Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 52
Tötn Hu w fftmínn-iii'miw mtnmmíu
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
félk f
fréttum
Hér fara fremstir þeir Jón Stefánsson organisti Langholtssóknar
og Garðar Cortes, söngvari.
Hópreið
til kirkju
Asunnudaginn var efndu hesta-
menn í Langholtssókn tii
árlegrar hópreiðar sinnar til kirkju.
Þessi siður hefur verið ræktur um
nokkurt skeið, en það er nú fyrst
á síðustu árum að farið er að aug-
lýsa ferðina með þeim árangri að
hópreiðin er hin glæsilegasta.
Þegar stigið var af baki við kirkjuna þurfti ekki að hefta þennan
klár, hann sætti sig við það að tekið var i tauminn.
Meðal leikara eru margir hestamenn og hér er einn þeirra, Gunnar
Eyjólfsson, ásamt Garðari Cortes.
Gorbachev í góðra vina hópi.
Reutor
Gorbachev dansar
á götum Rúmeníu
Mikhail Gorbachev, aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna kom í
heimsókn til kollega síns í Rúmeníu, Nicolaes Ceaucescu. A meðan
bílferð um Búkarest, höfuðborg landsins, stóð gaf Gorbaehev sér tíma til
þess að taka þátt í rúmenskum þjóðdansi, gestgjöfum sínum gersamlega
að óvörum. Þótti þeim nóg um frjálslyndi foringjans.
Rúmenía hefur sýnt ákveðið sjálfstæði frá Moskvu á sumum sviðum og
má nefna að það, eitt ríkja Varsjárbandalagsins, tók þátt í Olympíuleikunum
í Bandaríkjunum 1984. Hins vegar hafa Rúmenar yfirleitt verið þjóða hallast-
ir undir Rússa, þannig að sjaldan hefur reynt á þetta „sjálfstæði". Ceaucescu
rekur iandið nánast á eigin reikning og er talið að á fáum stöðum í heimin-
um sé jafnrakið ættarveldi. Af því leiðir hins vegar að landið er ijúkandi
rúst kommúnísk hagkerfis. Hafa sumir erlendir fréttaskýrendur haft á orði
að landið sé nánast á miðaldastigi.
Talið er að Mikhail eigi ýmislegt vanrætt við Ceaucescu, aðallega vegna
þess að hann hefur opinberlega andæft öllum hugmyndum um aukið svigrúm
í efnahagsmálum svo ekki sé minnst á aukna umræðu um vankanta kerfis-
ins og mistök möppudýra.
Af Gorbachev er það að segja að í mánaðarlok tekur hann hús á Hon-
eeker vini sínum í Austur-Berlín, en þar mun fara fram leiðtogafundur
aðildarríkja Varsjárbandalagsins.
Glasnost í
Ulan Bator
Undanfarna mánuði hefur
mikið verið rætt um að í
Sovétríkjunum og leppríkjum
þeirra beri nú í auknum mæli á
opinni umræðu og fijálsræði á
ýmsum sviðum. Ekki skal fjölyrt
um sannleiksgildi þessara kenn-
inga, en meðfylgjandi mynd frá
Ulan Bator, höfuðborg Mongólíu,
sýnir að ögn ferskari vindar næða
nú um fólk í austurvegi.
Parið á myndinni er í býsna
vestrænum klæðum, pilturinn í
blazer og með litskrúðugt bindi,
en stúlkan í knésíðu pilsi og með
hálsklút. Að baki er Lenín með
slagorð á vör. Sé grannt skoðað
má einnig sjá glitta í gamla
tímann í klæðaburði, en bak við
unga manninn er annar mongóli
í hefðbundnari fatnaði Ulan Bat-
or-búa — dökkbláum vinnufötum
og með pottlok á höfði.
Mongólía hefur löngum verið
e.k. nýlenda Sovétríkjanna, en að
undanförnu hefur borið á því að
þarlendir ráðamenn þreifi fyrir sér
erlendis á sviði verslunar og iðn-
aðar. Þeir eiga þó óhægt um vik
því að allt þarf að fara um hend-
ur Sovétmanna og skipti við
grannann í suðri, Kína, eru enn
um sinn óhugsandi.
Er glasnostið að verki í tískuheimi Ulan Bator?
Rcuter