Morgunblaðið - 07.08.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
35
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Eins og lesendur hafa tekið
eftir hef ég aðallega fjallað
um eitt merki í hveijum mán-
uði, eða merki mánaðarins.
Þó þetta kerfi sé gott i sjálfu
sér hefur það einn ókost. Það
vill líða langur tími þar til
komið er að uppáhaldsmerk-
inu, eða merki okkar sjálfra,
sérstaklega ef við erum fædd
á öðrum árstíma en núver-
andi. Til að bæta úr þessu
ætla ég næstu tólf daga að
birta greinar um öll merkin
tólf.
Hrúturinn
Hrúturinn er vormerki, 20.
mars—19. apríl, og þykir
hafa vorið í skapgerð sinni.
Hann er yfirleitt kraftmikill
og drífandi, hress, einlægur
og bjartsýnn. Hann er fljótur
að framkvæma ætlunarverk
sín, er duglegur og kappsam-
ur. Hrúturinn er jákvæður í
skapi og lítið fyrir að búa til
vandamál. „Þetta er ekkert
mál, við bara drífum í því,“
segir hann gjaman.
Drífandi
Þörf Hrútsins fyrir að vera
drífandi og láta verkin ganga
hratt og ákveðið fyrir sig
getur leitt til fljótfæmi. Hann
á því til að stökkva án þess
að hugsa málið til enda.
Krafturinn getur einnig leitt
til óþolinmæði vegna seina-
gangs í öðmm. Ef Hrútur er
t.d. að vinna með Nauti eða
Steingeit, merkjum sem fara
sér hægt og em varkár, get-
ur hann orðið óþolinmóður.
Þá er hætt við að hann ijúki
upp á nef sér, þrífi verkið
úr höndum þeirra eða ijúki
út og skelli á eftir sér hurð-
um. Stundum á hann til að
vaða yfir umhverfið og vera
eilítið óheflaður og eigin-
gjam. Hann á hins vegar
sjaldan til í sér illmennsku.
Ef hann gerir eitthvað á hlut
annarra stafar það frekar af
hugsunarleysi og ákafa.
Foringi
Dæmigerðir Hrútar em
ákveðnir og sjálfstæðir og
vilja fara sínu fram. Þeir
hafa því forystuhæfileika og
em margir hveijir brautryðj-
endur á sinu sviði. Þeir laðast
gjaman að þvf nýja, beijast
af krafti og byggja upp, en
missa áhugann þegar hjólin
em farin að ganga sem
smurð. Þá snúa þeir sér
gjaman að nýrri áskomn.
Kappsfullur
Ef Hrúturinn gáir ekki að sér
getur þörfin fyrir nýjungar
og átök leitt til Ístöðuley8is.
Hann þarf að temja sér að
ljúka hveiju verki áður en
nýtt tekur við. Að sama skapi
getur þörfin fyrir að fara eig-
in leiðir leitt til samstarfsörð-
ugleika. Hann þarf að varast
að vera eigingjam og egna
umhverfið upp á móti sér,
varast að vera of kappsfull-
ur, ráðríkur og skapstór.
Lifog hreyfing
Hrúturinn þarf líf og hreyf-
ingu. Hann er líkamlegt
merki og koðnar niður i
liflitlu og stöðnuðu umhverfí,
verður eirðarlaus og upp-
stökkur, eða slappur og
áhugalaus. Vanabinding á
illa við hann. Þegar Hrútur-
inn er að fást við ný við-
fangsefni lifnar hann við og
smitar aðra með ákafa
sfnum. Hann þarf að koma
málum þannig fyrir að við-
fangsefnin séu fjölbreytileg
og lifandi. Hann á að taka
sprett, hvíla viðfangsefiiið og
taka sprett á öðram vett-
vangi, síðan er hægt að taka
fyrra viðfangsefni upp á ný.
íþróttir, útivera og önnur
Ukamleg hreyfing er honum
mikilvæg.
GARPUR
'O'HEl! fZAWDÓ*.
