Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C
222. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretar og Frakkar:
Verða kjam-
orkuvamir
samhæfðar?
London, Reuter.
BRESKIR og franskir embættis-
menn munu síðar í þessum
mánuði ræða hvort samhæfa berí
viðbúnað kafbáta rikjanna
tveggja, sem búnir eru kjarn-
orkueldflaugum, farí svo að
rísaveldin tvö semji um fækkun
kjaraorkuvopna. Lundúnablaðið
The Times skýrði frá þessu i
forsíðufrétt í gær og kvaðst hafa
fyrir henni öruggar heimildir.
í frétt blaðsins sagði að afráðið
hefði verið að embættismenn ut-
anríkis- og vamarmálaráðuneyta
ríkjanna kæmu saman til fundar í
næsta mánuði og kynni niðurstaðan
að verða „tímamótasamkomulag
um samvinnu á sviði kjamorku-
vama.“ Munu embættismennimir,
að sögn The Times, ræða hemaðar-
legar og pólitískar afleiðingar þess
að samræma ferðir kjamorkukaf-
báta ríkjanna. Sagði ennfremur að
ríkisstjómir ríkjanna tveggja teldu
mikilvægt að treysta vamarsam-
vinnu ríkjanna færi svo að risaveld-
in tvö semdu um upprætingu
skamm- og meðaldrægra kjam-
orkuflauga.
Bretar eiga fjóra Polaris-kjam-
orkukafbáta en fyrirhugað er að
endumýja þá á næsta áratug.
Frakkar eiga á hinn bóginn sex
kjamorkukafbáta og eru uppi áform
um að endumýja þá þrátt fyrir
áköf mótmæli Sovétstjómarinnar.
í frétt blaðsins var þess jafnframt
getið að ráðamenn þjóðanna
tveggja óttuðust að aukin samvinna
á sviði kjamorkuvama gæti leitt til
deilna við stjómvöld í Bandaríkjun-
um.
„Martröðinni ætl-
aði aldrei að linna“
Þrír létust og tugir slösuðust í öflugum jarðskjálfta I Los Angeles
Los Angeles, Reuter.
ÖFLUGUR jarðslqálfti reið í
gærmorgun yfir Los Angeles og
var í gærkvöld vitað um, að þrír
höfðu farist og tugir manna slas-
ast. Olli hann viða eldsvoðum og
skríðuföllum og þusti fólk út á
S'itur skelfingu lostið. Katrín
lafsdóttir, sem er við nám i Los
Angeles, sagði i viðtali við Morg-
unblaðið, að jörðin hefði gengið
Reuter.
Miklar skemmdir urðu víða i Los Angeles i jarðskjálftanum og sum hús hrundu að mestu til grunna,
m.a. þetta bílaverkstæði. Á innfelldu myndinni fylgjast fáklæddir hótelgestir, sem var strax skipað út
úr húsi, með nötrandi háhýsunum.
Mikhail Gorbachev í ræðu í Murmansk:
Vill viðræður um takmörkuð
herumsvif í norðurhöfum
Mogkvu, Reuter.
í byígjum og fólk ekki geta stað-
ið í fæturna þegar mest gekk á.
Jarðslgálftinn, sem varð laust
fyrir klukkan átta að morgni að
staðartíma, mældist 6,1 á Richter-
kvarða en í kjölfar hans komu
margir minni skjálftar. Þusti fólk
skelfíngu lostið út á götur en vegna
rafmagnsbilana lokuðust hundruð
manna inni í lyftum víðs vegar um
borgina. Háhýsin nötruðu, glerið
úr brotnum rúðum dreifðist um
strætin og á helstu umferðaæðun-
um urðu árekstrar og öngþveiti
þegar bílamir köstuðust til í mesta
skjálftanum. Eldar komu víða upp
þegar gasleiðslur sprungu og var
borgarbúum strax skipað að yfír-
gefa hús sín.
„Mér fannst jörðin vera að gliðna
undir fótum mér þegar skjálftinn
reið yfír,“ sagði Bill Hemandez,
tryggingastarfsmaður í Los Ange-
les. „Þetta var hræðilegt, það var
eins og martröðinni ætlaði aldrei
að linna þótt allt væri um garð
gengið á 30 sekúndum."
Lögregluyfírvöld í borginni sögðu
í gær, að þrír menn hefðu farist,
tveir karlmenn og ein kona. Tugir
manna voru slasaðir og 31 maður
fékk hjartaáfall.
