Morgunblaðið - 06.09.1987, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
Afmæliskveðja:
Kristján Guðmunds-
son fv. forstjóri
Sé takmark þitt hátt, þá er alltaf örðug för,
sé andi þinn styrkur, þá léttast striðsins kjör.
Sé merkið hreint, sem hátt og djarft þú ber,
snýr hindrun sérhver aftur, sem mætir þér.
Þetta erindi Jóns Trausta hljómar
oft í fundarsölum Góðtemplararegl-
unnar. Vissulega hafa bindindis-
menn getað sungið þetta með
nokkru stolti. Þegar landsmenn
samþykktu vínbannið árið 1909.
Þáverandi konungur íslands og
Danmerkur, Friðrik 8. lét eftirfar-
andi orð falla við sendinefnd, er kom
á hans fund til þess að þakka hon-
um fyrir að hafa staðfest íslenzku
bannlögin: „Fátt, ef nokkuð af verk-
um mínum, síðan ég varð konungur,
hefir veitt mér eins mikla gleði og
undirskrift hinna íslenzku bann-
laga, og ef ríkisþing Dana sam-
þykkti slík lög, þá myndi ég enn
glaðari skrifa undir.“
Fjölskyldumeðferð
Fjölskyldu- og hjónameðferðarstofnunin í Kiel býð-
ur nú í þriðja sinn upp á þriggja ára nám og þjálfun
í fjölskyldumeðferð á íslandi.
Námið hefst íjanúar 1988 en kynningarnámskeið
verður haldið dagana 25. og 26. september næst
komandi.
Innritun og nánari upplýsingar hjá:
Bjarney Kristjánsdóttir,
Miðvangi 157, Hafnarfirði,
sími 52055,
vinnusími 29000 lína 626.
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
Pósthólf 681
121 Reykjavík
Rekstur tölvudeilda
- breytt viðhorf
Eru að verða verulegar breyting-
ar f rekstri tölvudeilda?
Skýrslutæknifélag íslands gengst fyrir hálfs-
dags ráðstefnu fimmtudaginn 10. september
nk., kl. 13.00 í ráðstefnusal Holiday Inn.
Efni:
1. Rekstur tölvudeilda í stórum og smáum
rekstrareiningum.
2. Dreifð vinnsla eða vinnsla á einum stað.
3. Samtengd tölvukerfi.
Töluvert hefur verið fjallað um ofangreint efni
að undanförnu bæði hérlendis og erlendis.
Sýnilegt er að verulegar breytingar eru að verða
í viðhorfum til reksturs tölvudeilda. Forsvars-
menn Sambandsins hafa nýlega ákveðið að
hætta að reka eina stóra tölvu og munu í stað
þess nota allt að fjórar minni tölvur.
Dagskrá:
13.00 Skráning þáttakenda.
13.20 Ráöstefnan sett: Dr. Jóhann Pétur Malmquist,
varaformaður Skýrslutæknifélags íslands.
13.30 Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKÝRR:
Miðlæg eða dreifð gögn.
14.00 Jakob Sigurðsson, forstöðum. tölvudeildar Flug-
leiða:
Ný viðhorf f tölvumálum flugfélaga.
14.30. Ragnar Pálsson, forstöðum. tölvudeildar Sam-
bandsins:
Fyrirhugaðar breytingar á tölvumálum Sambands-
ins.
15.00 Bjarni Júlfusson, framkvæmdastj. Tölvumynda hf.:
Dreifð vinnsla eða miðlæg.
15.30 Kaffihlé.
16.00 Tor Olav Steini, Norsk Data:
Samtengd og samhæfð tölvukerfi.
16.30 Ráðstefnulok.
Ráðstefnustjóri: Ragnar Pálsson, forstöðumað-
ur tölvudeildar Sambandsins.
Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir félaga Skýrslu-
tæknifélagsins, kr. 1.500 fyrir aðra. Vinsamleg-
ast tilkynnið þátttöku á skrifstofu félagsins í
síma 27577 eigi siðar en þriðjudaginn 8. sept-
ember.
