Morgunblaðið - 07.08.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
49
GOLF
Fannars-
bikarinn
Um helgina fer fram opið
öldungamót í Grafarholti,
keppt verður um Fannarsbikar-
inn. Bakhjarlar að mótinu eru
Hanna og Valur Fannar og gefa
þau öll verðlaun til keppninnar.
Leikið verður með „Eclecctic"
fyrirkomulagi, þ.e. leiknar eru
18 holur á laugardag með for-
gjöf, en á sunnudag reyna
kylfingamir að bæta skor sitt á
þeim holum, sem voru lélegar
hjá þeim daginn áður. Þannig
er í raun um að ræða besta skor
í hverri holu í tveimur hringjum.
Ræst verður út kl. 09.00.
Coca-Cola
mótið
Síðasta stigamót sumarsins
verður á golvellinum í Leiru
um helgina. Leikið verður á
laugardag og sunnudag, 36 hol-
ur hvom dag. Eftir mótið verður
valið í landslið sem tekur þátt í
Norðurlandamótinu í karla og
kvennaflokki.
Á laugardaginn verður ennfrem-
ur punktamót fyrir þá sem ekki
taka þátt í stigakeppninni.
Skráning fer fram í golfskálan-
um í Leiru í síma 92-14100.
G.B. OPIÐ
Amorgun, laugardag, fer
fram G.B. mótið á Hamar-
svelli í Borgamesi og hefst það
kl. 09.00.
Spilaðar verða 18 holur með og
án forgjafar. Verðlaun eru hin
veglegustu.
Rástíma má panta í síma
93-71166, 93-71168 og
93-71186.
KNATTSPYRNA
Þróttara-
dagurinn
Þróttaradagurinn 1987 verð-
ur haldinn á sunnudaginn
á félagssvæði Þróttar. Dagskrá-
in hefst kl. 13.00.
Hinir fjölmörgu þátttakendur í
Knattspymuskóla Þróttar í sum-
ar eru sérstaklega velkomnir
ásamt aðstandendum sínum.
Handknattleikskonur sjá um
kaffiveitingar.
Fram-
dagurinn
Framdagurinn 1987 verður
haldinn á sunnudaginn á
svæði félagsins við Safamýri.
Knattspymuleikir verða hjá
yngri flokkum féiagsins á Fram-
vellinum. Einnig verður leikur á
vegum handknattleiksdeildar
Fram við íþróttahús Álftamýrar-
skóla.
Framkonur verða með kaffíveit-
ingar við nýbyggingu Fram-
heimilisins frá kl. 14.00.
í kvöld
Tveir leikir verða í 1. deild
kvenna í kvöld. ÍA og Þór
leika á Skipaskaga og KR og
KA á KR-velli. í 2. deild karla
leika Selfoss og Breiðablik á
Selfossi. Allir leikimir hefjast
kl. 19.00.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Þrír bestu spjótkastarar
Norðurianda leggja allt
undir í Laugardalnum
ÞRÍR bestu spjótkastarar
Norðurlanda í dag mœtast í
keppni á Laugardalsvellinum í
Reykjavík laugardaginn 8.
ágúst. Hér er um að rœða Ein-
ar Vilhjálmsson og Sigurð
Einarsson svo og sœnska
spjótkastarann Peter Borg-
lund.
Einar setti sem kunnugt er Norð-
urlandamet, 82,94 metra, fyrir
mánuði og sigraði síðan glæsilega
á stórmóti í Rómaborg 10 dögum
síðar. Borglund varð um helgina
sænskur meistari með 80,30 metra
kasti, en hann hefur kastað um 82
metra í ár og er einu stigi á unda
Einari í stigakeppni Alþjóðafijáls-
íþróttasambandsins. Sigurður gefur
þeim Einari og Borglund lítt eftir
og hefur kastað 80,84 metra í ár.
Þeir þrír eru óumdeilanlega beztu
spjótkastarar Norðurlandanna.
Ifymim Norðurlandamethafi,
Svíinn Dag Wennlund, þekktist ekki
boð um að koma hingað til keppni,
enda hefur honum gengið illa á
mótum í allt sumar, sjaldan eða
aldrei verið nær fyrrum Norður-
landameti sínu (82,64 í Banda-
ríkjunum í apríl) en um 4—5
metrum.
Verður viðureign þeirra Einars,
Borglunds og Sigurðar ugglaust
4?5SfiHHHHiH ^^hhhhhhhhhhhhhhbhhhhh^hhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhi
Morgunblaöiö/Jón Gunnlaugsson
4. flokkur ÍA á hinum nýja velli áður en vígsluleikurinn hófst. Þama eru
margir af stórspilurum framtíðarinnar á Akranesi ef að líkum lætur.
Akranes:
IMýr íþróttavöllur
tekinn í notkun
Elnar Vllhjálmsson
spennandi og tilþrifamikil því
skammt er í heimsmeistaramótið
og keppast menn um að koma þang-
að með sem beztan keppnisárangur
í veganesti.
Spjótkastskeppnin er liður í lands-
keppni íslendinga og Lúxemborg-
ara. Sigurður Matthíasson og
Unnar Garðarsson keppa sem gest-
ir.
Akurnesingar tóku formlega í
notkun nýjan grasvöll fyrlr
skömmu en framkvœmdir viö
gerö hans hafa staölö yfir um
nokkurra vikna skeiö. Meö til-
komu þessa nýja vallar bœtist
aðstaöa knattspyrnufólks á
Akranesi til muna.
