Morgunblaðið - 14.06.1987, Qupperneq 44
v?pr ryrúr. tr armArmvrvrn?! mr?A,Tavrnrr?io'M
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNI 1987
Elmore James
Elmore James
___________Blús_______________
Árni Matthíasson
Þeir voru margir tónlistar-
mennirnir sem mótuðu
Chicagoblúsinn, Muddy Waters,
Howling Wolf, Eddie Taylor
o.fl., en einna áhrifamestur
þeirra var Elmore James.
Elmore James fæddist 1918 í
Mississippi og var skírður Elmore
Brooks. Hann byrjaði snemma að
fikta við gítarleik, tólf ára var
hann búinn að gera sér einskonar
gítar með tveimur til þremur
strengjum, gerðan úr niðursuðu-
dós. Nítján ára ákvað hann að
verða tónlistarmaður, enda hafði
hann þá fengið mikinn áhuga á
brennivíni og kvenfólki. Hann
keypti sér fyrsta alvöru gítarinn
og fór að flækjast um með Rob-
ert Johnson og Rice Miller (Sonny
Boy Williamson 2). Robert kenndi
honum að nota flöskuháls á gítar-
inn, en Elmore naut ekki lengi
leiðsagnar hans, því Robert lést
1938.
1943 var Elmore kallaður í sjó-
herinn og þaðan sneri hann með
láði 1945. Hann settist í fyrstu að
í Mississippi á ný og þar kom það
í ljós að hann væri hjartveikur.
Elmore hóf að endurreisa tónlist-
arferil sinn og byijaði aftur að
spila með Rice Miller. Hann lék á
plötum með Riee sem þá var bú-
inn að kasta eign sinni á Sonny
Boy nafnið. Elmore hafði ekkert
á móti því að leika undir hjá öðr-
um, en hann neitaði staðfastlega
að taka nokkuð upp undir eigin
nafni. Dust My Broom var lag sem
hann lærði af Robert Johnson og
spilaði gjaman. Eitt sinn þegar
hann var við æfingar í hljóðveri
árið 1952 var lagið tekið upp án
hans vitundar. Það var gefíð út
og náði mikilli hylli. Þar með var
ísinn brotinn og upp frá því tók
Elmore upp ógrynni af tónlist fyr-
ir ýmis hljómplötufyrirtæki, eins
og Vee Jay, Modem, Chief, Chess
o.fl. Mest ber á „slide“-gítarleik
Elmores, enda var hann einskonar
vörumerki sem margir hafa stælt,
allt frá Peter Green til George
Thorogood. Oft vill það þó gleym-
ast að Elmore var mjög góður
gítarleikari að flöskuhálsinum
slepptum. Annað sem einnig ein-
kenndi tónlistina er söngurinn
sem kemur eins og beint frá hjart-
anu. Lögin eru eftir ýmsa en
Elmore var lagið að taka lög eftir
aðra og túlka þau á svo afgerandi
hátt að hans útgáfa varð sú við-
tekna.
Það lífemi sem fylgdi frægðinni
var ekki til að auka líflíkur hjarta-
sjúklinga, enda farið víða til að
spila og mikið drukkið. 1957 varð
hann að leggjast á sjúkrahús
vegna hjartans og 1963 lést hann
í Chicago þá er hann var við það
að hefja feril sinn að nýju eftir hlé.
Eins og áður sagði tók Elmore
James upp mikið af tónlist, en
ekki kom út LP plata undir hans
nafni fyrr en að honum látnum.
011 þau lög sem komu út á hans
nafni vom gefin út á tveggja laga
plötum.
Nú er tíðin önnur og menn
hafa áttað sig á gildi hans fyrir
blúsinn og einnig fyrir rokksög-
una. Það er í raun erfítt að mæla
með einhverri einstakri plötu með
Elmore, hann tók varla upp lélegt
lag og viðbúið er að þegar menn
hafa einu sinni komist á bragðið
vilji þeir eignast sem mest af tón-
list með honum.