Skýrslutæknifélag íslands
wmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmt^mmmmm
Ekki urðu andbanningar jafn-
glaðir og konungur. Sem kunnugt
er kusu íslendingar að hrinda af
sér vínbanninu að fullu og öllu árið
1933.
Ofangreindir þankar koma mér
í hug, þegar ég hugleiði æviferil
Kristjáns Guðmundssonar, einkum
þátt hans sem bindindismanns.
Kristján er Reykvíkingur, fæddur
6. sept. 1917. Foreldrar hans voru
Guðmundur Halldórsson og Símon-
inna Guðleifsdóttir. Móðir hans lézt
af völdum spönsku veikinnar 1918.
Hann ólst upp hjá stjúpu sinni,
Vigdísi Valgerði Jónsdóttur. Krist-
ján rak um nokkurra ára skeið
ásamt bróður sínum skógerð hér í
bæ, en hana hafði hann kynnt sér
í Danmörku. Ég minnist þess, að
árið 1952 var haldin hér mikil iðn-
sýning í Iðnskólanum á Skólavörðu-
holti. Þar hafði Kristján myndar-
lega sýningardeild. Vegna harðrar
samkeppni af samskonar erlendum
vörum, urðu hann o.fl. í sömu grein
að leggja þessa iðju niður. Illa
stenzt því stundum kjörorðið: „Efl-
um íslenzkan iðnað."
Jóhann Ögmundur Oddsson lét
af störfum sem forstjóri bókabúðar
Æskunnar árið 1961. Kristján Guð-
mundsson, sem er tengdasonur
hans, tók þá við rekstrinum, sem
hann var búinn að kynna sér áður.
Kristján reyndist þegar vel þeim
vanda vaxinn að taka við þessu
þríþætta starfi, umsjón með bóka-
og ritfangaverslun, afgreiðslu
barnablaðsins Æskunnar og bóka-
útgáfu. Fyrir allmörgum árum
fluttist bókabúðin úr Kirlq'uhvoli og
bókaútgáfan úr Lækjargötu á
Laugaveg 56. í hinu nýja húsnæði
er rýmra um alla starfsemi Æsk-
Borgartúni 28
'mam
Skrifstofutæknir
Eitthvad
fyrir þig?
Tölvufræðslan mun í haust endurtaka hin vinsælu námskeið
fyrir skrifstofufólk sem haldin voru í haust og vetur.
Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám í vinnuað-
ferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu á notkun
PC-tölvasemnúeruorðnarómissandi við öll skrifstofustörf.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn fölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipfi, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn-
un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur,
víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
Uppselt á morgunnámskeiðið sem hefst 7. september. Nokk-
ur sæti laus í námskeiðið sem hefst 14. september.
Fjárfestið í tölvuþekkingu — það borgar sig.
Innritun í símum 687590 og 686790
Tölvufræðslan
unnar, verslunarinnar og útgáfunn-
ar, enda var starfsliði fjölgað.
Kristján reyndi að halda í horfinu
í sambandi við bókaútgáfu, en átti
þó oft við ramman reip að draga
sökum fjárskorts. Merkisrit hafa
þó verið gefin út á vegum Æskunn-
ar og má t.d. nefna ritsafn Sigur-
bjöms Sveinssonar og Ævintýri
H.C. Andersen í þýðingu Steingríms
Thorsteinssonar og Péturs Sigurðs-
sonar. Þá var einnig vel tekið af
lesendum myndskreyttum erlendum
ævintýrum, sem voru síðar endurút-
gefin. Þá stuðlaði Kristján að því
að gefa út fyrstu bók hins vinsæla
höfundar unglinga, Eðvarðs Ing-
ólfssonar. Nú er Eðvarð ritstjóri
Æskunnar ásamt Karli Helgasyni.
Erlenda menn, sem komið hafa
í heimsókn til Æskunnar, rekur í
rogastans, þegar þeir komast að
raun um, hve fátt er starfsliðið við
hið vinsæla bamablað.