Jón
Gunnlaugsson
skrífar
fráAkranesi
Eins og áður hefur komið fram
hér í blaðinu hafa þessar fram-
kvæmdir að mestu verið unnar í
sjálfboðavinnu og hafa einstakir
verktakar og fyrir-
tæki á Akranesi lagt
Knattspymufélagi
ÍA lið við uppbygg-
ingu knattspyrnu-
vallanna en félagið sér orðið sjálft
um rekstur íþróttavallarsvæðisins.
Formleg vígsluathöfn hins nýja vall-
ar fór fram með leik í íslandsmóti
4. flokks drengja milli Akraness og
Keflavíkur. Greinilegt var að hinn
nýji völlur fór vel í heimamenn því
þeir unnu stórsigur í leiknum, skor-
uðu tólf mörk gegn engu marki
gestanna.
Áður en leikurinn hófst ávarpaði
Gunnar Sigurðsson vallargesti sem
voru ijölmargir og rakti gang fram-
kvæmda við völlinn og bað einn
þeirra verktaka sem hvað mest
lögðu að sér við framkvæmdir,
Guðmund Guðjónsson fram-
kvæmdastjóra Skóflunnar hf., að
taka fyrstu spymuna í leiknum.
Guðmundur gaf því hinum ungu
knattspymumönnum tóninn í þess-
um mikla markaleik.
Það fór vel á því að fjórða flokkslið
Akraness vígði hinn nýja völl því
þeir hafa náð einstaklega góðum
árangri í sumar og eru nú í efsta
sæti í sínum riðli á íslandsmótinu
og hafa þeir unnið flesta andstæð-
inga sína stórt.
Skagamenn láta ekki staðar numið
í vallargerð. Slðar í sumar verður
enn eitt grassvæðið tekið í notkun
en það stendur ofan við svæðið sem
nú var tekið í notkun. Þegar það
svæði bætist við lætur nærri að til
sé á íþróttavallarsvæði Akumes-
inga um 25.000 ferm. af grasvöll-
um. Það telja knattspymumenn á
Akranesi vera lágmark og eru því
famir að huga að frekari fram-
kvæmdum.
Slguröur Elnarsson
Vósteinn og Eggert fá
góöa keppnl frá sænskum
kringlukastara
Vésteinn Hafsteinsson og Eggert
Bogason fá góða keppni í kringlu-
kastinu á Laugardalsvelli um
helgina. Er þar um að ræða einn
allra fremsta kastara Svía undan-
farin ár, Göran Svenson, sem nú
reynir allt til þess að ná lágmarki
á heimsmeistaramótið í fijálsíþrótt-
um, sem hefst 29. ágúst næstkom-
andi í Rómaborg.
Peter Borglund
Svenson hefur kastað rúma 64
metra í ár en þarf að kasta 65
metra til að komast til Rómar. í
þessu sambandi hefur hann i)eðið
FRÍ um að fá að keppa i kringlu-
kasti báða daga, en kringlukast
landskeppninnar fer fram seinni
daginn. Fær hann góða keppni
væntanlega frá Vésteini, sem setti
glæsilegt íslandsmet á dögununt^
er hann kastaði 67,20 og Eggert,
sem hefur kastað 60,72 í ár, en á
62,42 frá í fyrra.
Landskeppni
við Lúxemborg
í frjálsum
í Laugardal
um helgina
ÍSLENDINGAR heyja lands-
keppni ffrjáisíþróttum við
Lúxemborg í Laugardal nú um
helgina. Keppt veröur laugar-
dag og sunnudag og hefst
keppni báöa daga klukkan 14.
Keppt er í karlagreinum og
verða tveir keppendur frá
hvorri þjóð í hverri grein. Jafn-
framt keppa gestir í hverri grein,
m.a. keppir bezti spjótkastari
Svía, Peter Borglund, í spjótkasti
og þriðji bezti kringlukastari Svía,
Göran Svenson, kemur sérstak-
lega til þess að reyna hér við
lágmark á heimsmeistaramótið í
frjálsíþróttum, en til þess að kom-
ast þangað þarf hann að kasta
65 metra. Þá keppa þeir íslenzkir
ftjálsíþróttamenn, sem næst
standa landsliði í flestum grein-
um. Og til þess að hífa mótið upp
enn frekar verður keppt í kvenna-
greinum báða dagana og verða
allar beztu ftjáls- íþróttakonur
landsins þar á meðal.
Þrir nýllðar f landsllöinu
Þrír nýliðar verða í fijálsíþrótta-
landsliðinu sem keppir gegn
Lúxemborg á Laugardalsvelli um
helgina. Þeir eru: Arnar Snorra-
son UMSE, sem keppir í 400
metra hlaupi og boðhlaupum,
Gunnar Guðmundsson UÍA, sem , «
keppir í 200 og 400 metrum og
boðhlaupum, Jón B. Guðmunds-
son HSK, sem keppir í langstökki.
Ókeypis aðgangur
aö landskeppnlnnl
í tilefni 40 ára afmælis FRÍ 16.
ágúst næstkomandi hefur verið
ákveðið að bjóða öllum ókeypis
aðgang að landskeppni íslands og
Lúxemborgar, sem háð verður í
Laugardal nú um helgina. Á und-
anfömum ámm hefur FRÍ'boðið
unglingum ókeypis aðgang að a
helztu ftjálsíþróttaviðburðum, en
nú er gengið skrefi lengra og
verður ekkert gjald heimt við inn-
ganginn af þeim sem áhuga hafa
að fylgjast með keppninni. Má því
segja að þjóð allri sé boðið að
koma og fylgjast með keppninni.