Morgunblaðið - 06.09.1987, Qupperneq 60
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Þrítugnr
maður
drukknar
ÞRÍTUGUR maður úr Garðabæ
drukknaði undir miðnætti á
föstudag þegar hann lagðist til
sunds við Araarból, þar sem
siglingaklúbburinn Vogur í
Garðabæ hefur aðsetur sitt.
Maðurinn var á ferð ásamt bróð-
ur sínum við aðsetur siglinga-
klúbbsins um kl. 23.30 á föstudag.
Hann hugðist synda út í skútu sem
hann átti, en hún lá um 200 metra
frá landi. Þegar hann stakk sér
til sunds kallaði bróðir hans á lög-
regluna. Þá voru Björgunarsveitin
Fiskaklettur og Hjáiparsveit skáta
í Hafnarfírði einnig kallaðar til og
lögreglan í Kópavogi kom á vett-
vang með gúmmíbát.
Rúmri klukkustund eftir að leit.
hófst fannst maðurinn skammt frá
skipasmíðastöðinni Stálvík og var
hann þá látinn. Ekki er unnt að
greina frá nafni hins látna að svo
stöddu.
^Veröld »87:
Gestir um
fimmtíu
þúsund
SÝNINGUNNI Veröld ’87 I
Laugardalshöllinni lýkur í
kvöld. Um fjörutíu þúsund
manns höfðu séð sýninguna
síðastliðið föstudagskvöld, þar
af átta þúsund síðasta sunnu-
dag.
Að sögn Guðmundar Jónssonar
framkvæmdastjóra sýningarinnar
bjuggust aðstandendur hennar við
að fá um fjörutíu þúsund gesti en
reikna nú með að þeir verði orðnir
yfir fímmtíu þúsund þegar sýning-
unni lýkur klukkan 23 í kvöld.
Morgunblaðið/Þorkell
BEÐIÐ EFTIR MOMMU
Laugavegurinn milli Prakkastígs og Klapparstígs var í gær opnað-
ur formlega við hátíðlega athöfn. Þessi hluti vegarins hefur verið
endurbyggður í sumar. Davíð Oddson, borgarstjóri, opnaði veginn
og í tilefni þess var margt um dýrðir og verzlanir við Laugaveg-
inn opnar til klukkan 16.00. Mörg bömin hafa því líklega blundað
í kerrunni meðan mamma brá sér í verzlun.
Krossanesverksmiðjan á Akureyri:
Boðnar 3.000 krónur
í fyrsta loðnufarminn
Krossanesverksmiðjan á Ak-
ureyri auglýsir í dag verðtilboð
Guðfinnur Þorsteinsson
Hvítingur VE 21:
Óli Siguijónsson
Skipulegri leit hætt
SKIPULEGRI leit að Hvítingi
VE 21 frá Vestmannaeyjum hef-
ur verið hætt. Bátsins, sem er
sjö lesta þilfarsbátur, var sakn-
að á miðvikudag og hefur Ieit
engan árangur borið.
Tveir menn voru með bátnum
og eru þeir taldir af. Þeir voru
báðir einhleypir og búsettir í Vest-
mannaeyjum. Þeir hétu Óli Sigur-
jónsson, Foldahrauni 37G, 47 ára,
fæddur 6. ágúst 1940, og Guð-
finnur Þorsteinsson, Brekkustíg
20, 36 ára, fæddur 27. apríl 1951.
í loðnu. Fyrir fyrsta farminn
sem til verksmiðjunnar kemur
vill hún greiða 3.000 kr. á hvert
tonn, 2.500 kr. fyrir annan farm-
inn og síðan 1.800 til 2.000 kr.
fyrir hvert tonn eftir ferskleika
hráefnisins út mánuðinn. Þetta
loðnuverð er þó háð því að rfkis-
stjórnin falli frá því að hætta
að endurgreiða verksmiðjunni
uppsafnaðan söluskatt. Ef það
verður ekki gert lækkar verðið
um 150 kr. á hvert hráefnistonn.
Geir Þ. Zöega framkvæmda-
stjóri Krossanesverksmiðjunnar
segir að verksmiðjan sé búin að
bíða lengi eftir loðnu, en stirðlega
gangi að ákveða verðið og engir
bátar á veiðum. Með þessari aug-
lýsingu væri fyrirtækið að reyna
að ýta við mönnum að fara af stað.
Þetta háa verð fyrir fyrstu tvo
farmana væri til að reyna að lokka
menn af stað, það væri hugsað sem
framlag verksmiðjunnar til loðnu-
leitar sem oft væri kostnaðarsöm
fyrir útgerðimar.
Geir sagði að á síðustu vertíð
hefði verksmiðjan byijað að bræða
loðnu í júlí og hefði á þessum tíma
verið búin að taka á móti 10—15
þúsund tonnum og vinna vöru að
útflutningsverðmæti um 40 millj-
ónir kr. Það stytti vinnslutíma
verksmiðjunnar hjá þeim mikið að
vertíðin byijaði svona seint og sá
tími væri þeim algerlega tapaður.
Geir sagðist vita til þess að ein-
hver loðnuskip væru tilbúin til
veiða en vissi ekki hvenær þau
færu af stað. Hann vonaðist til að
þessi auglýsing fyrirtækisins réði
úrslitum við ákvörðun þeirra.
Geir sagði að verðið sem verk-
smiðjan auglýsti út september,
1.800—2.000 kr., væri heldur
hærra en verðið á sama tíma í
fyrra.
Tvíbytnan bil-
uð í Hafnarfirði
Hraðflutningaskipið Anne Lise kom til Hafnarfjarðar á föstu-
dag vegna bilunar í tölvubúnaði. Skipið sem flytur fisk frá Isafirði
til Evrópuhafna var í sinni þriðju ferð. Það fór frá ísafirði um
þijúleytið aðfaranætur föstudagsins og var komið suður á Faxaf-
lóa þegar bilun varð f tölvustýrðum gangráði við bakborðsvél.
Skipið sem er mjög háþróað og miðað við bestu nýtingu, en hám-
að mörgu leyti tilraunasmíð, er
búið mikilli sjálfvirkni. Skipið
sjálft er tvíbytna, það hefur tvo
skrokka og er lest og stýrishús
ásamt vistarverum skipveija,
byggt þar ofan á. 2640 hestafla
vélar eru í hvorum skrokki.
Skrúfu- og stýrisbúnaður er af
nýrri gerð og er þeim stjómað af
tölvu í brú, sem jafnframt ákveður
álag á vélar og ganghraða skipsins
arks ganghraði er 28 mílur.
Viðgerðarmaður er kominn frá
Þýskalandi og er gert ráð fyrir
að skipið haldi áfram för sinni til
Grimsby, eftir að skipt hefur verið
um rafeindastýrt spjald í stjóm-
töflu.
Áætlaður siglingartími frá
Hafnarfírði til Grimsby er rúmar
fjörutíu klukkustundir.