Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAI 1987
samlokurnar
sem þú getur
farið með
í 5 daga
ferðalag
Mjólkursamsalan
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Dömurnar og
djöflaveiran
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
MEÐ TVÆR í TAKINU -
OUTRAGEOUS FORTUNE
☆ ☆ ☆
Leikstjóri: Arthur Hiller. Hand-
rit: Leslie Dixon. Framleiðandi:
Ted Field. Myndatokustjóri:
David M. Walsh. Aðalleikendur:
Shelley Long, Bette Midler, Pet-
er Coyote, Robert Prosky, John
Schuck, Anthony Heald, Gary
Morgan. Bandarísk. Tochstone
Pictures 1987.
Þessi bráðhressa gamanmynd
hefur notið geysilegra vinsælda
vestan hafs núna, seinni part vetr-
ar. Astæðan er augljós; hún státar
af því sem svo margar stöllur henn-
ar skortir — þrátt fyrir góðan
ásetning — er einfaldlega skemmti-
leg.
Það fer ekki milli mála að kven-
réttindabaráttan hefur haldið
innreið sína í kvikmyndaborgina og
það svo um munar. Fyrir svo sem
Fjallhressar konur ásamt eilífðarhippanum,
SLÆMAR DRAUMFARIR
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Draumaprinsinn (Dream Lover).
Sýnd í Bíóborginni. Stjörnugjöf:
☆ ‘/2.
Bandarísk. Leikstjóri: Alan J.
Pakula. Handrit: Jon Boorstin.
Framleiðendur: Alan J. Pakula
og Jon Boorstin. Kvikmynda-
taka: Sven Nykvist. Helstu
hlutverk: Kristy McNichol, Ben
Masters og Paul Shenar.
Það hefur ekki farið mikið fyrir
þessari nýjustu mynd leikstjórans
Alans J. Pakula, sem heitir
Draumaprinsinn (Dream Lover) og
sýnd er í sal 2 í hinni nýopnuðu
Bíóborg. Þetta er fyrsta mynd Pa-
kula frá því hann leikstýrði Sophie’s
Choice árið 1982. Undir venjulegum
kringumstæðum ætti mynd eftir
hann að vekja nokkra athygli því
hann er eitt af stóru nöfunum vestra
(Klute, All the Presidents Men,
Comes a Horseman) og hefur stýrt
mörgum frægustu leikurum Holly-
woods. Draumaprinsinn er öðruvísi
að því leyti að hún er ódýr og í
henni eru engir stórleikarar. Og hún
er ein af ómerkilegri myndum Pa-
kula.
Draumaprinsinn er raunar furð-
anlega slöpp nema í einstaka
velgerðum atriðum og nær aldrei
almennilegum tökum á manni eftir
máttlaus vinnubrögð lengst af frá
hendi leikstjórans, leikaranna og
handritshöfundarins Jon Boorstin.
Pakula og Boorstin eru ótrúlega
lengi að koma sér að efninu, tengsl
persónanna eru yfirborðskennd,
leikurinn er ósannfærandi og langar
þagnir og lítil sem engin tónlist til
áhersluauka veldur því að maður
missir fljótlega allan áhuga á því
sem er að gerast á tjaldinu.
Áhuginn vaknar að vísu við og
við því það eru sprettir í myndinni
sem eru nokkuð góðir. Hún er líkast
til mest í ætt við sálfræðilega þrill-
era en nokkuð annað. En ef það
væri eitthvað til sem héti draum-
fræðilegur þriller væri þetta einn
svoleiðis. Aðalpersónan er ung
stúlka sem verður fyrir árás á heim-
ili sínu og upplifír hana aftur og
aftur í draumum sínum þar til svo
er komið að hún þorir varla að
sofna. Hún leitar aðstoðar drauma-
sérfræðings (sem er raunar sér-
fræðingur í draumum katta) og
hann kennir henni að stjóma
draumunum. En hann er áhuga-
samur ungur vísindamaður og gerir
tilraun á stúlkunni þannig að hún
hagar sér í svefni í samræmi við
það sem hendir hana í draumi og
það á eftir að hafa alvarlegar afleið-
ingar.
Þetta er svo blandað ýmsum
fróðleik um drauma og draumfarir.
Hvort sem það stenst allt eða ekki
eru draumatriðin það besta við
slappa myndina; hrollvekjandi og
spennandi. Sérstaklega er lokaat-
riðið skemmtilega útfært. Frásögn-
in gerist mikið til í draumaheimi
ungu stúlkunnar og í hana blandast
áhrifavald pabbans yfir stúlkunni
og eitthvað um að pabbinn hafi
hrekið mömmu hennar í dauðann
með sjálfselsku og frekju, sem nú
beinist að dótturinni. Állt er það
heldur óljóst og veikt og ómerkilegt
eins og ástarsamband stúlkunnar
við ungan tónlistarmann og svo
samband hennar við vísindamann-
inn.
Það eru alls óþekktir leikarar í
myndinni sem standa sig ekki með
neinni prýði. Kvikmyndataka Svens
Nykvist er mjög þröng, andlit fylla
uppí tjaldið eins og hann vilji lýsa
inní innstu hugarfylgsni persón-
anna. En hann finnur ekkert nema
tómið.
. oQ skáPur'
ÍSUMAR
BUSTAÐ1NN
flfSfl
S SAMBANDSINS
ARMULA3 SIMAR 681910 681266
Rafbúö Sambandsins tryggir örugga þjónustu
o$ grillofnar
iNsNo%0'° **>■•*■
.V <v
é/A