Morgunblaðið - 12.07.1987, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
Ferðaþjonusta á landsbyggðinm
Suðurland:
Umferð ferðamanna
fer ört vaxandi
Færri ferðamenn eru í hópferðum og umferð erlendra
ferðamanna minni
Selfossi.
Ferðamannastraumurinn um
Suðurland er greinilega hafinn.
Á öllum ferðamannastöðum
eykst umferð ferðamanna jafnt
og þétt þessa dagana, bæði inn-
lendra og erlendra enda fer í
hönd mesti annatimi ferðaþjón-
ustunnar. Misjafnt hljóð er þó
i forsvarsmönnum gististaða
um aðsókn það sem af er sumri
og um útlitið framundan. Svo
virðist sem erlendir ferðamenn
í hópferðum um landið muni
ekki skila sér eins vel og i fyrra
og umferð ferðamanna á eigin
vegum er minni. Uppgangur
er i ferðaþjónustu á Suðurl-
andi, nokkrir nýir gististaðir
hafa bæst við og víða verið
bætt úr aðstöðu svo sem á tjald-
svæðum.
„Við þurfum ekki að kvarta
undan aðgerðarleysi," sagði Jón
Grétar Kjartansson hótelstjóri í
Skógum um ferðamannastraum-
inn. Hann sagði mikið um að fólk
kæmi frá Reykjavík í hlaðborð
sem þau væru með á kvöldin.
Mesti fjöldí ferðamannanna kæmi
þó í rútum, í skipulögðum ferðum.
Hann sagði aukningu hafa verið
í júní og það liti vel út með suma-
rið.
Mikíl umferð við
Geysi og á Flúðum
Már Sigurðsson hótelstjóri á
Geysi í Haukadal sagði sumarið
líta mjög vel út. Það væri búinn
að vera stöðugur straumur síðan
um páska. Góður vegur uppeftir
hefði sitt að segja og það kæmi
greinilega fleira fólk.
„Útlitið er gott en útlendingar
eru þó Iítið famir að koma,“ sagði
Jóhannes Sigmundsson hótelstjóri
á Flúðum. Það var fullt um allar
helgar á Flúðum í júní, mest ís-
iendingar, og sumarið er vel bókað
fram til 20. ágúst. Jóhannes sagði
nokkuð um afbókanir en bjóst þó
við einhverri aukningu frá í fyrra
ef bókanir stæðust. Ferðaþjónust-
an er mjög vaxandi á Flúðum og
stöðug aukning á umferð þar um
staðarhlöðin.
Kuldi í Evrópu þýðir
færri ferðamenn
Hjá Mosfelli á Hellu bjuggust
menn við færri ferðamönnum í
sumar en var í fyrra. Maí hefði
verið góður, með 70% aukningu
en í júní hefði aðókn í gistingu
dregist saman um þriðjung en
tjaldgestir í júní hefðu verið jafn
margir og í fyrra. Einar Kristins-
son hjá Mosfelli sagði að það
stefndi í þriðjungs minnkun, færra
væri í bókuðum hópferðum út-
lendinga á vegum ferðaskrifstofa.
Það væri erfíðara að gera sér
grein fyrir fjölda þeirra sem ferð-
ast á eigin vegum, aðalstraumur
þeirra hæfist í kringum 10. júlí.
Hann sagði að sér virtist sem
kaldur vetur í Evrópu hefði þau
áhrif að þá kæmu færri ferða-
menn til Islands.
Ferðamannastraumurinn á
Hvolsvelli hófst upp úr miðjum
júní. Siguijón Þórðarson hótel-
stjóri sagði útlitið gott með
sumarið. Það væri nokkuð mikið
bókað en lítið um afföll. Dálítið
væri um Islendinga en flestir ges-
tanna væru útlendingar, Bretar
og Þjóðveijar. Nýlega var opnuð
viðbygging við Hótel Hvolsvöll þar
sem er afgreiðsla fyrir rútur Aust-
urleiðar sem meðal annars er með
ferðir í Þórsmörk en þær eru
geysivinsælar.
