Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987
atvinna — atvinna ■
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Kerfisfræðingur
óskar eftir starfi. Hef 3ja ára starfsreynslu.
Get byrjað strax.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„C - 3631“.
Garðabær
Blaðbera vantar í Bæjargil, Brúarflöt og
Bakkaflöt.
Upplýsingar í síma 656146.
Ung stúlka
óskar eftir atvinnu. Er stúdent og hef vélrit-
unar- og bókhaldskunnáttu. Hef starfað við
tölvubókhald. Meðmæli ef óskað er.
Upplýsingar í síma 74066.
Netamann
vantar á skuttogarann Ými HF-343.
Þarf að hafa réttindi til að leysa af sem annar
stýrimaður.
Upplýsingar í símum 52605 og 51370.
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í
söluskála í Reykjavík. Vinnutími frá kl. 08.00-
18.00 eða 12.00-18.00. Frí um helgar.
Upplýsingar í síma 83436.
Dómarafulltrúi
Dómarafulltrúa vantar til starfa við embættið.
Góð kjör og fjölþætt starfssvið.
1. október 1987.
Bæjarfógetinn á ísafirði,
sýslumaðurinn í Isafjarðarsýslu,
PéturKr. Hafstein.
Kranamaður
- verkamenn
Óskum eftir kranamanni á byggingakrana.
Vinnustaðir í Hafnarfirði.
Óskum einnig eftir verkamönnum. Næg
vinna framundan.
Upplýsingar á skrifstofunni í síma 54844.
Fiarðarmót hf
J BYGGINGAVERKTAKAR
Starfsmann vantar
Vantar starfskraft til að leysa úr tolli o.fl.
Þarf einnig að geta annast sölustörf.
Fjölbreytt og líflegt starf.
Upplýsingar í síma 82306.
iti,
. ^
ÞJODLEIKHUSID
í
)J
Óskum eftir starfsfólki í uppvask. Vaktavinna.
Upplýsingar í síma 19636 eða á staðnum
milli kl. 10.00 og 16.00.
Leikhúskjallarinn.
Starf á endurskoð-
unarskrifstofu
Starfskraftur óskast á endurskoðunarskrif-
stofu. Viðkomandi þarf að kunna góð skil á
bókhaldi og vera vanurtölvuvinnslu bókhalds.
Góð laun í boði fyrir hæfan starfsmann. Þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6.
okt. n.k. merkt: „Samviskusemi - 4706“.
Spennandi starf
Deildarstjóri - matvara
Sláturfélag Suðurlands vill ráða til starfa ein-
stakling í stöðu deildarstjóra, sem hafa mun
umsjón með ávaxta- og grænmetisdeild í
einni af SS-búðunum.
Við leitum að aðila sem hefur frumkvæði,
nákvæmur, hugmyndaríkur og er tilbúinn til
þess að leggja töluvert á sig til þess að ná
árangri í starfi. Viðkomandi þarf einnig að
geta unnið sjálfstætt, hafa forystuhæfileika
til þess að stjórna öðrum og eiga gott með
að umgangast fólk.
Væntanlegur umsækjandi þyrfti að hafa ein-
hverja starfsreynslu úr svipuðu starfi.
í boði er spennandi starf hjá traustu fyrirtæki.
Allar nánari upplýsingar um starf þetta veitir
starfsmannastjóri á skrifstofu fyrirtækisins
Frakkastíg 1, Reykjavík.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
Viltu koma
í vinnu á skemmtilegum vinnustað? Á stað,
þar sem þú gætir jafnvel haft barnið þitt
með þér? Á dagheimilið Dyngjuborg, Dyngju-
vegi 18, vantar okkur fóstrur eða fólk, sem
hefur áhuga og/eða reynslu af uppeldisstörfum.
Nú eru lausar hjá okkur 3 heilar stöður auk
hálfrar stuðningsstöðu fyrir barn með sér-
þarfir.
Komdu í heimsókn eða aflaðu þér upplýsinga
hjá Önnu eða Ásdísi í símum 38439 eða
31135.
Starfskraftur
óskast allan daginn við afgreiðslu. Æskilegur
aldur 20-30 ára. Stundvísi, reglusemi og
snyrtimennska’algjört skilyrði.
Upplýsingar í versluninni þriðjudaginn 6. okt.
kl. 17.00-19.00 (ekki í síma).
I
tískuverslunin
Hólmavík
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Hólmavík.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
95-3263 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík, sími
83033.
Vélaviðhald
Sútunarverksmiðja Sláturfélags Suðurlands
vill ráða nú þegar eða mjög fljótlega starfs-
mann til starfa við vélaviðhald.
Við leitum að laghentum einstaklingi, sem
hefur einhverja reynslu í meðferð véla og
tækja, þar sem viðkomandi þarf bæði að
geta annast fyrirbyggjandi og almennt véla-
viðhald. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti
unnið sjálfstætt.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri á skrifstofu fyrirtækisins Frakkastíg 1,
Reykjavík.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
Tæknilegur
aðstoðarmaður
Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík vill ráða til
starfa starfsmann í stöðu tæknilegs aðstoð-
armanns verksmiðjustjóra.
Helstu verkefni eru meðal annars umsjón
og eftirlit með framleiðslu ásamt gæðaþróun.
Nauðsynlegt er að væntanlegur umsækjandi
sé menntaður sem efnaverkfræðingur eða
hafi efnafræðipróf. Til greina kemur náms-
gráða í lífeðlisfræði eða önnur hliðstæð
menntun. Æskilegt er að væntanlegur um-
sækjandi hafi gott vald á ensku og þýsku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrir störf óskast sendar auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 13. október merk:
„Stjórnandi - 4707“.
Afgreiðslustörf
- söludeild
Sláturfélag Suðurlands vill ráða nú þegar
nokkra starfsmenn til afgreiðslu- og tiltektar-
starfa í söludeild búvöru.
Við leitum að röskum og duglegum aðilum,
sem bæði eru samviskusamir og nákværhir.
í boði er góður vinnutími, ágæt laun greidd
eftir frammistöðu og frír hádegisverður.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri á skrifstofu fyrirtækisins Frakkastíg 1,
Reykjavík.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.