Morgunblaðið - 27.05.1987, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987
rv 51
Þórarinn Jóns-
son — Minning
Fæddur 25. október 1917
Dáinn 15. maí 1987
Kvöldið er fagurt, só! er sest
og sefur fugl á gi'ein
við skulum koma vina mín
og vera saman ein.
Eg þekki fagran lítinn lund
hjá læknum undir foss
þar sem að gróa gullin blóm
þú gefur hcitan koss.
Þeir sem eldri eru tengja þetta
ljóð eflaust æsku sinni, gömlum
félögum og ástinni. Líklega hafa
hugsanir þessu tengdar runnið um
hug og hjarta afa þegar hann söng
þennan uppáhalds söng sinn á gleði-
stundum lífs síns. í hugum okkar
mun þetta ljóð hins vegar lifa sem
minnisvarði um þá ást og um-
hyggju sem hann sýndi okkur alla
tíð.
Afi var fæddur í Reykjavík þann
25. október 1917, einn af tólf börn-
um hjónanna Ingibjargar Gilsdóttur
og Jóns Odds Jónssonar. Hann ólst
upp í Austurbænum og þar kynnt-
ist hann eftirlifandi eiginkonu sinni,
Guðrúnu Kristínu Siguijónsdóttur.
Þau gengu í hjónaband þann 25.
október 1941 og réttum níu mánuð-
um síðar, hinn 26. júlí 1942,
eignuðust þau sitt fyrsta barn,
Hólmfríði. Alls urðu börnin fjögur,
Ingibergur Jón Oddur fæddur 4.
október 1945, dáinn 28. janúar
1947, Valdimar Ingibergur, fæddur
19. október 1950, og Elísabet Guð-
rún, fædd 21. febrúar 1957.
Allan starfsferil sinn, sem náði
yfir rúma hálfa öld, vann afi hjá
Reykjavíkurborg, fyrst við hafnar-
framkvæmdir og síðar sem bílstjóri.
í frístundum sínum var hann virkur
meðlimur í Kirkju óháða safnaðar-
ins ásamt eiginkonu sinni, en þau
voru þar í hópi stofnenda. Önnur
áhugamál voru t.d. ferðalög en þau
ferðuðust mikið bæði innanlands
sem utan í sumarleyfum sínum.
Sundlaugarnar áttu sinn fasta sess
í hinu daglega lífi afa og þær stund-
aðj hann reglulega áratugum
saman.
Afi var gæddur einstökum skap-
gerðareiginleikum. Samviskusemi,
hógværð og fullkomin prúð-
mennska voru honum í blóð borin.
Hann var sáttur við lífið og tilver-
una og missti aldrei stjórn á skapi
sínu. Þessir eiginleikar nutu sín vel
í samskiptum við annað fólk og þó
sérstaklega við börn og aðra þá sem
minna mega sín.
Við viljum þakka fyrir þá ást og
hlýju og það traust sem hann veitti
okkur í sínu lífi. Við vitum að dauð-
inn er ekki endir heldur upphaf og
trúum því sem Kristur sagði:
„Eg er upprisan og lífið, sá sem
trúir á mig mun lifa þótt hann
deyi. Og hver sem lifir og trúir
á mig mun aldrei að eilífu deyja.“
(Jóh. 11. 25-26.)
Afabörnin
í dag, 27. maí, fer fram frá
Óháðu kirkjunni útför Þórarins
Jónssonar. Þórarinn var fæddur í
Reykjavík 25. október 1917 og bjó
hér í borg alla sína ævi. Hann lést
15. maí 1987. Foreldrar hans voru
Jón Oddur Jónsson og Ingibjörg
Gilsdóttir. Hann starfaði alla tíð hjá
Reykjavíkurborg, fyrst hjá Reykja-
víkurhöfn og síðan hjá Borgarverk-
fræðingi. Þórarinn kvæntist
eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu
Símonardóttur 25. október 1941.
Eignuðust þau fjögur börn, en
misstu eitt á unga aldri. Þórarinn
var okkur í Óháða söfnuðinum að
góðu kunnur. Hann var í Bræðra-
félagi safnaðarins á meðan það
starfaði. Hann sat lengi í stjórn
safnaðarins og dyravörður var hann
í kirkjunni okkar um árabil, þar
stóð hann traustur sem steinn.
Ávallt reiðubúinn með sitt þétta
handtak. Hávaðinn eða fyrirferðin
var ekki mikil, en trúr og traustur,
ávallt á sínum stað.
