Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987 43 Dómkirkjan; Dagur aldraðra á inorgnn Á MORGUN, uppstigiiing'ardag', er dagur aldraðra í kirkjunni. Af því tilefni verður messan í Dómkirkjunni á breyttum tíma og hefst kl. 2 e.h. Þar prédikar Hans Jörgensson, formaður Samtaka aldraðra, en sr. Þórir Stephensen þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti leikur á orgelið. Eftir messu er svo sóknarfólki í Dómkirkjusöfnuðinum 67 ára og eldri boðið til kaffidrykkju á Hótel Borg. Þar mun Halla Margrét Árna- dóttir syngja við undirleik Marteins H. Friðrikssonar. Halla Margrét er öllum kunn fyrir sinn fallega söng á ágætu lagi Valgeirs Guðjónsson- ar, Hægt og hljótt, í söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu fyrr í þess- um mánuði. Þess má einnig geta að Halla Margrét er eitt af sóknar- börnum Dómkirkjunnar og fermdist þar. Þess er vænst að eldri borgarar í Dómkirkjusöfnuðinum Qölmenni til messunnar og kaffidrykkjunnar á Hótel Borg á eftir. Frá Dómkirkjunni. Reykholtsskóli í Borgarfirði. Reykholtsskóli: 50 ára nemendamót NEMENDUR sem útskrifuðust árið 1937 frá Reykholtsskóla i Borgarfirði gangast fyrir nem- endamóti i Reykholti dagana 30.-31. maí nk. Einnig eru þeir nemendur sem útskrifuðust 1936 og 1938 vel- komnir sem þátttakendur. Þeir sem ekki hafa náðst til og vilja mæta hafi samband við Bjarna Bach- mann, Höskuld Skagfjörð eða Halldór E. Sigurðsson. (Fréttatilkynning) Haf narfjarðarkirkja: Öldruðum boðið til kirkju LÍKT OG undanfarin ár er öldr- uðum boðið sérstaklega til guðsþjónustu i Hafnarfjarðar- kirkju á uppstigningardag, sem ber nú upp á fimmtudaginn 28. mai. Guðsþjónustan á þessum degi er mörgum tilhlökkunarefni og því fjölsótt. Við guðsþjónustuna að þessu sinni, sem hefst kl. 14, mun Jóhanna Linnet syngja einsöng og einnig í kaffisamsæti í Fjarðarseli, Iþróttahúsinu við Strandgötu, sem safnaðarstjórn og kvenfélag býður til eftir guðsþjónustuna. Rúta verður í fcrðum ásamt öðr- um bílakosti til að flytja fólk til og frá kirkju. Þeir sem óska eftir slíkri þjónustu hafi samband við Eggert ísaksson safnaðarfulltrúa eða sókn- arprest. Gunnþór Ingason sóknarprestur. Tolli ásamt einu verka sinna. Vestmannaeyjar: MorKunblaðið/Sigurgeir Tolli opnar málverka- sýningu í Akóges Vcstmannaeyjum. „ÞAÐ ER búið að vera á dag skránni hjá mér allt frá því ég fór að mála að koma hingað til Eyja og sýna. Eg var hér tals- vert við vinnu á sex ára tímabili, ýmist á bátum eða í frystihúsunum," sagði Þorlák- ur Kristinsson, ToIIi, í samtali við Morgunblaðið. Tolli mun opna málverkasýningu í Akóg- es-húsinu í Vestmannaeyjum í dag, miðvikudaginn 27. maí klukkan 20. Hann sýnir þarr.a um 30 myndir og verður sýn- ingin opin fram á sunnudag milli klukkan 14 og 22. Þorlákur sagði að þetta væri mikilvæg sýning fyrir sig og hann vildi bjóða alla Vestmanneyinga velkomna á sýninguna. Hann hef- ur ákveðið að gefa Alþýðuhúsinu í Eyjum eina af stærri myndum - sýningarinnar sem ber nafnið Lagó. „Myndirnar sem ég sýni hérna eru málaðar á síðustu fjórum árum en þó flestar síðustu tvö árin. Myndefnið er mest landslag sem ég nota á táknrænan hátt til að sjá það sem er handan við hið sjáanlega landslag, kíkja undir steina og sjá hvað er undir gijót- inu. Eg er og með myndir sem eru einskonar helgisagnir úr hversdagsleikanum. Við