Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 Hafnarfjörður: Nýtt íþróttahús við Kaplakrika BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hef- ur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að nýtt íþróttahús Bíll stöðvaður á 145 km hraða LÖGREGLAN í Hafnarfirði stöðvaði á föstudagskvöldið bif- reið á Hafnafjarðarveginum á 145 km hraða. Ökumaður var umsvifalaust sviptur ökuskír- teini. Bifreiðin, sem var af gerðinni Oldsmobile, var stöðvuð á móts við Aratún, en þar er 60 km hámarks- hraði. verði reist við Kaplakrika i Hafn- arfirði. Bréf frá íþróttafélögunum í Hafnarfirði og íþróttabandalagi Hafnarfjarðar vegna fyrirhugaðrar byggingar nýs íþróttahúss var ný- lega til umræðu á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar. í samþykkt bæjar- ráðs segir:„Bæjarstjóm Hafnar- fjarðar samþykkir að nýtt íþróttahús í Hafnarfirði verði reist í Kaplakrika, í samræmi við niður- stöður Í.B.H. þings, enda náist viðunandi samkomulagsgrundvöllur við lóðarhafa, og felur bæjarstjóra að heíja könnunarviðræður við F.H. vegna málsins." Fornbílalestin virðu- lega áði í Borgarnesi Borgarnesi. FYRSTI áfangastaður félaga í Fornbílaklúbbi íslands í hringakstrin- um um landið var í Borgarnesi Móttökunefndin kom til móts við þá yfir Borgarfjarðarbrúna á bláum Chevrolet-hálfkassa árgerð 1939 og rauðri Volgu árgerð 1960 og slóst í för með öðrum glæsi- vögnum að Esso-stöðihni í Borgarnesi. Þessi hringferð er í tilefni 10 ára afmælis Fombflaklúbbsins og um leið söfnunarherferð fyrir Krýsuvík- ursamtökin. Fombflamir vöktu mikla athygli í Borgamesi og komu margir til að skoða þessa glæsilegu fomgripi. Borgfirðingar eiga tvo verðuga fulltrúa meðal þeirra fom- bíla sem taka þátt í hringferðinni, það er annars vegar 28 manna Ford-rúta árgerð 1947 sem Sæ- mundur Sigmundsson sérleyfíshafi í Borgamesi á og hins vegar Ford Mercury árgerð 1942 sem Pétur Kristófersson Miðsandi, á og ekur. Aðspurður kvaðst Sæmundur hafa keypt rútuna af Jóni Húnfjörð fyrir nokkrum árum. Hefði Jón átt bflinn frá upphafí og iátið byggja yfír hann hjá Agli Vilhjálmssyni á sínum tíma. Hefði bfllinn verið gangfær öll þessi ár og í notkun meira og minna. Kvaðst Sæmundur enn í dag grípa til rútunnar gömlu ef á þyrfti að halda, t.d. til aksturs skólabarna þó svo hann sparaði hana sem allra mest. Kvaðst Sæmundur hafa lagt mikið upp úr því að hafa Fordinn eins upprunalegann og hægt væri, til dæmis væri í dag komið í hann 6 volta rafkerfi. Kvaðst Sæmundur bera sterkar taugar til bflsins, því hann hefði byrjað sinn íeril á sams- konar bíl. Eftir rúmlega klukkutíma dvöl í Borgamesi þar sem allir tank- ar voru fylltir af bensíni, iiélt þessi virðulega íombflalest áfram íorður hringveginn. TKÞ Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Borgfirðingar eiga tvo verðuga fulltrúa í fombílalestinni sem ekur hringveginn. Frá vinstri: Pétur Kristófersson frá Miðsandi í Hval- firði við bifreið sína Ford Mercury árgerð 1942 og Óskar Stefánsson sem tók að sér að aka rútunni hans Sæmundar Sigmundssonar sem er af gerðinni Ford árgerð 1947. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 6.-10. júlí FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Helldar- varð varð verð (les ir) verðfkr.) Þorskur 37,00 24,00 29,36 348,4 10.231.358 Ýsa 77,00 45,00 56,71 14,9 844.362 Karfi 19,50 10,00 13,66 220,9 3.018.052 Koli 36,30 18,00 29,15 1,6 48.356 Ufsi 20,40 11,00 17,90 60,5 1.082.189 Lúða 194,00 86,00 119,0 2,3 272,165 Undirmáls- þorskur 10,20 10,00 10,09 6.5 65.468 Annað Samtals " 16,96 23,68 7.0 662,2 118.968 15.680.918 f næstu viku er búist við uppboðum alla daga. Víðir er bókaður á mánudag með 150 tonn og Einir á miðvikudag og Dagstjarnan verður líklega á fimmtudag. ■ ' Morgunblaðið/Friðgeir Olgeirsson Hreinsunar- og fjölskyldudagur í Gijótaseli „Það er sérstakur andi í þessari götu,“ sagði Friðgeir Olgeirsson einn af íbúunum við Gijótasel í Reykjavík, en hann tók þessa mynd á árlegum hreinsunar- og fjölskyldudegi í göt- unni. Friðgeir sagði konurnar í götunni eiga heiðurinn af þessu framtaki. „Dagurinn byrjar ávallt á þvi að allir hreinsa garða og götur, síðan borða allir saman útignllaðan mat, leika við börnin og skemmta sér. íbúarnir era fyrir vikið