Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 65

Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 65 um, sem hin sanna sterka sjó- mannskona. í fjarvist mannsins færðust á hennar herðar uppeldi barnanna, framkvæmdir heimilisins og öll störf utan húss og innan. Fórst henni það svo vel úr hendi að til fyrirmyndar mátti kalla, enda nutu þau hjón áberandi virðingar og vin- semdar og heimili þeirra var rómað fyrir gestrisni. Sigríður elskaði blóm og dáði fagurt umhverfi, enda bar heimili þeirra þess vitni. Hún var í eðli sínu glaðlynd og hændust því eldri og yngri að návist hennar meðan heilsa leyfði. Þau fluttust til Reykjavíkur 1962 og leigðu hjá ágætisfólki á Ásvalla- götu 22. Síðar keyptu þau sitt eigið húsnæði. Sigurjón hóf vinnu í Áburðarverksmijunni í Gufunesi 1963 og starfaði þar til 75 ára ald- urs. Þegar heilsa Sigríðar bilaði fluttust þau að Jökulgrunni við Hrafnistu og dvöldu þar í 8V2 ár eða til þessa dags. Bæði voru þau Sigríður og Sigur- jón trúuð og fólu líf sitt og störf guðlegri forsjá, en nú er hennar lífsstarfi lokið. Við slík þáttaskil vaknar sú spurning, hvað er dauði? í mínum huga er hann sem hryggð- arblandinn skilnaður en jafnframt fagnaðarstund. Skilnaður, þar sem sál hins dána er flutt frá vinum, ástvinum og ónothæfum líkama hans sem sálarbústaðar. Fagnaðar- stund þar sem sálin mætir handan tjalds, vinum og ástvinum sem fyrr eru gengnir yfir landamerki lífs og dauða, þar sem sálarinnar bíður löng eða stutt leið til fullkomleika á þroskabraut hins eilífa lífs, því Jesús hefur sjálfur sajgt og sannað með upprisu sinni: „Eg lifí og þér munuð lifa.“ Útför Sigríðar fer fram á morgun, föstudag, frá Dómkirkj- unni. Karvel Ogmundsson Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Plí>rpmXíIatiit» NÚ ER TÆKIFÆRIÐ ÚTSALA að fá sér skáp fyrir gott verð. / SELKO SKÁPAR Við seljum takmarkað magn skápa á stórlækkuðu verði. Allt að 40% afsláttur á sumum gerðum. SELKO áTA SIGUKÐUR |Uy ELÍASSONHF. Auðbrekku 1-3 Kópavogi, s: 41380

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.