Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987
Tillaga um að miða helstu gjaldmiðla
við verðvísitölu hrávöru:
Sýnir að viðleitnin er í
þá átt að treysta gengið
- segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem nú situr ársfund Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington, segist líta á þá
tillögu Bandaríkjastjórnar, að miða gengi Bandaríkjadals og ann-
arra helstu gjaldmiðla heims við verð á ýmsum hrávörum, þar á
meðal gulli, sem tœknilega tillögu um úrbætur í tilsjón sjóðsins með
alþjóðlegri gengisþróun. Framkvæmd þessarar tillögu hefði því ekki
beina þýðingu fyrir íslendinga, en hún minni rækilega á að viðleitn-
in alls staðar í heiminum sé i þá átt að auka stöðugleika í gengi.
Jón Sigurðsson sagði í samtaii við tæknilega tillögu um úrbætur í tilsjón
Morgunblaðið að James Baker §ár-
málaráðherra Bandaríkjanna hefði á
þinginu fjallað um tilhögun við eftir-
lit með gengisþróun í aðildarríkjum
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem bygg-
ist á því að fylgjast með nokkrum
helstu hagtölum i þessum ríkjum til
að meta hvort gengið kunni að vera
farið úr lagi. Hann hefði síðan gert
þá tillögu að ein af þessum hagtölum
verði verðvísitalan fyrir hrávörur, þar
með talið gull, þannig að ný viðmiðun
komi til að mæla verðlagsþróun og
þar með gengisþróun í einstökum
löndum.
Jón sagði Baker ekki hafa gert
grein fyrir því hvaða vörutegundir
væru hugsaðar til viðmiðunar eða
hvaða stöðu þessi visitala hefði sam-
anborið við aðrar viðmiðanir, sem
væru einfaldlega þróun verðlags og
kaupgjaids í aðildarríkjunum.
„Ég held það sé ekki rétt túlkun
á þessari tillögu að menn séu að reyna
að koma á gullfæti að nýju inn um
bakdymar," sagði Jón. „En ég tel
þetta vera athyglisverða tillögu því
svona vísitala fyrir hrávöruverð gæti
þjónað sem einskonar fyrirboði um
yfirvofandi breytingar og raunar er
það oft svo að þessi hrávöruverð fara
á undan í þróun verðlags og gætu
þess vegna verið góð vísbending um
það sem er að gerast í heiminum.
En ég lít á þetta eingöngu sem
Vélar Baltic
komnarílag
BALTIC, Ieiguskip Eimskipafé-
lagsins, kom til Reykjavíkur i
gærkvöldi. Skipið hafði þá legið
við akkeri við Surtsey sfðan á
joriðjudag vegna véiarbilunar.
Þegar vélar skipsins biluðu var í
fyrstu óttast að það ræki upp í Surt-
æy og var varðskipið Týr sent til
aðstoðar. Um síðir náði skipið þó að
festa akkeri. Skipverjar reyndu að
gera við bilunina þá um kvöldið, en
tókst ekki. Varahlutir voru sendir út
í skipið á miðvikudag og menn frá
Þýskalandi komu og aðstoðuðu skip-
verja við viðgerðina. Vélar skipsins
voru gangsettar upp úr hádegi í gær
og kom skipið til hafnar í Reyig’avík
um kl. 23 í gærkvöldi. Það siglir til
Bandaríkjanna í dag.
alþjóða gjaldeyrissjóðsins með geng-
isþróuninni. Þetta hefur ekki beina
þýðingu fyrir okkur íslendinga en
minnir okkur mjög rækilega á að við-
leitnin í heiminum er hvarvetna í þá
átt að treysta stöðugleika í gengi og
það eru sannarlega orð í tíma töluð
þessa dagana," sagði Jón Sigurðsson.
