Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
Dýrkeyptur skellur
__ ^Jrifskaft! Drifskaft!
élræja bílinn í hvelli!" þrumaði
Ríkharður Kristinsson, þegar
Toyota-bifreið hans kom til við-
gerðamannanna í enda Útnes-
vegar í „Hótel Nes-rallinu“.
Stuttu áður hafði hann komið
fljúgandi yfir síðustu hæðina á
leiðinni og missti afturenda
bflsins út í hraunkant. Löður-
sveittur stökk hann ásamt
aðstoðarökumanni sínum, Atla
Viðari, út úr bflnum og samt
vélvirkjunum hófust þeir handa
við að tjasla upp á stórskemmd-
an bflinn.
„Við tókum hvert stökkið á
fætur öðru, enda greitt ekið.
Ég sá að Atli spyrnti oft við
fótum, en hann var í sinni fyrstu
keppni. í síðustu hæðinni skrik-
aði bíllinn til í lendingu og við
fengum ljótan skell. Drifskaftið
bognaði og braut gírkassann,"
sagði Ríkharður. Þeir tjösluðu
bflnum saman í kapp við tímann,
nýtt drifskaft fór í og þeir héldu
af stað að nýju, enda búnir að
ná þriðja sæti í keppninni eftir
góðan akstur. „Strax á næstu
leið, um Fróðárheiði, festist
bfllinn hinsvegar í öðrum gír,
en ég stóð hann samt. Eftir
þetta þurftum við langt við-
gerðahlé og við reyndum að
koma bflnum í ökufært ástand,
en gírkassinn var illa farinn.
Eftir þrjá tíma hættum við —
þetta var vonlaust. Húsið utan
um gírkassann var mölbrotið og
engar almennilegar suðugræjur
að fá í Ólafsvík," sagði Ríkharð-
ur.
Ríkharður sagði að hann yrði
að skipta um bfl, þessi væri of
mikið skemmdur. „Ég á annan
eins heima, sem ég hefði átt að
taka með í varahluti. Við hefðum
ef til vill átt að fara ögn hæg-
ar, en við sáum hvað hægt er
að gera. Ég lærði heilmikið og
með betri bfl og útgerð tel ég
að sigur gæti náðst. Það verður
maður hins vegar að sanna með
öðru en orðum.“
i*'**„, (l.
Morgunblaðið/Gulli
IRíkharður og Jón, sigur-
vegari keppninnar, ræðast
við á meðan viðgerðamenn
beijast við að laga gírkass-
ann. Kristinn, faðir
Ríkharðs föndrar við illa
farin tannhjólin, en Krist-
inn kemur til hverrar
keppni sonarins.
Viðgerðarmennimir kölluðu
hver í kapp við annan og hömuð-
ust ásamt ökumönnunum við að
gera við skijóðinn.
Línudansarinn Philip Petit sýndi ýmsar kúnstir á línunni.
HÁTÍÐ í JERÚSALEM
Út af með ma
Þessa dagana er haldin mikil listahátíð í Jerúsalem og koma þar saman listamenn úr gervallri heimsbyggð-
inni. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar franski ofurhuginn Philip Petit gekk á línu yfir Hinnom-dal í
borginni helgu, en með því var hátíðin sett. Reipið var alls 300 metra langt, en eins og sjá má af myndinni, þurfti
að skorða það með stögum til þess að það sveiflaðist ekki. Niður var 60 metra fall.
Reuter
De Paula hlíft við aðkasti áheyrenda. Hefur maðurinn enga sóma-
tilfinningu?