Morgunblaðið - 02.10.1987, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.10.1987, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 Þættir úr sögri Kvennaskólans og Húsmæðraskólans á Laugalandi — Fjölmennt nemendamót haldið á Akureyri í dag eftir Gerði Pálsdóttur Tilefni þessarar greinar er að nú á haustdögum eru fímmtíu ár liðin frá því að Húsmæðraskólinn á Laugalandi í Eyjafírði var settur í fyrsta sinn, 3. október 1937, og hundrað og tíu ár frá því að Kvennaskólinn á Syðra-Laugalandi tók til starfa, en það var 12. októ- ber 1877. Fyrir nokkru fóru þær konur, sem stunduðu nám fyrsta veturinn í Húsmæðraskólanum að ræða um það sín á milli hvernig þær ættu að halda upp á fimmtíu ára af- mælið. Kom þá fram sú hugmynd að gaman væri að halda nemenda- mót fyrir alla árganga sem hefðu útskrifast frá skólanum. Þessi hug- mynd hefur síðan vaxið og dafnað og margir lagt henni lið og nú 2. október verður þetta mót að veru- leika. Það verður haldið í íþrótta- höllinni á Akureyri. Hátt í níu hundruð konur hafa látið skrá sig til þátttöku. Eru það námsmeyjar úr 37 árgöngum skólans, einnig fjöldi kennara. Þegar starfsemi skólans lauk árið 1975 höfðu 1.245 nemendur útskrifast. Fleiri nemendur hafa innritast í skólann en flesta vetur hurfu einhverjir frá námi af ýmsum ástæðum. Þá eru ótaldir framhalds- nemendur og einnig nemendur á námskeiðum, en fyrstu tíu árin var skólinn sjö mánaða skóli og voru þá haldin 5—6 vikna matreiðslu- 0g vefnaðamámskeið á vorin. Sú mikla vinna sem lögð hefur verið fram við undirbúning þessa nemendamóts og sú feikilega þátt- taka sem orðin er, sýnir betur en allt annað hve mikils fyrrverandi nemendur meta skólann. Það sýnir hve mikils virði þeir telja það vega- nesti sem þeir fengu þar og einnig hve traust og mikilsverð vináttu- bönd hafa verið hnýtt á þessu góða skólaheimili. Stofnun gamla Kvenna- skólans Kvennaskólinn á Syðra-Lauga- landi tók til starfa 12. október 1877. Það sem fer hér á eftir um sögu hans er tekið úr minningariti um skólann, sem séra Benjamín Krist- jánsson prestur á Laugalandi skrifaði. Ritið kom út 1952, þegar sjötíu og fimm ár voru liðin frá stofnun skólans. Agóðinn af þessu riti rann til minningarlundar um gamla Kvennaskólann, sem Héraðs- samband eyfirskra kvenna var að koma upp á Laugalandi. í þessu riti eru einnig endurminningar nokkurra námsmeyja frá dvöl þeirra í skólanum. Ritið er merkilegt heim- ildarrit. Í kjölfar þjóðhátíðarinnar 1874 komu fram tillögur um aukna menntun alþýðu, stofnun skóla og félaga, sem áttu að stuðla að um- bótum og framförum. Upp úr þessum umræðum spruttu fjórir skólar, þrátt fyrir þröngan fjárhag þjóðarinnar og mikil harðindi á þessum árum. Þessir skólar voru: Kvennaskólinn í Reykjavík 1874, Kvennaskólinn á Laugalandi 1877 og Ytri-Ey 1883 og Gagnfræðaskól- inn á Möðruvöllum 1880. Veturinn 1874—75 urðu miklar umræður um stofnun kvennaskóla í Eyjafirði. Voru kosnar nefndir í öllum hreppum sýslunnar til að afla flár og vinna að þessu máli. Eggert Gunnarsson umboðsmaður á Espi- hóli og síðar á Laugalandi var í fylkingarbijósti um öll framfaramál í Eyjafiði. Beitti hann sér af alefli fyrir kvennaskólamálinu og naut þar stuðnings flölda merkra manna og kvenna í Eyjafirði. Má þar nefna séra Amljót Ólafsson og Kristjönu Gunnarsdóttur Hafstein, systur Eggerts. Fólk hafði lítið fé handa á milli á þessum tímum svo ekki voru allar upphæðir stórar sem gefnar voru. Þeir fátækari gáfu 25 aura til eina krónu en þeir efnaðri 3 til 5 krónur en það var dilksverð í þá daga. Kristjana Hafstein gaf 50 krónur og þótti það stórmikið fé. Á þennan hátt söfnuðust í Eyjafírði og Norð- austurlandi, allt til Þistilfjarðar, 