Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 56

Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 56
** ■ STERKTKORT Ysuverð hærraení Bretlandi ’ 'V MEÐALVERÐ á kg af ýsu (gáma- sölu í Bretlandi í síðustu viku var 67,81 kr. Það gerðist hins vegar á Fiskmarkaðnum í Hafnarfirði á föstudag að meðalverðið á ýsunni fór í 67,85 kr. fyrir kilóið. Miklar sveiflur hafa verið á verði karfans undanfarið á Fiskmarkaðn- um í Hafnarfirði. Á fyrstu dögum markaðarins fór kg af karfa á 15-16 kr. Verðið fór síðan í 12,50 síðastlið- inn miðvikudag, en á fimmtudag náði karfinn sér á strik en þá seldist kg á 16,05 kr. Á fostudag gerðist það hins vegar að verðið féll í 11,43 kr., sem er lægra en nokkru sinni. Athugaðir möguleikar á að opna Sædýra- wsafnið á ný Sjálfseignastofnunin Fauna, sem keypt hefur hluta eigna þrotabús Sædýrasafnsins, hyggst kanna möguleika á að opna safn- ið á ný en þá eingöngu með sjávardýrum. Bæjarráð Hafnaríjarðar hefur samþykkt að leggja til við bæjar- stjóm, að stofnuninni verði veitt vilyrði fyrir um 4.200 fermetra lóð undir og umhverfis hvalalaugina, til næstu 15 ára. „Við erum að reyna að skjóta stoðum undir safn- ið en það gengur hægt," sagði Helgi Jónasson, _ einn forsvars- manna Fauna. „Ég reikna síður með að þarna verði dýragarður <£-i'"heldur fyrst og fremst fiskar og önnur sjávardýr." Hann sagði að allar framkvæmd- ir væru í biðstöðu. Þau hús sem fyrir eru á svæðinu þarf að laga og byggja önnur svo ekkert útlit er fyrir að safnið opni í sumar. „Við stefnum að því að semja við nágrannasveitarfélögin um þátt- töku og virðist okkur sem nokkur áhugi sé fyrir því hjá þeim,“ sagði Helgi. Heyfengur 'ekki mikill en nægur HEYSKAPUR er víða langt á veg kominn og sums staðar á landinu er honum lokið. Heyskaparhorfur eru ágætar og heyjað hefur verið fyrr en venjan er. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að heyskapur hefði gengið best um sunnanvert landið. Þurrkar hefðu dregið úr sprettu á öllu landinu. Á 3Worður- og Austurlandi áttu bændur við þurrk að etja lengi vel framan af sumri, en á Vesturlandi og jafn- vel á Vestfjörðum hafa þurrkar jafnvel háð sprettunni, að sögn Jón- asar, en bændur væru líklegast byijaðir að slá þar. „Ég er ekki viss um að heyfengur verði mjög mikill, en hann verður örugglega nægur," ■^•sagði Jónas að lokum. SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Velyfir 10.000gestir í steikjandi sól á landsmóti „ÞAÐ eru komnir hingað vel yfir 10.000 gestir. Straumurinn byrjaði strax á miðviku- dagskvöld og síðan hefur verið að bætast við jafnt ogþétt. Mikill fjöldi kom á fimmtu- dag og enn fleiri komu á föstudag. Annars er erfitt að gera sér grein fyrir tölu lands- mótsgesta þar sem fjöldinn er það dreifður um bæinn. Tjaldstæði eru á þremur stöðum í bænum sem eru að fyllast auk þess sem sjá má utanaðkomandi bíla standandi fyrir utan flest hús í bænum,“ sagði Þröstur Brynjólfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík, í samtali við Morgunblaðið í gærmorgun. Þröstur sagði að þetta þýddi samt ekki að ekki væri hægt að taka á móti fleirum. „Við tökum á