Morgunblaðið - 07.08.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐŒ), FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
H
Hrossaeign er mikil og almenn i Mosfellssveit. Hér eru Jóna Dený Sveinsdóttir, Kristín Birna Óskars-
dóttir og Erna Sigriður Böðvarsson að gefa hestum í útjaðri verðandi Mosfellsbæjar.
Sólskinsdagur í Mosfellssveit:
MorgunblaAið/RAX
Páll Guðjónsson núverandi sveitarstjóri og verðandi bæiarstjóri
Mosfellsbæjar fyrir framan bæjarskrifstofumar í Hlégarði. I baksýn
er Helgafell og Helgafellshverfi.
Mosfellsbær verður tíundi
fjölmennasti bær landsins
Samþykkt Mosfellshrepps um
breytingu úr hrepp í bæ tekur
formlega gildi á sunnudag
FÁ byggðarlög hér á landi hafa
tekið jafn örum vexti á undanf-
öraum árum og Mosfellssveit.
Árið 1970 voru innan við 1.000
ibúar í byggðarlaginu, en nú er
fjöldi íbúa um 3.800 og fer sífellt
fjölgandi. Það kom þvi fáum á
óvart þegar ráðamenn i Mos-
fellssveitinni tóku þá ákvörðun
að nýta heimild í sveitarstjórn-
arlögum og breyta hreppnum í
bæjarfélag með öUum þeim
skyldum og hlunnindum sem þvi
fylgja. Heimildin byggist á því
að íbúafjöldi byggðarlagsins
hafi verið yfir þúsund manns
síðastUðin þijú ár og þorri þess
fólks búið i þéttbýU. MosfeUs-
hreppur uppfyllir þau skUyrði
og vel það og mun samþykkt
hreppsnefndar um breytinguna
úr MosfeUshreppi í Mosfellsbæ
taka formlega gUdi næstkom-
andi sunnudag við hátiðlega
athöfn. MosfeUsbær bætist
þannig i hóp þeirra 26 bæja sem
fyrir eru i landinu, en hvað
fólksfjölda snertir verður hann
i 10. sæti, næst á eftir bæjarfé-
laginu á Seltjarnarnesi. Raunar
munaði aðeins þremur íbúum á
þessum tveimur bæjarfélögum
um síðustu áramót og MosfeU-
ingar sækja stöðugt á.
Bæjarland Mosfellsbæjar af-
markast af Leirvogsá að norðan,
þar sem það mætir Kjalames-
hreppi, miðri Mosfellsheiði að
austan, á móti Þingvallahreppi, og
þaðan að Sandskeiði í suður, eða
raunar að Vífílfelli að því er Mos-
fellingar telja sjálfír, þótt ekki sé
útkljáður ágreiningur við Kópa-
vogsbæ í þeim efnum. Bæjarmörk
Mosfellsbæjar og Reykjavíkur eru
við Geitháls og þaðan niður að Úl-
farsá. Alls er bæjarlandið um 220
ferkflómetrar að stærð og þar er
því mikið landrými til nýbygginga
um langa framtíð.
Stimpill á staðreyndir
Páll Guðjónsson hefur gengt
embætti sveitarstjóra í Mosfells-
hreppi sfðastliðin fímm ár. Með
fyrirhuguðum breytingum verður
Morgunblaðið/RAX
í sundlauginni sáust góð tílþrif eins og þessi mynd ber með sér.
hann óhjákvæmilega bæjarstjóri
hins nýja bæjarfélags. Hann kvaðst
ekki eiga von á að starfsviðið
breyttist með nýju starfsheiti enda
hefði rekstur Mosfellshrepps fyrir
löngu þróast í sama farveg og rekst-
ur annarra bæjarfélaga. „Þetta
verður því aðeins stimpill á stað-
rejmdir sem þegar liggja fyrir",
sagði Páll. Hann bætti því þó við
að með þessum breytingum væru
Mosfellingar ekki bara að „fá sér
merki í barminn", eins og hann
orðaði það. „Að baki þessari sam-
þykkt liggja sjónarmið sem við
teljum vera til mikilla hagsbóta fyr-
ir byggðarlagið. Má þar meðal
annars nefna úrbætur í fógeta- og
löggæslumálum. Fram til þessa
hefur sýslumaður í Kjósarsýslu og
lögreglustjóri í Hafnarfírði farið
með okkar mái í þessum efnum.
Þessir aðilar hafa reynt að sinna
þessu eftir bestu getu en það gefur
auga leið að þetta bæjarfélag, sem
nú er orðið hið 10. stærsta í landinu,
er of stórt til að því verði þjónað
svo að vel fari með þessum hætti.
Þá má nefna að með þessum breyt-
ingum gefst okkur kostur á að
starfrælg'a sérstakt sjúkrasamlag,
ef samstaða næst um slíkt og enn-
fremur höfum við heimild til að
opna hér áfengisútsölu, en margir
telja að ákveðin hagsýnisrök geti
mælt með því. Hér er þó aðeins
fátt eitt talið. Annað sem nefna
má er ímynd sveitarfélagsins út á
Sumir notuðu góða veðrið til að mála hús sin og þök.
Morgunblaðið/RAX
A flötinni vestan við Hlégarð unnu þessi ungmenni að fegrun umhverfisins fyrir hátíðina á sunnudag.
Fremst eru Helena Jónsdóttir og Einar Loftur Högnason og fyrir aftan þau Jóhanna Jónsdóttir og
Bjarni Guðmundsson.