Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 Afmæliskveðja: Hákon Bjarnason skógræktar slj ór i Ekki verður um það deilt, að Hákon skógræktarstjóri verður átt- ræður á morgun, og þeirri hugsun skýtur fyrst upp í hug mér að „hin gömlu kynni gleymast ei“ og ef til vill er skýrust minningin, þegar við sátum saman í Silfurgötunni í Kaupmannahöfn og Hákon var með fangið fullt af útreikningum og samanburðartölum á loftslagi og gróðurskilyrðum á íslandi og í Al- aska ásamt fróðleik um ótal tijáteg- undir, sem yxu þar í víðlendum skógum og um leið var hann sann- færður um, að þangað ættum vér að leita eftir trjátegundum, sem skapað gætu nytjaskóga á íslandi. Ég var dálítið vantrúaður í fyrstu, en áður en við skildum var efínn á brott. Það var kannski ekki mikið þrekvirki, því að vantrú mín var veik. En hitt er meira þrekvirkið, að Hákon hefír gert þessa hugsjón sína að veruleika og látið hina van- trúuðu þreifa á staðreyndum, sem hafa gefíð þeim trúna á að takast megi að rækta hér nytjaskóg af erlendum viðartegundum, en það hefír kostað mörg átök og hörð. Það er skemmtileg tilviljun, að fyrstu skógræktarlögin voru sett á íslandi sama árið og Hákon fæddist og hann varð fyrsti íslendingurinn, sem hlaut háskólamenntun í skóg- fræðum, en í þeim fræðum lauk hann prófí við Landbúnaðarháskól- ann í Kaupmannahöfn 1932, og honum féll sú gæfa í skaut að skapa tímamót í íslenskri skógrækt með áratuga starfí, sem skógræktar- stjóri íslands. Enda þótt skógræktin hefði starfað í nær þijá tugi ára, þegar Hákon tók við forystu þeirra mála 1935, hafði í rauninni lítið gerst á því sviði. Allmikið skóglendi hafði verið friðað og ljóst var að máttur friðunarinnar var mikill. Fáeinar tilraunir höfðu verið gerðar með ræktun erlendra tijátegunda með misjöfnum árangri og menn voru vantrúaðir á, að hér mætti nokkur skógur dafna annar en birkiskógur- inn og þó lítils vaxtar. Þeir voru fáir, sem trúðu því að skógur gæti orðið hér til verulegra nytja ann- arra en prýða landið og veita næsta umhverfí sínu skjól. Skógræktin hafði að vísu eignast ötula forsvarsmenn, en hinir voru fleiri, sem létu sér fátt um hana fínnast, og þegar Hákon tók að gerast umsvifamikill í skógræktar- málunum töluðu þeir um „hríslu- rækt“ hans í fullkomnum lítilsvirð- ingartón. Það þurfti því ekki einungis að afla ijár til fram- kvæmda og fínna hentugar tegund- Grænland: Moskusuxar til nýrra heimkynna Kaupmannahöfn, frá N.J.Bruun, Græn- landsfréttaritara Morgunbladsins. FIMMTÁN moskusuxakálfar hafa verið fluttir með þyrlu frá Syðri-Straumfirði til fjarðanna við Ivigtut í Suður-Grænlandi. Er vonast til, að þeir geti þrifist það vel á þessum slóðum að unnt verði að hefja veiðar eftir nokk- ur ár. Talið er víst, að moskusuxamir hafí nóg fyrir sig á sumrin en líklega verður að bæta þeim _upp vetrarbeitina með heygjöf. Áður vom moskusuxamir aðeins á Aust- ur-Grænlandi, flestir við Scoresy- sund, en síðan voru nokkrir fluttir til Syðri-Straumfjarðar. Þar stækk- aði stofninn ört og þaðan voru svo fluttir kálfar á Thulesvæðið. Nú er því um að ræða þriðju tilraunina til að auka útbreiðslu stofnsins á Grænlandi. ir er hæfðu íslensku loftslagi og jarðvegi, heldur varð einnig að sigr- ast á rótgrónum fordómum og jafnvel óvild til skógræktarstarfsins í heild. En Hákoni tókst með harð- fylgi, lagni og framkvæmdum að vinna