Charly hljómplötuútgáfan hef-
ur gefíð út tvær plötur með
Elmore, plötumar One Way Out
og Got To Move. Báðar em þær
fyrsta flokks, enda valdar upptök-
ur. One Way Out er góð kynning
á Elmore með klassískum lögum
eins og It Hurts Me Too, Somet-
hing Inside of Me, Standing at the
Crossroads og The Tweive Year
Old Boy að ógleymdri útgáfu af
Dust My Broom frá 1952. Á Got
To Move em aftur lög eins og
My Bleeding Heart sem Jimi
Hendrix spilaði gjaman, Elmore’s
Contribution to Jazz, þar sem
Elmore sýnir að hann kunni ýmis-
legt fyrir sér í gítarleik, og
útgáfur af Dust My Broom og It
Hurts Me Too frá því um 1960.
Ace hljómplötufyrirtækið hefur
einnig sinnt Elmore vel og gefíð
út a.m.k. þijár plötur með efni
sem hann tók upp. Tónlistin er
ekki langt frá því sem er á Charly
plötunum, en hljómurinn er mun
betri. Á plötunni King of the Slide
Guitar em lög sem mörg hafa
ekki komið út áður og em góð
viðbót við áður útgefið efni. Eins
og áður sagði er hljómurinn mjög
góður og lögin em sum hver á
meðal þess besta sem Elmore tók
upp. Hvað hljóminn varðar má
þó e.t.v. segja að þeir hjá Ace
hafí gengið fram af sér þegar
þeir gáfu út nú um daginn plöt-
una Let’s Cut It. Þar á er að fínna
mörg af frægustu og bestu lögum
sem Elmore tók upp. Þeirra á
meðal em lögin Dust My Blues,
Standing at the Crossroads,
Happy Home, Mean and Evil (með
afbragðs gítarleik), I Believe og
Goodbye Baby. Að vísu hafa þessi
lög öll verið fáanleg annarsstaðar,
en fyrir þá sem hafa áhuga á að
kynnast Elmore er þessi plata
fyrirtak. Hljómurinn er ótrúlega
góður enda em upptökumar með-
höndlaðar stafrænt (digital). Ef
maður vissi ekki betur héldi mað-
ur að upptökumar væm ekki
nema nokkurra mánaða gamlar
en ekki tuttugu til þijátíu ára.
Enn er ógetið þess sem Elmore
tók upp fyrir Chess, en MCA, sem
á nú útgáfurétt á þeim upptökum
sem Chess bræður tóku upp, hef-
ur nú hafíð að gefa út aftur
Chess/Checker plötumar, í upp-
mnalegum umslögum á hlægilegu
verði. Þar á meðal er ein besta
plata með Elmore, Whose Muddy
Shoes, sem hann deilir að hluta
með John Brim. Á henni er að
fínna lögin Madison Blues, sem
George Thorogood lék til að
mynda á Live Aid hljómleikunum,
Tool Bag Boogie og Call it Storrny
Monday. Allt fyrirtaks lög. Því
er hér rneð beint til umboðsaðila
MCA á íslandi að ekki væri úr
vegi ef plöturnar fæm að sjást í
búðum hér.
Minning:
Margrét Magnús-
dóttir Grönvold
Fædd 26. mars 1897
Dáin 9.júní 1987
Tengdamóðir mín, Margrét
Magnúsdóttir Grönvold, Reynimel
23, lést hinn 9. júní síðastliðinn í
Landakotsspítala eftir skamma legu
og fer útför hennar fram á morg-
un, mánudag, frá Dómkirkjunni kl.
13.30. Hún var nýlega orðin níræð.
Alla tíð var hún stórglæsileg kona
og tiguleg og persónuleiki hennar
t
Móðir mín,
AGNES EINARSDÓTTIR,
frá Vogi,
Bergþórugötu 53,
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, föstudaginn 12. júní.
Ágúst Hólm Magnússon.
t
Frænka okkar
SIGÞRÚÐUR STEINDÓRSDÓTTIR THÖRLINGS
frá Egilsstöðum Ölfusi,
andaðist í New York 10. júní 1987, 94 ára gömul.
Fyrir hönd frændfólksins,
Magnús Þorbjörnsson.
t
Fósturmóðir mín og amma okkar,
ANNA JÓNSDÓTTIR
frá Hvallátrum,
Langholtsvegi 132,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. júní kl.
10.30.
Gyða Guðmunsdóttir,
Anna Guðrún Marfasdóttir,
Svanhildur Ósk Marfasdóttir.
t
Móðir mín,
GUÐRÚN TÓMASDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju, þriðjudaginn 16. júní, kl. 13.30.