Jóna Kerúlf hótelstjóri hjá KS
í Vík sagði nokkuð um afbókanir
ferðamannahópa en júní hefði
verið sæmilegur miðað við það
sem verið hefur. Hótelið er með
5 sumarhús sem hafa verið vel
nýtt.
Gott á Örkinni
* • e *
íjum
Hjá Hótel Örk í Hveragerði var
góð aðsókn í júní. Margrét Sig-
valdadóttir hótelstjóri sagðist ekki
nógu hress með útlitið í júlí. Bet-
ur liti út með ágúst, september
og október. Einnig væru að ber-
ast bókanir fyrir næsta ár. Mikið
er um ráðsteftiur á Örkinni og eru
aðal ráðstefnumánuðimi júní,
ágúst og september. í júlí býður
mest á fólki sem væri á eigin
vegum. Mikið er um að sömu
gestir komi aftur ár eftir ár, jafn-
vel útlendingar. Sigríður sagði að
þau reyndu eftir megni að ná
persónulegu sambandi við gestina
og gæfu þeim ýmsar upplýsingar
um skoðunarferðir og annað í
nágrenninu. Það væri nokkuð sem
fólk kynni að meta.
Hjá öðrum stöðum á Selfossi
hefur umferð í júní verið dræm
og færra í hópum sem bókaðir
eru í júlí en var í fyrra.
Bjartsýni á
Laugarvatni
Stöðug aukning ferðamanna er
á Laugarvatni, þar er alltaf mikil
umferð og ýmislegt við að vera.
Sigríður Foss fyrir utan Þórístún.
Glenn og Kathy Gantc frá Bandaríkjunum ferðast um Suðurlandsundirlendið á hjólum. Þau end-
uðu 3ja mánaða ferð um Evrópu með viku hjólatúr á íslandi og sögðust koma aftur á sterkarí
hjólum til að sjá aðra hluta landsins.
hótelið upp á hressingardvöl, með
líkamsrækt, nuddi, leirböðum,
sundi, sauna ogþví sem tilheyrir.
„Heldur færri á ferð“
Sigrún Sigfúsdóttir á Hótel
Ljósbrá í Hveragerði sagði að
henni virtist sem heldur færri
væru á ferð á eigin vegum og
almenn umferð heldur minni. Það
gæti þó legið í því að nú væru
fleiri sem byðu upp á gistingu.
Hún sagði það færast í aukana
að íslendingar nýttu sér farfugla-
heimilið sem hún rekur líka, sömu
sögu væri að segja um tjaldsvæði
hótelsins. Hún sagði gott útlit
fyrir sumarið. Hótelið er í sam-
bandi við enska ferðaskrifstofu
sem sendir hópa til íslands og
þeir fá fulla þjónustu á Ljósbrá á
meðan þeir ferðast um Suðurland-
sundirlendið.
Misjafnt á Selfossi
Gott hljóð var í Bimi Lárussyni
hjá Hótel Selfoss. Hann sagði
ferðamannastrauminn hafa byij-
að eins og sprengju 20. maí og
síðan hefði verið 70% nýting á
hótelinu. Útlitið væri gott 80-85%
bókanir. Meirihluti gestanna er í
hópferðum og flestir gista í 3
nætur í einu. Hótel Selfoss er í
Intemord-keðju hótela á Norðurl-
öndum og Islandi og hefur það
gefíst mjög vel.
Sigríður Foss hjá Hótel Þórist-
úni á Selfossi sagði að afpantanir
hjá ferðaskrifstofum hefðu verið
miklar í júní og hann því orðið
frekar rýr. Hún sagði einnig að
sjálfsagt hefði það áhrif að gisti-
stöðum á svæðinu hefði fjölgað
og færri kæmu á hvem stað. Þrátt
fyrir það liti júlí þokkalega út.
Þó sagði Sigríður erfitt að segja
til um það því hjá þeim byggðist
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Jóhannes Sigmundsson hótelstjóri á Flúðum kannar vatnið í ein-
um heita pottinum fyrir utan Skjólborgina.