bug á mótþróanum og skapa ný jákvæð viðhorf til skógræktar- innar. En að fleira þurfti að hyggja. Hvarvetna um land blasa við hin ömurlegustu ummerki uppblásturs og gróðureyðingar og flestir eða allir trúðu því, að hér væri einung- is um að kenna hamfömm náttúr- unnar, veðra og vatns. Hákon mun einna fyrstur manna hafa komið auga á samhengið milli byggðarinn- ar og gróðureyðingarinnar. Hann sýndi fram á með óyggjandi rökum, hvemig ofbeit búfénaðar ylli land- spjöllum og opnaði eyðingaröflun- um leiðina til að feykja burt grasrót og jarðvegi. Ég hygg að grein hans, Ábúð og örtröð, hafí markað tíma- mót í umræðunni um gróðureyðing- una og viðnám við henni. Ekki tóku þó allir þeirri kenningu fagnandi, að beitin ryddi gróðureyðingunni braut og væri oft upphaf hennar. Þeir, sem mest höfðu hæðst að hrísluræktinni, töldu að hér væri engin hætta á ferðum og hvöttu til enn meiri Qolgunar búpenings og álags á beitilöndin. En hvað hefír gerst? Harkalegar aðgerðir em nú framkvæmdar til þess að fækka sauðfénu, raunar meira vegna skorts á markaði en af ótta við gróðureyðinguna, sem menn þó sjá óðum betur og betur að stendur í beinu hlutfalli við rányrkjuna. Og nú em gerðar ályktanir um ræktun nytjaskóga sem nýja búgrein fram- tíðarinnar. Naumast gátu hug- myndir Hákonar unnið meiri sigur. Hákon Bjamason er gæfumaður. Honum hefír tekist að framkvæma æskuhugsjón sína og ryðja nýja braut í ræktunar- og landvemdar- málum. Þótt margt sé enn óunnið er þó fyrstu tálmunum mtt úr vegi, brautin mdd og vegurinn varðaður til framtíðarinnar. Og þó að Hákon samkvæmt landslögum hafí látið af embættisstörfum fyrir áratug er ekkert íjær honum en að setjast í helgan stein. Áhuginn er hinn sami, þótt ámnum fjölgi og hann standi ekki lengur í fylkingarbijósti. Það em gæfumenn, sem geta lit- ið til baka yfír langan veg og séð að gróið hefír undan hveiju þeirra spori. Hákon er einn slíkra. Vöxtur og gróandi hefír fylgt í fótspor hans og hann hefír manna mest unnið að því að skila betra landi til komandi kynslóða. Ég læt þessu afmælisspjalli lokið með þeirri ósk Hákoni til handa, að hann eigi enn eftir að benda lengra fram á leið í skógræktar- og landvemdarmálum, og æskueld- urinn kulni aldrei þótt ámnum fjölgi. Raunar er ekki þörf að óska slíks, því að þeir menn, sem helgað hafa líf sitt þroska og gróandi, verða aldrei gamlir. Steindór Steindórsson frá Hlöðum Hinn 13. júlí árið 1907 fæddist hjónunum, dr. Ágústi Hákonarsyni Bjamasonar frá Bíldudal, prófessor og konu hans, Sigríði Jonsdóttur Ólafssonar ritstjóra, fmmburður þeirra. Drengurinn var strax hinn mannvænlegasti og var gefíð nafn- ið Hákon eftir afa sínum, sem af mörgum hafði borið sakir skjótleika síns og áræðis. En Hákon eldri fórst af harðrétti eftir skipreka á Mýr- dalssandi og hafði þá látið klæði sín eftir félaga sínum köldum. Má segja, að Hákoni yngra hafði síðan um margt svipað til afa síns um röskleika og hafí borið nafnið hinum eldra til fulls sóma. Hákon var snemma mikill fyrir sér. Hann var í forystu fyrir fimm systkina hópi og hlaut því að venj- ast snemma við mannaforráð, þar sem skjótar ákvarðanir verður á stundum að taka. Eitt sinn var Hákon ungur að gæta systkina sinna. Næstyngsti bróðirinn, faðir þess er þetta ritar, lokaðist inni í klæðaskápi miklum, með gleri í hurð. Varð hann fljótlega skelkaður og æpti ákaft um að loftlaust væri í skápnum. Snáðinn Hákon bretti upp ermi, kreppti hnefann og mælti: „Gefum honum loft.