Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 Þrátt fyrir ásakanir um spiilingu og hlutdeild íeiturlyfjasöiu hefur Sir Lynden Pindling forsætisráðherra unnið auðveldan sigur í kosningum á Bahamaeyjum, sem hafa verið nefndar „paradís eiturlyfjasmyglaranna", og tryggt sér 31 þingsæti af 49. Þótt hann hafi verið sakaður um kosningasvik fer ekki á milli mála að hann nýtur mikillar hylli svartra eyjaskeggja, sem hafa ekki gleymt því að hann batt endi á þriggja alda stjórn hvítra manna fyrir 20 árum og tryggði þeim betri lífskjör en flestum öðrum íbúum við Karíbahaf. PINDLING OG KONA HANS: „Kampavínsfrúin" KONUNGUR BAHAMAEYJA Eyjaskeggjum hefur líka fallið vel í geð að Pindl- ing hefur staðið uppi í hárinu á Bandaríkja- mönnum, sem hafa gagnrýnt hann árum saman fyrir að gera sama og ekkert til að stöðva eiturlyfjasmygl til Bandaríkjanna, sem eru 70 km frá næstu eyju. Nánast helmingur þess kókaíns, sem neytt er í Bandaríkjunum, fer um einhveija af 700 eyjum Baham- a-eyjaklasans og líka mikið af því maríúana, sem selt er þangað. Kosningaúrslitin voru Bandaríkja- mönnum því áfall og þymir í augum. Nefnd, sem stjóm Bahamaeyja skipaði fyrir þremur ámm til að kanna eiturlytjasöluna, kvað upp úr með það að þrír nánustu sam- starfsmenn Sir lydens, þar af tveir ráðherrar, hefðu verið viðriðnir eit- urlyúasmygl. Nefndin ásakaði Pindling ekki beinlínis, en sagði að á árunum 1977-1983 hefði hann eytt átta sinnum meira fé en hann hefði í laun. Dómsmálaráðherrann, Paul L. Adderley, reyndi að draga sjö kunna borgara fyrir lög og dóm, en án árangurs. Pindling neyddist til að víkja sökudólgunum úr stjóminni, en þeir náðu endurkjöri í kosningunum. Annar þeirra, Kendal Nottage, kann að fá aftur sæti í henni, þótt Bandaríkjamenn segi að ef Pindling „hreinsi ekki til geti það leitt til árekstra." Þótt þeir viðurkenni að hann hafí nokkuð reynt að draga úr eiturlyfjasmyglinu segja þeir að viðleitni hans hafi borið sáralítinn árangur. Ifyrr í ár sagði bandaríska utanríkisráðuneytið að „víðtæk eit- urlyfjaspilling ríkti enn“ á Bahama- eyjum. Loftus Roker öryggismála- ráðherra, sem hefur stjómað baráttunni gegn eiturlyfjasmyglur- unum, sagði af sér, þar sem enginn hefði raunverulega áhuga á að stöðva smyglið. Pindling, sem er stundum kallað- ur „konungur Bahamaeyja", „King Ping“ eða „Svarti Móses“, hefur alltaf neitað því að hafa brotið af sér og oft kennt „óseðjandi þörf Bandaríkjamanna á eiturlyfum" um eiturlyQavandann. Flokkur hans, Fijálslyndi framfaraflokkurinn (PLP), gerði eiturlyfjamálið að bar- áttu gegn Bandaríkjamönnum í kosningunum og sakaði þá um um yfirgang og hræsni í tilraunum þeirra til að stöðva eiturlyfjasmyg- lið og tiyggja sér stuðning stjóm- valda í Nassau. Haukar í horni Alvarlegustu ásakanimar á hendur Pindling em mnnar frá Gorman nokkmm Bannister, sem er sonur náins vinar Pindlings, kaupsýslumannsins Everette Bann- isters í Nassau. Bannister eldri hefur haft orð fyrir að geta leyst hvers manns vanda með klækja- brögðum. Að því er sonur hans sagði í vitnaleiðslum í utanríkis- nefnd öldungadeildar Bandaríkja- þings í vor hefur hann þegið greiðslur frá eiturlyfjasölum, kaup- sýslumönnum sem em á flótta undan réttvísinni og hafa leitað hælis á Bahamaeyjum, glæpamönn- um sem vilja reka þar spilavíti og löglegum fyrirtælq'um sem þurfa á fyrirgreiðslu að halda til að starfa þar. Að sögn Gormans hafa sam- starfsmenn Pindlings, traustir stuðningsmenn PLP og háttsettir starfsmenn ráðuneyta, lögreglunn- ar, tollþjónustunnar og útlendinga- eftirlitsins fengið milljónir dollara frá Bannister eldra að „gjöf“ eða „láni.