Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
Stefáni
Valgeirs-
syni var
boðin
innganga
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins hefur samþykkt að
bjóða Stefáni Valgeirssyni inn-
göngu í þingflokkinn og hefur
Steingrímur Hermannsson af-
hent Stefáni bréf þess efnis.
Stefán kvaðst munu taka
þetta bréf til athugunar þegar
því væri hægt að koma við, enda
lægi ekkert á. Stefán kveður
ekki vera hlaupið að því fyrir sig
að ganga í þingflokkinn, sérstak-
lega eftir öll þau skrif, sem verið
hafí í Tímanum um mál sín, sem
hvorki hafí verið til fyrirmyndar
né til þess að auðvelda málin.
Fiskmarkað-
urinn opn-
ar á morgun
FISKMARKAÐURINN í Hafn-
arfirði opnar á morgun. Fyrsta
skipið sem þar mun landa verð-
ur togarinn Otur frá Hafnar-
firði, en uppistaðan í afla hans
er þorskur.
Samkvæmt reglum fískmarkað-
arins þurfa skip að tilkynna sig
með ákveðnum fyrirvara. Ef kaup-
endur staðgreiða ekki vöruna
verða þeir að leggja fram banka-
tryggingu. Miðað er við að keyptir
verði a.m.k. 10 kassar í einu, eða
5-600 kfló.
• •
Foreldrum boðið ípylsupartí
Morgun Diaoio/ övemr
BÖRNIN í Nóaborg við Stangarholt buðu foreldrum og öðrum
ættingjum í pylsupartí í gær í tilefni af sumarkomunni og góða
veðrinu. Börnin höfðu einnig sjálf búið til smákökur í tilefni
dagsins sem foreldrarnir gæddu sér á milli þess sem þeir sungu
og léku sér. Og sumir notuðu tækifærið og rifjuðu upp gamlar
æskuminningar í aanHkösHiinnm
Þorsteinn Pálsson hefur óskorað
traust hvers einasta þingmanns
— sagði Matthías Bjarnason eftir þingflokksfund í gær
Okumaður
fluttur á
sjúkrahús
ÖKUMAÐUR slasaðist nokkuð
þegar hann velti bifreið sinni
skammt norðan Akureyrar í
gærmorgun.
Ökumaðurinn var á leið eftir
Norðurlandsvegi frá Akureyri
þegar óhappið varð, um kl. 7 í
gærmorgun. Skammt frá Lauga-
landi missti ökumaður stjóm á
bifreið sinni, með þeim afleiðing-
um að hún valt út af veginum.
Ökumaðurinn, sem var einn í
bifreiðinni, slasaðist nokkuð og
var fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri.
Sverrir Hermannsson:
„FORMAÐUR flokksins fékk
fullt umboð til samninga um
sljómarmyndun og hann hefur
óskorað traust hvers einasta
þingmanns," sagði Matthías
Bjamason, viðskiptaráðherra,
þegar Morgunblaðið sneri sér til
hans í gær, skömmu eftir að
fundi í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins lauk.
Aðspurður um þá gagnrýni, sem
eftir honum hefur verið höfð í fjöl-
miðium á forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins sagði Matthías Bjamason:
„Ég átti samtal við Tímann og þar
er rétt eftir mér haft, það sem fram
kemur, en því er blandað saman
við gagnrýni annars manns. Það
sem ég sagði er ekki gagnrýni í
sambandi við myndun ríkisstjómar,
Fundur utanríkisráðherra NATO:
Framkvæmd utanríkisráð-
herrafundarins gekk vel
— seg’ir Hjálmar W. Hannesson sendifulltrúi
„VIÐ erum ánægð með hvemig
framkvæmd fundar utanrikis-
ráðherra NATO gekk. Ég held
að öllum beri saman um að vel
hafi til tekist,“ sagði Hjálmar
W. Hannesson sendifulltrúi í
samtali við Morgunblaðið.
