Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 Þorlákshöfn: Þorlák ÁR 5 tók niðri í höfninni „ÞAÐ ER alveg ljóst að ísfisk- sala íslendinga í Bretlandi hefur áhrif á sölu SH og Sambandsins á frystum fiski. Það er verið að selja ísaðan fisk, sem síðan er unninn i brezkum frystihúsum og seldur i beinni samkeppni við islenzkan fiskiðnað. Bresku frystihúsin eru betur sett í sam- keppninni um fiskinn þar sem þau búa við minni fjármagns- kostnað og betri aðstöðu til sérhæfingar og miklu lægri fastan kostnað. Það er alveg ljóst að isfisksalan eykur framboð á frystum fiski í samkeppni við okkur, þannig að við háum ekki eins háu verði og annars væri mögulegt," sagði Ingólfur Skúla- son, framkvæmdastjóri Icelandic Freezing Plants Ltd. í Grimsby, í samtali við Morgunblaðið. „Þetta hefur auk þess bein áhrif Kaffigestir á Borginni qjóta veðurblíðunnar fyrir helgina. Morgunblaðið/Sverrir Frönsk stemmning í Pósthússtræti HÓTEL Borg tók upp á þeirri nýbreytni á dögunum að koma fyrir borðum og stólum á gangstéttinni fyrir utan hótelið og gefa gestum kost á að njóta kaffisopans úti i góða veðrinu. „Þessi nýjung hefur mælst vel fyrir hjá gestum okkar, enda hefur veðrið leikið við okkur síðustu daga," sagði Rögnvaldur Ólafsson hótelstjóri. Hann sagði að ýmislegt fleira væri að gerast á Borginni, til dæmis standa nú yfir breytingar á matsalnum með það fyrir augum að þar ríki „létt- ara andrúmsloft", eins hann orðaði það. Þorlákshöfn. TOGARANN Þorlák ÁR 5 tók niðri í höfninni í Þorlákshöfn í föstudag, nánar tiltekið norð- urhöfninni, er hann var á leið að Svartaskersbryggju. Stór- straumsfjara var og togarinn með fullfermi af stórum og góðum þorski sem hann fékk í vikuveiðiferð á Vestfjarðar- miðum. Þegar reynt var að losa togar- ann fékk hann í skrúfuna og var fenginn bátur til að fara með spotta upp á svokallaða L- bryggju svo hægt yrði að draga togarann að bryggju með spilum skipsins. Dýpi í höfninni er nú með minnsta móti og má þakka góðu veðri í vetur að ekkert óhapp hafi orðið. Reynt hefur verið að dýpka höfnina hér á tveggja ára fresti en fjármagn verið af svo skomum skammti að oft hefur ekki verið hægt að dýpka annað en innsiglinguna og utanvið höfnina, en höfnin innanverð lát- in mæta afgangi. Nú stendur til að mæla dýpi í höfninni en ekki er alveg í sjónmáli að fjármagn fáist til dýpkunar. J.H.S. Frysting íslenzks fisks í Bretlandi: Verðlækkun á frystum fiski á íslenzka þjóðarbúið, þar sem ver- ið er að flytja vinnu úr landi. Tollastefna EB miðar að því, að Ísland verði „hráefnisframleiðandi" fyrir bandalagið. Til dæmis eru háir tollar á ísuðum flökum, en litl- ir sem engir á heilum ferskum fiski. Því má spyrja hvort íslenzk stjóm- völd þurfl ekki að líta á nauðsyn þess að nota útflutningsgjöld til að jafna misræmið, sem EB kemur svo vel. Þá sitja íslenzkir framleiðendur að mestu við sama borð og erlendir. Það virðist augljóst að gáma- tízkan bitni verulega á frystihúsum heima. Akveðin hús hafa boðið sama verð fyrir fískinn og væri hann seldur erlendis, en engu að síður ekki fengið hann. Það hljóta að teljast sérkennileg sjónarmið fiskseljenda. Oft á tíðum er það augljóst að menn hafa ekki reiknað dæmið til enda, gleymt föstum kostnaði, umboðslaunum og fleiru og ekki náð sömu útkomu og við sölu og vinnslu físksins heima. Það er mjög ánægjulegt að sjá, að þeir, sem annars hafa lagt áherzlu á vinnslu físksins innanlands, hafa haft það gott. Þeir hafa náð meiri hagnaði inn í landið en aðrir og fært umhverfí og fískverkafólki aukna möguleika á úrbótum. Ef svo heldur sem horfír, að menn haldi áfram að senda fískinn óunninn til Bretlands og halda þannig uppi fískvinnslu þar, er það spumingin hvort ekki væri hag- kvæmara fyrir íslendinga að flytja fískvinnsluna, bæði frystingu og söltun, til Bretlands. Það er ekkert launungarmál að bæði umboðs- vinna fyrir íslenzka fískútflytjendur og vinnsla íslenzka físksins í Bret- landi hefur verið mjög ábatasöm. Það er mjög sorglegt að sjá íslenzku þjóðina gefa frá sér þá verðmæta- sköpun, sem verður í Bretlandi með tilliti til þess, að íslenzka þjóðar- búið hagnast af fullvinnslu á íslandi. Það er hrein og klár stefna EB að nýta sér íslendinga sem fram- leiðendur hráefnis fyrir fiskvinnslu sína eftir að landhelgin var færð út. Við megum ekki vera svo blá- eygir að halda að fríðar sendinefnd- ir frá Hull, Grimsby, Bremerhaven og Cuxhaven, þar sem þúsundir manna hafa atvinnu af vinnslu og sölu