“ Langstærsti hluti fjárins hefur þó mnnið til Pindlings og Margrétar konu hans, sem er kölluð „Kampavínsfrúin" vegna mikils dá- lætis hennar á Dom Perignon. Gorman Bannister gaf banda- rísku eiturlyfj alögreglunni (DEA) ítarlega skýrslu og mun bera vitni gegn kólombíska eiturlyfjasmyglar- anum Carlos Lehder Rivas í haust. Lehder fékk í þijú ár að nota eyj- una Norman’s Cave fyrir bækistöð, en var handtekinn á búgarði sínum í Kólombíu í vetur og framseldur Bandaríkjamönnum. Lehder lagði Norman’s Cay und- ir sig snemma árs 1979, dró fána Kólombíu að húni og ríkti þar sem lénsherra. Everette Bannister neit- ar því að hafa þekkt Lehder, eða vitað um stórfellt smygl hans frá eyjunni. Gorman segir að þeir feðg- ar hafí hitt Lehder í Kólombíu sumarið 1982 og gert við hann samning, sem gerði honum kleift að halda smyglinu áfram. Þegar þeir komu við í Miami á heimleið- inni greiddi kólombísk kona þeim 25,000 dollara. Á næstu tveimur vikum fékk Everette fleiri greiðslur frá lögfræðingi Lehders og hann notaði sambönd sín til að vara Leh- der við yfírvofandi árásum á Norman’s Cay. Auk „kókaínkóngsins" hjálpaði Everette Bannister Anastasio Somoza fv. forseta Nicaragua og fjármálamanninum Robert Vesco, vini Nixons. Að sögn Gormans var faðir hans tengiliður Pindlings og Vescos, sem kom fyrst til Baha- meyja 1973. Vesco hafði þá verið á flótta S eitt ár síðan hann hvarf með 225 milljónir dala, sem hann mun hafa haft af Investors Overse- as Services, fyrirtæki sem hann tók við af íjármálamanninum Bemie Comfield. Tveir aðstoðarmenn Somoza komu til Nassau 1980 þegar Pindl- ing og staðgengill hans voru erlendis og báðu Everette Bannister að sjá um að einræðisherrann fyrr- verandi fengi að dveljast á Bahamaeyjum. Daginn eftir kom Somoza á snekkju sinni til eyjunnar Exuma, skammt frá Nassau, og hafði meðferðis sex ferðatöskur fullar af peningum. Everette viður- kenndi seinna við rannsókn að hafa hitt Somoza, en neitaði því að hafa þegið fé frá honum. Gorman sonur hans segir að hann hafi tekið við 320,000 dollurum frá Somoza og greitt frú Pindling 40,000 dollara. Dvöl Somoza stóð hins vegar stutt. Stjómmálamenn á Bahamaeyjum óttuðust að Eve- rette yrði of valdamikill, ef Somoza yrði um kyrrt, og skipuðu einræðis- herranum að hafa sig á brott. Mikilvæg tekjulind Utanríkisnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings ákvað að yfirheyra Gorman vegna staðhæfínga um að bandaríska utanríkisráðuneytið hefði torveldað baráttuna gegn eit- urlyflabraski með því að styðja Pindling þrátt fyrir ásakanir um að hann hefði gert eyjamar að griðastað „eiturlyfjabaróna." Gor- man skýrði m.a. frá því að starfs- maður utanríkisráðuneytisins hefði verið kallaður heim frá Nassau þeg- ar hann tilkynnti til Washington að Everette Bannister væri tengilið- ur eiturlyfjasalanna og stjómarinn- ar á Bahamaeyjum. Eiturlyfjasalan er einn helzti homsteinn efnahagslífsins á Ba- hamaeyjum. Sumir telja að hún sé þriðja helzta tekjulind eyjaskeggja, sem em 250,000 talsins, (næst á eftir ferðaþjónustu og bankastarf- semi) og gróðinn af henni nemi einum tíunda af þjóðartekjum. Um 40% fullorðinna munu fjárhagslega háðir eiturlyflasmygli. Tímabundin vinna við að afferma eiturlyfjabáta hefur stundum úrslitaáhrif á af- komu fólks á afskekktum eyjum. Þótt 60% atvinnuleysi sé t.d. á eynni Bimini eiga margir íbúanna gullúr og dýra bíla og lifa eins og blóm í marz munaði litlu að öldunga-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.