KOUUNGUR.' '
GRETTIR
f EG VEIT S > EKKERT { { U/V1 HANN J S NEMA HVAE? KVIKINP- S 1V GeRPI VW SKJZDKK-J ( /NN ‘A MÉR.
& ITL—v -
© J7M C’AVl'ö 2-9
DYRAGLENS
llí HÆ/ ^þA/eMA \\l|||||
1 AIEPNEFIP! 1 U I
T
...........:.............. ..............................;V........
UOSKA
15
‘■l "UI' 06
éoHEKXA
, -> AiEiEA f-
FERDINAND
SMÁFÓLK
MEV, MI5TER, HOW PO
VOU KNOU) HOW HI6H
TO BUILD A H0U5E ?
HE 5AlP THE FIR5T
THIN6 VOU PO 15
COUNT TO 5EE HOU)
MANV NAIL5 VOU HAVE
never BANTER with
an olp carpenter
k
Heyrðu lagsmaður, hvern- Hvað sagði hann?
ig veiztu hvað þú átt að
byggja hátt hús?
Hann sagði að maður yrði
að byrja á þvi að kanna
hvað maður ætti marga
nagla.
Aldrei að gantast við gaml-
an trésmið.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Góð sagntækni getur af sér
leiðinlegan brids," er spakmæli
sem stundum er slegið fram
þegar sagnvísin hefur bmgðist
en menn lenda á fótunum eftir
heljarstökk í sæmum samningi.
Norður
♦ DG "
V8
♦ Á10542
♦ Á10873
Vestur Austur
♦ 2 4 10865
♦ 76532 ♦ 94
♦ DG93 ♦ K86
♦ 654 ♦ KG92
Suður
♦ ÁK973
♦ ÁKDGIO
♦ 7
♦ D
Sjö spaðar er samningurinn
sem sagnsnillingamir lenda í,
enda þarf ekki að hafa meira
fyrir úrspilinu en taka trompin
og leggja upp. En okkar maður
lenti í sex gröndum eftir mikil
slagsmál við félaga sinn í sögn-
um. Útspilið var andstyggilegt
hjarta.
Það fer illa með samganginn
og þar sem spaðinn fellur ekki
3—2 virðist spilið dauðadæmt.
En vinningsleið er til á opnu
borði. Öll hjörtun em tekin og
spaða spilað inn á blindan. Þá
er staðan þessi:
Norður ♦ D ♦ — ♦ Á ♦ Á10873
Vestur Austur
♦ - ♦ 1086
♦ -
♦ DG93 ♦ K
♦ 654 ♦ KG9 Suður ♦ ÁK974 ♦ - ♦ 7 ♦ D
Austur verður að standa vörð
um svörtu litina og því fara nið-
ur á einn tígul. Sagnhafí tekur
nú tígulás og spaðadrottningu
og spilar litlu laufí. Austur drep-
ur á kónginn og getur valið um
hvort blindur eða suður fá
síðustu slagina. Ekki skemmti-
legt val það.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu í Szirak
í Ungveijalandi, sem lýkur á
mánudaginn, kom þessi staða
upp í viðureign enska stórmeist-
arans John Nunn, sem hafði
hvítt og átti leik, og Spánvetjans
De la Villa.
Nunn er skiptamun undir i
þessari furðulegu stöðu, en hon-
um tókst samt að finna leið sem
gaf honum betra endatafl: 26.
Bxg7+! _ Kxg7, 26. Dg6+ -
Kh8 (Eða 26. - Kf8, 27. Df6+
- Bf7, 28. Dh8+) 27. Dh6 (Nú
tapar svartur óumflýjanlega liði)
- Bd5, 28. Be4+ - Kg8, 29.
Dh7+ — Kf8, 30. Bxd5 — cxd5,
31. Dh8+ - Ke7, 32. Dxa8 -
Dxa2, 33. Dxb7+ - Kd6, 34.
Df4 og hvitur vann endataflið á
frípeði sínu á g-línunni.