Morgunblaðið - 14.06.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
47
Minning:
Kristján Jakobs-
son, Akureyri
Fæddur 5.júlí 1971
Dáinn 12. júní 1987
„Og dátt lék sér bamið um dagmálamund
en dáið var og stimað um miðaftanstund.
Svo örstutt er bil milli blíðu og éls
og bmgðist getur lánið frá morgni til kvelds."
(Matth. Jochumsson)
Síminn hringir á laugardags-
kvöldið fyrir hvítasunnu, í símanum
er Sigurlaug, vinkona mín á Akur-
eyri, sem við hjónin höfðum kvatt
glaða og káta daginn áður. Hún er
að tilkynna okkur lát Kristjáns,
sonar síns, sem hafði farið í útilegu
daginn áður í Vaglaskóg og fluttur
var heim látinn á laugardag. Hjart-
að stoppar sem snöggvast — er
virkilega svona örskammt milli lífs
og dauða? Jú, við verðum að viður-
kenna það.
Kristján, þessi kraftalegi bros-
mildi piltur fékk aðeins að lifa á
þessari jörð í 15 ár, kannski hefur
honum verið ætlað mikilvægara
starf guðs í geim.
Dauðinn er æði misjafn — gömlu
fólki og lasburða er hann líkn en
ungu fólki sem rétt er að byija lífíð
er hann miskunnarlaus.
Minningamar eigum við þó bjart-
ar og fallegar um góðan son, bróður
og vin, sem gerði tilveruna bjartari
með sínu glaða brosi og dugnaði,
það verður vandfyllt skarð, sem
Kristján skilur eftir, en tíminn
læknar öll sár.
Kæru vinir, Sigurlaug og Jakob,
Sunna, Gunnar, Omar, Siguijón og
Stefán, Guð gefí ykkur styrk og
þrek í sorg ykkar og verið þakklát
fyrir að hafa átt Kristján. Geymið
allar fallegu minningamar um hann
í hjarta ykkar.
„Meðan veðrið er stætt, berðu höfuð hátt
og hræðstu eigi skugga á leið.
Bak við dimmasta él glitrar lævirlq'ans ljóð
upp um Ijóshvolfín björt og heið.
Þó steypist í gegn þér stormur og regn
og þó byrðin sé þung sem þú berð,
þá stattu fast og vit fyrir víst,
þú ert aldrei einn á ferð.
(Þýð. Óskar Ingim.)
Jóhann og Jakob.
SUMARLEYFI í ÞÓRSMÖRK
Dvöl í Þórsmörk er ódýr. Gistiaðstaða í Skagfjörðs-
skála/Langadal, sú besta sem völ er á í óbyggðum.
Verð á dvöl í Þórsmörk:
Frá sunnudegi til miðvikudags...kr. 2.800.-
Frá miðvikudegi til sunnudags...kr. 3.050.-
Frá föstudegi til miðvikudags...kr. 3.300.-
Frá sunnudegi til sunnudags.....kr. 3.800.-
Frá föstudegi til sunnudags.....kr. 4.300.-
Nánari upplýsingar á skrifstofu Feröaféiagsins,
Öldugötu 3, Reykjavík.
Vesturleiðin
Austurleiðin
FLUG & BILL
Dæmi um tvær skemmtilegar leiðir um Evrópu.
Þú færð nákvæmari leiðarlýsingu hjá okkur.
Innifalið í verði er flug (KEF-LUX-KEF) og bíll með
ótakmörkuðum akstri, kaskótryggingu og söluskatti.
Bílaleigur:
Amsterdam, Hamborg, Luxemborg.Salzburg.
Það er hægt að skila af sér bílum
á öllum þessum stöðum.
Sumárhús:
Weissenháuser Strand, Biersdorf,
Walchsee, Nissa, Pietra.
1: Luxemburg
2: Trier/Biersdorf/Móseldalur
3: Rudesheim/Rínardalur
4: Heidelberg
5: Freiburg í Svartaskógi
6: Basel/Sviss
7: Bern
8: Luzern
9: Luganó
10: Mílanó
11: Pietra/ítalska rívieran
12: Nissa/Franska rívieran
13: París
13: Hamborg/Weissenháuser Strand
15: Munchen
16: Salzburg/Walchsee
17: Innsbruck/Tírólaralpar
18: Vínarborg
19: Budapest (Ungverjalandi)
20: Portoroze/Adríaströndin
21: Feneyjar
22: Brússel (Belgíu)
23: Amsterdam
24: Genf (Sviss)
25: Berlín
26: Zagreb (Júgóslavía)
27: Rómantíski vegurinn
28: (tölsku Alparnir
29: Koblenz
30: Wúrzburg
31: Augsburg
islendinqamiðstöðvar* með íslenskum fulltrúa
Terru: 2, 14, 16, 11, 12. Dagskort frá þessum
stöðum fást hjá Terru auk leiðarkorta á milli staða.
Minnst vikudvöl.
Dæmi um Terruverð á flugi og bíl fyrir 4 í tvær vikur:
Fíat Panda:
kr. 10.904
pr. mann.
Ford Fiesta:
kr. 11.326 pr. mann.
Ford Escort:
kr. 11.860 pr. mann.
Ford Sierra:
kr. 13.182 pr. mann.
Ford Scorpio:
kr. 16.203 pr. mann.
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 29 Sími 26100
Öll verðin miðast við 2 fullorðna og tvö börn á aldrinum 2-12 ára.