Það var ekki ætlun mín að rekja
ættir hans eða störf í gegnum
tíðina, en örfá þakkarorð eiga þetta
að vera fyrir allt það sem hann
hefur unnið fyrir okkur i Óháða
söfnuðinum. Það eru ófá handtökin
sem liggja eftir Þórarin og ávallt
hefur Guðrún eiginkona hans staðið
honum við hlið, þar er söknuðurinn
mestur. Það eru einmitt slíkir menn
sem fámenn félög eins og okkar
þurfa á að halda. Hafðu hann þökk
fyrir allt og allt. Guðrúnu og fjöl-
skyldunni sendum við innilegar
samúðarkveðjur. Fari hann í friði,
friður Guðs hann blessi.
F.h. Óháða safnaðarins,
Hólmfríður Guðjónsdóttir.
Vinur minn og svili, Þórarinn
Jónsson, er látinn. Við kynntumst
hjá sameiginlegum tengdaforeldr-
um á Laugavegi 158, er ég trúlofað-
ist Sigurði syni þeirra 1945, þar sem
fjölskyldutengsl voru þau bestu sem
þekkjast. Alla tíð síðan, meðan
Siggi minn lifði og eftir að ég varð
ein var vinátta Tóta og Dídíar söm
og innileg.
Ekkjufólk og einhleypt er ekki
alltaf vinsælt í hópi hjónafólks en
mér buðu þau sæti við sína hlið,
hvenær sem svo bar undir.
Það eru nokkuð mörg árin frá
dögum saumaklúbbsins á Njarðar-
götunni og víðar, þegar Tóti og
Jóna „frænka“ sáu svo vel fyrir
skemmtiatriðunum að hlátrasköllin
glumdu um nágrennið og þurfti
ekki sterkara en kaffi og með því
til þess. Eg man líka þá tíma frá
fyrstu búskaparárum mínum, fyrir
daga hitaveitunnar, að Tóti ók okk-
ur tengdamóður okkar í þvottalaug-
arnar. Hann leiddi hana í hálku á
vetrum, en hálka var eitt af fáu sem
hún óttaðist. Milli þeirra var gagn-
kvæm ást og virðing.
Árin liðu. I mörg ár unnum við
þijár mágkonur saman. Vinnutím-
inn var oft langt fram á nótt. Væri
frídagur að morgni hjá Tóta, bað
hann konuna sína alltaf að hringja
til sín og sótti hann okkur þá í vinn-
una hversu seint og í hvaða veðri
sem var.
Árið 1973 tengdumst við Tóti enn
er ég kynntist Ingiberg Stefáns-
syni, en þeir voru bræðrasynir.
Föðurafi þeirra var Jón bóndi í
Galtarholti í Borgárfirði.
Þórarinn var maður hæglátur,
þéttur á velli og þéttur í lund, þraut-
góður á raunastund í fyllstu
merkingu þeirra orða. Hann þurfti
oft á því að halda, því hann hafði
horft á bak tengdaforeldrum sínum,
foreldrum, ungum syni og sex
bræðrum. En minnumst þess að
hann átti trúan og sterkan lífsföru-
naut. Dídí mín á eina þá heilbrigð-
ustu og bestu sál sem ég hef kynnst.
En þau voru ekki síður samhent í
gleði. Það var oft gaman að lyfta
glasi á góðri stund. Þá söng Tóti
gjarnan í einlægri gleði svo sem
hann átti ættir til og hafði ánægju
af græskulausu gamni. Man ég
margar slíkar stundir frá Húsafelli,
hafnarballi og víðar.
Og fleira kom til, svo sem kirkju-
rækni þeirra hjóna. Þau gerðust
meðlimir óháða safnaðarins við
stofnun hans og hafa starfað þar
síðan af ósérhlífni og greiðvikni sem
auðkennt hefur öll þeirra störf. Að
hausti komanda, um sjötugsafmæli
hans, átti að halda til heimsborgar-
innar London en þangað hafði hann
oft óskað sér að koma. Förinni var
flýtt. Hann lést. Við sem eftir lifum,
vitum að hann trúði orðum meistar-
ans sem sagðist „fara á undan til
að búa okkur stað“, sem sagði: „Eg
lifi og þér munuð lifa.“
Við biðjum líka fyrir lítilmagnan-
um, blessuðum Leifa, sem sér nú á
eftir síðasta bróðurnum sem aðstoð-
aði hann ef á lá.