“ Síðan sló piltur „Hólamannahögg" í rúð- una. Varð af blóðbað mikið. En Jón litli fékk loftið sitt og kominn er ég hér. Systkinin ólust upp á menningar- og menntaheimili foreldra sinna, lengst af í Hellusundi 3. Þar var mikill gestagangur helstu andans manna þjóðarinnar, auk útlendra fræðimanna. Sjóndeildarhringur Hákonar varð því snemma rúmur, þar sem hann einnig stundaði vinnu til sjós og lands í sumarleyfum. Að afloknu stúdentsprófí 1926 sigldi Hákon til náms á landbúnaðar- háskólann danska til skógrækt- amáms, þar sem hann lauk prófí 1932. Sjálfsagt hefur einhveijum fundist, að vitlausari námsbraut gæti íslendingur ekki valið sér til þess að lifa af í þessu rollunnar landi, þar sem uppblástur og örtröð var talið til fegurðar Fjallkonunnar og lofsunginn í kvæðum höfuð- skáldanna. Heimkominn frá námi sneri Há- kon sér að því ofurmannlega verkefni að vinna landsmenn til fylgis við þá sannfæringu sína, að á Islandi framtíðarinnar myndu vaxa skógar. Starfsaðferðir hans við þetta minntu miklu meira á trú- boð stórprédikara með vakninga- samkomuhaldi heldur en embættis- starf eins og venjulega er tíðkað. Hákon var skipaður skógræktar- stjóri Skógræktarfélags íslands og stofnaði þá skógræktarstöðina í Fossvogi. Gegndi Hákon starfínu til þess að hann lét af störfum fyr- ir aldurs sakir 1977. Marga hildi háði Hákon við van- trúar- og villutrúarmenn og sauð- spekinga á starfsferli sínum. En hnn lét hvergi deigan síga, var óþreytandi í starfi og brennandi í andanum. Hann flutti inn um 60 tegundir plantna frá um 300 stöð- um á jörðinni, m.a. sitkagrenið, lúpínuna og öspina frá Alaska. Og um síðir, þá sáu allir á árangrinum að hann hafði haft rétt fyrir sér. Á íslandi getur vaxið nytjaskógur, já stórviður, sem dugar í fleira en eld- spýtur, eins og gárungamir sögðu skógrækt einungis duga til á árum áður. Jafnvel einn harðasti mót- stöðumaður Hákonar í beitarmálum lengi vel, Halldór heitinn Pálsson búnaðarmálastjóri, sá undir lokin af viti sínu, að skógurinn myndi bæta landið okkar og var líka sá maður að viðurkenna það. Hygg ég að Hákoni hafí þótt vænt um það, þegar sá liðsmaður bættist í hóp trúaðra. Um vísindastörf Hákonar mun ég ekki fjölyrða hér, það stendur náttúrufræðingum ef til vill nær. En víst er, að nóg er til af ritverk- um Hákonar um náttúrufræði, þar sem hann hefur verið sískrifandi um fræði sín og athuganir alla ævi. Hann hefur breytt afstöðu heillar þjóðar til náttúru lands síns og opnað henni sýn, sem henni var áður hulin. Er þá all nokkuð sagt og verður ekki fleira hér. Þó vildi ég að sem flestir íslendingar myndu lesa tímamótaritgerð Hákonar, sem hann nefndi „Ábúð og örtröð“ og út kom 1942. En þar gerði Hákon mönnum fyrst ljóst, hver hefðu orð- ið örlög gróðurlendis íslands og hvert stefndi. En gróðurlendi ís- lands er enn þann dag í dag á undanhaldi, svo nýjar kynslóðir hafa mikið verk að vinna. En nú á Hákon frændi minn af- mæli og því vil ég bregða á léttara hjal í því skyni að ókunnugir megi ef til vill greina i rnanninn sjálfan bak við starfíð. Ég ætla því að bregða upp nokkrum smásögum, sem gerðust meðan ég fóstraðist uppá efri hæðinni á Snorrabraut 65, þar sem Hákon hefur búið nærri hálfa öld, en ég hálfan aldur minn. Voru samskipti okkar