Faxamarkaður:
SÆNSKA sópransöngkonan Elisabet Söd-
erström söng með Sinfóníuhljómsveit íslands á
fyrstu reglulegu áskriftarhijómleikum vetrarins
f Háskólabfói f gærkvöldi. Söderström fékk sér-
Söderström hyllt
Morgunblaðið/Sverrir
lega góðar viðtökur hljómleikagesta sem
klöppuðu hana margsinnis fram á sviðið. Á
myndinni sést söngkonan og hljómsveitarstjór-
inn, Frank Shipway, að hljómleikunum loknum.
Fiskur sendur út þrátt
fyrir skilyrði seljenda
UMBOÐSMAÐUR fyrirtækisins GS-fiskur í Danmörku keypti í
gær á Faxamarkaði 10,5 tonn af þorski og 800 kg af karfa og
er ætlunin að flytja farminn óunninn til Danmerkur í dag. Þessi
kaup voru gerð í trássi við yfirlýsingu frá útgerðarfélaginu
Granda hf. sem var lesin við byrjun uppboðs í gær þess efnis
að fyrirtækið leyfði ekki að þorskur sem það setur á markað
sé fluttur óunninn úr landi, vegna skorðingarákvæða á kvóta.
Ef fiskur er fluttur óunninn úr fískmörkuðunum til útflutnings
landi hefur sjávarútvegsráðherra
heimild til að skerða aflakvóta
þeirra skipa sem fiskurinn er veidd-
ur af. Skerðingin nemur 10 % af
útfluttum fiski. Þetta kom m.a.
fram í frétt í Morgunblaðinu í fyrra-
dag.
*
„Við viljum ekki fá bakreikning
frá sjávarútvegsráðuneytinu og
þess vegna fórum við framá að
þessi yfirlýsing yrði lesin á upp-
boðinu," sagði Sigurbjöm Svavars-
son útgerðarstjóri hjá Granda hf.
„Við settum íisk í sölu með ákveðn-
um skilmálum og ef ekki er farið
eftir þeim munum við fara ffarn á
greiðslu frá kaupenda fýrir þessa
10 % skerðingu. Við höfum farið
framá það við viðskiptaráðuneytið
að það láti okkur vita ef fískur af
okkar skipum er fluttur óunninn
úr landi á vegum annarra. Okkar
sjónarmið er að ef ekkert kemur í
veg fyrir kaup á óunnum fiski á
munum við væntanlega framvegis
setja þau skilyrði við sölu aflans
að sá sem kaupi til að flytja hann
út óunninn, greiði 10 % hærra verð
vegna þeirrar skerðingar sem við
verðum fyrir í kvóta."
Einari Sveinssyni framkvæmda-
stjóra Fiskmarkaðarins í Hafnafirði
fannst eðlilegt að útgerðarmenn
hefðu af þessu áhyggjur. Það gengi
ekki að menn settu físk á markað-
inn og seldu hann öðrum án þess
að vita hvað um hann yrði og fengu
svo sektir fyrir að hafa veitt um-
fram kvóta. En hins vegar væri
erfitt að fylgast með því hvað menn
gerðu við þann fisk sem þeir keyptu
en hann ætlaðist til þess að menn
tæku tillit til þeirra skilyrða sem
væru sett.
Fyrirtækið GS-fískur er í Hanst-
holm á Jótlandi, í eigu íslending-
anna Guðmundar S. Guðmundsson-
ar og Sveins Bjömsonar.
Umboðsmaður fyrirtækisins á ís-
landi heitir Ólafur Guðmundsson.
Eigendur sögðu það vera sitt sjón-
armið að óeðlilegt væri að útgerðin
og sjómenn yrðu fyrir kvótaskerð-
ingu. En sá sem byði hæst ætti
auðvitað að fá fískinn; það væri
ekki hægt að gera upp á milli
manna ef markaðurinn væri ffjáls
og óháður og ef ætti að draga úr
útflutningi á óunnum fiski væri nær
að gera það með hærri útflutnings-
gjöldum.