það tel ég að mér takist að vinna mig inn i há’fgert timaleysi sem er skírskotun til nútíðar, fortiðar og framtíðar. Allt er þetta myndmál innan íslensks veruleika og óveruleika því ég vinn út frá þeim rótum sem ég stend í,“ sagði Þorlákur Krist- insson. — hkj. Fasteignasalinn í farbanni STARFSMANNI fasteignasölu, sem handtekinn var fyrir hálfum mánuði, hefur nú verið sleppt úr haldi. Hann hefur verið úr- skurðaður í farbann að kröfu rannsóknarlögreglu ríkisins. Maðurinn var handtekinn fyrir hálfum mánuði og úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um ijár- drátt og fjársvik. Gæsluvarðhalds- tíminn átti að renna út í dag, en á föstudag var manninum sleppt úr haldi, þar sem ekki þótti þörf á að halda honum í einangrun lengur. Hann hefur þó verið úrskurðaður í farbann til haustsins að kröfu rannsóknarlögreglunnar. Þau mál sem rannsökuð hafa verið varðandi manninn eru mörg og flókin. Samkvæmt upplýsingum rannsóknarlögreglu er erfitt að nefna upphæðir í því sambandi, en ljóst er að um verulegar fjárhæðir er að ræða og skipta þær milljónum króna. Kvartett- inná Hótel Borg SÖNGFLOKKURINN Kvartett- inn ásamt hljómsveit efnir til tónleika á Hótel Borg á morg- un, fimmtudagskvöld, og hefj- ast þeir klukkan 21.30. Kvartettinn Iiefur starfað í 4 ár undir nafninu Kvartett MK og hefur komið víða fram, svo sem á árshátíðum, í sjónvarpi og úrvarpi og hvarvetna fengið góðar viðtökur. Tónleikarnir á Borginni eru hins vegar fyrstu opinberu tónleikar söngflokks- ins. Á efnisskrá Kvartettsins eru lög úr öllum áttum, bæði ný og göm- ul, þar sem sveiflan og jassinn ráða ríkjum. Þessi lög hafa verið klædd í nýjan búning þar sem raddir söngflokksins fá að njóta sín. Kvaitettinn skipa Skarphéð- inn Hjartarson, Þuríður Jónsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Þór Ás- geirsson. Hljómsveitin sem leikur undir er skipuð valinkunnum hljóðfæra- leikurum, en þeir eru Friðrik Karlsson gítar, Ari Einarsson gítar, Birgir Bragason bassa og Matthías Hemstok trommúr. A tónleikunum munu þeir félagar einnig taka nokkur lög einir sér. (Fréttatilkynning) Söngflokkurinn Kvartettinn, frá vinstri Þór Ásgeirsson, Skarp- héðinn Hjartarson, Þuríður Jónsdóttir og Guðrún Gunnars- dóttir. Dagur aldraðra ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Árbæjarkirkju kl. 14.00. Organleikari Jón Mýrdal. Allt eldra fólk í söfnuðinum sér- staklega boðið velkomið til guðsþjónustunnar. Kaffiveitingar í boði Kvenfélags Árbæjarsóknar eftir messu. Sr. Guðmundur Þor- steinsson. ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Ólafur Magnússon frá Mosfelli syngur einsöng í messunni og í kaffisamsæti í safnaðarheimili Áskirkju eftir messu sem öldruð- um er boðið til í tilefni af degi aldraðra. Sr. Árni Bergur Sigur- björnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Lesari Áslaug Gísla- dóttir. Sr. Magnús Guðjónsson biskupsritari prédikar. Organisti og söngstjóri Guðni Þ. Guð- mundsson. Sýning á vinnu aldraðra eftir messu. Kaffisala til ágóða fyrir starfið. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson prédikar. Sr. Árni Pálsson þjónar fyrir altari. