Morgunblaðið - 07.08.1987, Side 25
MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
25
Bretland:
Hætt víð smíði
njósnahnattar
London, Reuter.
BRESKA ríkisstjórnin hefur
ákveðið að falla frá áætlun-
um um smiði Zircon-njósna-
hnattarins að þvi er bresk
dagblöð skýrðu frá í gær.
Miklar deilur blossuðu upp í
Bretiandi fyrr á þessu ári er
fréttir bárust af fyrirhugaðri
smiði hans.
Lundúnablaðið Times skýrði
frá því í gær að ríkisstjóm
Margaret Thatcher óttaðist að
tækniþekking Breta væri ónóg
og að hnötturinn yrði úreltur
þegar hann loks kæmist á loft
einhvem tíma á næsta áratug.
Sagði í frétt blaðsins, sem höfð
var eftir ónafngreindum heimild-
armönnum, að stjómin hefði
afráðið að hrinda í framkvæmd
annarri áætlun og yrði stuðst
við tækni sem Bandaríkjamenn
ráða nú þegar yfir.
Fullyrti blaðið ennfremur að
70 milljónum punda (4,2 millj-
örðum ísl. kr.) hefði þegar verið
varið til smíði Zircon-njósna-
hnattarins. Að sögn blaða var
smíði hnattarins ákveðin eftir
að leyniþjónustumenn höfðu
skýrt breskum ráðamönnum frá
því að Bandaríkjamenn miðluðu
Suður-Afríka:
ekki til þeirra upplýsingum frá
eigin njósnahnöttum sem skyldi.
Breskir embættismenn vildu í
gær ekkert segja um málið.
Reuter
Endaslepptur
flótti
Lögregla i Rio de Janeiro í
Brasilíu kom á miðvikudag f
veg fyrir flótta nokkurra
dæmdra sakamanna sem
grafið höfðu göng út úr
fangaklefunum og út f skolp-
ræsakerfí borgarinnar.
Lögreglumönnum hafði borist
qjósn af þessu athæfí og biðu
þeir við eitt holræsið er illa
lyktandi fangarnir skutust
þar upp.
Nelson Mandela og eiginkona hans, Winnie, á brúðkaupsdegi þeirra
árið 1958. Fáeinum árum sfðar var Mandela fangelsaður en kona
hans hefur verið ötull talsmaður hans utan fangelsismúranna.
Aldar fj ór ðungur síðan
Mandela var fangelsaður
TAkannaaAMUkiw Paivlap
Jóhannesarborg, Reuter.
Blökkumannaleiðtoginn Nelson
Mandela, sem orðinn er lifandi
tákn réttindabaráttu blökku-
manna í Suður-Afrfku, hefur nú
setið f fangelsi f samfleytt 25 ár.
Ásamt Mandela voru sex aðrir
leiðtogar fangelsaðir og segir
eiginkona eins þeirra, Walters
Sisulu, að siðferðisþrek fang-
nnnn sé enn óbugað.
Mandela var á sínum tíma dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir landráð
ásamt hinum leiðtogunum en allir
eru þeir félagar í Afríska þjóðarráð-
inu (ANC), sem berst gegn yfirráð-
um hvíra manna í landinu. Árið
1985 sagði Botha, forseti Suður-
Afríku, að stjóm hans væri reiðubú-
in að láta Mandela lausan ef hann
vildi fordæma ofbeldi. Mandela
neitaði og sagði að hann og félagar
hans væm ekki ofbeldissinnaðir
Skoðanakönnun, sem gerð var á
síðasta ári meðal hvítra manna í
landinu, gaf til kynna að 40% þeirra
vildu veita Mandela frelsi. Embætt-
ismaður nokkur sagði nýlega að
áframhaldandi fangavist Mandela
ylli stjóminni í Pretoríu vandræðum
en stjómin gæti ekki tekið þá
áhættu að sleppa honum úr haldi
þar sem pólitfskar óeirðir gætu fylgt
í kjölfarið.
Bretland:
• p
Bjórstofur opn-
ar allan daginn
í /tmlnn Routor
London. Reuter.
BRESK stjórnvöld tílkynntu á
miðvikudag að aflétt yrði að
mestu takmörkunum á opnun-
artíma enskra og velskra
bjórstofa innan eins árs og
þeim leyft að hafa opið allan
daginn.
Svipuðum takmörkunum, sem
ætlað var að draga úr drykkju-
skap meðal verkamanna í her-
gagnaiðnaði í fyrri heimsstyijöld-
inni, var aflétt í Skotlandi fyrir
meira 'en tíu ámm. Engar slíkar
takmarkanir em í gildi á Norður-
írlandi.
Douglas Hurd innanríkisráð-
herra sagði á fundi með frétta-
mönnum, að vínveitingastöðum í
Englandi og Wales yrði Ieyft að
hafa opið frá 11 til 23 nema á
sunnudögum.
„Enginn með öllum mjalla
mundi setjast niður á árinu 1987
og upphugsa áfengislöggjöf eins
og þá, sem við búum við nú,“
sagði Hurd. „Ferðamenn em
þmmulostnir yfír þeim og fínnst
þau hlægileg."
Hurd kvaðst ekki hafa trú á,
að aukið valfrelsi fólks í þessum
efnum yrði til þess að auka
drykkjuskap.
Ekki er búist við, að breytingin
öðlist lagagildi fyrr en í júlí á
næsta ári, en tilkynningu stjóm-
valda hefur verið fagnað af
samtökum hótela og veitinga-
staða. Samtök áhugamanna um
áfengisvamir hafa látið í ljós ugg
um, að lenging opnunartíma
vínveitingastaða geti orðið heilsu
fólks hættulegur.
PANASONIC
F0T0RAFHLAÐAN
Sú rétta í myndavélina.
Rafborgsf.
s.11141.
tripmWwiip
Metsölublað á hveríum degi!
Kjarmgrautinn
með íferðina
Kjarnagrautar eru tilbúnir á diskinn, beint úr fernunni.
Hollir og bragðgóðir grautar unnir úr ferskum ávöxtum.
Henta vel í ferðalög, sumarbústaðinn eða hvar sem er...
Þúgeturtekið 8 tegundir með þér!
Ljúffengur Kjarnagrautur daglega.
Kjarnavörur
Eirhöfða 14