Morgunblaðið - 27.05.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
63
Morgunblaðiö/KGA
® VITI! Aðdragandi síðari vítaspyrnunnar. Guðmundur Steinsson var kominn einn inn fyrir vörn Hollend-
inganna þegar varnarmaður brá honum og dómarinn hikaði ekki við að dæma vítaspyrnu.
„Tókvelá“
-sagði Friðrik Friðriksson markvörður
sem var bestur íslendinganna í gær
„ÉG TÓK vel á!“ sagði Friðrik
Friðriksson markvörður á eftir,
en hann lók sérlega vel í gær.
„Mér fannst við gefa þeim of mik-
ið færi á okkur með því að bakka
fullmikið. Vörnin byrjaði leikinn illa
en það var stígandi í þessu. En
við sýndum þarna að þegar við
leikum á fullu er ekkert lið sem
einnur okkur létt." Friðrik sagðist
óhress með hve fáir áhorfendur
mættu á völlinn. „Erlendis erum
við að spila á móti 20.000 áhorf-
endum en hér koma ekki nema
örfáir áhorfendur á völlinn," sagði
hann.
Guðmundur Steinsson:
Engin spurning
með vítaspyrnurnar
„VIÐ verðum að gera okkur án-
ægða með jafntefli heima. Þetta
eru atvinnumenn, þar á meðal
nokkrir Evrópumeistarar með
Ajax,“ sagði Guðmundur Steins-
son, fyrirliði íslenska liðsins, eftir
leikinn.
Guðmundur „fiskaði" báðar
vítaspyrnur íslands • í leiknum og
hló að því að Hollendingar skyldi
þræta fyrir að honum hefði verið
hrint í fyrra vítinu. „Það var engin
spurning. Hann ýtti aftan í mig.
Dómarinn stóð rétt hjá okkur og
sá þetta mjög vel. Það var svo
engin spurning um seinni vítið."
Guðmundur sagði leikinn hafa
farið of rólega af stað vegna þess
Brasilía vann
BRASILÍA sigraði Skotland 2:0 í
landsleik í knattspyrnu f Glasgow
í gærkvöldi. Rai og Valdo skoruðu
fyrir Barsilíu f seinni hálfleik og
unnu þar með „Stanley Rous“
bikarinn.
Brasilía var eina liðið sem vann
leik í þessari þriggja landa keppni
sem var milli Englands, Skotalands
og Brasilíu. Þeir gerðu jafntefli við
Englendinga á Wembley, 1:1 og
Skotar og Englendingar skildu
jafnir, 0:0.
að „við vorum vorum of taugaó-
styrkir og óöruggir fyrstu 20
mínúturnar." Hann sagði Hollend-
inga hafa leikið frekar rólega
þannig að ekki hafi verið erfitt að
verjast þeim. „Við höfðum yfirleitt
nógan tíma til að komast aftur
áður en þeir voru komnir fram,"
sagði hann.
Staðan
B-riðill:
Ítalía 3 2 1 0 3:0 6
A-Þýskaland 3 1 2 0 1:0 4
Holland 3 0 2 1 3:4 2
Portúgal 3 0 2 1 1:2 2
Ísland 2 0 1 1 2:4 1
Jafntí
IMoregi
NOREGUR og Búlgaría gerðu
markalaust jafntefli f undan-
keppni Ólympfuleikanna f knatt-
spyrnu í Þrándheimi f gærkvöldi.
Þessi lið eru f D-riðli, en þar
hafa Sovétmenn nú forystu.
Belgar skoruðu tvö
á síðustu mínútum
M
Islendingar höfðu forystu þar til þrjár mínútur voru til leiksloka
•SLENSKA drengjalandsliðið í
^nattspyrnu, skipað leikmönnum
yngri en 18 ára, tapaði fyrir jafn-
öldrum sínum frá Belgfu, 2:3, á
9rasvellinum í Garðabæ í gær.
Islenska liðið var yfir 2:1 þegar
Þfjár mínútur voru til leiksloka,
en Belgar skoruðu tvö mörk á
^eimur mfnútum og tryggðu sór
s'9urinn. Leikurinn var liður í Evr-
úpukeppni landsliða f þessum
aldursflokki.
