Morgunblaðið - 14.06.1987, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
62
—
BYKO 25 ÁRA
„ K
Starfsemin
Hógvært upphaf
í litlu skýli
BYKO hóf formlega starfsemi
sína 14. júní 1962 á Kársnesbraut
2 í Kópavogi, með opnun bygging-
arvöruverslunar í 135 fm skýli. I
fyrstu var aðeins verslað með gróft
byggingarefni, eins og sjá má í
fyrstu auglýsingu fyrirtækisins,
sem birtist sama dag í Morgun-
blaðinu. En tæpu ári síðar, í apríl
1963, var opnuð ný verslun með
hin „fínni“ byggingarefni, svo sem
hreinlætistæki, dúk, flísar og þess
háttar.
Mjög fljótt varð þröngt um starf-
semi BYKO á Kársnesbrautinni
þrátt fyrir að nokkuð væri byggt
við. Þarna fór hún samt öll fram
næstu tíu árin, eða þar til að skrif-
stofa og byggingarvöruverslun voru
fluttar upp á Nýbýlaveg 6 árið
1972, þar sem þær eru enn til húsa.
A svipuðum tíma var byggður upp
aðallager í Auðbrekku sem nú þjón-
ar báðum verslunum fyrirtækisins.
Grófari vara varð eftir á Kársnes-
braut. A árinu 1976 fengu
BYKO-menn um fjögurra hektara
lóð á Skemmuvegi 2-4, en það var
ekki fyrr en í maí 1980 sem þeir
fluttu timburvöruna þangað af
Kársnesbraut 2. Er nú engin starf-
semi fyrirtækisins á Kársnesbraut.
Skýlið og viðbyggingar hafa verið
fluttar eða rifnar og allt í kring um
gömlu lóðina, þar sem þetta allt
byrjaði, standa nú hús í byggingu,
þar sem margur hluturinn er eflaust
frá BYKO og fer vel á því.
hófst ílitlu skýli
EITT erþað fyrirtæki í
byggingariðnaði hér á
landi sem einna flestir
húsbyggjendur munu
kannast við,jafnt
iðnaðarmenn sem þeir,
sem kjósa að byggja
sjálfir. Þetta fyrirtækier
BYKO byggingarvörur hf.
Um þessar mundir er
fyrirtækið 25 ára gamalt.
Frá því að það hóf
starfsemi á Kársnesbraut
2 í Kópavogi í litlu skýli við
hliðina á
blómasöluskálanum hans
Þórðará Sæbóli hefur
framgangurog vöxtur
fyrirtækisins verið mikill
og nú erþað með
viðamikla starfsemi í
tveimur sveitarfélögum,
Kópavogi og Hafnarfirði,
og á leið inn íþað þriðja,
höfuðborgina sjálfa.
BYKO er og hefur frá upphafí
verið í eigu tveggja fjölskyldna, sem
eru raunar nátengdar. Stofnendur
voru þeir Guðmundur H. Jónsson
og Hjalti heitinn Bjamason. Guð-
mundur er nú formaður stjómar
fyrirtækisins, en Hjalti lést árið
1970. Synir þeirra beggja og aðrir
fjölskyldumeðlimir halda nú um
stjómvölinn í daglegum rekstri.
Hafa því orðið kynslóðaskipti hjá
fyrirtækinu. Jón Þór, sonur Hjalta
heitins, kom til starfa strax að
loknu námi í Verslunarskólanum
og er nú framkvæmdastjóri annarr-
ar aðaleiningar BYKO, verslunar-
sviðs. Jón Helgi, sonur Guðmundar,
hefur líka unnið hjá fyrirtækinu frá
því hann lauk námi í viðskiptafræði
við háskólann. Hann er nú aðal-
framkvæmdastjóri BYKO.
Fyrsta auglýsing BYKO, í Morg-
unblaðinu 14. júní 1962.
Haldið í önnur
sveitarfélög
Það er svo á árinu 1984 sem
BYKO færir enn út kvíamar og þá
í öðru sveitarfélagi, Hafnarfírði. I
Dalshrauni 15 var opnuð stærsta
byggingarvöruverslun landsins,
með 2000 fermetra gólffleti, þar
sem boðið er upp á allt vöruúrval
fyrirtækisins, bæði í fínu og grófu
byggingarefni. Fyrir tveimur árum
jafnframt var keypt ásamt öðrum,
Trésmíðaverkstæði OB í næsta húsi
af Bimi Olafssyni, sem þá var að
hætta rekstri, og sjá Byko-menn
um allan rekstur trésmíðaverkstæð-
isins, sem áfram er rekið undir
sama nafni og framleiðir meðal
annars glugga og hurðir, úti- og
innihurðir fyrir BYKO.
Næsta stórátak í sögu þessa
merka fyrirtækis verður gert opin-
bert hinn 13. ágúst næstkomandi,
þegar BYKO opnar stórverslun á
1100 fm gólffleti í Kringlunni í
Reykjavík. Verslunin, sem heita
mun Byggt og búið, verður stærsta
verslunin í hinni nýju Kringlu, fyrir
utan verslun Hagkaups sjálfs, og á
þar að bjóða upp á allt fyrir þá sem
gera vilja hlutina sjálfír. Það verður
með öðrum orðum nokkurs konar
„gerðu það sjálfur" verslun.
Umsvifí mörgum
fyrirtækjum
Fyrir utan þá atvinnustarfsemi,
sem fram fer beinlínis innan fyrir-
Ljósmynd/Gunnar Elísson
Við opnun stærstu byggingarvöruverslunar landsins í Dalshrauni 15
í Hafnarfirði. Frá vinstri: Bjarni Gunnarsson, framkvæmdastjóri
BYKO í Hafnarfirði, Jón Helgi Guðmundsson, aðalframkvæmda-
stjóri, Guðmundur H. Jónsson, stjórnarformaður, og Jón Þór Hjalta-
son, framkvæmdastjóri verslunarsviðs.
tækisins sjálfs, eru nokkur önnur
fyrirtæki í eigu BYKO, að öllu leyti
eða að hluta.
Flutningafyrirtækið Jónar sf. er
í eigu framkvæmdastjóra BYKO,
þeirra Jóns Þórs Hjaltasonar og
Jóns Helga Guðmundssonar. Sér
það um alla aðdrætti fyrir BYKO
erlendis frá með leiguskipum. Jónar
sf. er hluthafí í tollhöfninni Skipaaf-
greiðslu Hafnarfjarðar.
Norður í Fljótum í Skagafirði er
BYKO komið á bólakaf í laxeldi'
undir nafninu Fljótalax hf. Þar eru
seiði alin upp að sjógöngustærð.
Guðmundur Jónsson, stjórnarfor-
maður BYKO, helgar sig nú þessu
starfí. BYKO er jafnframt hluthafi
í Haflaxi hf. sem er að gera tilraun-
ir með sjókvíaeldi í Eiðsvík hjá
Viðey.
Af því sem að framan greinir
má ráða, að BYKO byggingarvörur
hf. hefur farið langan veg á aldar-
Úórðungi, vaxið og dafnað og er
nú mjög viðamikið fyrirtæki á
íslenskan mælikvarða. Og stjóm-
endur fyrirtækisins segjast jafnan
stefna hærra.
JVI