Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 21 Súlli sagði að hér áður fyrr á árum hefði þeim Eyjapeyjunum verið kennt þetta í barnaskólanum og ennþá lengra síðan, þegar ekki var mikið um skólahald, var það gert að skilyrði að hver einasti peyi kynni tábragð og lærvað. Þetta var talið slíkt meginmál. Þeir eru orðnir margir unglingarnir sem lært hafa réttu handbrögðin hjá Súlla og margir þekktir fjallamenn hafa farið sitt fyrsta sig undir vök- ulu eftirliti hans. „Það hafa komið til mín peyjar sem hafa lent í vandræðum og svelti og þakkað manni með kossi fyrir að hafa kennt þeim hvernig á að nota böndin. Fjöllin heilla og sem betur fer þá eru slys ekki eins algeng og áður var. Það hefur þó aldrei skeð í gegnum tíðina að menn hafi hrapað úr bandi hér í Vestmaonaeyjum. Aftur á móti er það hættulegt að prila og hífa sig upp á lausu bandi, þess vegna eiga menn undiröllum kringumstæðum að vera bundnir á öðrum þegar farið er í bjarg og hafa stuðnings- band til þess að redda sér með. Ef menn eru lofthræddir þá eiga þeir að varast allt sem heitir berg því við þær aðstæður missa menn bara jafnvægið og sjálfsstjórnina. Það hefur komið fyrir vana fjalla- menn að verða alveg stjarfir og þá er eins gott að varast hæðina," sagði Hlöðver Johnsen. -hkj. að tökin „Það er fínt að læra hjá Súlla og ég vil ekki missa af þessu þó að ég verði að hlaupa hinaaö úr vinnunni í kaffitímanum. Eg hef mætt á öll námskeiðin frá því ég var 6 ára. Mér finnst mjög gaman að spranga og klifra í fjöll og það er nauðsynlegt að læra réttu handtökin. Pabbi minn er úteyjarmaður og ég hef nokkrum sinnum feng- ið að fara með honum út í Hrauney. Mér finnst mjög gaman að veiða lunda og yfirleitt vera úti í eyju. Ég ætla sjálfur að verða úteyjarmaður," sagði Ivar um leið og hann skundaði aftur í vinn- una. Kaffitíminn var búinn. ívar fikrar sig eftir sillum með sprangbandið í munninum, enda þarf hann að nota báðar hendurnar. Sjöfn að koma inn að bergi f Sprangskóla Silla. Hérísigi og hvergi smeyk. Atlantshaf: t Fjórarþotur hætt komnar New York, Reuter. Bandariska flugmálasljórnin rannsakar nú tvö flugumferðar- atvik þar sem lá við árekstri farþegaflugvéla yfir Atlantshafi. Annað atvikið varð á miðvikudag og hitt á fimmtudag. Á miðvikudag myndaðist árekstrarhætta er tvær bandarískar farþegaþotur á leið frá London til Bandaríkjanna flugu hættulega nærri hvorri annarri. Þotumar voru frá flugfélögunum Delta og Con- tinehtal.' Delta-flugvélin var komin um 100 kílómetra af leið þegar at- vikið varð. Vélamar vom komnar það 'nálægt hvorri annarri að far- þegar þeirra gátu nærri veifað hver öðrum.. * Flugvélamar vom nýkomnar inn í .flugstjómarsvæði flugumferðar- stjóra á Gander-flugvellinum á Nýfundnalandi, þegar atvikið varð. Auk bandarísku flugmálastjómar- .innar vinna kanadísk flugmálayfír- völd einnig að rannsókn þessa máls. í fyrradag lá einnig við árekstri þota frá Pan American og Viasa Venezuelan . Atvikið átti sér stað 1.280 kflómetra suður af New York. Þotumar flugu í gagnstæða átt. Þota Pan Am var á leið til St. Thom- as á Jómfrúareyjum en þota Viasa flaug í norðurátt á leið frá Caracas til New York. Aðeins 400 metrar vom á milli flugvélanna þegar þær mættust í sömu flughæð. Engin skýring hefur verið gefín á mistök- unum, sem urðu þess valdandi að flugvélamar vom svo hættulega nærri hvorri annarri. A-Þýskaland: Drepnir af sovéskum hermönnum Bonn. Reuter. SOVÉSKIR hermenn skutu i síðasta mánuði til bana tvo unga Austur-Þjóðveija við herskála í Fuerstenberg, um 80 km fyrir norðan Berlínarborg. Vestur-þýska blaðið Bild, sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að í dag myndi blaðið birta frétt um þennan atburð. Sagt var að 11. júni sl. hefðu ungu mennimir tveir, sem vom 16 og 19 ára, reynt að klifra upp vegg herskálans og hefðu þeir ætlað sér að selja hermönnun- um vodka. Skotið hefði verið á þá og hefði sá eldri látist samstundis en hinum yngri hefði blætt út á staðnum. Er útför piltanna var gerð viku seinna, dreifði austur-þýsk öryggislögregla fólkinu er þar mætti og handtók nokkra. Segist Bild hafa fengið fréttina staðfesta hjá íbúum í Fuerstenberg. Um 400.000 manna sovéskt her- lið dvelst að staðaldri í Austur- Þýskalandi. V^terkur og k-J hagkvæmur auglýsingamiöill! Parkinson NÝTT LÖGMÁL C. N. Parkinson, hinn kunni fræði- maður á sviði stjórnunar, mun halda erindi og svara fyrirspurnum á hádegisverðar- fundi þriðjudaginn 14. júlí kl. 12.00 til 14.30 í Átthagasal Hótel Sögu. Parkinson er kominn hingað til lands til við- ræðna um útgáfu á yfirlitsriti um verk sín. Á hádegisverðarfundinum mun hann kynna nýj- ar kenningar sínar á sviði stjórnunarfræða. Erindi hans nefnist „Nýtt lögmál". Allir velkomnir. Þátttökugjald og hádegisverður kr. 1500. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku f síma 83088. VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS RAÐ 1 á Almenna bókafélagið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.