Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 27
VPÖI t.TTjt, nr HtlOACÍlIMVnJ^ TfJKTTOít(
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
27
Unnið við álbræðsluker fyrir utan Vélsmiðjuna Stál hf. á Seyðisfirði.
Seyðisfjörður:
Stál hf. af hendir
síðustu álbræðslu-
kerin til ÍS AL
;vr«í^>
Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson
Theódór Blöndal framkvæmdastjóri og Björg Blöndal verslunar-
stjóri í Stálbúðinni.
AGFA+3
Alltaf Gæðamyndir
Seyðisfjörður.
NÚ Á dögunum afhenti vélsmiðj-
an Stál hf. íslenska álfélaginu í
Straumsvík álbræðsluker númcr
44, sem jafnframt er það síðasta
sem Stál hf. smíðar fyrir ÍSAL
að sinni a.m.k. Stál hf. fékk þetta
verkefni að undangengnu al-
þjóðlegu útboði vorið 1985.
Theódór Blöndal framkvæmda-
stjóri sagði að þetta verkefni hefði
verið uppistaða framleiðslu vél-
smiðjunnar síðastliðin tvö ár. Hann
sagði að um 900 tonn af stáli hefðu
farið í kerin og um 30 ársverk lægju
að baki þessari keijasmíði. í desem-
ber 1986 bauð ÍSAL út smíði á 35
álbræðslukerjum til viðbótar og
bauð Stál hf. einnig í það verk, en
þá reyndist fínnskt fyrirtæki vera
með aðeins lægra tilboð, sem stjóm-
endur ÍSALs tóku. En af þessu má
ráða að íslenskur jámiðnaður stend-
ur erlendum jámiðnaði jafnfætis,
þó vitað sé að hann er ríkisstyrktur
að hluta til í nágrannalöndum okk-
ar. En nú nýverið bauð ÍSAL svo
aftur út smíði á 64 keijum til við-
bótar, sem smíða á í haust og á
næsta ári. Theódór sagði að Stál
hf. hefði gert starfssamning við
Stálsmiðjuna hf. í Reykjavík um að
gera tilboð í þessi ker og reyna síðan
að ná samningum um smíðina.
Hann sagði að hér væri um mikið
hagsmunamál fyrirtækisins að
ræða og ef þeir fengju þetta verk
mundi það veita 30 manns vinnu í
eitt ár, Nú þegar smíði þessara
keija er lokið em framundan ýmis
smærri verkefni hjá Stál hf. í skipa-
breytingum og viðhaldi, til dæmis
var nýlega samið um breytingar á
Steinunni SF 10 frá Höfn og sam-
kvæmt þeim samningi á að setja
nýtt stýrishús á skipið, byggja yfír
þilfar og endumýja allt rafmagn í
skipinu.
Stál hf. rekur einnig verslunina
Stálbúðina, sem nú í vor var stækk-
uð og endurskipulögð. Vömval
hefur verið aukið til að mæta kröf-
um viðskiptavina. Verslunarstjóri í
Stálbúðinni er Björg Blöndal, eigin-
kona Theódórs.
Garðar Rúnar
Nýja-Sjáland:
Óku út í
leirhver og
biðu bana
Wellington, Reuter.
FJÓRIR táningar biðu bana þeg-
ar bifreið þeirra valt og hafnaði
ofan í leirhver á jarðhitasvæðinu
í Rotorua á Nýja Sjálandi.
Tildrög slyssins vom þau að þétt
gufa lagðist yfír akveg um hvera-
svæðið þegar ungmennin óku þar
um. Var bifreiðinni ekið inn í gufu-
bólstrana með þeim afleiðingum að
ökumaðurinn missti sjónar á vegin-
um og ók útaf.
Hverasvæðið í Rotorua, sem er
á nyrðri eynni, em vinsælar ferða-
mannaslóðir og þar em einnig
eftirsóttar heilsulindir.