Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
45
£)f\/innzz — o fwinna — o fwinr la — a tx/innzi — atx/inna — atwinna
Cll VIIIIICL di vii ii ict divn ii i vii n id divn n id divn ii id
Umsjónarfóstra
Umsjónafóstra óskast til afleysingastarfa á
dagvistardeild Félagsmálastofnunar Kópa-
vogs frá 1. sept.- 1. júní nk. Um er að ræða
60% starf.
Upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi í síma
45700.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastjóri.
Sölumaður
Saab-bifreiða
Óskum eftir að ráða vanan og áhugasaman
sölumann til að selja Saab-bifreiðar. Viðkom-
andi þarf að geta byrjað sem fyrst.
Áhugasamir vinsamlegast sendið inn um-
sóknir á auglýsingadeild Mbl. fyrir fimmtu-
daginn 16. júlí merktar: „Saab — 4513“.
Globusn
Lágmúla 5 128 Fteykjavík
Garðasókn
— organisti
Sóknarnefnd Garðakirkju, Garðabæ, auglýsir
eftir organista í fullt starf frá og með 1. októ-
ber 1987. Starfið felur í sér venjuleg organ-
istastörf, þjálfun kórs, aðstoð við fermingar-
undirbúning og önnur skyld störf. Laun
samkv. kjarasamningi íslenskra organleikara.
Skriflegar upplýsingar um menntun og fyrri
störf sendist formanni sóknarnefndar, Bene-
dikt Björnssyni, Aratúni 38 eða sóknarpresti,
séra Braga Friðrikssyni, Faxatúni 29, fyrir
1. ágúst 1987.
Sóknarnefnd.
Afgreiðslustarf
Verzlunin 1001 nótt óskar eftir starfskrafti
til afgreiðslustarfa. Heilsdagsstarf.
Æskilegur aldur 21-30 ára.
Upplýsingar í síma 12650 frá kl. 16.00-18.00.
Tollstjórinn í
Reykjavík auglýsir:
í framhaldi af endurskipulagningu á starfsemi
tollstjóraembættisins í Reykjavík og stofnun-
ar embættis ríkistollstjóra eru eftirtalin störf
auglýst laus til umsóknar við embættið:
1. Yfirmaður við tollstjórn. Lögfræðimennt-
un áskilin.
2. Yfirmaður við tollendurskoðun. Endur-
skoðunarmenntun áskilin.
3. Starf starfsmannastjóra. Menntun og
reynsla í stjórnun áskilin.
4. Starf upplýsingafulltrúa.
Umsóknarfrestur um störf þessi er til 1.
ágúst 1987. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins. Nánari upplýsingar
gefur skrifstofustjóri.
Tollstjórinn í Reykjavík.
I.júli 1987.
Útflutningsfyrirtæki
á fatnaði
óskar eftir ráða starfskraft í fullt starf. í starf-
inu felst:
- Umsjón með öllum innkaupum fyrirtæk-
isins,
- ábyrgur fyrir öllum afhendingum til við-
skiptavina,
- umsjón með pökkun,
- vinna við framleiðslu- og birgðabókhald
fyrirtækisins í tölvu.
Hér er um að ræða starf sem býður upp á
mikla framtíðarmöguleika en gerir jafnframt
miklar kröfur til viðkomandi.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „Á — 851 “ fyrir 25. júlí.
Iðnaðarmenn óskast
Óskum eftir iðnaðarmönnum til starfa: Vél-
virkjum, plötusmiðum, pípulagningamönn-
um, rennismiðum, bifvélavirkjum og
blikksmiðum.
Aðstoðum við útvegun húsnæðis.
Uppl. veitir Gestur Halldórsson í vinnutíma
í síma 94-3711 og á kvöldin í síma 94-3180.
Vélsmiðjan Þór hf.,
Rörverkhf.,
Suðurgötu 9, ísafirði.
Kringlan
Starfsfólk óskast í fataverslun sem opnar í
Kringlunni 13. ágúst. Vinnutími samkomulag.
Upplýsingar óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. fyrir 15. júlí merktar: „Kringlan — 4045“.