Guðmundur S. Guðmundsson
sagði að fyrirtæki sitt í Danmörku
flakaði fiskinn, saltaði og seldi til
Spánar og Ítalíu. Hann kvaðst fá
hærra verð þar eð hann seldi minna
magn hveiju sinni heldur en t.d.
Sölusamband íslenzkra fískfram-
leiðenda gerði.
Orkustofnun fækkar
starfsmönnum um 15%
Ársverkum hefur fækkað um 20% til
viðbótar undanfarin 4 ár
fram á hana.
ORKUSTOFNUN hefur sagt upp
18 starfsmönnum sínum, en sam-
tals starfa rúmlega 120 manns þjá
stofnuninni. Jakob Björnsson,
orkumálastjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið að fækkun starfs-
manna væri tilkomin vegna þess
að von væri á minni fjárveitingu
til stofnunarinnar á næsta ári,
jafnframt þvi sem sértekjur stofn-
unarinnar yrðu minni. Hann sagði
að stofnunin hafi aldrei fengið
aukafjárveitingu, enda aldrei farið
i dag
BLAB
Konur skora á Vigdísi
að gefa kost á sér
Kvenréttindafélag íslands
safnar um þessar mundir
áskorunum frá aðildarfélög-
unum þar sem skorað er á
Vigdísi Finnbogadóttur að
gefa áfram kost á sér í emb-
ætti forseta íslands, en nýtt
kjörtímabil hefst 1. ágúst á
næsta ári. Einnig er ráðgert
að nokkrir félagar Kvenrétt-
indafélagsins fari á fund
Vigdisar í næsta mánuði til
að afhenda henni þessar
áskoranir.
Lára V. Júlíusdóttir formaður
Kvenréttindafélagsms sagði í
samtali við Morgunblaðið að
,, söfnunin gengi vel enda virtist
mikill áhugi á því að Vigdís héldi
áfram sem forseti.
Þess má geta að á Landsþingi
Kvenfélagasambands íslands,
sem haldið var um miðjan júní,
skrifuðu 74 fulltrúar undir
samskonar áskorun og sendu
forseta.
„Þetta er slæm staða og skiljanlegt
að fólki þyki þetta vondur kostur, en
okkur þykir þetta óhjákvæmilegt,"
sagði Jakob. Hann sagði að þessi
fækkun starfsmanna ylli óþægindum
og það yrði tæpast komist hjá þvf
að það hefði áhrif á verkefiii, sem
væru í vinnslu hjá stofnuninni, en
reynt yrði að draga sem allra mest
úr því.
Jakob sagði að á undanfömum
fjórum árum hefði ársverkum hjá
stofnuninni fækkað um 20%, enda
hefðu verkefni á sviði orkumála dreg-
ist saman. Einkum sneri þetta að
vatnsorkunni. Dregið hefði úr vexti
raforkunotkunar og viðleitni til þess
að selja raforku til stóriðju hefði ekki
borið þann árangur sem menn hefðu
vænst. Þá hefðu verkefni á sviði jarð-
hita einnig minnkað, en þó ekki eins
mikið.
Á fundi starfsmannafélags Orku-
stofnunar voru samþykkt einróma
tilmæli til stjómar stofnunarinnar um
að segja af sér, enda hafi stjóminni
gersamlega mistekist að sjá hags-
munum stofnunarinnar borgið og
veija starfsmenn hennar þeim áföll-
um sem fjöldauppsagnir séu. „Þetta
er ráðherraskipuð stjóm sem sinnir
meira stundarhagsmunum pólitískra
flokka en langtímahag orkuiðnaðar-
ins. Að auki ríkir það óeðlilega ástand
innan stjómarinnar að tveir af þrem-
ur stjómarmönnum hafa beinna
hagsmuna að gæta innan stofnana
og fyrirtækja sem eru samkeppnisað-
ilar OS,“ segir í fréttatilkynningu frá
félaginu. Þar segir ennfremur að
steftit sé að því að 10 manns til við-
bótar verði strikaðir út af launaskrá
á næstunni.