Sigrfður Ása Ólafsdóttir.
t
Þökkum virðingu sýnda minningu föður okkar, tengdaföður og afa,
HELGA STEFÁNSSONAR
frá Haganesi, Mývatnssveit,
Háteigsvegi 11
og hlýhug í okkar garö.
Hildur Helgadóttir,
Bryndfs Helgadóttir,
Helgi Kristjánsson,
Sylvfa Kristjánsdóttir,
Steingerður Kristjánsdóttir,
Kristján Andrésson,
Selma Ósk Kristiansen,
Hildur Kristjánsdóttir,
Andrés Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
SIGURGEIRS F. MAGNÚSSONAR
frá Hólavöllum.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Siglufjarðar,
svo og annarra, sem sýndu honum hlýhug og vináttu á liönum
árum.
F.h. vandamanna,
Lfney Bogadóttir,
Steinunn Sigurgeirsdóttir.
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
1 S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
mikill og sterkur. Foreldrar hennar
voru hjónin frú Steinunn Sigurðar-
dóttir og Magnús Vigfússon,
umsjónarmaður í Stjómarráðinu,
en þau voru meðal þekktustu Reyk-
víkinga á sinni tíð. Auk Margrétar
áttu þau aðra dóttur, Þóru, sem
gift var Stefáni lögfræðingi Stef-
ánssyni, alþingismanns og bónda
frá Fagraskógi. Strax í bamæsku
vakti Margrét á sér athygli fyrir
fagra söngrödd og var henni því
snemma komið til Kaupmannahafn-
ar þar sem hún naut handleiðslu
fremstu söngkennara og hef ég
fyrir satt, að þeir hafí bundið við
hana miklar vonir. En af óviðráðan-
legum ástæðum varð Margrét að
hætta námi og hverfa heim. Þar
með var söngferli hennar lokið til
allra óheilla.
Margrét var komung er hún gift-
ist í fyrsta skipti Gústav Grönvold,
vel gefnum og geðþekktum kaup-
sýlumanni. Þeim varð tveggja
bama auðið: Stellu, sem varð eigin-
kona mín, hún lést fyrir 10 ámm;
Karl, sem er látinn, en eftirlifandi
kona hans er Ragna frá Akureyri,
dóttir Ragnars Olafssonar kaup-
manns þar. Gústav, eiginmaður
hennar, var aðeins 25 ára er hann
féll frá. Er Margrét giftist í annað
sinn gekk hún að eiga Anton Jóns-
son frá Amamesi, sem var kunnur
að atorku við útgerð og skipa-
smíði. Þau eignuðust dóttur sem
Helga Steinunn hét. Hún dó aðeins
23 ára að aldri. Þriðji eiginmaður
Margrétar, tengdamóður minnar,
var Olafur Gíslason stórkaupmaður
hér í Reykjavík, sem er látinn fyrir
allmörgum ámm.
Þegar þau settu bú saman Mar-
grét og Ólafur vom þau svo lánsöm
að fá til starfa á heimili sitt konu
vestan frá Homi, Pálínu Betúels-
dóttur. Má segja að þetta hafí verið
sérstakt lán fyrir þau bæði og ekki
síst fyrir Margréti, því Pálína hefur
af dæmafárri fómfysi haldið heim-
ili með Margréti alla tíð síðan.
Er óhætt að segja að allt það sem
hún var Margréti muni ættingjar
aldrei fá fullþakkað svo frábært var
allt, sem þessi kona hefur gert á
heimilinu frá fyrsta degi sínum þar
og til hinstu stundar tengdamóður
minnar, en það var annálað fyrir
smekkvísi, rausn og höfðingsbrag.
Það var vissulega ánægjulegt að
öllum hugþekkum eiginleikum hélt
Margrét þrátt fyrir ástvinamissi og
önnur áföll. Hélt hún reisn sinni og
var í fullri sátt við líf sitt og örlög
sín._
Ég leyfí mér að fullyrða nú er
leiðir hafa skilið að þeir sem henni
kynntust munu þakka henni fyrir
hin góðu kynni og blessa minningu
tengdamóður minnar, Margrétar
Magnúsdóttur Grönvold.
Nú legg ég augun aftur.
Ó, Guð, þinn náðar kraftur,
mín veri vðm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfír láttu vaka,
þinn engil svo ég sofi rótt.
Hilmar Norðfjörð
_Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
■I-
f