Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 75

Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 75 Gerum Nauthólsvík að baðströnd Til Velvakanda Sannkallað sólarlandaveður hef- ur verið hér á landi að undanförnu en við höfum hins vegar enga bað- strönd til að þyrpast á og sleikja sólina. Mikið fjölmenni var þó í Nauthólsvík og nokkrir létu sig hafa það að fara þar í sjóinn þrátt fyrir mengunina sem þama er sögð vera til staðar. Það kom reyndar fram í fréttatíma Stöðvar tvö að mengunin þarna er líklega svo mikil að ekki er ráðlegt að fara í sjóinn í Nauthólsvík. Þarna gæti hins vegar verið prýð- is baðströnd ef menn tækju sig til og lengdu skolprörin þannig að þau flytu skólpið langt á haf út. Þessar framkvæmdir þyrftu ekki að kosta nein ósköp en fyrir bragðið þyrftum við ekki að ferðast um hálfan hnött- inn til að komast á baðströnd. Ég er viss um að margir kynnu að meta þetta framtak. Gunnar Örlítil athugasemd við umsögn um 9. sinfóníuna Til Velvakanda. Gabriele Jónasson skrifar: í umsögn um flutning 9. sinfóníu Beethovens fór Jón Asgeirsson tón- skáld nokkrum orðum um kvæði Schillers sem liggur til grundvallar kór- og éinsöngvum verksins. Þar segir m.a.: „Undir föðurlegri vöku Guðs vildu menn trúa á bræðralag og veraldar- frið, enda mun kvæðabálkur þessi hafa upphaflega heitið An die Fri- ede, en ritskoðendur bjargað ljóðinu frá banni með því að breyta Friede í Freude og því ber verkið þetta undarlega nafn, sem á ekki alls kost- ar við um innihald ljóðsins." Þessi skoðun tónskáldsins á sér enga stoð í því sem vitað er um Schiller og tilurð kvæðisins. Skáldið orti kvæðið í Dresden 1785. Þá hafði friður ríkt í Þýskalandi í meira en tvo áratugi og engin ritskoðun átt sér stað í fagurbókmenntum. Og þegar við lítum á einkalíf Schillers, fínnum við einmitt um þetta leyti mikla ástæðu til gleðinnar. Hann hafði fundið þann vin sem hann skrif- ar um: „Hver sem dýrgrip hefir hlotið, hjartans vin að eiga sér.“ Þessi vinur hét Gottfried Körner. Schiller hafði kynnst honum bréflega og bráðlega bauð Kömer þessum nýja vini sínum heim til sín til Dres- den. Schiller tók þessu boði fegins hendi, því að þá gat hann losað sig úr óþægilegum aðstæðum í Mann- Islensku- prófið of þungt Til Velvakanda Þar sem íslenskuprófið í ár var mun þyngra en samræmd íslensku- próf undanfarinna ára hafa verið, og sýnt þykir nú að um 30 til 50 prósent nemenda muni falla í íslensku í ár, vil ég beiðast þess fyrir hönd 9. bekkinga að slegið verði af fyrirgjafakröfunum. Það er hróplegt óréttlæti að próf séu misþung frá ári til árs. Nemandi í 9. bekk heim, þar sem hann átti í allmiklum heilsufars- og efnahagslegum örðug- leikum. Það var líka vinur hans, Gottfried, sem hafði fest sér „fríðan svanna", konu sem Schiller kallaði „yndislega litla húsmóður". Hjá þessum hjónum gat hann hvílt og jafnað sig eftir stormasöm og erfið ár. En vegna þess að Schiller var stór- huga maður, sá hann í sinni eigin gleði meira en það sem honum einum viðkom. Gleði — það er driffjöður og kraftur í náttúrunni og í göngu stjamanna. Sú gleði ríkir í hinni vold- ugu sinfóníu Beethovens. Ég er innilega þakklát fyrir að mega hlusta enn einu sinni á þetta stórkostlega verk og það á svo yndis- legu vorkvöldi og var þennan dag. Þessir hringdu . . Bröndóttur köttur Bröndóttur og hvítur köttur týndist frá Hverfisgötu 68 fyrir u.þ. b. mánuði. Ef einhver hefur orðið var við kisa er sá hinn sami beðinn að hafa samband við Dýra- spítalann í síma 7 66 20. Fundar- laun. Frábært útiball Tveir ferðalangar höfðu sam- band: „Við erum hér tvær sem skruppum til Selfoss um helgina, nánar til tekið 23. maí, og lentum þar á útiballi sem var alveg frá- bært í orðsins fyllstu merkinu. Það var vegna þess að hljómsveit- in sem spilaði var hreint æðisleg og við viljum endilega þakka henni og þeim sem stóðu að þessu balli fyrir frábæra skemmtun. Ekki vitum við hvað þessi hljóm- sveit heitir og værum þakklátar ef einhver gæti upplýst okkur um það." Yngsta kyn- slóðin getur ekki lesið texta Vigdís hringdi: „Ég er þriggja barna móðir og börnin eru á aldrinum sjö, fimm og fjögura ára. Ég sá á dögunum að það á að fara fram skoðana- könnun á sjónvarpsefni barna, 3ja til 15 ára. Mig langar aðeins að láta í ljósi undrun mína á því að sjónvarpið hefur ekki skilið hingað til að yngsta kynslóðin getur ekki lesið texta og því verða allar text- aðar myndir þeim ónýtt efni. Ég hef nú reyndar stundum reynt að setjast hjá krökkunum, er ég hef tíma, en oft hef ég sjálf ekki roð við hraðanum á textanum. Til hver ætlist þið? Hvernig þætti okkur fullorðnafólkinu að horfa á textalausar rússneskar eða kínverskar myndir alla daga?“ Lyklakippa Lyklakippa með sex lyklum fannst í Skólavörðuholti fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 2 04 84. Grá leður- taska Grá leðurtaska með skilríkjum m.a. vegabréfi var tekin í Lennon sl. laugardagskvöld. Sá sem fund- ið hefur skilríkin eða töskuna er beðinn að hringja í síma 7 92 67. Enginn fer skólaus frá okkur Sköval við Óðinstorg. Fáksfélagar ath.: Fyrirhugaðri Hafravatnsreið aflýst vegna framkvæmda við réttina. Kvennadeild Fáks. ROYAL \ SKYNDIBÚÐINGARNIR^ ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragötegundir CHAMPION m Ný kynslóö af bílkertum auka viðbragðsflýti og gangöryggi CHAMPION tryggja minni sótun vélar og hreinni út- blástur ný og tæknilega fullkomin glóða- kerti í diesel-vélar. Þekking Reynsla Þjónusta FALKINN SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.