náin og fjölbreytt. En böm og unglingar hafa alla tíð hænst mjög að Há- koni, sem er sprellikarl mikill og gjafmildur á gotteríið. Var ég eng- inn eftirbátur þar um. En þar sem ég var fauti mikill í skapi og snemma bæði grunnfærinn og fljót- fær, þá fór ekki hjá því að Hákon stríddi mér stundum á milli þess, sem ég vissi engan dýrðlegri frænda. Eitt sinn reiadist ég ógurlega við Hákon, þó ég muni nú ekki lengur út af hveiju. í bræði minni skrifaði ég með stórum stöfum „Asni Asna- son“ fyrir neðan fallega nafnspjald- ið hans á forstofuhurðinni. Hélt ég hróðugur í burtu og hafði nú unnið frægan sigur. Þegar ég síðar um daginn kom út í Þorsteinsbúð, þá sagði Siggi kaupmaður ekki annað en: „Nei, þama er þá „asnafrændi" kominn. Sagði hann Hákon hafa komið í búðina og spurt hvort þeir hefðu séð hann „asnafrænda", þar sem ég hefði titlað sig sem áður sagði. Var ég lengi titlaður þetta síðan. Eitt sinn kom ég að Hákoni þar sem hann var að bursta skó. „Heyrðu frændi, ósköp ert þú í illa pússuðum skóm. Á ég ekki að laga þig til?“ Hákon gljáfægði nú annan skóinn minn, tók síðan pússidót sitt og kvaddi mig með virktum. Mér leið eiginlega bölvanlega meðan skófjandinn var að skitna til jafns við hinn, því kunningjamir vom fljótir að koma auga á muninn og henda gaman að. En slíkt þoldi mín lund yfirleitt stórilla svo sem áður er sagt. Ég hugði því á hefndir. Hákon kom heim litlu síðar frá Akureyri á bfl sínum í rigningartíð. Bfllinn var eitt moldarstykki. Ég tók mig til snemma morguns og gljá- fægði nákvæmlega helming bílsins frá stefni að skut. Beið ég nú glað- hlakkalegur útkomu Hákonar. Skyldi ég nú sjá, hvort hann vogaði sér oní bæ á bílnum svona útlít- andi, eins og ég hafði mátt þola á skónum. Hákon kom, leit á bflinn og svo á mig. Breitt bros færðist yfir andlitið og hann sagði: „Þakka þér kærlega fyrir frændi, nú þarf ég bara að þvo hálfan bflinn í stað- inn fyrir allan, það er aldeilis léttir!" Og svo brenndi hann í burtu en ég stóð urrandi eftir. Og árin liðu. Alltaf var eitthvað skemmtilegt að gerast í kring um Hákon og ég sótti í að fá að vera með honum. Ég kynntist mörgum félögum hans og heyrði marga góða söguna og sitthvað, sem ég talaði ekki um heima hjá mér. Það var oft spennandi líf fyrir lítinn pott með stór eyru. Þegar ég var að ganga upp til stúdentsprófs í sögu, þá kom ég að Hákoni, þar sem hann var að hefja garðslátt með „magavél". Hann bauð mér að slá en sagðist skyldi kenna mér sögu á meðan. Þá ég það. „Ef þú nú kæmir upp í Þorláki helga, þá skal ég segja þér sitthvað um hann.“ Flutti nú Hákon langan fyrirlestur um Þorlák og áhrif hans á efnahagslíf íslend- inga, um hluti sem ekki stóðu í bókinni og mig rak í rogastans yfir. Daginn eftir gekk ég upp til prófs hjá Ólafi Hanssyni og dr. Þorkatli Jóhannessyni. Ég dró miða sem aðeins stóð á: „Þorlákur helgi." Ruddi ég mig nú heldur betur og sá ég ekki betur en doktor Þor- katli líkaði vel en undrunarsvipur væri á Ólafi, sem vafalaust þekkti mig betur að öðru. En ágætisein- kunn hafði ég samt útúr prófínu. Fjölfræði Hákonar og lífsíjör opnuðu honum og áhugamálum hans líka flestar þær dyr sem hann vildi upp ljúka. Gilti einu hvort hann var að snúa fé fyrir skógræktina útúr erlendum milljónerum, eða fá lönd eins og Heiðmörkina lagða til skógræktar. Öllum þótti heiður að ráðstafa eigum sínum að vilja Há- konar