Jarðskjálftinn, sem fannst í 250
km flarlægð frá Los Angeles, á
upptök sín í San Andreas-sprung-
unni en hún liggur eftir Kalifomíu
endilangri. Árið 1971 varð mikili
skjáifti á þessu svæði og létust þá
64 f Los Angeles en 1906 fómst
þar 500 manns í skjálfta, sem lagði
borgina að nokkm í rúst. Jarð-
skjálftafræðingar segja, að helm-
ingslíkur séu á skjálfta, sem mælist
8 á Richter-kvarða, fyrir næstu
aldamót.
Katrín Ólafsdóttir, sem stundar
nám við Occidental College í Los
Angeles, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið, að hún hefði vaknað við
vondan draum í gærmorgun, jörðin
gengið í bylgjum og mikil hræðsla
gripið um sig meðal nemenda á
heimavistinni.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, lagði í gær til, að
Varsjárbandalagið og Atlantshafsbandalagið efndu til viðræðna um
minni herumsvif, jafnt skipa sem flugvéla, i Eystrasalti, Norðursjó
og á hafsvæðinu norður af íslandi, milli Grænlands og Noregs. Tals-
maður NATO sagði í gær, að óljóst værí hvað vekti fyrir Gorbachev,
hvort hann værí að boða formlegar tillögur eða hefði aðeins slegið
þessu fram i pólitisku skyni.
Á fundi í Murmansk á Kolaskaga
sagði Gorbachev, að rétt væri, að
fulltrúar hemaðarbandalaganna
hittust í Lenihgrad til að ræða bann
við æfíngum flota og flughers á
ákveðnum siglingaleiðum og al-
þjóðlegu hafsvæði. Sagði hann, að
væntanlegur fundur hans með Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta
kynni að verða til að bæta mjög
ástandið á alþjóðavettvangi og að
því tilskildu hefðu Sovétmenn
áhuga á að opna ýmsar siglingaleið-
ir á norðurslóðum fyrir erlendum
skipum. Þá hvatti hann til nánara
samstarfs við norrænar þjóðir um
nýtingu sameiginlegra auðlinda og
umhverfísvemd og sagði Sovét-
menn vilja fyrir sitt leyti ábyrgjast
lgamorkuvopnalaust svæði í Norð-
ur-Evrópu.
Talsmaður NATO og aðrir emb-
ættismenn kváðust í gær ekki vita
hvort um væri að ræða formlegar
tillögur af hálfu Sovétmanna eða
áróðursbragð og bentu á, að
Gorbachev léti þessi orð falla þegar
fyrir dymm stæði opinber heimsókn
Maunos Koivisto Finnlandsforseta.
Bandarískir embættismenn sögðu,
að verið væri að kanna yfírlýsingu
Gorbachevs en rétt væri að bíða
með ákveðin viðbrögð. Johan Jörg-
en Holst, vamarmálaráðherra
Noregs, fagnaði hugmyndinni en
lagði áherslu á, að ekki mætti með I að senda liðsstyrk til norðursvæðis-
samningum veikja getu NATO til I ins á ófriðartímum.
Sjá fréttir á bls. 24
Landsfundur breska V erkamannaflokksins:
Kolfelldi tillögur um ein-
hliða kjarnorkuafvopnun
Bríghton, Reuter.
Landsfundur breska Verkamannaflokksins felldi i gær með
miklum meirihluta tillögur um, að Bretar segðu sig úr Atlants-
hafsbandalaginu og afsöluðu sér einhliða öllum kjaraorkuvopn-
um kæmist flokkurinn til valda. Hins vegar var samþykkt, að
áfram skyldi stefnt að þvf, að vamir landsins þyrftu ekki á þeim
vopnabunaði að halda.
í umræðum um vamarmála-
stefnuna sagði Ken Livingstone,
þingmaður flokksins og ákafur
vinstrisinni, að yrði reynt að
hrófla við stefnunni um einhliða
afvopnun myndi það kosta „borg-
arastyijöld" innan flokksins. Var
tilefnið það, að Kinnock hafði lát-
ið liggja að því i sjónvarpsviðtali,
að rétt væri að nota Trident-eld-
flaugamar sem samningsatriði í
afvopnunarviðræðum. A furidin-
um í gær var þessi afstaða hans
samþykkt með miklum meirihluta
og því vísað á bug, að Bretar af-
vopnuðust einhliða.
Bill Jordan, leiðtogi rafíðnaðar-
manna, sagði að þvi loknu, að nú
væru flokksmenn loks búnir að
viðurkenna, að stefnan í vamar-
málum hefði verið röng.