Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
39
Tívolí í
Laugardal?
eftir ÖlafB.
*
Olafsson
Háttvirti borgarstjóri hr. Davíð
Oddsson.
Nokkrar blaðagreinar hafa birst
um fyrirhugað tívolí í Laugardal.
Hugmyndin hefur ýmsa ókosti í för
með sér að mati undirritaðs, og er
það tilefni eftirfarandi greinar.
Hvers vegna ekki
tívolí í Laugardal?
Vegna þess, að fleira mælir gegn
því en með því. Vil ég leyfa mér
að nefna eftirfarandi dæmi sem rök:
1. Það myndi stórspilla þeim anda
sem í dalnum ríkir, þ.e. anda nátt-
úrufriðsældar, íþróttaiðkana og
fegurðar. Einnig yrði lítill svefnfrið-
ur á tjaldsvæðinu þar og minni
friður almennt.
2. Ibúarnir í hverfunum í kring eiga
einnig sinn rétt engu síður en tjald-
ferðalangar. Hvað um það, þegar
aukin umferð, glamurhávaði sem
fylgir svona skemmtigörðum og
bréfaruslið fer að ráða ríkjum í dal
friðsældarinnar?
3. Er samkeppni við Hveragerði
nauðsynleg. Öll samkeppni er nauð-
synleg segja margir. Það eru mikil
sannindi en eiga ekki við um þenn-
an skemmtigarð. Fólk er fljótt að
átta sig, ef miðaverð á skemmti-
görðum er orðið óeðlilega hátt og
hættir þá einfaldlega að koma. Er
fólkið sjálft nógu mikið aðhald
gagnvart miðaverði að mínu viti.
Einnig er þetta spurning um heiðar-
lega samkeppni, ef Laugardalstívo-
líið ætlar aðeins að hafa opið þá
mánuði, er mest gefa af sér.
Skemmtigarðurinn í Hveragerði er
líka það nálægt Reykjavík, að hann
nýtist Reykvíkingum mjög vel,ef
rétt er á haldið og nánar verður
vikið að hér á eftir. Gæti ég trúað
því, að margir Reykvíkingar og
aðrir landsmenn myndu sakna þess,
ef Hveragerði þyrfti að loka sínum-
skemmtigarði vegna minnkandi
aðsóknar, sem óhjákvæmilega yrði,
ef tívolí yrði opnað í Reykjavík.
Ber Reykjavík að
vernda „litla“
Hveragerði?
Já að mati undirritaðs hofur höf-
uðborg Iandsins nokkrar skyldur
gagnvart landsbyggðinni allri. Það
er ekki eðlilegt, að skemmtigarður
rísi í Reykjavík og sé rekinn þar
þá mánuði, sem mest gefa af sér í
svona starfsemi, og taka spón úr
aski Hveragerðis, er nú þegar hefur
lagt í ærinn kostnað við að gera
sii ' skemmtigai'i sem hestan.
Skemmtigarðurinn austur þar er
heldur ekki hugsaður sem stundar-
fyrirbrigði að sumri til eins og
Laugardalstívolíið. Reykjavíkur-
borg ætti að mínu viti frekar að
stuðla að því með ýmsu móti, að
borgarbörnin komist í skemmti-
garðinn í Hveragerði, heldur en að
vera uppi með hugmyndir um-
skemmtigarð í Laugardal.
Vaxandi atvinnugrein
Ekki má líta framhjá því er þetta
mál er skoðað, að myndarleg upp-
bygging hefur átt sér stað í ferða-
þjónustu austanfjalls, bæði í
Hveragerði og víðar. Margir þekkja
dýrðarstaðinn Eden og myndarlegt
hótel er nú risið í Hveragerði. Einn-
ig er vaxandi þjónusta á Selfossi
og Hvolsvelli og víða um sveitirnar
ekki síst á Laugarvatni, í Hauka-
dal, á Flúðum og ýmsum fleiri
stöðum, sem ekki verða nefndir
hér. Benda má einnig á, að einn
helgasti staður þjóðarinnar Þing-
vellir, er ekki langt undan og tengist
„hringnum“ austur fyrir fjall.
Er rétt að nefna ferða-
þjónustu austan fjalls
er tívolí í Laugardal
er til umfjöllunar?
Já hárrétt að mati höfundar. Öll
umferð austur fyrir fjall helst í
hendur, ef svo má segja. Bæði fjöl-
skyldur og ferðalangar sækja
þangað og njóta þess að sækja hina
ýmsu ferðaþjónustustaði heim.
Hvort sem það er skemmtigarður-
inn í Hveragerði, íshestar nálægt
Laugarvatni, sem hvorutveggja eru
góð dæmi um myndarskap í þessum
efnum, eða eitthvað annað, þá er
ekkert réttlæti í því að bjóða uppá
samskonar þjónustu inní miðri
Reykjavík, eins og höfundur telur
að gert yrði með tívolíi í Laugardal.
Á þá Reykjavík engan
rétt í ferðaþjónustunni?