og hugsjóna hans. Hann lét jafnvel skattleggja reykingamenn í landinu til dýrðar Landgræðslu- sjóði. Þá var betra að reykja ekki í viðurvist hans úr pakka, sem ekki bar græna merkið. Og þannig hefur tíminn liðið. Ávallt hef ég farið ríkari en ég kom af fundi Hákonar, þó fundir hafí orðið stijálli en maðúr Jiefði viljað með árunum. En í dag skunda vin- ir hans á fund Hákonar í Vatnshlíð, þar sem Hákon hefur reist sér minnismerki, sem hæfír hans lífshugsjón. Á örtraðar og nær ör- foka landi hefur Hákon og Guðrún, kona hans, með aðstoð bama, tengdabama og bamabama fram- kvæmt kraftaverk. Þar er nú algróið land og margra metra hár skógur, sem gnæfír upp úr eyði- mörk sauðfjárbeitarinnar utan girðingarinnar. Þar hefur Hákon rekið einskonar endahnykk á mál sitt, svo allir geta séð, hvað ein samhent ijölskylda getur gert í frístundum sínum á ekki lengri tíma en aldarþriðjungi. Því ekki má gleyma fjölskyldunni þegar rætt er um mann. „Cherzez la famme“ segja fransmenn og vita hvað þeir syngja. Guðrúnu, konu sína, sótti Hákon til Akureyrar fyr- ir einum fjömtíu og fímm ámm. Ég man ennþá hvað ég var spennt- ur þegar Hákon kom með nýju konuna í gráa bflnum R-78. Skömu síðar var þessi kona komin upp á loft til mömmu og var að læra að reykja sígarettu með tilheyrandi hósta. Þá þótti nefnilega fínt og ef ekki bara heilsusamlegt að reykja. Já, mikið var nú margt skemmti- legra og einfaldara í gamla daga, þegar engum þótti tiltökumál að fá sér einn þó þeir væm á bíl. Eða finnst manni ilmur dagana ef til vill vera höfgari, sem þeir verða fleiri? En Guðrún Jónsdóttir hefur síðan ávallt staðið sem klettur að baki manns síns í öllu hans starfí. Fór ávallt hið besta á með okkur og okkar fjölskyldum og em ávallt miklir kærleikar með fólkinu af Snorrabraut 65. Hákoni frænda mínum, og hann er raunar uppáhaldsfrændi konu minnar líka, sendum við hjónin okk- ar bestu ámaðaróskir í tilefni dagsins og hyggjum gott til glóðar- innar að koma í skóg hans til gleðifundar. Hákon lengi lifi. Húrra! Halldór Jónsson verkfr. Hákon Bjamason skógræktar- stjóri verður áttræður á mánudag- inn kemur. Ekki þarf að skrifa langt mál til að kynna Hákon eða telja það til sem hann hefur afrekað á starfsævi sinni. Flestir landsmenn, að minnsta kosti þeir sem komnir em til vits og ára, vita að hann er einn afkastamesti frumkvöðull skóg- og tijáræktar á íslandi og reyndar allrar gróðurvæðingar hér- lendis. Hann hefur fómað þessum málstað allri sinni starfsorku og barist fyrir framgangi hans í ræðu og riti — ekki aðeins hérlendis held- ur einnig meðal vinaþjóða okkar. Og hann hefur uppskorið velvild og stuðning hvarvetna meðal hugsandi manna hvort sem er af eldri eða yngfri kynslóð. Vissulega hefur margt færst í betra horf þessa rúmlega hálfu öld sem liðin er síðan Hákona Bjama- son kom heim frá námi í sinni grein og hóf að beina hugum íslendinga á slóðir skóg- og tijáræktar — burt frá ofnýtingu og landeyðingu. Nú er svo komið að almenningur á ís- landi — allur þorri landsmanna — fylgir skoðunum Hákonar á mögu- leikum þeim og því frjómagni sem í íslenzkum jarðvegi býr. Það sem hann skrifaði um þessi mál fyrir 50 árum er jafn mikill og traustur sannleikur í dag. í marsmánuði síðastliðnum gekkst Skógræktarfélag íslands og Skógrækt ríkisins fyrir skógræktar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.