Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 43 Morgunblaðið/Björa Blöndal Þeir voru hressir eldri borgarar af Suðurnesjum sem voru að fara til vikudvalar að Flúðum. Á myndinni eru einnig fararstjórar og bifreiðastjórinn sem ók hópnum. Eldri borgarar dvelja að Flúðum Keflavfk. STYRKTARFÉLAG aldraðra á Suðurnesjum hefur á undanförnum árum gengist fyrir ferð- um innanlands fyrir eldri borgara á svæðinu. í fyrstu ferðinni héidu 36 eldhressir borgarar af Suðurnesjum til vikudvalar að Flúðum í Hrunamannahreppi. Að sögn Soffíu Magnúsdóttur, formanns Styrkt- arfélagsins, verður farið t tveggja daga ferð um Snæfellsnes 2. ágúst og í sama mánuði verður farið til Hvolsvallar og dvalið þar í 6 daga. Farar- stjórar í þessari ferð eru Anna Ingólfsdóttir og Gerða Hammer. — BB Norðankaldi í Skagafirði Bæ, Höfðaströnd. NORÐANKALDI hefur verið hér í Skagafirði að undanförnu. Gras sprettur frekar hægt, sérstak- lega i innsveitum, því vætuna vantar. Sauðburður gekk vel og mikið er um tvílembur. Treg veiði er hjá smærri bátunum en togarar hafa fiskað vel og er því næg atvinna í frystihúsum hér- aðsins. Grásleppuveiði mátti heita góð en er nú lokið. Á annan hvítasunnudag fór fjöl- mennur hópur af öldruðum fólki í skemmtiferð frá Sauðárkróki til Siglufjarðar. Fararstjóri var séra Hjálmar Jónsson prófastur. Móttök- ur allar á Siglufirði voru með ágætum. — Björn í Bæ. Atriði úr nýjustu lögregluskólamyndinni sem Bíóhöllin hefur hafið sýningar á. / ac 1 1^1 Fjórða lögregluskóla myndin í Bíóhöllinni BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýning- ar á grínmyndinni„Lögreglu- skólanum 4, AJlir á vakt“. Þetta er mynd númer fjögur i þessum myndaflokki. Með aðalhlutverk fara þau sömu og áður eða Steve Guttenberg, Bubba Smith, Michael Winslow, David Graf og Tim Kazurinski. Það eru þeir félagar Mahoney, Tackleberry, Joens og Hightower sem fara á kostum eins og áður, en nú hefur Lassard, skólameistari lögregluskólans, fengið snjalla hug- mynd, sem fólgin er í því að efla allt samstarf óbreyttra borgara við lögregluna í þeim tilgangi að draga úr afbrotum af öllu tagi, segir í frétt frá kvikmyndahúsinu. Framleiðandi myndarinnar er Paul Maslansky og leikstjóri er Jim Drake. Borgarráð BSR fær lóð við Skógahlíð Borgarráð samþykkti síðastlið- inn þriðjudag að Bifreiðastöð Reykjavíkur yrði gefinn kostur á lóð við Skógahlíð undir starf- semi sína. Lóðin sem um er að ræða er á milli núverandi lóðar Skeljungs og Skógahlíðar og mun Skeljungur hafa óhindraðan umferðarrétt til og frá lóð sinni þar til fyrirtækið hefur breytt aðstöðu sinni og fært aðkomuna að fyrirhuguðum Bú- staðavegi. Áskrifiarsiminn er 83033 FIGGJO NORWAY - mjúkar línur - mjúkir litir - Nýtt og heillandi útlit á hinum vinsæla FIGGJO -heimilisboröbúnaði. Litskreytingin er undu glerungi og endist þvi ótakmarkaö. BLEIKA LÍNAN hetur tengið gæðastimpilinn V555 sem þýðir: • Engin hætta á sprungum i glerungi • Þolir vel alla venjulega meðhöndlun, uppþvottavólar og örbylgjuofna. 1 ARSABYRGÐ Verður þú svo óheppin(n) að brjóta hlut úr stellinu bætum við pér skaðann þér að kostnaðarlausu jalnvel þótt sokin sé þm UtufuLu UTSÖLUSTAÐIR Verslunin KÚNIGÚND, Skólavörðustig 6-Simi: 1 34 69 Verslunin RÓM, Tjarnargötu 3, Keflavík-Simi: 3308 saniias
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.