Morgunblaðið - 06.09.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.09.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987 Staldrað við í ríki urriða, húsandar, straumandar og ekki síst Hólmfríðar Þeir eru margir íslensku stangveiðimennimir og reyndar fleiri, sem þekkja Hólmfríði Jónsdóttur á Amarvatni í Mývatnssveit. Þekkja hana, eða hafa heyrt af henni. Hún er veiðivörður á efra urriðaveiðisvæðinu í Laxá í Þingeyjarsýslu, því svæði sem liggur í Mývatnssveit, og hefur gegnt því starfí í þó nokkur ár. Morgunblaðið var á ferð í Mývatnssveit fyrr í sumar og gerði stuttan stans hjá Hólmfríði. Hún reyndist viðmótsþýð, greind og skemmtileg, lúrði meira að segja á veiðileyfí og kom þá upp úr dúmum að hún er fyrsta flokks leiðsögumaður á þessum slóðum og vill allt fyrir alla gera, svo fremi sem henni er kleift að inna óskimar af hendi. Leyfíð sem okkur áskotnaðist hjá Hólmfríði gilti fyrir Geldingey og Hamar, einn dagur á hvomm stað. Raunar átti það eftir að breytast í hálfur á Hamri og hálfur á Helluvaði, en sá heili í Geldingey hélt sér. Það var mjög kalt þessa daga seint í júní og þegar við hittum Hólmfríði úti á hlaði á Amar- vatni, var hún að bjóða óvæntan gest velkominn með því að stinga honum í tóma mjólkurfemu. Þau em misjöfn störfín sem veiðivörður á þessum stórbrotna stað verður að inna af hendi. Örfárra daga gamall húsandamngi hafði orðið viðskila og ráfað í neyð sinni á þann besta stað sem völ var á, beint upp í lófann á Hólmfríði. „Þeir lifa ekki nema örstutta stund þessi grey ef þeir verða viðskila og komast ekki í hlýindi, móðirin smyr þá með nokkurs konar rakavara sem hjálpar þeim að þola kuldann. Eina vonin hjá þessum héma er að ég finni húsandarkollu með ungum sem vill taka hann að sér. Það ætti alls ekki að vera vonlaust mál því dæmigerðir hús- andamngar flakka endalaust milli mæðra í gegn um uppvöxtinn. Ég ætla með þennan inn á Geirastaðalandið á eftir að sjá hvemig gengur,“ sagði Hólmfríður og bætti við: „Þið ættuð eigin- lega að koma með mér þangað. Ég get sýnt ykkur svolítið þar sem ætti að tryggja það að þið munið alltaf vilja koma hingað til að veiða, hvemig svo sem veiðin á eftir að ganga hjá ykk- ur.“ Meira vildi hún ekki segja, enda bar forvitnin okkur ofurliði, en meira um það seinna. Þar sem Morgunblaðsmenn voru allt í einu heldur óvænt orðnir að veiðileyfishöfum, var efst á baugi að spyrja um veiðina og horfur. Hólmfn'ður svaraði: „Þið ættuð nú að verða að minnsta kosti vör, það er mikið af silungi, en á móti kem- ur að yfirmálsfiskurinn hefur smækkað nokkuð á seinni árum og er nú í smæsta lagi. Lágmarkið er 35 sentimetra fiskur og er sú stærð algengust í sumar og upp í svona 45 sentimetrar. Eru þetta svona 1—2 punda fiskar, allt eftir holda- fari sem er breytilegt eins og hjá fleiri tegundum. Það er einna síst á Hamri þar sem þið byijið, en sumir fá þar þó veiði og umhverfið þar vegur svo á móti, en það er stórkostlegt." Og hvaða flugur tekur hann? „Það er alltaf breytilegt, en í sumar hefur borið óvenjulega mikið á því að menn hafi veitt vel á mjög smáar flugur og púpur. Annars eru stóru straumflugumar sem eiga að minna urriðann á homsíli oftar þó það sem best gefur. Skemmtileg þróun síðustu sumra, sem er í full- um gangi nú, er vaxandi notkun innlendra veiðimanna á þurrflug- um. Þetta nota einnig Norður- landabúamir sem hér veiða