orðnir mjög samtaka þvi við þetta tæki- færi’ kynnist fólkið og tengsl myndast." Húseiningar selja hús til Grænlands Fyrsti skiptafundur þrotabús fyrir- tækisins verður haldinn 24. júlí HÚSEININGAR hf á Siglufirði hafa nú skipað út ífyrsta ein- xngahúsinu sem frá þeim fer til Grænlands. Það gæti jafn- framt orðið hið síðasta því fyrirtækið hefur verið ekið tíl gjaldþrotaskipta eins og komið hefur fram. Fyrsti skiptafund- ur orotabús félagsins verður haldinn 24. þessa mánaðar. Húsið sem fer til Grænlands er tvflyft cimburhús úr fúavarinni furu. Það er selt uppsett með öll- um innveggjum og tilbúið undir málningu fyrir um það bil 3,8 milljónir króna. Starfsn^enn Hú- seininga hf fara utan og setja húsið upp, en verktakafyrirtækið .Armannsfell hf mun steypa Irjall- ara undir bað. Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur hjá Húseinigum hf sagði í samtali við Morgunblaðið að þó nokkur mark- iður virtist vera fyrir hús af þessu íagi í Grænlandi. Hefði verið búið að gera samning við barlendan Norðfjörður; Fullvirðisrétt- ur bænda aukinn Bændur í Norðfirði hafa fengið aukningu á fullvirðis- rétti til mjólkurframleiðslu sem nemur um 35.000 lítrum. Hefur framleiðnisjóður landbúnaðar- ins samþykkt að veita bændum tímabundna ábyrgð á verði á þessu magni gegn þvi að Búnað- arsamband Austurlands reyni að láta ónýttan fuilvirðisrétt á svæðinu ganga til þeirra manna sem eru í mestum erf iðleikum. Bjami Guðmundsson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki hefðu verið afgreiddar fleiri beiðnir um aukinn fullvirðis- rétt til mjólkurframleiðslu, en slík beiðni lægi nú fyrir frá bændum á sunnanverðum Austfjörðum. Þar væru nokkrir mjólkurfram- leiðendur komnir í þrot. í þessari viku barst framleiðnisjóði einnig beiðni um aukningu á fullvirðis- rétti frá bændum í nágrenni ísafjarðar. Ástæðuna fyrir því að bændur í Norðfirði fengu aukinn fullvirðis- rétt sagði Bjarni vera þá, að þar væri um nokkra misskiptingu að ræða. Einnig benti hann á að í Norðfírði hefðu menn verið að styrkja aðstöðu sína til mjólkur- framleiðslu um nokkurt skeið. Þeir hefðu þurft að fella allan fjár- stofninn vegna riðu og breyttu því yfir í mjókurframleiðslu. Það var þá meðal annars gert með þeim rökum að Norðfjörður er einangr- að mjólkurframleiðslusvæði, lflct og ísafjörður, og væri vissulega æskilegt að þessi svæði gætu orð- ið sér næg um nýmjólk og aðra ferska mjólkurvöru svo ekki þyrfti að senda hana um langan veg með æmum kostnaði. Þessi aukn- ing væri því veitt með nokkurri hliðsjón af því að menn teldu eðli- legt að bændur í sveitinni gætu framleitt næga mjólk fyrir sjálfa sig og íbúa á Neskaupstað. aðila um stofnun sameignarfyrir- tækis sem seldi og setti upp hús fra Húseiningum iif í Grænlandi. Þar sem Húseiningar hf voru teknar til gjaldþrotaskipta 4. maí síðastliðinn og enn er aðeins fyrir- séð að þrotabúið :-eki yrirtækið út júlímánuð, er óvíst hvort íram- hald verður á þessum útflutningi. Skiptaráðandi, bæjarfógetinn á Siglufírði, hefur boðað fyrsta skiptafund þann 24. júlí og gætu mál þá skýrst, hvort einhver aðili er tilbúinn að caupa fyrirtækið og halda áffarn ;-’ekstri. Kollafjarðarstöðin: Endur- heimtur „FISKARNIR eru hér fyrir utan og höfum við ekki tekið þá enn i net, vegna þess að við viljum taka þá upp í gildru, en þangað ganga laxarair ekki nema það rigni. Við erum alveg að missa þolinmæðina," sagði Olafur Ás- mundsson stöðvarstjóri Laxeldis- stöðvar rikisins i Kollafirði um heimtur á hafbeitarlaxi til stöðv- arinnar. Ólafur sagði að þeir vildu síður nota netin, enda væri meginatriði að laxinn vseri heill, þegar hann færi í klak. „Heimtumar í ár verða ekkert í líkingu við það sem var í fyrra, enda er fiskurinn sem nú gengur upp búinn að vera í sjó í tvö ár, en honum var sleppt 1985.“ Seiðum var ekki sleppt frá Kolla- fjarðarstöðinni í fyrra vegna nýmaveiki og einum árgangi því sleppt úr til að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn kæmi í stöðina. „90% af þeim físki, sem sleppt er út og kemur aftur kemur eftir eitt ár, þannig að óvíst er hvetjar endur- heimtumar verða í sumar,“ sagði Ólafur. Hann vonaðist þó til að um 1.000-2.000 laxar skiluðu sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.