Morgunblaðið - 06.09.1987, Page 1
96 SroUR B/C
STOFNAÐ 1913
200. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgfunblaðsins
Chile:
Pinochet
óvinsæll
Santiago, Reuter.
AÐEINS 13 prósent Chilebúa kysu
Augusto Pinchet, leiðtoga lands-
ins, í forsetakosningum, að þvi er
fram kemur i skoðanakönnun, er
birt var um helgina.
47 prósent kváðust ekki mundu
kjósa Pinochet, yrði hann eini fram-
bjóðandinn í forsetakosningum sem
fyrirhugaðar eru á næsta ári. Tæp
13 prósent kváðust á hinn bóginn
styðja hann, en 40 prósent höfðu
ýmist ekki gert upp hug sinn eða
sögðust ekki ætla að neyta atkvæðis-
réttar síns.
Bretland:
Margaret
Thatcher í
lífshættu?
U>ndon, Reuter.
Öryggisgæsla hefur verið hert
um Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, en grunur
leikur á að skæruliðar írska lýð-
veldishersins hyggist sýna henni
banatilræði er þing íhaldsflokks-
ins hefst i næsta mánuði.
Talsmenn lögreglu hafa ekki vilj-
að staðfesta orðróm þennan en að
sögn kunnugra hefur öll gæsla ver-
ið hert til muna en Thatcher er nú
stödd á ferðalagi í Skotlandi. Frétt-
ir herma að sveitir lögreglu leiti nú
hryðjuverkamanna í Lancashire en
þing íhaldsflokksins fer þar fram í
bænum Blackpool í byijun næsta
mánaðar. Sprengjuleit hefur þegar
verið hafin á hótelinu sem mun
hýsa þingfulltrúana.
Margaret Thatcher var sýnt
banatilræði er flokksmenn komu
saman í borginni Brighton árið
1984. Tímasprengja sem hryðju-
verkamenn IRA höfðu komið fyrir
sprakk á hóteli þar sem Thacher
bjó en hana sakaði' ekki.
IWjSflfgt:.;
.
Wmmrnfm
'
íf • - ’ '
- yí'c É f " \
<•>
111 I
Morgunblaðið/KGA
RIFGIRÐINGAR A BREIÐAFIRÐI
Leiðtogi uppreisnarmanna á Filippseyjum:
TUgangurinn var að upp-
ræta linkind og spillingu
Manilu, Reuter.
GREGORIO „Gringo" Honasan,
ofursti og leiðtogi uppreisnar-
manna á Filippseyjum, sagði í
útvarpsávarpi í gær að Corazon
Aquino forseti væri óhæf til að
fara með stjóm landsins. Kvað
hann Aquino hafa tekið upp svip-
aða stjórnarhætti og Ferdinand
Marcos, fyrmm forseti, og sagði
að það yrði ekki liðið.
Honasan hefur verið í felum frá
því stjómarhermenn brutu á bak
aftur uppreisn innan hersins í
síðustu viku. Hans er nú ákaft leit-
Kosningar í Argentínu:
Landsmenn inntir álits á
umbótastefnu forsetans
Buenos Aires, Reuter.
ARGENTÍNUBÚ AR ganga að
kjörborðinu í dag, sunnudag, og
hefur Raul Alfonsín forseti sagt
að nú gefist landsmönnum tæki-
færi til að segja hvem hug þeir
bera til tilrauna stjórnarinnar til
að koma á efnahagslegum og
pólitískum umbótum undanfarin
tvö ár. 19 milljónir manna em á
kjörskrá og munu þeir kjósa
þingmenn til neðri deildar þings-
ins svo og héraðsstjóra.
Skoðanakannanir spá flokki for-
setans, Róttæka flokknum naumum
sigri yfir Peronistum, helsta stjóm-
arandstöðuflokknum, en stór hluti
kjósenda hafði ekki gert upp hug
sinn. Alfonsín var kjörinn forseti
árið 1983 og flokki hans tókst að
halda meirihluta sínum í kosningum
til neðri deildar þingsins tveimur
ámm síðar. Andstæðingar stjómar
Alfonsíns hafa hvatt kjósendur til
að refsa stjóminni vegna aukinnar
verðbólgu og vaxandi skulda við
útlönd en þær. nema nú um 54
milljörðum Bandaríkj:.tala.