Hjálmar sagði að ýmis mál
hefðu komið upp, en þau vom öll
þess eðlis að auðvelt reyndist að
leysa þau strax. „Aðdragandi
fundarins var langur og nægur
tími til undirbúnings. Að vísu vom
breytingar á þátttakendalistum
fram á síðustu stundu og einnig
komu ráðherramir ekki allir á
þeim tíma sem upphaflega var
gert ráð fyrir. Það þýddi að mikið
var að gera síðustu sólarhringana,
en allt gekk vel."
heldur í sambandi við stefnumörk-
un, sem er algerlega óskylt mál
stjómarmyndun. “
„Ég vona innilega að þessum
þremur flokkum takist að mynda
ríkisstjóm, sem verði undir forystu
formanns Sjálfstæðisflokksins.
Hins vegar verða sjálfstæðismenn,
sem aðrir, að gera sér grein fyrir
því, að þegar gengið er til samninga
við tvo flokka, verða menn að koma
til móts hver við annan, ef samning-
ar eiga að nást. Ef allir þessir
flokkar sýna sanngimi og slá af
kröfum sínum, þá treysti ég því,
að Þorsteinn Pálsson verði forsætis-
ráðherra innan örfárra daga," sagði
Matthías Bjamason.
Matthias Bjamason
Grindavík:
Árangurslaus leit
LEITIN að unga sjómanninum,
sem saknað er frá grindavík,
hefur enn engan árangur borið.
Björgunarsveitarmenn frá
Nú eru okkur allir vegir
færir í sljórnarmyndun
„ÉG ER ákaflega ánægður með að nú náðu menn höndum saman
og ég er í engum vafa um, að formanni flokksins tekst að verða
framkvöðull að myndun nýrrar rikisstjórnar,“ sagði Sverrir Her-
mannsson, menntamálaráðherra, i samtali við Morgunblaðið í gær,
að loknum fundi þingflokks Sjálfstæðisflokksins, þar sem rætt var
um stjómarmyndunarviðræður og stöðu Sjálfstæðisflokksins.
„Það kann vel að vera, að menn
þurfí að slá eitthvað af ýtmstu
kröfum og Sjálfstæðisflokkurinn
að gefa eitthvað eftir af stefnumál-
um sínum," sagði menntamálaráð-
herra ennfremur. „Þrír ólíkir
flokkar semja ekki um stjóm lands-
ins nema þeir gangi til móts hver
við annan um stefnumál og fram-
kvæmd einstakra mála. Mér er
ljóst, að ýmislegt hlýtur að vera
eftir í samningum flokkanna. Þeir
hafa verið að tala um heildarlínur.
En á þessum þingflokksfundi
stilltu menn saman hugina og skip-
uðu sér að baki formanni flokksins
með þeim hætti að nú em okkur
allir vegir færir í stjórnarmyndun.
Ég vil taka það fram, að við
Þorsteinn Pálsson áttum rækilegt
einkasamtal í fyrradag. Við jöfnuð-
um allan ágreining og hann gaf
mér skýringar á ýmsu, sem hafði
farið á milli mála,“ sagði Sverrir
Hermannsson að lokum.
Grindavík, Sandgerði og Vogum
gengu fjörur frá Krísuvíkurbergi
vestur fyrir Reykjanesvita á laug-
ardag, án árangurs. Leitinni
verður haldið áfram næstu daga.
í frétt í Morgunblaðinu í gær
misritaðist nafn bátsins, sem flutti
plastbátinn til Grindavíkur eftir
að hann fannst. Báturinn heitir
Boði GK og er frá Sandgerði.
Kr.Ben.
Sverrir Hermannsson.
Bílvelta
íFljótum
BÍLVELTA varð í Fljótun-
um í fyrradag, skammt frá
eyðibýlinu Hólum. Lögregl-
unni á Sauðárkróki var
tilkynnt um atburðinn um
kl. 13.30 og fór hún á vett-
vang. Ökumaður bifreiðar-
innar slasaðist litillega og
var fluttur í sjúkrahúsið á
Siglufirði.