Morgunblaðið - 07.08.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Vinnusalur Eider Knit stóð tómur í gær en starfsfólkið kemur úr
sumarfríi eftir helgi.
Eider Knit dótturfyrirtæki
Pijónastofu Borgarness:
Starfsemin byrj-
ar í næstu viku
eftir sumarfrí
Michael Simpson, pökkunar-
stjóri Eider Knit.
Glasgow, Skotlandi. Frá Kristni Benediktssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
„VIÐ ERUM aðeins tvö hér
að vinna þar sem sumarfrí
standa yfir hjá starfsfólki fyr-
irtækisins en starfsemin fer
af stað aftur á mánudaginn í
næstu viku“, sagði Rhona
McLean skrifstofustúlka hjá
Eider Knit dótturfyrirtæki
Pijónastofu Borgarness, í
Skotlandi er fréttaritari
Morgunblaðsins kom þar við
í gær til að kynna sér starf-
semina í ljósi þeirra frétta sem
borist hafa af rekstrarerfið-
leikum í Borgarnesi.
Eider Knit er í nýlegu verk-
smiðjuhverfi sem byggt var utan
við þorpið Cumbemauld 12 mílur
utan við Glasgow. Þar vora reist
Qölmörg iðnaðarfyrirtæki til að
skapa vinnu fyrir fjölmarga at-
vinnulausa Giasgow-búa sem
fluttu til þorpsins og telur það nú
um 70 þúsund íbúa.
Hjá fyrirtækinu vinna alls 11
manns þar af era 7 saumakonur
sem sauma peysur, jakka og fleira
sem kemur hannað frá Islandi.
En fyrirtækið sér einnig um mark-
aðsetningu og er varan send undir
framleiðslumerki Eider Knit um
allt Bretland, alla Evrópu og allt
til Japans eftir því sem Michael
Simpson pökkunarstjóri sem þama
var að taka saman peysur í pant-
anir, sem ekki bíða þrátt fyrir
sumarfrí, sagði í örstuttu spjalli.
Icescot - ísskott:
Málefni Hafskips og Utvegsbankans:
Nýr saksókn-
arí skipaður
JÓNATAN Þórmundsson
prófessor og forseti laga-
deildar Háskóla íslands
hefur verið skipaður sérstak-
ur saksóknari til þess að fara
með mál þau, er tengjast
gjaldþroti Hafskips hf.
Þann 4. júní og 24. júlí vísaði
Hæstiréttur frá dómi ákæram í
þessu máli, sem Hallvarður Ein-
varðsson hafði gefið út. Með
þessum dómum Hæstaréttar er
sem engar kærur hafí verið gefnar
út í málinu og verður það undir
hinum sérstaka saksóknara komið,
hveijir verða kærðir og hvort mál
þetta verður rekið í tveimur hlut-
um eða ekki.
í samtali við Morgunblaðið
sagðist Jónatan hefja störf um
miðjan mánuðinn. „Það er mikill
skjalabunki sem ég þarf að taka
við og verður fyrst að fínna ein-
hverja aðstöðu fyrir þetta verk.
Ég þarf að fá til mín aðstoðar-
mann, svo og skrifstofumann. Ég
legg mikla áherslu á að við vinnum
sem sjálfstæðast og mun ég kynna
mér alla rannsókn málsins ræki-
lega.“ Hvert framhald málsins yrði
vildi Jónatan ekki spá um, það
yrði að koma í ljós; verið gæti að
rannsaka þyrfti einhveija þætti
að nýju eða kanna atriði, sem ekki
hefðu verið rannsökuð.
Um þann tíma sem fara ætti í
starfíð sagði Jónatan: „Starf þetta
er afar tímafrekt, en það er hins
vegar skylda mín að hraða því sem
mest. Ég verð ánægður ef ein-
hveijar ákvarðanir verða teknar í
þessu máli fyrir áramót."
Jónatan er prófessor í refsirétti
og forseti Lagadeildar. Aðspurður
Jónatan Þórmundsson.
sagðist hann ætla draga nokkuð
úr kennslu og minnka eitthvað við
sig verkefni. Hann kvaðst gegna
stöðu forseta Lagadeildar áfram.
Jóhann
heldur for-
ystunni
JÓHANN Hjartarson gerði jafn-
tefli við Salov frá Sovétríkjun-
um í fimmtándu umferð
millisvæðamótsins í Szirak í
gær. Jóhann heldur því enn
efsta sætinu á mótinu, því skák
þeirra Nunn og Beljavsky lykt-
aði með jafntefli. Portisch vann
hins vegar bandariska stór-
meistarann Christiansen og
bætti stöðu sína mikið.