Fyrri hálfleikur var mjög fjörugur
°9 opin, skemmtileg og lífleg
^nattspyrna. íslendingar voru betri
framanaf og áttu tvö góð færi í
uPphafi leiksins. Fyrst átti Ólafur
^'ggósson skot frá vítateig sem
var vel varið. Síðan átti Haraldur
’ngólfsson gott tækifæri er hann
uð upp að endamörkum og skaut
^östu skoti af stuttu færi sem
markvörðurinn bjargaði í horn.
Pvert á gang leiksins náðu Belg-
ar forystu á 25. mínútu. Það var
framherjinn, Smolders, sem skor-
aði með þrumuskoti af 25 metra
faeri efst í bláhornið. Glæsilegt
nnark.
Haraldur Ingólfsson jafnaði 10
mínútum síðar með öðru glæsi-
marki. Hann tók þá aukaspyrnu
rétt utan vítateigs hægra megin
og skoraði beint úr henni í hornið
fjær og þannig var staðan í hálfleik.
íslendingar byrjuðu seinni hálf-
leikinn vel og komust yfir á 56.
mínútu. Árni Þór Árnason komst
þá inní sendingu varnarmanns til
markvarðar og vippaði laglega yfir
úthlaupandi markvörðinn svo eftir-
leikurinn var auðveldur.
Þegar þarna var komið sögu
misstu íslendingar tvo bestu leik-
menn sína, Harald Ingólsson og
Gunnlaug Einarsson, útaf vegna
meiðsla. Það hafði mikil áhrif á
leik þeirra það sem eftir var og
tóku Belgar öll völd á vellinum og
sóttu látlaust síðustu 20 mínúturn-
ar.
Dillkens jafnaði fyrir Belga með
marki af stuttu færi eftir þvögu á
87. mínútu og tveimur mínútum
síðar skoraði fyrirliðinn, Colpaert,
sigurmarkið með skalla eftir fyrir-
gjöf frá hægri.
Fögnuður Belga var mikill í leiks-
lok. Einn leikmanna þeirra kunni
sér ekki læti er þeir jöfnuðu, stökk
upp undir markslána og fékk við
það slæmann skurð á ennið og
varð að yfirgefa völlinn og láta
sauma saman. Belagar léku mjög
fast og lét dómarinn þá komast
upp með of mikla hörku. íslending-
ar áttu í fullu tré við gestina allt
þar til undir lokin að úthaldið var
fariö að segja til sín. Leikur þeirra
lofar góðu þó svo að leikir verði
að vinnast á heimavelli svo viðun-
andi sé.
Bestu leikmenn íslands voru
Haraldur, sem skapaði mikla
hættu á vinstri vængnum og Gunn-
„OKKUR vantaði úthaldið f lokin.
Það skipti sköpum að við mistum
tvo lykilmenn okkar útaf í seinni
hálfleik," sagði Lárus Loftsson,
þjálfari drengjalandsliðsins eftir
Íeikinn.
„Þeir komust upp með að spila
mjög gróft. Það er áfall að tapa
þessum leik við höfðum sett okkur
lagur, sem var mikið í boltanum
og byggði upp margar góðar sókn-
ir. Rúnar Kristinsson var sterkur í
fyrri hálfleik en dalaði er líða tók
á. Ólafur Viggósson og Árni Þór
áttu báðir góða spretti frammi.
Eins voru Egill Örn Einarsson og
Þormóður Egilsson sterkir í vörn-
inni.
Dómari var George Smith frá
Skotlandi og leyfði hann of mikla
hörku. Hann sýndi aöeins einum
Belga gula spjaldið.
það markmið að vinna þá hér
heima og það vantaði aöeins
herslumuninn á að það tækist.
Strákarnir spiluðu vel þar til 20
mínútur voru eftir og þá var bara
spurning hvort þeir myndu halda
þetta út," sagði Lárus og reyndi
að hughreysta niðurlúta leikmenn
sína í búningsklefanum eftir leik-
inn.
„Skipti sköpum að
missa lykilmenn útaf“
• Haraldur Ingólfsson, besti
leikmaður íslands, á hór f höggi
við einn leikmann Belga.