Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Ég er oft spurður að því hver sé tilgangur stjömuspeki. Al- gengasta svarið er að stjömu- speki flalli um manninn og mannlífíð og tilgangurinn sé sá að vekja fólk til umhugsun- ar um eigið eðli, um hæfileika Og veikleika og það að við erum öll einstaklingar með sérstakar þarfir. Einnig er sagt að tilgangur stjömuspeki sé sá að benda á jákvæðan farveg fyrir orku okkar. Jafn- framt þvi að skyggnast í eigin barm eigum við síðan að geta skilið annað fólk betur en áður. Afhverju En afhveiju skyldi það vera að við þurfum á sjálfsþekk- ingu og almennum skilningi á öðm fólki að halda? Getum við ekki komist ágætlega af án stjömuspeki og skyldra faga? ÞjóÖfélagiÖ Ef við skoðum hið íslenska þjóðfélag í dag má sjá að þjóð- in stendur á ákveðnum tímamótum. Undanfarna ára- tugi hefur átt sér stað mikil uppbygging, bæði hvað varð- ar atvinnuvegi og almenna búsetu fólksins í landinu. Þessi uppbygging hefur eðli- lega tekið mið af undirstöðu- þáttum, þ.e. af efnahagsmál- um og atvinnuvegum og því að byggja hús yfír landsmenn. Þetta hefur kostað mikla vinnu og um leið ákveðnar fómir. Tilfinningamál I dag búa margir við ágæta afkomu en standa frammi fyrir því að hið efnahagslega eitt sér er ekki fullnægjandi, að þrátt fyrir ytri glæsileika era óleyst ýmis vandamál sem fyrst og fremst snúa að hinum mannlegu þáttum. Ástæðan fyrir því er sú að maðurinn lifir ekki á brauðinu einu sam- an, hann hefur ekki einungis líkama, heldur einnig sál, til- finningar og vitsmuni sem þarf að huga að. Það er ein- mitt þegar fólk snýr frá einhliða efnishyggju og tekur að huga að öðram þáttum sem fög eins og stjömuspeki verða vinsæl og talin gagnleg. Einstaklingur Ég sagði hér að framan að einn helsti tilgangur stjömu- spekinnar væri sá að vekja okkur til umhugsunar um það að við eram öll einstaklingar með sérstakar þarfir. Slíkt er nauðsynlegt vegna þess að stór galli á okkar ágæta þjóð- félagi er sá að þó við vitum að hver einstaklingur hafi ákveðinn persónuleika og ákveðnar sérþarfir, þá gleym- um við því oft þegar á reynir. Ég vil rökstyðja þetta nánar með því að benda á nokkur atriði sem allir þekkja úr eig- in lífi og varða uppeldismál, skólakerfið og algengt mynst- ur í mannlegum samskiptum, t.d. í hjónabandi. Þar sem plássið leyfir ekki lengri um- fjöllun mun framhald þessar- ar greinar og fyrmefndur rökstuðningur birtast í blað- inu á morgun. Þekkingar er þörf Að lokum ætla ég þó að nefna eitt mikilvægt atriði sem varð- ar almenna mannþekkingu. Ef við geram okkur ekki al- menna grein fyrir því á hvem hátt fólk sé ólíkt, þ.e. ef við höfum ekki undirstöðuþekk- ingu hvað varðar hinar mismunandi persónuleika- gerðir, þá eigum við um leið erfítt með að skilja hinar ólíku þarfír fólks og koma til móts við þær. Hvemig er t.d. hægt að byggja upp skólakerfi sem hentar flest öllum ef við met- um öll böm út frá sömu forsendum? GARPUR DRÁTTHAGI BLÝANTURINN FERDINAND SMÁFÓLK ir. AUar súkkulaðikökurnar eru búnar! TMAT'5 UDMAT'5 CALLEP UP5ETTIN6 THE BALASICE OF NATURÉ Þetta kalla ég að raska jafnvægi náttúrunnar. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Leikur íslands og Belgiu á EM í Brighton var með afbrigð- um fjörugur — spilin villt og skorin eftir því. ísland fór með sigur af hólmi, 20—10, eða 110—80 í IMPum. Fyrri hálfleik- ur var svo gott sem jafn, 53—54. Belgamir gátu þakkað það tveimur góðum slemmum sem íslensku pörin tóku, sem lágu báðar í hel og töpuðust. Á næstu dögum munum við skoða nokkur spil úr þessum leik, og byijum á hörðu geimi, sem Guðlaugur R. Jóhannsson og Öm Amþórs- son tóku í þriðja spili: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ 53 VKD7 ♦ G10876 ♦ K74 Austur ilim ♦ 9742 ♦ 108543 ♦ D3 ♦ D9 Suður ♦ DG8 ♦ G ♦ ÁK82 ♦ ÁG1062 Guðlaugur og Öm vora með spil NS gegn Coenraets og Sehoofs: Vestur Norður Austur Suður Schoofs Guðl. Coenr. Örn — — — 2 lauf Pass 2 tíglar Pass 2grönd Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar Pass 3 grönd Pass Pass Pass Opnun Amar á tveimur lauf- um lofaði fímmlit þar og 11—15 punktum. Guðlaugur krefur með tveimur tíglum og tvö grönd sýna hámarksopnun með tveim- ur hliðarfýrirstöðum. Þrír tíglar spyija um staðsetningu fyrir- staðanna, og með þremur spöðum segir Örn að þær séu í spaða og tígli. Precision- útfærsla. Legan var hagstæð og Örn átti ekki í vandræðum með að taka 11 slagi með hjarta út. 460 í NS. Á hinu borðinu opnaði Belginn í suður á einu eðlilegu laufi. Norður svaraði með einum tígli, sem suður lyfti í tvo. Og þar við sat. Fjórir tíglar unnust, eða 130 í NS. ísland græddi því 8 IMPa á spilinu. Vestur ♦ ÁK106 ♦ Á962 ♦ 98 ♦ 853 I Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í London í byijun september kom þessi staða upp í skák bandaríska stórmeistarans Shamkovich, sem hafði hvítt og átti leik, og Indveijans Ravi. 18. Rxe6+ og svartur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.