Morgunblaðið - 14.06.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
25
i
Sjómannadagsblað Nes
kaupstaðar komið út
Eggjaþjófínum
vísað úr landi
SJÓMANNADAGSBLAÐ Nes-
kaupstaðar er komið út. Blaðið
er 132 síður og er þetta 10 ár-
gangur blaðsins.
Meðal efnis í blaðinu er grein
um Sigga Jóns, bemskuskeið
mótorbátanna, ferð með Rjukan
og flotlínuveiðar, Miaca, fyrsta
gufuskipið og fyrsta skipið, sem
reyndi togveiðar á íslandi, slipptúr
Steingrímur
á Seyðisfjörð, hrakfallasögu Bark-
ar á Bevinshire Bay, framtíð
sjávarbyggða.
Einnig er grein um Randulfs-
sjóhús í Mjóeyrarvík við Eskifjörð,
ritgerð eftir Guðrúnu Emu sigurð-
ardóttur um sjómennsku og
hjátrú, rætt um ímynd hins feng-
sæla skipstjóra, rætt við nokkrar
konur sjómanna, smásaga um sjó-
mennsku, grein um sjávaútvegs-
fræði í Háskólanum í Tromsö,
grein um fískeldismöguleika á
Austurlandi, aflamagn á Nes-
kaupstað 1986 og pistillinn
„Hugsað heim" eftir Stefán Snæv-
arr.
Austurríska ferðamanninum,
sem var handtekinn í Mývatns-
sveit á þriðjudag fyrir stuld á
andareggjum, verður vísað úr
landi.
Þegar maðurinn var handtek-
inn var hann með 15 andaregg í
fómm sínum. Hann kvaðst hingað
kominn til að kaupa lundaegg í
Vestmannaeyjum, en gat ekki
skýrt ferðir sínar norður í land.
Maðurinn var með sérstakan
kassa meðferðis undir eggin og
bar kassinn þess merki að hafa
áður verið notaður undir slíkar
sendingar frá íslandi. Maðurinn
var í yfírheyrslum hjá útlendinga-
eftirlitinu í fyrradag og var
ákveðið síðdegis að honum yrði
vísað úr landi. Hann verður því
sendur heim á leið með fyrstu
ferð og fær ekki að koma til Norð-
urlandanna næstu fímm árin.
sýnir í Eden
STEINGRÍMUR Sigurðsson, list-
málari opnaði málverkasýningu
í Eden í Hveragerði, þann 2. júni
síðastliðinn. Lýkur henni í dag,
sunnudaginn 14. júní.
Er þetta 62. sýning Steingríms
og „tileinkuð undanfömum sjö góð-
um ámm í lífi mínu,“ eins og hann
segir sjálfur. Sýningin er sú ellefta
sem Steingrímur heldur í Hvera-
gerði.
Sjómanna-
dagurinn
á Grenivík
Grenivík.
HÁTÍÐARHÖLD sjómannadags-
ins á Grenivík verða með hefð-
bundnum hætti í dag.
Dagskráin hefst við höfnina kl.
14.00. Björgunarsveitin Ægir verð-
ur með björgunaræfíngu og á
túninu við gamla bamaskólann
verður meðal annars reiptog og
fleira til gamans gert. Kvenfélagið
Hlín verður með kaffíveitingar í
samkomusal nýja skólans og dans-
leikur verður haldinn í kvöld þar
sem hljómsveitin „Helena fagra"
sér um flörið til kl. 3.00 í nótt.
Vigdís
Siglufjörður:
Leiðrétting-
vegna minnisvarða
Siglufirði
í FRETT um sjómannadaginn á
Siglufirði hér í blaðinu misritað-
ist að minnisvarði um drukknaða
sjómenn ætti að vera staðsettur
við Sparisjóð Siglufjarðar.
Hið rétta er að minnisvarðinn á
að vera staðsettur við fískiðjuver
Þormóðs ramma. Opnaður hefur
verið reikningur vegna minnisvarð-
ans í Sparisjóði Siglufjarðar og í
Útvegsbanka fslands.
Einnig er rétt að komi fram að
kaffi verður selt á Hótel Höfn en
ekki í Alþýðuhúsinu, eins og sagt
var.
Matthías
Sumarbúðir
skáta á Úlf-
Ijótsvatni
SUMARBÚÐIR skáta á Úlfljóts-
vatni hófu starfsemi sína
fimmtudaginn 11. júní.
Menntamálaráðuneytið _ hefur
heimilað Skátaskólanum á Úlfljóts-
vatni að reka sumardvalarheimili
fyrir 42 börn nú í sumar.
Dreymir þig stundum að þú liggir á strönd og
borðir góðan mat, að þú siglir á fallegum bát, spilir
golf, akir um grænt landslag, stundir leikhús, tónleika,
diskótek og hver veit hvað? Við þekkjum drauminn og
bjóðum þér að upplifa skemmtilega og fjölbreytta
daga hjá góðum grönnum okkar, Bretum. Flugleiðir
fljúga allt að átta sinnum í viku til London í sumar og
þrisvar í viku til Glasgow. Hér koma örfá dæmi um
ljúfa „breska daga“.
fara hreinlega í „golfferð11 um Skotland, aka milli
spennandi golfvalla og góðra hótela.
Flug og bátur
Þú lætur þig líða um kyrrlátt lcindslag Norfolk á
bát eftir síkjum og ám, leggur að bryggjum lítilla bæja
eða freistandi veitingastaða og kráa sem liggja víða
meðfram bökkunum. Norfolk er náttúruvemdarsvæði
ríkt af fuglalífi og vatnágróðri.
Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100
GLASGOW
Flug+híll f 2 vilairkr. 13.575 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 böm, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofumar.
Aíb, Öfl flagumÉgfd Flugteiða íií og frá timthrow
fer m Tmmmi J,
FLUGLEIDIR
Flug, bíll, hús og golf
Á bíl ertu pinn eiginn faréu-stjóri, heimsækir þá
staði sem þig hefur dreymt um og hagar tímanum
eftir þínum hentugleika. Skemmtilegt væri t.d. líka að
leigja eitt af rómantískum BLAKES-SUMARHÚSUNUM
í nokkra daga og aka stuttar ferðir í nágrenninu eða
BLAKES-BÁTAR
Flijg+hátnr í 1 vikii kr. 21 ,S18 á mann. Verð miðað við 2
fullorðna og Caribou bát. Mjög margir aðrir möguleikar.
Tímabilið 13.-27. júní.
L0ND0N
Flug+bíU f2vikurkr. 15.011 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 böm, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
AUK hf. 110.10/SlA