Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14, JÚNÍ 1987
29
Morgunblaðið/Einar Falur
Með búnaðinum verður hægt að þjóna íbúum um land allt frá einni og sömu stjórnstöð.
Metsölublað á hveijum degi:
Haf inn rekst-
ur þjónustu-
miðstöðvar
fyrir öryrkja
og aldraða
BANDALAG íslenzkra skáta og
Öryrkjabandalag íslands ásamt
norska fyrirtækinu Nordisk
Sikkerhetssenter a.s., hafa
ákveðið að stofna hlutafélag um
rekstur þjónustumiðstövðar sem
gætir öryggis aldraðra og ör-
yrkja sem búa heima hjá sér.
Þjónusta þessi byggist á búnaði
sem er tengdur við þjónustumið-
stöðina með símalínu.
í miðstöðinni verður vakt allan
sólarhringinn með sérþjálfuðu
starfsfólki í neyðarhjálp sem kallar
á frekari aðstoð ef á þarf að halda.
Öryggismiðstöð þessi mun einungis
gæta að lífi og heilsu einstaklinga.
Búnaður hjá notanda er þannig
að notandi ber á sér lítinn neyðar-
hnapp sem gerir honum kleift að
hafa samband við neyðarþjón-
ustuna eða nágranna og ættingja.
Um leið og stutt er á hnappinn
hringir sjálfkrafa í númer sem not-
andi hefur sett inn á minni síma-
númerasendis og líða ekki nema
1—2 mínútur þangað til samband
næst. Búnaðurinn gefur talsam-
band milli notanda og stjómstöðvar,
ættingja og vina. Með þessum bún-
aði verður hægt að þjóna íbúum
um land allt frá einni og sömu
stjómstöð.
Á Norðurlöndum hefur notkun
slíks búnaðar aukist og gerir mörg-
um einstaklingum fært að búa
áfram í heimahúsum. Víða er litið
á slík hjálpartæki sem sjálfsögð
hjálpartæki fyrir öryrkja og aldr-
aða. Heilbrigðisyfirvöld í Osló hafa
gert samning við Nordisk Sikker-
hetssenter a.s. um þjónustu við
skjólstæðinga sína.
(Úr fréttatilkynningu.)
VJterkurog
kl hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Úrval í fararbroddi. Allt frá því að íslending-
ar fóru fyrst í sólarferðir til Mallorca hefur
Úrval verið í fararbroddi íslenskra ferðaskrif-
stofa á þessari vinsælu eyju og ávallt fundið
bestu staðina á hverjum tíma. Fyrst var það
Magaluf-ströndin, síðan Alcudiaflóinn og
nú það allra nýjasta og besta: SA COMA
STRÖNDIN. Þar dvöldu nokkur hundruð
íslendinga á síðastliðnu sumri við frábærar
aðstæður.
Hinn landskunni og eldfjörugi Kristinn R.
Ólafsson í Madrid verður fararstjóri í
Sa Coma. Hann tekur á móti farþegum
við komuna, skipuleggur skoðunarferðir til
markverðustu staða eyjarinnar og heldur
uppi lífi og fjöri meðan á dvölinni stendur.
Brottför / Heirmkoma: Dagar:
6. júní—20. júní 14 uppselt
20. júní—11. júlí 21 uppselt
22. júní—13. júlí 21 laus sæti
13. júlí—3. ágúst 20 laus sæti
3. ágúst—24. ágúst 21 örfá sæti laus
24. ágúst—8. sept. 15 örfá sæti laus
7. sept.—28. sept. 21 uppselt
8. sept.—3. okt. 25 laussæti
3. okt.—31. okt. 28 laus sæti
KOMDU MEÐ TIL MALLORCA
FERÐASKRIFSTOFAN URVAL V>AUSTURVÖLL. PÚSTHUSSTRÆTI 13 101 REYKJAVlK
Umboðsmenn Úrvals um land allt: