Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987 61
Golf:
Bernhard Langer
setti vallarmet
Lék á 270 höggum eða 18 undir pari
BERNHARD Langer frá Vestur-
Þýskalandi sigraði á opna breska
meistaramótinu í golfi ,PGA, sem
fram fór í Wentworth á Englandi
um helgina og lauk á mánudag-
inn. Hann lék 72 hoiur á alls 270
höggum og setti nýtt vallarmet.
Spánverjinn, Severiano Balleste-
ros, varð annar.
Bernhard Langer fékk 61.230
dollara fyrir sigurinn eða um 2,5
milljónir íslenskar krónur. Þetta var
í fyrsta sinn sem Langer sigrar á
móti í Evrópu á þessu ári. Hann
lék samtals á 270 höggum (66, 69,
68 og 67), eða 18 höggum undir
pari vallarins í Wentworth og er
það jafnframt nýtt vallarmet. Bal-
lesteros lék á 274 höggum (70,
67, 68 og 69).
„Þetta var sennilega eitt besta
mót mitt. Ég er í góðri æfingu
núna og kenni mér ekki meins í
baki,“ sagði Lagner eftir keppnina.
En hann hefur átt við bakmeiðsli
að stríða um nokkurt skeið og ekki
náð sér vel á strik af þeim sökum.
„Það var mikilvægt fyrir mig að
vinna Ballesteros á þessum velli,
en það hefur mér aldrei tekist áð-
ur,“ sagði hann. Spánverjinn hefur
þrívegis sigrað á þessu móti.
Önnur úrslit voru þessi:
Peter Senior, Ástraslíu 278
iose-Maria Canizares, Spáni 278
Wayne Grady, Ástraliu 280
Ken Brown, Engalndi 280
Rick Hartmann, Bandarfkjunum 280
lan Baker-Finch, Ástralíu 280
lan Mosey, Englandi 281
Lyndsay Stephen, Ástralíu 282
Peter Fowler, Ástralíu 283
Sandy Lyle, Englandi 283
Morgunblaöið/Martin Holmes
• Fyrsta keppni BMW M3 og fyrsti sigur í heimsmeistarakeppninni.
Ekki slæm frumraun Bernard Beguin og BMW keppnisliðsins í
Korsiku-rallinu. Beguin leiddi nær alla keppnina og vann öruggiega,
en flestar leiðir voru á malbiki.
Símamynd/Reuter
• Vestur-þýski kylfingurinn Bernhard Langer lék frábærlega á Went-
worth-golfvellinum i Engalndi um helgina. Hann lék samtals á 270
höggum og setti nýtt vallarmet.
Franskur sigur í
fjarveru Finnanna
EFTIR þrettán ára baráttu vann
loks Frakkinn Bernard Beguin
keppni sem gildir til heimsmeist-
ara. Hann sigraði Korsíku-rallið á
BMW M3 og er það um leið fyrsti
sigur BMW-verksmiðjanna í
heimsmeistarakeppninni i fjórtán
ár. Beguin vann eftir harða
keppni við heimamanninn Yves
Loubet á Lancia Delta, en félagi
hans Miki Biasion hjá Lancia varð
þriðji. Allir finnsku ökumennirnir
sem aka fyrir verksmiðjuliðin
voru fjarri góðu gamni, töldu
keppnina of hættulega, en at-
vinnuökumaðurinn finnski Henri
Toivonen lést þar í slysi á sl. ári.
Óþekktur ökumaður lést í keppn-
inni í ár, þegar bíll hans hrapaði
50 metra fram af hengiflugi.
Það voru fáir erlendir keppendur
í Korsíku-rallinu, mest Frakkar og
ítalir. Verksmiðjuliðin grófu upp
ökumenn í stað þeirra sem neituðu
að keppa í rallinu, Lancia þar
fremst í flokki. En það var samt
Bernard Beguin, gamalkunn
kempa, sem náði forystu í keppn-
inni á BMW M3, bíl sem tók þarna
frumsporin í heimsmeistarakeppn-
Á morgun, Uppstigningardag,
verður haldið fjáröflunarmót hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur til kaupa á
sjónvarpsskermi á Golfskálann.
Sjónvarpsskerminn á að nosta
svo hægt sé að taka á móti sjón-
varpssendingum frá gerfihnöttum
inni. Loubet á heimaslóðum fylgdi I
honum eftir og lean Ragnotti á
Renault. Ford keppnisliðið hafði
ekki erindi sem erfiði, þrátt fyrir j
mikinn undirbúning. Kalle Grundel
flauyg útaf á sínum bíl á fyrstu
leið og Stig Blomqvist hætti í lok
keppninnar eftir endalaus tækni-
vandamál á Sierra Cosworth
bílnum.