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 14. Hans Jörgensen fyrrver^hdi skólastjóri formaður Samtaka aldraðra prédikar. Sr. Þórir Step- hensen þjónar fyrir altari. Eftir messuna er eldri borgurum í söfnuðinum boðið til kaffidrykkju á Hótel Borg. Þar syngur Halla Margrét Árnadóttir nokkur lög við undirleik Marteins H. Friðriks- sonar. Sr. Þórir Stephensen. ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Gylfi Jónsson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 14. Kaffi og kökur eftir messu. Eldri borgurum er sérstaklega boðið í þessa messu og að þiggja veit- ingar að henni lokinni. Kvöld- messa kl. 20.30. Altarisganga. UFMH tekur þátt í messunni. Þorvaldur Halldórsson stjórnar söng og tónlist. Kaffisopi á eftir. Sr. Halldór Gröndal. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Aðalsafn- aðarfundur fimmtudagskvöld kl. 20.30. KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson pró- dikar. Sr. Árni Pálsson þjónar fyrir altari. Samverustund fyrir aldraða í safnaðarheimilinu Borg- um að lokinni guðsþjónustu. LANGHOLTSKIRKJA: Helgi- stund kl. 14. Stólræðu flytur frú Sigríður Jóhannsdóttir, lestra annast starfsmenn Bæjarleiða. Prestur Sig. Haukur. Organisti: Ólafur Finnsson. Öldruðum og fjölskyldum þeirra er boðið ásamt vinum okkar, Bifreiða- stjórum Bæjarleiða og fjölskyld- um þeirra, til kaffidrykkju eftir athöfnina i kirkjunni. Þá hefst sýning á munum sem hinir öldr- uðu hafa unnið í vetur. Sóknar- nefnd. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14 á degi aldraðra. Biskup íslands, herra Pétur Sig- urgeirsson, prédikar. Boðið upp á kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu. Sunnudaginn 31. maí er engin messa í Laugarneskirkju. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELJASÓKN: Guðsþjónusta er í Seljahlíð kl. 11 f.h. Sóknarprest- ur. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. (Ath. breyttan messutíma). Kristín Markúsdóttir prédikar. Allt eldra fólk í söfnuðinum sérstaklega boðið velkomið til guðsþjón- ustunnar og kaffidrykkju á eftir. Organisti Sighvatur Jónasson. Prestur sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Aðalsafnaðarfund- ur í kirkjunni miðvikudagskvöld 27. maíkl. 20.30. Sóknarnefndin. DÓMKIRKJA Krists konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há- messa kl. 11. KAPELLA St. Jósefssystra í Garðabæ: Hámessa kl. 14. KAPELLAN St. Jósefsspítala: Hámessa kl. 10. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. AKRANESKIRKJA: Messa á dvalarheimilinu Höfða kl. 14. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Björn Jónsson. MOSFELLSPRESTAKALL: Messað í Lágafellskirkju kl. 4. Kaffiveitingar að lokinni messu. Sóknarnefndin. DIGRANESPRESTAKALL: Sam- eiginleg guðsþjónusta safnað- anna í Kópavogi í Kópavogskirkju kl. 14. Kirkjukaffi í Borgum að lokinni messu. Sr. Þorbergur Kristjánsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta sem öldruðum er sérstaklega boðið til kl. 14. Jó- hanna Linnet syngur. Kirkjukaffi í Fjarðarseli eftir guðsþjón- ustuna. Sr. Gunnþór Ingason. NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Sameiginleg messa verður í Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 14. Sóknarnefnd og Systrafélag bjóða öllum öldruðum Njarðvík- ingum í kaffi í safnaðarheimili Innri-Njarðvíkur að messu lok- inni. Sr. Þorvaldur Helgason HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn samkoma kl. 20.30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.