Ungur að ámm gerðist Kristján
liðsmaður Góðtemplarareglunnar.
Hann hefur um árabil verið æðsti-
templar st. Víkings. Um margra
ára skeið veitti Kristján Þingstúku
Reykjavíkur forstöðu. Hann var
einn af brauðryðjendunum á Jaðri
í Heiðmörk, þar sem þingstúkan
reisti veglegt hús. Síðar varð hún
að láta það af hendi við Reykjavík-
urborg vegna nágrennis við vatns-
ból höfuðstaðarins. Kristján var
formaður Jaðarstjómar í meira en
tvo áratugi. Þá hefur hann einnig
átt sæti í framkvæmdanefnd Stór-
stúku íslands og í húsráði Templ-
arahallarinnar við Eiríksgötu. Um
skeið var Kristján formaður Áfeng-
isvamamefndar Reykjavíkur.
Vegna heilsubrests varð Kristján
að láta af störfum sem forstjóri
Æskunnar um tíma. Kristjáni var
eins annt um hinn margþætta rekst-
ur Æskunnar eins og hann væri
að reka eigið fyrirtæki.
í dag em stundum vandfundnir
menn, sem öllu vilja fóma fyrir
hugsjón. Ég þekki vart samhentari
hjón í starfi en þau Kristján og
Bergþóru. Þau hafa um áraraðir
fómað ótal stundum í þágu bindind-
ismála. Laun þeirra em lítil, ef
miðað er við verðgildi peninga, en
þeim er það rík ánægja að leggja
góðu málefni lið. Þau fara að starfa
í reglunni, þegar bannið er afnum-
ið, en það hafði verið brotið á bak
aftur með alls konar undanþágum.
Árið sem Kristján Guðmundsson
fæddist var aðeins einn maður í
fangelsi á öllu landinu. Ef spurt er
í dag: „Höfum við gengið til góðs,
götuna fram eftir veg?“ hlýtur svar-
ið að verða neitandi. Það er engum
greiði gerður með því að hagræða
sannleikanum, en nauðsyn ber til
að hafa í huga þær staðreyndir sem
blasa við. Æskilegt væri að fara
herferð gegn neyzlu áfengra
drykkja svipaða þeirri, sem farin
er gegn notkun tóbaks og vímu-
gjafa. Við, sem vinnum að bindind-
ismálum í dag gemm okkur grein
fyrir, hve lítils við emm megnug.
Ef þeir, sem vinna í dag að uppeldis-
málum rétta ekki hjálparhönd,
hlýtur alltaf að síga á ógæfuhlið-
ina, áfengissjúklingum fer fjölgandi
og þörf fyrir hælisvist er vaxandi.
Mikil mannaskipti urðu við fyrir-
tæki Æskunnar um áramót 1984.
Verður það ekki nánar rakið hér.
Kristján tók þá til starfa við Bóka-
safn IOGT. Svo vildi til, að safnið
hafði verið geymt í kjallara Templ-
arahallarinnar, en var vegna
þrengsla flutt upp á 3. hæð. Það
var ekki auðvelt verk að koma safn-
inu fyrir á nýja staðnum. Þann
vanda leysti þó Kristján með prýði.
Safnið geymir mörg handrit, prent-
aðar bækur um bindindismál,
innlendar og erlendar, og ennfrem-
ur allflestar útgáfubækur Æskunn-
ar. Þá er þar einnig varðveitt
bamablaðið Æskan frá fyrsta út-
gáfuári þess, 1897.
Við spilafélagamir þökkum
Kristjáni margar ánægjulegar
stundir undanfarandi ára. Við ósk-
um honum, konu hans og bömum
til hamingju með þessi tímamót í
lífi hans. Það skyggir á þennan
afmælisdag Kristjáns, að hann er
um þessar mundir á sjúkrahúsi.
Fjölmargir munu fagna heimkomu
hans, sem vonandi verður í náinni
framtíð.
Ólafur F. Hjartar