á íslenzkum físki, séu að koma til íslands og segja okkur hve mik- inn greiða þeir séu að gera okkur með því að kaupa af okkur fískinn. Þetta er þveröfugt. Þessar sendi- nefndir koma til að tryggja sér fískinn okkar óunninn án tillits til hvaða áhrif það hefur í raun heima fyrir. Auðvitað verður að vera ftjálsræði í útflutningi á sjávaraf- urðum, en tollar EB og annarra miðað að því að binda okkur i ákveðnar skorður. Gegn því verðum við að beijast til að fijálsræði verði í raun. Það hlýtur að vera hlutverk stjómmálamanna, sem verða að gera sér grein fyrir áhrifum þessa á íslenzka byggðaþróun. Með því að flytja vinnuna úr landi, hlýtur að vera gengið á möguleika físk- verkafólks á íslandi á stöðugri og ábatasamri vinnu. Þessi útflutning- ur hlýtur að leiða til atvinnuleysis og hmns sjávarplássanna. Líklega verður þá eina leiðin fyrir þetta fólk að flytja til Bretlands og Þýzkalands til að framfleyta sér og sínum. Atvinnu verður ekki að fá á íslandi," sagði Ingólfur Skúlason. Pétur Eggertsson hjá sjúkrabílnum sínum. Morgunblaðið/ÓB Skagaströnd: Vélstjóri kaupir sjúkrabíl - Fyrsti sjúkrabíllinn á Skagaströnd Skagastrttnd. OFTLEGA hefur komið í ljós hve ófullnægjandi það er fyrir Skag- strendinga að þurfa að treysta á sjúkrabUaþjónustu frá héraðshælinu á Blönduósi. Kom það skýrt fram nú nýlega þegar flytja þurfti skað- brenndan mann á sjúkrahús héðan frá Skagaströnd. Nú hefur loks verið bætt úr ig að nú er verðið á bílnum komið upp í um 400 þúsund. Þegar Pétur var spurður hvemig hann ætlaði að borga bílinn sagðist hann vera búinn að tala við forráða- menn fyrirtækja á staðnum og hefðu þeir tekið vel í að styrkja kaupin. Einnig hefur Pétur opnað sérstakan reikning í Landsbankan- um þar sem fólk getur stutt þetta framtak með fijálsum framlögum. „Annars stendur tryggingin í heim- keyrslunni minni, því ef illa gengur að safna fé til kaupanna þá sel ég bara jeppann minn," sagði Pétur svo að lokum. - ÓB sjúkrabílaskortinum hér. Pétur Eggertsson, vélstjóri hjá Hólanesi hf., keypti notaðan sjúkrabíl frá Grindavík. Pétur tók lán í Lands- bankanum að upphæð 350 þúsund og keypti bflinn á eigin ábyrgð, en slysavamadeildin á Skagaströnd mun reka hann. Bfllinn, sem er Chevrolet Scotts- dale árgerð 1979, er með drif á öllum hjólum og er ekinn 55 þúsund kflómetra. Hann hefur verið notað- ur sem sjúkrabfll í Grindavík og er því útbúinn sem slíkur. Ýmislegt vantaði þó f bflinn af lausabúnaði sem Pétur hefur keypt í hann þann- Morgunblaðið/Sverrir Úr nýjum biðsal Flugleiða á Reykjavikurflugvelli. Nýr biðsalur á Reykjavíkurflugvelli NÝR biðsalur fyrir farþega verð- ur tekinn í notkun á Reykjavíkur- flugvelli á mánudaginn. Hér er um að ræða 100 fm. sal sem byggður var við flugstöð innan- landsflugs Flugleiða. „Það verður geysileg bót af þess- um biðsal fyrir flugstöðina," sagði Andri Hrólfsson stöðvarstjóri Flug- leiða á Reykjavíkurflugyelli. „Fyrir utan allar vélar sem fljúga innan- lands koma í hverri viku a.m.k. 13 flugvélar frá útlöndum og mun þessi salur anna öllum komum í millilandaflugi. Áður varð að loka biðsalnum og reka alla út þegar flugvélar komu frá útlöndum svo tollverðir gætu afgreitt farþegana." Sjónvarps- útsending- arí steríó eru ekki á döfinni íslensku sjónvarpsstöðvarn- ar tvær senda ekki út í steríó og áætla ekki að hefja slíkar útsendingar á næstunni. Morgunblaðið hafði samband við Sverri Ólafsson, rekstrarstjóra tæknideildar sjónvarpsins, og innti hann eftir því hvort áætlanir væru uppi um að he§a sjónvarps- útsendingar í sterió. Sverrir sagði að slíkar breyting- ar væru ekki á döfínni og yrðu ekki í náinni framtíð, en tækni- menn sjónvarps fylgdust þó vel með þróun þessara mála í ná- grannalöndunum. Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Gísla Sigurðsson, deild- arstjóra tæknideildar Stöðvar 2. Gísli sagði að lokaákvörðun hefði ekki verið tekin um steríóútsend- ingar en þær hæfust þó örugglega ekki á þessu ári. Til að nema steríóútsendingar þarf sérstök sjónvarpstæki og verð á slíkum tækjum er nokkuð hærra en á venjulegum tækjum. Sem dæmi má nefna að í Heimilis- tækjum hf.í Sætúni kostar venju- legt 20 tommu sjónvarpstæki kr. 40.560 en 22 tommu steríótæki kostar kr. 66.700. Báðum tækjun- um fylgir Qarstýring. í Hljómbæ, Hverfisgötu 103, kostar venjulegt 21 tommu tæki með ijarstýringu kr 56.422 en 21 tommu steríótæki með íjarstýr- ingu kostar kr. 73.915.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.