Á þriðja degi keppninnar komst
Loubet 12 sekúndum framúr
Beguin, en á einni iokaleiðinni
sprakk hjá honum. Beguin hrifsaði
því fyrsta sætið aftur og hélt til
loka 1370 km langrar keppninnar.
Ragnotti á Renault var í miklu stuði
þennan síðasta dag, ógnaði for-
ystubílnum en endaði útaf og var
fastur i langan tíma. Loubet lenti
líka í vandræðum, á síðustu leið-
inni hélt hann skyndilega á
gírstönginni, en sem betur fer var
bíllinn á leið niður brekku og á loka-
sprettinum. Kláraði hann keppnina
fastur í þriðja gír.
Þegar fimm keppnum er lokið i
heimsmeistarakeppninni hafa
fimm mismunandi ökumenn sigr-
og þannig sé mögulegt að horfa á
öll stærstu golfmótin sem fram
fara erlendis í beinni útsendinu.
Leikin verður punktakeppni með
fullri forgjöf og verður ræst út frá
kl. 09.00.
að, þeir Timo Salonen, Hannu
Mikkola, Bernard Beguin, Marrku
Alen og Miki Biasion. Lancia verk-
smiðjuliðið hefur tvívegis unnið,
en Mazda, BMW og Audi nælt í
einn sigur hvert. Heimsmeistara-
keppnin gæti því orðið óvenjujöfn,
þó Lancia sé kominn með gott
forskot. Ökumennirnir gætu í það
minnsta barist grimmt og margir
eru um hituna í ár.
- G.R.
Úrslit í Korsíku-rallinu
Refsing/Klst.
1. Bernard Beguln/
Jaques Lenne, BMW M3 7.22.30
2. YvesLoubet/
Bernard Vleu, Lancia Delta 7.24.38
3. Mlki Blasion/
Tlziano Siverlo, Lancla Delta 7.24.58
4. Jean Ragnotti/
Pierre Thimonier, Renault 11 7.25.11
5. Francols Chatrlot/
Michel Perln, Renault 11 7.27.05
6. MarcDuez/
Gorges Blar, BMW M3 7.37.58
Af 95 sem lögðu af stað komust
35 bílar í mark. Keppnin stóð í 3
daga og var 1370 km löng.
Staðan íheimsmeist-
arakeppni ökumanna
1. Juha Kankkunen Flnnlandl 37 stig,
Mikl Biasion italfu 35, Jean Ragnottl
Frakklandi 29, Markku Alen Flnnlandi
28, Walter Röhrl Þýskalandi 27, Keneth
Eriksson Svfþjóð 21, Bernard Beguin
Frakklandi, Timo Salonen Flnnlandl og
Hannu Mikkola Finnlandi allir 20 stig.
Keppni framleiðenda
1. Lancia 74 stig, Audi 48, VW
39, Renault 35, Mazda 34, Ford
28, BMW 20.
Golf:
Fjáröflunarmót hjá GR
STRAKAR — STELPUR
KNATTSPYRNUSKÓLI BREIÐABLIKS
Hinn árlegi knattspyrnuskóli Breiðabliks tekur til
starfa 9. júní.
Skólinn hefur aðstöðu á Smárahvammsvellinum við
Fífuhvamm og í íþróttahúsinu við Digranes.
Leiðbeinendur verða: Sigurður Víðisson leikmaður
Breiðabliks og Elvar Erlingsson leikmaður Breiðabliks
í handknattleik.
1. námskeið 9.6 — 23.6.
2. námskeið 1.7. — 14.7.
3. námskeið 15.7. — 28.7.
4. námskeið 10.8 — 21.8.
Námskeið fyrir eldri börn eru kl. 9.30-12.00 og
yngri börn 12.30-15.00.
Á námskeiðunum bjóðum við upp á alhliða
knattæfingar ásamt knattþrautum K.S.Í.
Meistaraflokksmenn Breiðabliks koma í heimsókn og
farið verður í dagsferð. Viðurkenningarskjöl afhent í
lok hvers námskeiðs.
Verð hvers námskeiðs er 1500 kr.
Systkinaafsláttur verður veittur þannig að
fyrsta barn borgar 1500 kr.
annað barn borgar 1000 kr. og
þriðja barn borgar 700 kr.
Innritun og allar nánari upplýsingar verða veittar á
skrifstofu Breiðabliks, Fannborg 2 (félagsheimilinu) í
síma 43699 milli kl. 16.00 og 18.00 alla virka daga.
ALLIR í KNATTSPYRNUSKÓLA BREIÐABLIKS
Prentstofa
G. Benediktssonar
NÝBÝLAVEGUR 30 - 200 KÓPAVOGUR - SÍMI 42066