Jú tvímælalaust. Reykjavík verð-
ur alltaf nafli þjóðarinnar og hefur
Ólafur B. Ólafsson
„Já, að mati undirritaðs
hefur höfuðborg' lands-
ins nokkrar skyldur
gagnvart landsbyggð-
inni allri. Það er ekki
eðlilegt, að skemmti-
garður rísi í Reykjavík
og sé rekinn þar þá
mánuði, sem mest gefa
af sér í svona starf-
semi, og taka spón úr
aski Hveragerðis.“
það forskot, sem höfuðborg, að
þangað koma flestallir ferðamenn
hvort sem er. Sem betur fer er þar
líka margt nú þegar, sem ferða-
menn sækja í og ekkert nema gott
eitt um það að segja. Með því að
sperrast í ýmsu því, sem boðið er
uppá í nálægum byggðarlögum, er
hætta á ferðinni eins og áður var
vikið að. Ferðaþjónustan og tóm-
stundagamanið fyrir börnin yrði
ekki eins skemmtilega uppbyggt að
mati höfundar ef flest allir þættirn-
ir söfnuðust saman á einn stað,
þ.e. Reykjavík. Höfuðborgin hefur
líka sem betur fer svo margþætta
starfsemi uppá að bjóða, að ekki
er nokkuð sem kallar á það að draga
til sín fleiri störf í ferðaþjón-
ustunni, nema í g'oðu hófi. Lands-
^yggðin þarf hins vegar frekar á
þessum ferðaþjónustustörfum að
halda, því t.d. landbúnaðarstörfin
taka ekki við svo mörgu fólki, og
því þarf að skapa landsbyggðarfólk-
inu ný störf á sínum heimaslóðum.
Vil ég þá draum
Jörundar feigan?
Ekki vil ég Jörundi Guðmunds-
syni neitt illt með þessum skrifum,
enda á hann allt gott skilið t.d.
fyrir framlag sitt sem skemmti-
kraftur. í aðra röndina held ég, að
ég skilji draum hans um skemmti-
garð fyrir reykvíska æsku o.fl.
Hugsanlega geri ég honum þó stór-
greiða með þessari grein. Tívolí í
Laugardal getur verið mjög tvírætt
fjármálaævintýri. Draumur Jörund-
ar um skemmtigarð þarna gæti
breyst í verstu martröð. Og þó svo
þetta gæti staðið undir sér verður
þetta tívolímál alltaf svo umdeilt,
að hætta er á því, að Jörundur fái
meiri ama en ánægju af þessu
máli. Sem betur fer er Jöruundur
svo fjölhæfur maður,að hann getur
látið drauma sína rætast í öðrum
hugmyndum en tívolíi í Laugardal.
Einhveiju sem ekki er til í „næsta
nágrenni", eins og Hveragerði verð-
ur að teljast í þessu máli.Einhveiju
nýju er komið gæti, sem gott inn-
legg til viðbótar því sem fyrir er.
Ekki tel ég þó heppilegt að stefna
húllumhæinu inn í Laugardal eins
og áður var vikið að.
Ágæti borgarstjóri. Þó ég nefni
Jörund Guðmundsson hér, veit ég
vel að hugmyndin umskemmtigarð
í Laugardal er upphaflega ekki frá
honum komin, og því stíla ég þessi
skrif til yðar. Hugmyndin um Laug-
ardalsskemmtigarðinn var sett
fram í góðum tilgangi en forsendur
aðrar þá en í dag. Borgin hefur
staðið sig prýðilega gagnvart æsku-
fólkinu t.d. með skeleggri fram-
göngu í íþróttauppbyggingu,
stuðningi viðbyggingu reiðhallar
o.fl. Með því að stefna tívolíferðum
ungdómsins til Hveragerðis bætir^
borgin enn einni skrautfjöður í hatt
sinn án þess að taka áhættuna á
að spilla Laugardalnum.
Að lokum þetta
Gera má ráð fyrir að einhveijir
séu ósammála þessum skrifum.
Vænti ég þess að þeir, sem hugsan-
lega koma með mótskrif, svari
eftirfarandi meginatriðum:
1) Spillingu umhverfis og ónæði í
Laugardal.
b) Samkeppni við skemmtigarðinn
í Hveragerði.
e) Ferðaþjónustan og uppbygging
ferðamála í ljósi þjóðarheillar.
Eru þessi þijú atriði meginrök
undirritaðs gegn skemmtigarði í
Laugardal eins og hér hefur komið
fram.
Friðarkveðjur.
Höfundur er kennari og stundar
framhaldsnám í Danmörku.
Enginn fer skólaus frá okkur
$kóvíd
við Óðinstorg.
Innan þeirra fyrirtækja er nota einkatölvur
er nauðsyn að hafa starfsmenn með þekkingu
á innviðum og búnaði tölvukerfisins.
Tilgangur Ms Dos námskeiðanna er að gera
starfsmenn sem hafa umsjón með
einkatölvum sjálfstæða í meðferð búnað-
arins. Þátttakendum er veitt
innsýn í uppbyggingu stýri-
kerfa og hvernig þau starfa.
Farið er yfir allar skipanir stýri-
kerfisins og hjálparforrit þess.
Kennd verður tenging jaðar-
tækja við stýrikerfi og vél og
rætt um öryggisatriði og
daglegan rekstur.
Leiðbeinandi: Björn H. Guðmundsson kerfisfræðingur.
Tími og staður: 1.-4. júní 1987 kl. 13.30-17.30.
SciórnunarfélaQ islands
Ananaustum 15 Sími: 6210 66
^CORSA
OPEL
BiLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Það er ekki að ástæðulausu
að OPEL CORSA er nú einn söluhæsti
og vinsælasti bíll Evrópu
jafnt meðal einstaklinga sem bílaleiga.
Þeirvita
að það má treysta á OPEL CORSA
þótt hann vökni, þótt hann snjói,
þótt hann frysti.
Pú ættir að slást í hóp þeirra öruggu
og vera viss um aö komast
á leiðarenda.
mmur{
Vertu viss!
Veldu CORSA!
■©■ GM
DPEL m^"m