Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 52
OJrl 8ð 52 i Tíft. .st jíTjDAötUMWTjs MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 HÆGRIHÖND Amins BOB ASTLES, brezkur trúnaðarvinur Idi Amins forseta í Uganda og aðstoðarmaður hans um nokkurra ára skeið, afsalaði sér nýlega þegnrétti í Uganda og sneri aftur til Bretlands. Hann lýsti því yfir við komuna að hann ætlaði að birta skjöl til að hreinsa sig af ásökunum um að hann hefði tekið þátt í blóðugum hermdarverkum í valdatíð Amins. Astles hefur varið málstað sinn í viðtali við „The Times". Hann segir að hann hafi staðið við hlið. Amins á dögum ógnar- stjórnar hans, þar sem það hafi verið einlæg skoðun sín að með því gæti hann dregið úr óhæfuverkum hans. Þótt nokkurra mótsagna gæti í viðtalinu varpar það nýju ljósi á manninn, sem kom óorði á Afríku þegar hann sat að völdum á síðasta áratug þar til honum var steypt af stóli með stuðningi innrásar- hers Tanzaníumanna 1979. Astles flýði til Kenýa, en var framseldur Ugandamönnum og hafður í haldi unz honum var sleppt í desemberbyrjun með því skilyrði að hann afsalaði sér ríkis- borgararétti. „FIFLALÆTI“ „Það var alltaf eitthvað gott og slæmt, andlega heilbrigt og geð- veikislegt við Idi Amin,“ sagði Astles í viðtalinu. „Hann var bæði trúður og miskunnarlaus morð- ingi. Fíflalæti hans voru í fyrstu slyng baráttuaðferð, en snerust upp í eins konar andstæðu heil- brigðrar skynsemi, sem varð stór- hættuleg." Hann sagði að Amin hefði farið að hraka þegar hann fór að drekka meira en góðu hófi gegndi. „Hann drakk koníak — koníak varð eftirlætisdrykkur hans. Brátt fór hann að drekka koníak með morgunmatnum. Með árunum varð hann brjálað- ur þegar hann var drukkinn. Áfengið fór að éta sig inn í heila hans. Þetta olli honum miklum kvölum og hann gleypti feiknin öll af asperíntöflum. Hann fór í með- ferð til Kaíró, Moskvu og loks til ísraels." „Hin spillingaráhrifin voru völd,“ sagði Astles. „í afrískum stjórnmálum vilja allir ná æðstu völdum. Þegar því marki er náð vita menn að allir sitja um þá, svo að þeir verða grimmari og grimm- ari til að halda völdunum. Þannig var þessu farið með Amin.“ „Eg var eini maðurinn, sem hann gat treyst,“ sagði hann, „því að ég bað hann aldrei um nokkurn skapaðan hlut — engin falleg hús, engin forréttindi, engan Mercedes Benz. Ég var eini maðurinn — kannski var það af því að ég var hvítur - sem hann gat verið viss um að sæktist ekki eftir starfi hans og reyndi ekki að koma hon- um fyrir kattarnef. Hafi Idi Amin einhvern tíma átt sannan vin þá var það Bob Astles." „Eg var eini maðurinn, sem gat ráðið við hann,“ hélt Bob áfram. „Hinir ráðherrar hans hringdu í mig og sögðu: „Geturðu komið fljótt — það er ekki hægt að tjónka við hann.“ Ég leyfði honum að hrópa á mig og skamma mig og reyndi síðan að róa hann. Ég var einn þeirra fáu, sem hann treysti." Alvarlegasta ásökunin, sem Astles ætlar að hreinsa sig af, er sú að hann hafi tekið þátt í morð- unum á erkibiskup Uganda, Luwo- gegndi ýmsum embættum og var m.a. yfirmaður „gagnspillinga- sveitarinnar", sérlegur ráðunautur um brezk málefni og loks fram- kvæmdastjóri Cape Villas Hotel. „Þegar síminn hringdi vissi ég aldrei hvort hann mundi segja: „Hvernig hefurðu það, gamli vin- ur?“ eða „Þú ert undirróðursmað- ur, þú ert njósnari, sem situr á svikráðum við Uganda". Hann þóttist vera reiður, en þetta var úthugsað og fíflalæti hans voru það líka.