Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
53
Hjónín frá Elliðaey
Stykkishólmi.
au voru á leið til kirkju þegar
fréttaritari hitti þau. Þetta
eru hjónin Dagbjört Níelsdóttir
og Jónas Pálsson.
Jónas er fæddur 1904 í Ögri
við Stykkishólm, en þar bjuggu
þá hjónin Helga og Páll foreldrar
hans. Páll var síðan alltaf kenndur
við Höskuldsey, en þar voru hans
manndómsár. Jónas var ekki
gamall þegar hann hóf sjóróðra
og sjórinn var hans annað heimili
alla tíð síðan og á trillunni sinni
Kára stundaði hann su'ft þar til
alveg nýlega. Hann sigldi marga
krappa báruna og var farsæll
bæði sem háseti og við stýri.
Dagbjört er fædd í Sellátri, eyju
sem tilheyrir Stykkishólmshreppi,
dóttir hjónanna Dagbjartar og
Níelsar Breiðfjörð sem þar var
búsettur alla tíð, farsæll sjómaður
og duglegur.
Þau Jónas og Dagbjört gengu
í hjónaband 1930. Þau hófu bú-
skap í Elliðaey, fyrst með Jóni
bróður Dagbjartar og Kristínu
systur Jónasar, en Jón fórst í sjó-
róðri 1936 og síðan bjuggu þau
Jónas og Dagbjört ein í Elliðaey
til 1948 eða alls 19 ár en þá fluttu
þau í Hólminn og hafa búið hér
síðan. Þtjú systkinin í Sellátri gift-
ust þrem systkinum frá Höskulds-
ey og það mun sjaldgæft.
Dagbjört er mikil félagsmann-
eskja svo sem Kristín heitin systir
hennai tu [joji ly igdust lengst að.
Að kristniboðsmálum hefír hún
starfað lengi eða allt í 50 ár. I
kvenfélaginu hefir hún starfað og
eins að málum kirkjunnar hér.
Og lengi vann hún við fiskvinnslu
hér í bæ og liðtæk var hún þegar
þau Jónas bjuggu í Elliðaey.
Þau eiga 4 dætur og búa nú
ein í húsi sínu Staðarfelli nr. 9
við Víkurgötu í Stykkishólmi, far-
sæl og ánægð og hafa átt góðri
heilsu að fagna. Þau hafa eins
og ýmsir aðrir lifað breytinga-
tíma. Þó tímarnir áður hafi verið
erfiðir gáfu þeir gleðina og þakk-
lætið, sem er gott’ að minnast
þegar líður á daginn, segja þau.
— Arni
Hjónin frá Elliðaey þau Jónas Pálsson og Dagbjört Níelsdóttir.
Morgunblaðið/Ami
Súperman
fimmtugur
Súperman, sem einnig er þekkt-
ur sem Clark Kent nálgast
óðum fimmtugsafmælið og að sögn
útgefenda hans — DC Comics skal
haldið upp á afmælið í heilt ár fram
að sjálfu afmælinu, sem er hinn 28.
febrúar á næsta ári.
Meðal margs annars, sem til
hátíðabrigða verður gert má nefna
auglýsingaherferð sem kosta mun
um 75 milljónir Bandaríkjadala;
ótal sýningar á gömlum teikni-
myndaseríum, og öðrum hlutum
tengdum Súperman; ný kvikmynd
um ofurmennið með Christopher
Reeves í aðalhlutverki; sérstaka
sjónvarpsdagskrá, þar sem hetjunn-
ar verður minnst með ýmsu móti,
og síðast en ekki síst stórkostlegan
hátíðamálsverð á sjálfan afmælis-
daginn.
Auk alls þessa má nefna að borg-
aryfirvöld í Cleveland í Ohio-fylki,
en þaðan voru upphaflegir höfundar
Súpermans, íhuga nú að reisa
líkneski af Súperman í hjarta borg-
arinnar. Talsmenn þess að stytta
verði reist bera því við að teikni-
myndahetjan hafi síst haft minni
áhrif en hinar ýmsu fagurbók-
menntir og heimspekirit vestrænnar
menningar, auk þess sem að í sög-
unum sé þaldið á lofti ákveðnu
siðferði, sem byggi á heiðarleika,
föðurlandsást, fórnarlund, riddara-
mennsku og almennri tillitsemi við
náungann. Segja þeir að þar til
menn hafi eitthvað við þær hneigð-
ir að athuga, sé margt vitlausara
hægt að gera en að reisa styttu af
Súperman.
Ofurmennið Súp-
erman. Fimm-
tugur og í fullu
fjöri.
COSPER
Maðurinn minn er að biða eftir mikilvægri símhringingu.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, er sýndu
mér vinarhug með heimsóknum, gjöfum og
heillaóskaskeytum á 95 ára afmcelisdegi
mínum 20. maí sl. Sérstakar þakkir fœri ég
börnum, tengdabörnum og barnabörnum
mínum og Kvenfélagi ÞverárhlíÖar.
GuÖ blessi ykkur öll.
Sigríöur Jónsdóttir,
Kvíum.
Ford Econoline 250, árgerð 1982.
6 cyl., sjálfskiptur með vökvastýri.
Upplýsingar í símum 53466 og 51574.
Gardsláttuvélin
saaa smi m
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Fyrirferðarlítil, létt og meðfærileg.
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Auðveldar hæðarstillingar.
Þú slærð betur með
SIMI: 681500 - ARMULA 11
Poulsen
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.
NITCHI KRAFTTALIUR
OG KEÐJU-
TALÍUR
Elnnig
rafmagnstalíur
0,3—3 tonn
Mjög hagstætt