Morgunblaðið - 07.08.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
41
Gestunum sýnt eina skjel heims érítað af hvorum tveggja Gorbachev og Reagan.
Andrés önd
mesti brennu-
vargur sögunnar
Tólf þýskir borgarstjórar í heimsókn í Höfða
Tólf þýskir borgarstjórar frá bæjum
sem liggja við hið margrómaða
Boden-vatn á landamærum
Þýskalands og Sviss eru nú á ferð um
ísland. Á miðvikudaginn heimsóttu
þeir borgarstjórann í Reykjavfk, Davíð
Oddson, sem tók á móti þeim í Höfða.
Davíð rakti stuttlega fyrir þeim sögu
hússins og sagði frá leiðtogafundinum.
Sýndi hann þeim gestabókina með
nöfnum þeirra beggja, Gorbachevs og
Reagans, sem hann sagði vera eina
skjalið í heiminum sem þeir hefðu báðir
ritað nöfn sín á. Sagði hann þeim
eftirfarandi sögu frá leiðtogafundinum.
Vegna þess hve húsið er lítið voru
vandræði með að skipta því á milli CIA
og KGB. Höfðust leyniþjónusturnar við
í kjallaranum og að endingu fékk KGB
þann helming kjallarans þar sem
barinn var, en CIA hreppti salernin.
Leyniþjónustumenn höfðu mestanpart
ekki neitt að gera, sagði Dvaíð, og
horfðu þeir því mikið á teiknimyndir í
sjónvarpi. Það gerðist síðan að eldur
kom upp í ruslafötu á barnum sem var
á svæði Rússanna. Tveir (slendingar
sem unnu við fundinn réðu niðurlögum
hans með því að hella vatni í fötuna,
en hvergi sást KGB. Þegar farið var
að athuga hvar leyniherinn væri, sátu
einir tíu KGB-menn og horfðu á
teiknimynd með Andrési önd. Sagði
Davíð þetta líklega vera það næsta
sem Andrés hefði komist því að verða
mikilvægasti brennuvargur sögunnar.
Karl-Friedrich Reiner borgarstjóri í
Owingen þakkaði fyrir hönd félaga
sinna góðar móttökur og sagði það
mikinn heiöur fyrir þá að vera boðnir
í húsið sem von mannkyns hefði beinst
að og þar sem grunnurinn að
langvarandi friði í heiminum hefði
kannski verið lagður. Borgarstjórarnir
færðu svo Reykjavíkurborg að gjöf
litprentaða bók um Bodensee-svæðið
og minnispening.
Karl-Frledrich Relner borgarstjórl í
Owingen afhendlr Davfðl Oddssynl
gjafir frá borgarstjórunum tólf. Á milli
þeirra er Erwin Schorpp borgarstjóri
f Friedrichshaven.
Gestirnir spurðu mikið út í starfsemi
borgarinnar og stjórnmál hennar. Vakti
það mikla kátínu þegar Davíð svaraði
því til, er hann var spurður hver væru
helstu vandamál borgarinnar, aö
andstæðingar hans segðu að hann
væri sjálfur stærsta vandamálið. Að
síðustu fóru gestirnir í skoðunarferð
um húsið í fylgd Davíðs.
Tíðindamaður Fólks í fréttum
spjallaði við Karl-Friedrich Reiner
borgarstjóra í Owingen. Hann sagði
borgarstjórana í kringum Boden-vatn
Morgunblaðið/KGA
Borgarstjóramir þýsku ásamt Davfðl Oddsaynl f glampandl sól framan við Höfða.
fara í kynnisferð til annars lands á
hverju ári. ( fyrra hefðu þeir farið til
Kairo í Egyptalandi. ( ár heföu þeir
valið Reykjavík og ísland vegna
frægðarinnar sem borg og land hefðu
hlotið við leiðtogafundinn og vegna
náttúrufegurðarinnar sem væri vel
þekkt í Þýskalandi. „Ég er mjög
undrandi yfir stærð Reykjavíkur og
fallegri legu hennar,“ sagði
Karl-Friedrich. „Hér er engin mengun.
Þið hitið upp með heitu vatni, en heima
í Þýskalandi þurfum við mikið að hita
upp með olíu og iðnaðurinn brennir
geysilega miklu af henni. Þess vegna
er mengun og skógardauði mjög stórt
vandamál hjá okkur."
Karl-Friedrich sagöi þá verða hér á
(slandi í átta daga. Færu þeir víða um
landið á þessum tíma. Hann sagði
ferðamannaiðnaðinn vera
geysimikilvægan fyrir bæina við
Boden-vatn. Með náttúrufegurð eins
og hann hefði séð hér undanfarna
daga væri hann viss um að við gætum
með betri auglýsingu gert (sland að
miklu ferðamannalandi, ef við viidum.
Mest hissa sagðist Karl-Friedrich
þó vera á veðrinu. „Ég tók bara með
mér þykkustu og hlýjustu fötin, því
mér hafði verið sagt að á (slandi væri
kalt og mikil rigning. En við höfum
fengið sól hvern einasta dag og ég hef
ekkert notað öll hllfðarfötin."
COSPER
COSPER ■ io4as
— Vertu róleg, tengdamútta, þessi bölvaður skíthæll og ræfill
hefur örugglega ekki hugrekki til þess að taka í gikkinn.
Brigitte
Niison
gefurút
plötu
V— rænka okkar hún Brigitte Nil-
r son h*n danska sem gift var
Sylvester Stallone til skamms
tíma vinnur nú að hljómplötu. Á
þessi frumburður dísarinnar á
tónlistarsviðinu að heita „Allir'
hafa sögu að segja", í lauslegri
þýðingu Fólks (fréttum. Aðallega
er áætlað að selja plötuna á
Evrópumarkaði og ætlar Brigitte
að halda af stað f mikla hljómleika-
ferö um miðjan ágúst um álfuna
til aö kynda undir kaupum á henni.