254 menn sitja í neðri deild þings-
ins og verður kosið um helming
þingsætanna í kosningunum í dag.
Auk þess verða 22 héraðsstjórar
kjörnir. Menn bíða spenntir eftir
niðurstöðu kosninganna í Buenos
Aires-héraði en það er miðstöð iðn-
aðar og landbúnaðar. Þar búa um
10 milljónir manna og sigurvegar-
inn mun að öllum líkindum verða
næsta forsetaefni. Á hinn bóginn
hafa frambjóðendur Peronista og
Róttæka flokksins í héraðinu lýst
yfír því að þeir hyggist gegna stöðu
héraðsstjóra í fjögur ár en tvö ár
lifa af kjörtímabili Alfonsíns.
Forsetinn hefur heitið því að
beita sér fyrir stjómarfarslegum og
efnahagslegum umbótum næstu tvö
árin. Hyggst hann koma á ráð-
stefnu sérfræðinga til að endur-
skoða stjómarskrá landsins og
minnka ríkisumsvif.
að en talið er að hann hafí um 2.000
vopnaða menn undir sinni stjóm.
Honasan sagði í ávarpi sinu að
uppreisnin hefði verið „kröftug
mótmæli" við stjómarhætti Aquino.
Kvað hann forsetann sinna hemum
lítt og sýna linkind í viðskiptum
sínum við skæruliða múslima og
kommúnista. Þá lýsti hann yfir því
að spilling væri allsráðandi innan
stjómarinnar. Hann sagði það ekki
rétt vera að uppreisnarmenn hefðu
ætlað að myrða Corazon Aquino og
fjölskyldu hennar, en sonur hennar
særðist í bardögum við uppreisnar-
menn. „Stjómin hefur vitandi vits
tekið upp sömu stefnu og Marcos,
sem naut vinsælda er hann hóf 20
ára óstjómartímabil sitt," sagði
Honasan í ávarpi sínu sem var 15
mínútna langt. „Þetta getum við
ekki liðið og við munum ekki líða
það," bætti hann við.
Honasan sagði uppreisnarmenn
ekki hafa beitt sér að fullu til að
forðast óþarfa blóðsúthellingar.
Þetta kynnu að hafa verið mistök
af þeirra hálfu en hermenn hlið-
hollir Aquino hefðu bjargað stjóm-
inni. Sagði hann að herinn hefði
betur sýnt sömu hörku í viðskiptum
sínum við skæruliða því þá hefði
verið unnt að afstýra uppreisninni.
Fidel Ramos, yfirmaður herafla
Filippseyja, sagði eftir að hafa hlýtt
á ávarp Honasans að valdagræðgi
réði orðum hans. „Hann vill hrifsa
til sín völdin og ég tel að það sé
einfaldlega ósatt að uppreisnar-
menn hafí viljað koma á umbótum,"
sagði Ramos.
53 menn féllu í uppreisninni og
300 særðust. Stjómarhermenn
hröktu uppreisnarmenn frá Aquin-
aldo-búðunum og voru þetta
hörðustu bardagar á Filippseyjum
frá lokum síðari heimsstyijaldarinn-
ar.
Líbanon:
40 falla í loft-
árásum Israela
Sídon, Reuter.
40 féllu og 40 særðust < loftárásum
ísraela á búðir Palestinumanna
nærri Sídon i gær. Eru þetta
mannskæðustu árásir ísraela frá
þvi þeir réðust inn i landið 1982.
Herþotur ísraela gerðu þrívegis
árásir á.flóttamannabúðir Palestínu-
manna skammt austur af Sídon og
stóðu þær í tíu mínútur. 80.000
manns halda til í Ain al-Hilweh-
flóttamannabúðunum.
Að minnsta kosti 55 manns hafa
fallið og 222 særst í loftárásum ísra-
ela á búðir Palestínumanna nærri
Sídon á þessu ári.