“ ÚTLENDINGAR AUÐMÝKTIR Eitt sinn ákvað Amin að auð- mýkja fulltrúa erlendra ríkja í Kampala. Hann skipaði þeim öll- um að koma með sér á útifund, sem hann vildi halda í hinum afskekkta norðurhluta landsins. Hann skipaði síðan öllum flug- félögum að sjá um að stjórnarer- indrekarnir fengju engin sæti í flugvélunum þennan dag. Þeir urðu að aka í sex klukkutíma. Kínverski fulltrúinn varð meira að segja að ganga síðustu 15 kíló- metrana, þar sem Mercedes- bifreið hans bilaði. „Rétt áður en stórmennið átti að flytja ávarp sitt fékk ég boð um að ganga á hans fund og hann spurði hvernig mér fyndist ræð- an,“ sagði Astles. „Hún var fjórar setningar, skrif- aðar á swahili. Þær voru svohljóð- andi: „Afríkumenn kunna vel að meta kjúklinga. Allir Afríkumenn vilja sína eigin kjúklinga. Afríku- menn vilja ekki leyfa Rússum að koma hingað og stela kjúklingun- um. Það verða Rússar að hafa hugfast." Þetta var allt og sumt. Hann flutti ávarpið og fór, hlæjandi. Stjórnarerindrekarnir urðu æfir, einkum hinir rússnesku." KROPIÐ FYRIR AMIN „Það var mikið kvartað þegar Amin lét 14 hvíta menn krjúpa á kné fyrir sér og vinna sér hollustu- eið. Én það sem þeim gramdist í raun og veru var að hann lék á þá,“ sagði Astles. „í Uganda voru margir hvítir menn atvinnulausir um þetta leyti — um 1975 — vegna erfiðleika í samskiptum þeirra og útlendinga- eftirlitsins. Kerfið gerði ráð fyrir því að þeir fengju ekki atvinnuleyfi nema tvö afmörkuð tímabil. Flest- ir þeirra höfðu verið í Uganda um árabil og þriðja tímabil þeirra var hafið. Eina leiðin til þess að þeir gætu fengið að vinna var að þeir gerðust úgandískir ríkisborgarar. Fjórtán þeirra komu að máli við mig. Ég sagði að ég mundi spyrja Amin. Þegar ég gerði það sagði hann: „Já, en ég verð að gera mér mat úr því.“ Ég var ekki viss um hvað hann átti við.“ Amin sagði Astles í hálfkæringi að eina leiðin til að fá herráðið (sem raunar óttaðist hann) til að samþykkja að svo margir fengju ríkisborgararétt væri að hvítu mennirnir samþykktu að ganga í varaher Uganda. Hann sagði að þeim yrði launuð slík hollusta með borgararétti. „Allir mennirnir 14 samþykktu þetta,“ sagði Astles. „Enginn Brezkir kaupsýslumenn bera Amin í gullstól. om, brezka kaupsýslumanninum Robert Scanlon, fjórum evróp- skum blaðamönnum og kaupsýslu- manninum Bruce MacKenzie frá Kenýa. Hann er einnig sakaður um að hafa gegnt áhrifamiklu hlutverki í grimmustu dauðasveit Amins, „Ríkisrannsóknaskrifstofunni" (SRB). Astles telur að „skrifstof- an“ hafi myrt 7.000 manns, en mannréttindasamtök segja að tal- an 200.000 sé nærri lagi. „Ég hef svör við þessu öllu,“ sagði Astles. „Ég hef ekki verið fundinn sekur um nokkurn hlut. Ég mun leggja fram sönnunar- gögn.“ GÖMUL KYNNI Amin og Astles kynntust í Kongó 1964 þegar Astles var beð- inn að flytja hergögn fyrir leyni- þjónustu Miltons Obote þáverandi forseta. „Það var mikið í Amin spunnið," sagði Astles. „Hann var samvizkusamur hermaður, bind- indismaður og hafði ágæta for- ystuhæfileika. Hann var tillits- samur liðsforingi og lét sér annt um velferð hermanna og borgara." Astles hafði gengið í nýlendu- þjónustuna 1952 og var eftirlits- maður opinberra framkvæmda í 11 ár. Þegar Uganda hlaut sjálf- stæði 1962 keypti hann gamla flug- vél og stofnaði „Uganda Aviation", sem var fyrirrennari Flugfélags Uganda. Hann hóf störf hjá sjón- varpinu í Uganda 1963 og varð framkvæmdstjóri þess. Því starfi gegndi hann unz Amin hrifsaði völdin af Obote 1971. Þegar Astles neitaði að verða við þeirri ósk Amins að hann héldi áfram störfum hjá sjónvarpinu var honum varpað í fangelsi. Tólf vikum síðan var hann fluttur í járnum til sjónvarpsstöðvarinnar og yfirheyrður. Þeim sem yfirheyrðu Astles urðu á þau mistök að leyfa honum að sjá spurningarnar, sem Amin hafði sjálfur samið. Hann gat því tafið tímann með þvl að svara fyrstu spurningunum í löngu máli, áður en röðin kom að erfiðustu spurningunum. Amin varð skemmt. Hann lét flytja Englendinginn til búgarðar síns á strönd Viktoriuvatns og þar var hann til 1975, þegar Amin bað hann að koma aftur fótunum undir Flugfélag Uganda. Næstu fjögur ár var hann ýmist í náð eða ónáð hjá Amin. Hann Amin ásamt 23 barna sinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.