Elsku Dídí mín. Harmur þinn er
sár. En sólargeislar á bak við sorg-
arský munu skína á þig í börnum
ykkar sem þið óluð upp í kærleika
og trú á hið goða. Börn þín, tengda-
synir og aðrir niðjar finnst mér
mynda um þig traustan frændgarð
og fagran. Fyrir sál Tóta, fyrir Dídí
og aðstandendum iillum bið ég
kærleikans föður: „Láttu kærleik-
ans Ijósið þitt skína."
Svanhildur Sigurjónsdóttir
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Noröur-Götum i Mýrdal,
til heimilis á Þrastargötu 7,
andaðist í Borgarspítalanum 25. maí. Jarðarförin ákveðin síðar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÓLMGRÍMUR SIGURÐSSON
frá Ystu-vík,
verður jarðsunginn frá Svalbaröskirkju laugardaginn 30. maí kl.
14.00.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna.
Sigurður Hólmgrímsson, Guörún Eiríksdóttir,
Kristín Hólmgrimsdóttir, Magnús Vilhjólmsson,
Bjarni Hólmgrimsson, Sigríður Guömundsdóttir,
Bergljót Hólmgrfmsdóttir, Einar Sigfússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
RÓBERT G. JENSEN,
Háengi 15,
Selfossi,
sem andaðist 21. maí sl. verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laug-
ardaginn 30. maí kl. 13.00.
Jóna Gissurardóttir,
Björn Jensen, Guðrún Á. Halldórsdóttir,
Gissur Jensen, Hansína Á. Stefánsdóttir,
Jóhanna Jensen, Svavar Bjarnhóðinsson
og barnabörn.
t
Föðursystir okkar,
RAGNHEIÐUR O. BJÖRNSSON
kaupmaður,
Akureyri,
sem andaðist á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, fimmtudaginn 21.
maí si., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 29.
mai kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar eru vinsamlega
beðnir að láta dvalarheimilið Hlið, Akureyri, njóta þess.
Minningarkort fást í bókabúð Jónasar, Akureyri.
Fyrir hönd ættingja,
Geir S. Björnsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR
verður jarðsungin föstudaginn 29. mai kl. 11.30.
Þeir sem vildu minnast hennar er bent á sjúkrahús Akraness.
Halldór Árnason,
Halldóra Árnadóttir,
Svava Árnadóttir,
Vigdís Shook,
Einar Árnason, Halldóra Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR VILHJÁLMÍNA ÓLAFSDÓTTIR,
Jökulgrunni 1,
viö Hrafnistu,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. maí kl. 10.30.
Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlega láti líknarstofnanir njóta
þess.
Sigurjón Kristjánsson,
Steinar Sigurjónsson, ,
Oddný Ólaffa Sigurjónsdóttir, Benedikt Hermannsson,
Heiðar Hafberg Sigurjónsson,
Kristján Stefán Sigurjónsson, Helga Kristjánsdóttir,
Sigurjón Guömundsson, Ólöf Hafdís Guðmundsdóttir,
Sigriður Steinarsdóttir, Einar Þórhallsson.
t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, SIGRÚN ÞORKELSDÓTTIR, Sólheimum 56, lést 24. maí. Minningarathöfn verður í Langholtskirkju, Reykjavík, föstudaginn 29 maí kl. 10.30, en hún verður jarðsungin frá Prests- bakkakirkju laugardaginn kl. 14.00. Fyrir hönd ættingja, Laufey og Pálína Bjarnadætur.
t Sonur og tengdadóttir boða til jarðarfarar ÞÓRÐAR STURLAUGSSONAR fyrrverandi stórkaupmanns, föstudaginn 29. mai nk. frá Dómkirkjunni kl. 13.30. Ólafur Sturla, Margrét Gísladóttir og börn.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐLAUGS G. PÉTURSSONAR, Bogahlíð 15 Katrín Þorvarðardóttir. Guðmundur Guðlaugsson, María Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Guðlaugsson, Pétur Guðlaugsson, Ásólfur Guðlaugsson, Erla T ryggvadóttir, Margrét Guðlaugsdóttir, Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Þorvarður Guðlaugsson, Guðrún Gfsladóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGÓLFS JÓNSSONAR, Löngufit 11, Garöabæ, Erla Sveinbjörnsdóttir, Þorgeir Ingólfsson, Sigriður Ingólfsdóttir, Anna Ingólfsdóttir, Árni Margeirsson og barnabörn.
t Innilegustu þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur sam- úð og vinarhug við andlát og jaröarför sonar okkar JÓNSGEIRS. Guð veri með ykkur. Sigrún Eyrbekk, Stefán Stefánsson, börn, tengdabörn og barnabörn.