Menn fara í gönguferðir um ná-
grennið eða á seglbretti sem
unglingar upp í sextugt stunda
mikið. Iþróttasalurinn nýi við
íþróttaskólann er opinn tvisvar í
viku fyrir gesti og er þar mjög
góð aðstaða. Mikið hefur verið að
gera þar hjá hótel Eddu í júní-
mánuði, innlendar ráðstefnur hver
af annarri og mikið um að starfs-
mannahópar komi í mat eða til
dvalar í skamman tíma. Útlend-
ingar eru að byija að koma á
staðinn og eru að sögn Emu Þór-
arinsdóttur hótelstjóra heldur
færri í hópum en vant er. Hún
hafði það eftir einum gestanna
að vorið í Skandinavíu hefði kom-
ið mjög seint og menn ekki
almennilega þorað til íslands og
því afbókað ferðir sínar. Mikil
umferð var um síðustu helgi á
tjaldsvæðunum en þar eru menn
búnir undir að mæta ferðamanna-
straumnum og einnig í annarri
þjónustu á staðnum.
Uni útlitið í júlí og ágúst sagði
Ema hótelstjóri að bókanir væru
góðar og þær væm alltaf bjart-
sýnar á hótelinu og alveg bráð-
hressar þó ekki væri alltaf fullt:
„Það er svo gott að vera héma,“
sagði Ema.
Heitir pottar
gera lukku
Talsverð aukning hefur orðið á
Suðurlandi á möguleikum til gist-
ingar og virðist sem margir hafi
tekið við sér við spár um aukinn
ferðamannastraum. Gistihúsið
Starengi á Selfossi tók til starfa
í vor og í Hveragerði bættist við
gisting í heimahúsi með morgun-
verði. Þá er boðið upp á svefn-
pokapláss í Þingborg í
Hraungerðishreppi. Auk þess hafa
þeir staðir sem fyrir eru aukið við
og gert endurbætur. Á Flúðum
tók Ferðamiðstöðin til starfa og
býður upp á gistingu í 5 sumar-
húsum og ýmsa aðra ferðaþjón-
ustu. Byggt var við Skjólborgina
á Flúðum og er þar um að ræða
herbergi með baði og heitum potti
fyrir utan, nokkuð sem bæði inn-
lendir og erlendir ferðamenn
kunna vel að meta. Hjá hótel
Þóristúni á Selfossi er sömu sögu
að segja af heita pottinum í garði
hótelsins, hann vekur stormandi
lukku meðal gesta.
Endurbætur hafa víða verið
gerðar á tjaldsvæðum og er
greinilegt að forsvarsmenn þeirra
gera sér grein fyrir því að ef reka
á tjaldsvæði með það fyrir augum
að fá þangað fólk til dvalar um
lengri tíma þarf aðstaðan að vera
fyrsta flokks, heitt og kalt vatn,
steypiböð og möguleiki til að þvo
fatnað. Greinilegt er á svörum
manna að tjaldsvæði í grennd við
sundlaugar eru vinsæl meðal
ferðamanna.
Misjafn ferðamáti
Ferðamáti ferðamanna er eins
misjafn og þeir eru margir. Sumir
ferðast í stórum hópum, aðrir á
eigin bílum og svo eru þeir sem
kjósa að fara um með bakpoka
og notuðu áætlunarbílana. Vin-
sælast er að kaupa tímamiða, en
þá getur viðkomandi farið með
hvaða áætlunarferð sem er á
ákveðnu tímabili. Svo eru þeir sem
Terðast um á hjólum og fara jafn-
vel í kringum landið. Láta þeir
ekkert á sig fá þó vindar blási eða
regnið lemji andlitið. Það er allt
upplifun og hversdagslegir hlutir
í augum Islendinga verða ævin-
týri líkastir hjá þessum erlendu
gestum.
íslandsferðir
eru „töff“
í hugum margra er það töff
að fara til íslands. Fararstjóri
gönguferðahóps sagði að tvær
eldri konur hefðu haft það á orði
í einni gönguferðinni að þær væru
nú úr stórborg og ekki vanar
svona þeytingi. Þá svaraði farar-
stjórinn að þær yrðu að gera sér
grein fyrir því að ferð til íslands
væri engin letiferð. Það yrði að
reyna á sig til að sjá það sem
landið hefði upp á að bjóða. Eftir
það voru þær gömlu galvaskar á
göngunni. Sig. Jóns.