandi
víða um heim.
Jean Pierre Jacquillat kom
fyrst til starfa hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands 1972, en var
ráðinn þar aðalstjómandi 1980
og gegndi því til loka starfsárs-
ins 1985-86. Þá stjórnaði hann
tónleikum og gerði upptökur
fyrir útvarp og sjónvarp og
hljómplötur. Fyrir tilstilli hans
fór hljómsveitin í tónleikaferð til
Frakklands.
Jean Pierre Jacquillat lést af
slysfömm í Frakklandi hinn 11.
ágúst 1986.
Fjármögnunarfyrirtækið Lind
er í eigu Samvinnubanka ís-
lands, Samvinnusjóðs Islands og
Banque Indosuez.
í lok ávarps síns sagði Erlend-
ur Einarsson: „Sú staðreynd
varð m.a. þess valdandi, að
stjórn Lindar hf. ákvað að stofna
Minningarsjóðinn og vildi með
því sýna hug sinn til eflingar
tónlistar á Islandi, en það var
einmitt eitt af áhugamálum Jean
Pierre Jacquillat. Stjórn Lindar
vildi líka með þessari ákvörðun
leggja áherslu á góð menningar-
samskipti milli Frakklands og
íslands."
I stjóm Minningarsjóðsins
eiga sæti Cecile Jacquillat, Er-
lendur Einarsson, Þorsteinn
Ólafsson, Philippe Wauquiez.
Að loknu ávarpi Erlends Ein-
arssonar undirritaði stjórn
Lindar stofnsamning Minning-
arsjóðsins og afhenti Erlendur
að því búnu ekkju hljómsveitar-
stjórans, Cecile Jacquillat,
eintak stofnsamningsins. Hún
flutti stutt ávarp og fer það hér
í þýðingu Þorsteins Ólafssonar:
„Forseti íslands, ráðherra,
sendiherra, kæm vinir!
Þessi atburður hér í dag er
fyrir mér annað og meira en
opinber tilkynning um stofnun
Minningarsjóðs Lindar hf. um
Jean Pierre Jacquillat. Þessi at-
burður hefur merkingu, sem á
sér enga hliðstæðu. Hann er til
marks um hinar miklu vinsældir
Jean Pierre Jacquillat í þessu
landi, landi, sem var honum sem
annað föðurland, landi, sem
hann unni og það ekki að
ástæðulausu, landi, sem ég mun
nú tileinka mér.
Á íslandi var honum búin
aðstaða til að vinna gott verk
með Sinfóníuhljómsveitinni, sem
hann batt svo miklar vonir við
og framtíðaráform og þar sem
hann átti svo marga og góða
vini. Þessir góðu vinir vom við-
staddir 22. maí 1986, — og þeir
em hér í dag. Þeir voru fyrst
og fremst vinir hans, síðan urðu
þeir vinir okkar beggja og nú
og framvegis verða þeir vinii’
mínir.
Jean Pierre svarar ekki lengur
í síma 29900 á Hótel Sögu sem
í svo mörg ár var honum sem
annað heimili. En ég veit að
hann er hér með okkur í dag.
Ég veit að hann mun hjálpa
okkur að gera undursamlega
hluti, og ég veit að með stuðn-
ingi frá sjóðnum verður íslensk-
um tónlistarmönnum gert kleift
að ná enn lengra í list sinni. Því
vil ég þakka þeim Erlendi Ein-
arssyni, Þorsteini Ólafssyni og
Philippe Wauquie, sem við Jean
Pierre erum búin að þekkja svo
lengi og höfum átt svo margar
kvöldstundir með í Chambon sur
Lignon. Okkur er það bæði ljúft
og skylt að að þakka þeim og
öðmm stjórnarmönnum Lindar
fyrir fmmkvæði þeirra, sem varð
til þess að þessi hugmynd er að
verða að vemleika — nú í dag,
26. maí 1987.
Ykkur öllum sem hér em við-
staddir: Yður, forseti íslands,
sem sæmt hafið Jean Pierre
Jacquillat íslensku Fálkaorð-
unni, ykkur, vinum hans, sem
hér em fulltrúar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, ykkur öllum,
tryggu vinir, vil ég færa þær
einu og sönnu þakkir sem ég
þekki: — þakkir frá hjartanu.
Því þakka ég ykkur af öllu hjarta
og segi: Þakka ykkur fyrir.
Morgunblaðið/Börkur
Bamabókarverðlaun skólamálaráðs Reykjavíkur voru afhent í gær. Á myndinni em Dav-'ð Oddsson,
borgarstjóri, sem afhenti verðlaunin, Kristín R. Thorlacius, sem fékk verðlaun fyrir þýðingu sína á bók-
inni Sigling Dagfara, frú Halldóra Eldjárn, sem tók við verðlaunum dóttur sinnar, Sigrúnar, fyrir bókina
Bé Tveir og Bragi Jósepsson, formaður bókasafnsnefndar skólamálaráðs, en nefndin valdi bækumar.
Barnabókaverðlaun skólamálaráðs:
Bé Tveir og Sigling Da g-
fara bestu bækurnar
SIGRÚN Eldjám og Kristín R.
Thorlacius hiutu í gær verðlaun
skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir
bestu fmmsömdu og bestu þýddu
barnabókina sem út kom á síðasta
ári. Þessar bækur era Bé Tveir
og Sigling Dagfara. Verðlaunin
vom afhent í Höfða í gær.
