Morgunblaðið - 14.06.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
Líkan af Egilsborgnm eins og þær munu verða þegar framkvæmdum er lokið.
Ásamt Sveini Jónssyni byggingarmeistara er Ólafur að reisa nýjan
verslunar-, þjónustu- og íbúðarkjama þar sem Ölgerð Egils Skal-
lagrimssonar var áður, kallast þessi kjami Egilsborgir.
skrautlega, sérstaklega þegar leikið
var upp á Keflavíkurflugvelli þar
sem brennvínið var ódýrt.
„Þegar verst gekk teygði maður
sig bara í snúruna og tók þá úr
sambandi,“ segir hann og hlær.
Um tíma stundaði hann útreiðar
og var hin mesta hestaskella en
vegna lausafjárskorts og anna lagði
hann hestamennskuna á hilluna
með þeim afleiðingum að helsti reið-
skjóti hans Blakkur lenti í einhveiju
kjötborðinu!
„En nú er svo komið að ég er
farinn að geta hugsað svolítið meira
um mig og mína. Nú fara fjármun-
ir mínir í það að mennta mig og
seinna hef ég hug á að ferðast, en
við höfum lítið getað gert af slíku
hingað til og sjaldan farið í sum-
arfrí."
— Við spurðum Ólaf hvaða
stefnu hann gæti hugsað sér að
taka í lífinu, ef hann væri núna
sautján ára?
„Eg mundi velja sömu leið og ég
hef farið. Ég mundi kaupa mér
verslun og vinna myrkranna á milli,
það kemur ekkert nema gott út úr
því. En nú liggur fýrir að ljúka stúd-
entsprófinu, sem verður eftir eitt
og hálft ár. Ég hef kunnað afar vel
við mig í þessu námi. Þó skólafélag-
amir séu flestir yngri en ég hef ég
sjaldnast fundið tilfinnanlega fyrir
aldursmuninum. Það eru líka
nokkrir í skólanum á mínu reki.
Að stúdentsprófi loknu ætla ég svo
að setjast í háskóla, ætli viðskipta-
fræðin verði ekki fyrir valinu."
— Ef við skyggnumst enn lengra
inn í framtíðina, hvað sér Ólafur þá?
Ég hef áhuga á að íjárfesta í
fleiru en verslun og steinsteypu, til
að dreifa áhættunni. Ég hef til
dæmis áhuga á að setja á fót fjár-
mögnunarfyrirtæki, vera með
verðbréfamarkað og fjármögnunar-
leigu, því það er til margt dugmikið
fólk, sem gæti gert góða hluti, ef
það hefði greiðan aðgang að fjár-
magni."
Texti: Hildur Einarsdóttir.
Ljósmyndir: Sverrir Vilhelmsson.
Þeir feðgar hafa leigt út verslunarrekstur Kaupgarðs síðan 1983 en eiga húsnæðið ásamt öðru verslun-
arhúsnæði í byggingunni.
Námskeið í stofnun
fyrirtækja fyrir konur
Iðntæknistofnun íslands gengst fyrir
grunnnámskeiði um stofnun og rekstur
fyrirtækja dagana 22. til 25. júní og 27.
júní.
Námskeiðið er ætlað konum sem áhuga
hafa á að afla sér fróðleiks um stofnun
fyrirtækja og stjórnun almennt.
Námskeiðið ferfram íkennslusal Iðn-
tæknistofnunar, Keldnaholti.
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
Athugið! takmarkaður þátttakendafjöldi.
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
í Kaupmannahöf n
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖOINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
KongoROOS
SKÓRNIR
fást hjá okkur í litlu
stærðunum, 20-34
Póstsendum.
Opið á laugardögum 10-12.
smáskór TSSSSt^ 6b
S: 622812.
t-
SALLAFÍN
SÆTAÁKLÆDI!
Sætaáklæði, hjólkoppar og gúmmímottur.
í flestar gerðir bifreiða!
Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26.
Þar er úrvalið mest í bílinn. Láttu sjá þig
sem fyrst. Þú og bíllinn þinn njótið góðs af
heimsókninni.
BORGARTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
Stórmarkaður bíleigenda
ARGUS/SÍA