móti öllum sem vilja koma á Iandsmó- tið. Veðrið hefur leikið við okkur hér nyrðra. Hitinn hefur komist í yfir 20 stig þessa tvo daga sem liðnir eru af landsmótinu og mér sýnist dagurinn í dag ekki ætla að vera síðri," sagði Þröstur í gærmorgun, enda var hitinn. kominn í 16 stig þegar landsmótsgestir voru að rísa úr rekkju. Menn höfðu haft af því áhyggjur fyrir mótið að ekki myndi viðra nógu vel til slíkra útihátíða, en því hafði verið spáð að 77% líkur væru á mjög skaplegu veðri, sam- kvæmt veðurathugunum síðustu 40 ára. Sú spá ætlar því sannarlega að rætast. Dansleikur var haldinn í nýju íþróttahöllinni á föstudagskvöld og fór hann vel fram. Þröstur sagði að borið hefði á örlítilli ölvun, en ekkert sem orð væri á gerandi miðað við þann mann- fjölda sem á staðnum væri. Fangageymslumar hefðu þó verið fullnýttar af fólki sem hefði feng- ið sér aðeins og mikið neðan í því og hefðu þar verið aðkomumenn og Húsvíkingar í bland. Engin umferðaróhöpp hafa orðið það sem af er né slys á fólki. í lögreglunni á Húsavík eru átta menn, en liðsauki frá öðrum stöðum í sýsl- unni hefur borist auk þess sem lögreglumenn komu frá Akureyri til aðstoðar. Samtals em liðsmenn frá lögreglunni nú 22 á Húsavík. Landsmótinu lýkur í kvöld með uppskem- dansleik bæði í íþróttahöllinni og í félagsheimil- inu. Jarðgöng á Vestfjörðum: Gatnamót verði und- ir miðju Þverfjalli KOSTNAÐUR við jarðgöng um Breiðadals og Botnsheiði er áætl- aður á bilinu 842 til 939 milljónir eftir því hvort miðað er við eina akrein eða tvær, segir í skýrslu sem unnin er fyrir Fjórðungs- samband Vestfirðinga af Birni Jóhanni Björnssyni jarðfræðingi og verkfræðingi. Gert er ráð fyrir rúmlega 8,5 km löngum göngum sem tengja ísafjörð, Súgandafjörð og Onundarfjörð með gatnamótum undir miðju Þverfjalli. í skýrslunni er fjallað um helstu atriði varðandi fmmhönnun jarð- gangnanna og segir þar að með þeim yrði komið á tryggum sam- göngum milli ísafjarðar, Suður- eyrar og Flateyrar. „í dag em þessir staðir tengdir með vegum um Breiðadals og Botnsheiði sem oft em ófærir á vetmm svo vikum skiptir. Vegalengdir milli staðanna em hins vegar stuttar og því enginn vafí að með ömggri vegatengingu eflist byggð á svæðinu til rnuna." í upphafi skýrslunnar er lýst umferðarforsendum fyrir jarð- göngum en þær hafa áhrif á þversnið þeirra. Þá er lýst þeirri mynd sem talin er líkleg af jarð- fræði gangasvæðisins og er byggt á fyrirliggjandi gögnum og vett- vangskönnun. Berglög og spmngur í gangastæðinu hafa mikil áhrif á kostnað við styrkingu jarðgangna og því þarf að velja þeim stefnu og legu með tilliti til þess. Kostnað- aráætlunin miðar við að notuð verði hefðbundin tækni við gerð jarð- gangnanna og þau loftræst og með þeim öryggisbúnaði sem krafíst verður. 68 hvalir á land SEXTÍU og átta langreyðar eru komnar á land ( Hvalstöð- inni í Hvalfirði það sem af er vertíðinni. Heimilt er að veiða 80 lang- reyðar á þessari vertíð. Þá er heimild til að veiða 40 sandreyð- ar en veiði þeirra hefst ekki fyrr en síðar í sumar. Tveir hvalbátar stunda nú veiðamar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.