Davíð Oddsson, borgarstjóri flutti
stutta tölu áður en verðlaunin vom
afhent og sagði meðal annars, að
þessi verðlaun væm nú afhent í 15.
skipti. Hanr. kvaðst vera hreykinn
af því að afhenda þessi verðlaun og
sagði að hin síðari ár hefðu fleiri
aðilar en Reykjavíkurborg tekið upp
á því að veita verðlaun fyrir bestu
barnabækumar og væri það vel. Að
máli borgarstjóra loknu tilkynnti
Bragi Jósepsson, formaður bóka-
safnsnefndar skólamálaráðs, hverjir
hefðu hlotið verðlaunin, en bóka-
safnsnefnd valdi bækumar. Auk
Braga eiga sæti í nefndinni þær
Ásdís Guðmundsdóttir og Kristín
Amalds. Bragi sagði að verðlaunin
hefðu öivandi áhrif á höfunda og
þýðendur og blésu lífi í útgáfu bama-
bóka. Þá afhenti borgarstjóri verð-
launin.
Sigrún Eldjárn hlaut verðlaun fyr-
ir bestu fmmsömdu barnabókina,
Bé Tveir, sem Qallar um samskipti
mennskra barna og geimvem, sem
lendir farartæki sínu í bakgarðinum
heima hjá bömunum. Sigrún mynd-
skreytti bókina sjálf, en Forlagið sá
um útgáfu hennar. Sigiún Eldjárn
hefur skrifað og myndskreytt fjórar
aðrar barnabækur, auk þess sem
hún hefur myndskreytt bækur ann-
arra höfunda. Móðir hennar, frú
Halldóra Eldjárn, veitti verðlaunum
viðtöku fyrir hönd dóttur sinnar, sem
dvelst erlendis.
Verðlaun fyrir bestu þýðingu á
barnabók hiaut Kristín R. Thorla-
cius, sem þýddi bókina Sigling
Dagfara, eftir C.S. Lewis. Þessi bók
er sú þriðja í röð bóka þessa höfund-
ar sem Kristín þýðir og lét Bragi
Jósepsson í Ijósi óskir um að hún
þýddi þær ijórar bækur höfundarins
sem enn væm óþýddar á íslensku.
Kjörorð landsþings JC á Selfossi:
„Islensk framleiðsla
- öflugt byggðarlag“
26. LANDSÞING JC-hreyfingar-
innar á Islandi verður haldið á
Hótel Selfossi dagana 28.—30.
maí nk. JC-Selfoss sér um fram-
kvæmd á þinghaidinu að þessu
sinni og er dagskrá þingsins
óvenju fjölbreytt. Þetta er í 3ja
sinn sem JC-Selfoss sér um fram-
kvæmdir en áður hefur JC-Sel-
foss haldið þing 1982 og 1977.
Mikill fjöldi JC-fólks úr öllum
landshlutum skráði sig til þings og
verða þátttakendur hátt í 300.
Þingið hefst með setningarathöfn í
aðalsal Hótels Selfoss fimmtudag-
inn 28. maí en lýkur með lokahófi
og verðlaunaafhendingu laugardag-
inn 30. maí.
Auk venjulegra þingstarfa, þar
sem stefna hreyfingarinnar er
mörkuð og ný stjórn kjörin, eru á
dagskránni 6. námskeið þar sem
hin ýmsu verkefni em tekin fyrir.
Hæfustu leiðbeincndur landsins
leggja þar JC-fólki lið og má þar
nefna námskeið í tímastjómun,
mannlegum samskiptum o.fl. Þá
fara fram á þinginu úrslitakeppnir
í ræðumennsku en undankeppnir
hafa staðið yfir frá því í haust. Þar
keppa til úrslita annarsvegar tveir
einstaklingar í rökræðueinvígi og
hins vegar tvö lið skipuð 4 ræðu-
mönnum sem keppa í mælsku og
rökræðulist.
Kjörorð þingsins em „Islensk
framleiðsla — öflugt byggðarlag"
og mun það hafa áhrif á ýmsa dag-
skrárliði þingsins. Markmiðið með
því er að vekja athygli á fram-
Ieiðslu byggðalagsins, og að búa
JC-fólk undir verkefni næsta starfs-
árs sem tengd verða kjörorðinu.
Eins og áður sagði er dagskrá
þingsins fjölbreytt og stendur frá
kl. 8.00 á morgnana og fram á
kvöld alla þingdagana. Segja má
að þingdagana setjist JC-fóIk á
skólabekk og afli sér aukinnar
þekkingar til stærri átaka fyrir sig
og byggðarlag sitt.
JC-hreyfingin á íslandi er nú 26
ára og eru í henni um 900 manns
á aldrinum 18—40 ára. Starfsemin
fer fram í 25 félögum vítt og breitt
um landið en einu sinni á ári kemur
JC-fólk saman til landsþings sem
segja má að sé uppskeruhátíð, skóli
og skipulag næsta starfsárs.
I ljósi reynslunnar og stórbættrar
aðstöðu á Selfossi sést að þar er
kjörinn vettvangur fyrir ráðstefnu-
hald og fundi ýmiskonar.
• •
Okumenn
gálausir
í blíðunni
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði
í nógu að snúast í gær, því marg-
ir árekstrar urðu í umferðinni
og óvenju harðir. Meiðsii fólks
voru þó ekki mikil.
Um kvöldmatarleitið í gær höfðu
orðið tæplega þrjátíu árekstrar í
Reykjavík einni frá því klukkan sjö
um morguninn. Flestir voru
árekstrarnir óvenju harðir og eigna-
tjón því mikið. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu virðist sem gáleysi
ökumanna fari vaxandi í góðu veðri
og þeim sé gjarnt á að hafa hugann
við allt annað en aksturinn.