Ibúamir í Mallaig eiga
eftir að skaðast mest
- segir George Lawrie fiskverk
andi í Mallaig í Skotlandi
Glasgow, Skotlandi. Frá Kristni Benediktssyni fréttaritara Morgunbladsins.
„Samkvæmt því sem við heyrum eru fiskflutningamir sem fyrirtæk-
ið Icescot stóð að komnir í slæman hnút og ófyrirséð hvort framhald
verður þar á. Ef lyktir verða þær að þessir fiskflutningar leggist
af mun þessi tilraun til uppbyggingar atvinnulífsins hér i Mallaig
fara út um þúfur og valda íbúunum hér miklum vonbrigðiun “, sagði
George Lawrie fiskverkandi þar í bæ í viðtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins í gær.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Úr fiskvinnslu George Lawrie I Mallaig. Tvær stúlkur vinna við að
flaka lýsu en piltarnir eru að koma sOdinni f reykingu.
George Lawrie rekur ásamt bróð-
ur sínum, Archie, litla fískvinnslu
í Mallaig. Helsta vinnslan er
reyking á síld (Kipper) auk þjón-
ustu við verslanir og veitingarhús
í nágrannahéraðunum. Þeir bræður
störfuðu við umskipunina á fískin-
um sem kom með Isafold síðastlið-
inn vetur, og komu honum um borð
í jámbrautarlest en þannig var físk-
urinn fluttur á markaðina í Hull og
Grimsby.
„Ég vill strax taka fram að okk-
ar fyrirtæki á engan hlut í Icescot
og vona ég í lengstu lög að okkur
verði ekki blandað saman við þau
leiðinlegu mál sem við heyram frá
íslandi viðvíkjandi fískflutningun-
um“, hélt George áfram.
„Við tókum aðeins að okkur
umskipunina og skapaði það verk-
efni vinnu og færði okkur heim
sanninn um að þessi leið er mjög
hagkvæm til fískflutninga hvert
sem er í Bretlandi og jafnvel til
meginlandsins. Auk þess færir hún
okkur fískverkendur hér í Mallaig
í tengsl við alvöra fisk og ætti að
skapa hér aukna atvinnu eins og
upphaflega var ráðgert þegar
skoski byggðasjóðurinn var með
sínar áætlanir í gangi.
Því miður sýnist mér að þetta
bakslag komi eins og reiðarslag
fyrir okkur og tel ég að íbúamir í
Mallaig eigi eftir að skaðast mest
á því hvemig Icescot ætlar að
klúðra fískflutningunum", sagði
George.
Samkvæmt heimildum fréttarit-
ara Morgunblaðsins mun skoski
byggðarsjóðurinn, Highland and
Island Developing Board, hafa
styrkt þetta verkefni með 90 þús-
und pundum, eða tæpum 6 milljón-
um íslenskra króna. í þeirra huga
er þetta verkefni mjög þýðingarm-
ikið þó það sé ekki stórt fjárhags-
lega, en sjóðurinn styrkir og lánar
milljónir punda árlega til fiskveiða
og vinnslu um allt Norður—Skot-
land.
Þetta er ekki f fyrsta skipti sem
fyrirtæki, sem þeir styrkja, bregst
en að þeirra áliti er ICÉSCOT-
málið langalvarlegast. Fylgst
verður með þróun mála gaumgæfí-
Iega því sennilega verður mælt á
móti áframhaldandi fyrirgreiðslu
að hálfu sjóðsins til þessara aðila
eða annarra sem ætla sér að feta
í fótspor þeirra
Staða efstu manna er nú þannig:
1. Jóhann Hjartarson 11 v.
2. -3. Salov og Portisch IOV2 v.
4. Nunn 10 v. og biðskák.
5. Beljavsky 9'/2 v.
Aðeins era tefldar biðskákir á
millisvæðamótinu í dag, en sext-
ánda og næstsíðasta umferðin
verður tefld á morgun. Frí er á
sunnudaginn en lokaumferðin er
á mánudaginn.
Sjá grein um mótið á bls. 34.
Bandarísk-
ir olíu-
furstar í
Islandsreisu
HÓPUR frammámanna í
bandarískum olíuiðnaði hef-
ur undanfarna daga dvalið á
íslandi.
Bandaríkjamennimir era
þijátíu talsins og gista allir á
Hótel Sögu. Þeir ferðast ekki
með ákveðinni ferðaskrifstofu
en skipuleggja skoðunar- og
skemmtiferðir sínar sjálfir.
Þannig hafa nokkrir þeirra
rennt fyrir lax víða um land
meðan aðrir hafa ferðast og
skoðað sig um. Til dæmis fóru
nokkrir þeirra í siglingu um
ísafjarðardjúp í gær og létu vel
af.
Bandaríkjamennimir komu
til landsins annan ágúst og
flestir þeirra fara utan í dag.