talsvert. Egill O. Kristinsson fékk t.d. 5 punda urriða á þurrflugu í Brotaflóa um daginn og var það eftirminnileg glíma, flugan nr. 14 og taumurinn grannur eftir því. Ég efast um að margir fiskar sem sú veiðikló hefur veitt muni sitja ofar í minningunni." Er ekki aðallega veitt á Hólm- fríði?, spyija blaðamenn, en Hólmfríður hlær og er greinilega búin að jafna sig á þessum útvatn- aða brandara um straumfluguna sem Kolbeinn Grímsson hannaði einu sinni í því skyni að þola álag, en urriðamir í Laxá (og reyndar víðar), hrifsa svo græðgislega í veiðiflugur, að hver venjuleg fluga er sundurtætt og uppröknuð eftir aðeins örfáa silungaskolta. Fluga Kolbeins reyndist svo vel, að hún hefur verið meðal vinsælustu urr- iðaflugnanna æ síðan og ýmsar útfærslur raunar litið dagsins ljós hjá ýmsum hnýtumm. Hólmfríður segir: „Hólmfríður var ekkert sér- staklega gjöful framan af þessu sumri, en ný útfærsla hefur vakið vinsældir hennar aðeins aftur." Hvemig er sú útfærsla? „Ég veit það ekki alveg með vissu, en mér skilst að það hafi verið bætt við „flassi" í hana. Einhveijar aðrar flugur sem þér dettur í hug að nefna: „Ja, Black- og Grey Ghost straumflugur minna urriðann á homsíli, Þingeyingurinn, sem varð til upphaflega hér við Laxá, ýmsar smáflugur og bjartar laxaflugur. Ótrúlega margt gengur við hin ýmsu skilyrði. Ein hefur gefið venju fremur vel að undan- fömu, þeir kalla hana Black, eða í íslenskri útfærslu, Blakkur. Þetta er erlend fluga, veidd á litlum krók- um. Hún er vafin með svörtum tvinna og fremst á leggnum er vaf- ið upp í dálítinn kamb. Ofan á bakið eru síðan lagðir grænir þræðir og þeir vafðir varlega niður. Þetta gefst vel.“ Eins og Hólmfríður sagði, þá varð sú fræga fluga, Þingeyingur- inn, til við Laxá á sínum tíma. Höfundur hennar er Geir Birgir Guðmundsson, sem er einn þeirra veiðimanna sem þekkir þetta svæði Laxár hvað best. Hann var einu sinni að veiða í Geldingey, nánar tiltekið neðst á Gunnlaugsvaði, þar sem veiðistaðurinn endar í djúpum Víðast við Laxá er blómskrúðið mikið og fjðlbreytt eins og sjá má á þessari mynd sem er tekin úti í Hrafnsstaðaey í landi Hamars. og miklum bakkahyl. Þar vom urr- iðar í óða önn að háma eitthvert æti í sig, en það var sama hvaða flugu Birgir þeytti til þeirra, það vakti engan áhuga. Loks laumaðist Birgir fram á bakkann í þeirri von að sjá hvað væri svona gott á bragð- ið að fúlsað væri við öllum flugum. Þá sá hann að mergð grasmaðka var að skríða þama í grasinu og fíöldi þeirra datt í ána. Urriðamir biðu með ginin opin. Birgir hörfaði, ekki bara frá bakkanum, heldur alla leið upp í bfl, dijúgur spotti, og dró þar fram kassa með hnýting- artólum. Á skömmum tíma hnýtti hann þama stóra og mikla straum- flugu, græna og gula, flýtti sér með hana aftur á miðin og reif upp 12 stórurriða á skömmum tíma. Þar með var Þingeyingurinn fæddur, en hann hefur verið ein drýgsta veiðiflugan hér á landi í all mörg ár. Bæði fyrir urriða og lax. En veiðir ekki sjálfur veiðivörður- inn? „Ég hef ekkert átt við það í sumar og raunar ekkert í fyrra sumar heldur. En ég á græjur og lærði að kasta og hnýta hjá Ár- mönnum á sínum tíma. Ég fór alltaf annað slagið hér áður og gekk ágætlega. Ég er með þá sérvisku að veiða aðeins á flugur sem ég hef sjálf hnýtt. Ég kann ekki á Hólmfríður vísar á veiðistaði. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.