Rafmagnstækni-
fræðingur
Ungur, nýútskrifaður rafmagnstæknifræð-
ingur óskar eftir atvinnu. Get byrjað strax.
Hef sveinspróf í rafvirkjun og góða reynslu.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Góður starfskraftur — 5179" fyrir 17. júlí.
Kranamaður
— verkamenn
Kranamaður á byggingakrana og verkamenn
í byggingavinnu óskast strax. Mikil vinna.
Upplýsingar í símum 673385 og 79111.
Byggungsf.
Kennarar
Kennara vantar við Gagnfræðaskólann í
Mosfellssveit í eftirtaldar greinar:
Myndment, samfélagsfræði, bókfærslu, vél-
ritun og stuðningskennslu.
Upplýsingar gefur yfirkennari í símum
666186 og 667166.
Yfirkennari.
Kennarar
Þorlákshöfn er í 50 km. fjarlægð frá
Reykjavík. Þar vantar kennara í íslensku og
ensku í 7.-9. bekk, íþróttum stúlkna, svo og
kennslu 10 og 11 ára barna. Ódýrt húsnæði
í boði.
Hafið samband við skólastjóra í síma
99-3910 eða formann skólanefndar í síma
99-3789.
Grunnskóli Þorlákshafnar.
Rafeindavirki
eða rafvirki
óskast til starfa nú þegar. Mikil vinna. Endur-
skoðunarkunnátta nauðsynleg. Framtíðarstarf.
Svar óskast sent til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 25/7 merkt: „R — 6431“.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið á Blönduósi óskar að ráða hjúkr-
unarfræðinga frá 1. sept. eða eftir samkomu-
lagi.
Upplýsingar um launakjör og húsnæði gefur
hjúkrunarforstjóri í síma 95-4206, heimasími
95-4528.
Starfsstúlkur óskast
í pökkunardeild okkar nú þegar í hálfs- eða
heilsdagsstarf.
Upplýsingar á staðnum, ekki í síma.
Síld og fiskur,
Dalshrauni 9b,
Hafnarfirði.
Starf organista
Starf organista við Egilsstaðakirkju er laust
til umsóknar. Starfið er hlutastarf.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí.
Upplýsingar gefur formaður sóknarnefndar
Magnús Einarsson.
Sóknarnefnd Egilsstaðakirkju.
Framkvæmdastóri
Kjörland hf. óskar að ráða framkvæmdastjóra.
Fyrirtækið starfar við framleiðslu og sölu á
frönskum kartöflum og matarkartöflum. Einnig
sér fyrirtækið um sölu á fersku grænmeti.
Starfsmenn eru um 15. Fyrirtækið er stað-
sett á Svalbarðseyri við Eyjafjörð. Þetta er
ungt fyrirtæki í mótun og því getur verðandi
framkvæmdastjóri haft þar mikil áhrif. Mögu-
leikar fyrirtækisins á þessum markaði geta
verið miklir ef réttur maður með ferskar og
góðar hugmyndir fæst í starfið.
Umsækjendur þurfa að hafa reynslu í stjórnun-
arstörfum. Æskilegt er að umsækjendur hafi
þekkingu á því sviði sem fyrirtækið starfar á.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí nk. Skrifleg
umsókn, þar sem fram komi upplýsingar um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist til
Starfsmannastjóra KEA, Hafnarstræti 91-95,
600 Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
KEA í síma 96-21400.
Ertþú góður
dönskukennari?
Að Garðaskóla vantar vel menntaðan og
áhugasaman kennara í dönsku. Starfsað-
staða er mjög góð í nýju og rúmgóðu húsi
vel búnu kennslutækjum. Nemendur og kenn-
arar hafa samfelldan vinnudag. Árlega eru
margir kennarar styrktir til endurmenntunar.
Ef þú hefur áhuga sláðu þá á þráðinn og
kynntu þér skipulag og starfsaðstöðu.
Skólastjóri og yfirkennari gefa fúslega nán-
ari upplýsingar.
Heimasímar: 42694 og 74056.
Skólafulltrúi Garðabæjar.