1.397,91 krónur. Haldnar voru samkomur og hlutaveltur fyrir málefnið. Leikinn var í fyrsta skipti sjónleikurinn „Sigríður Eyjafjarðarsól", eftir Ara Jónsson í Víðigerði, og fleiri leikrit. Fyrir þetta söfnuðust 437,87 krón- ur. Á fundi fjáröflunarnefndanna, sem haldinn var í ágúst 1876, voru samþykktar eftirfarandi tillögur: Að skólinn skuli hefjast haustið 1988 á hentugum stað í Eyjafírði; að ráða skuli tvær kennslukonur, aðra til að vera forstöðukonu og að skólinn tæki að minnsta kosti 10—12 námsmeyjar. Einnig voru taldar upp þær námsgreinar sem kenna skyldi, bæði bóklegar og verklegar. Eggert Gunnarsson var í Danmörku veturinn 1876—77. Þar tókst honum að safna 3.000 krónum til skólans. Nokkur vandi var að ákveða skólastað. Bauðst aðstaða á Grund og einnig á Munkaþverá. Þótti það hvorttveggja fjárhagnum ofviða. Þegar ekki var í annað hús að venda um sumarið 1877, að fenginni forstöðukonu og 20 um- sóknum um skólavist, buðu Eggert Gunnarsson og Kristjana Hafstein systir hans fram lítið timburhús á Syðra-Laugalandi. Átti það að vera til bráðabirgða en var síðar stækkað og endurbætt og notað öll árin sem skólinn starfaði á Syðra-Lauga- landi. Húsið var óhentugt, gisið og kalt og lengst af of lítið, en þarna starfaði skólinn samt alla vetuma frá því 12. október 1877, að hann var settur í fyrsta sinn, þar til 1896 en þá var hann fluttur til Akureyrar. Þegar Eggert Gunnarsson og Kristjana Hafstein fluttu frá Laugalandi 1888 keypti Eyjaijarð- arsýsla af honum skólahúsið og greiddi skuldir skólans við hann. Það fé sem safnaðist með samskot- um dugði ekki nema fyrir helmingi kostnaðar við stofnun skólans. Þó virðist það ekki hafa verið greitt að fullu og Eggert tekið á sig 1.000 krónur af kostnaðinum en það sam- svarar um 200 dilksverðum í þá daga. Eggert var kvaddur með sam- sæti og honum afhent vandað gullúr Gerður Pálsdóttir „Fyrir nokkru fóru þær konur, sem stunduðu nám fyrsta veturinn í Húsmæðraskólanum að ræða um það sín á milli hvernig þær ættu að halda upp á f immtíu ára afmælið. Kom þá fram sú hugmynd að gaman væri að halda nemendamót fyrir alla árganga sem hefðu út- skrifast frá skólanum. Þessi hugmynd hefur síðan vaxið og dafnað og margir lagt henni lið og nú 2. október verður þetta mót að veruleika. Það verður haldið í íþróttahöllinni á Akur- eyri.“ með þessari áletrun: „Heiðursgjöf frá nokkrum konum til Eggerts Gunnarssonar stofnanda norð- lenzka kvennaskólans.“ Einnig var honum flutt kvæði sem Valdimar Ásmundsson orti fyrir hönd norð- lenskra kvenna. Skal nú farið fljótt yfir sögu, en saga Eggerts Gunnarssonar og ör- læti hans við stofnun fyrsta norð- lenska kvennaskólans er alveg einstök og hefur því verið við hana dvalið. Þegar Kvennaskólinn tók til starfa var ráðin forstöðukona, Val- gerður Þorsteinsdóttir. Var hún ekkja eftir séra Gunnar, bróður Eggerts og einnig fóstursystir hans. Hún var forstöðukona allan tímann sem skólinn starfaði á Laugalandi, utan einn vetur sem hún dvaldi í Danmörku til að kynna sér skóla- mál. Hún var gáfuð, stjómsöm og mjög vel menntuð kona og má sjálf- sagt þakka henni að skólinn starfaði þetta lengi þrátt fyrir slæmar ytri aðstæður. Með henni störfuðu úr- vals kennslukonur, vel menntaðar og mikilhæfar. Margar þeirra höfðu dvalið einn eða fleiri vetur erlendis til framhaldsmenntunar. Voru ýmist tvær eða þijár kennslukonur starfandi. Starfið í Kvenna skólanum í grein í Austra 20. ágúst 1891 eru ýmsar mjög fróðlegar upplýs- ingar um skólann. Kemur þar fram að skólinn er ætlaður fyrir 30 nem- endur og á hann allan rúmfatnað fyrir þann fjölda. Taldar eru upp námsbækur sem notaðar voru og er það fjölbreytt upptalning. Kennd hefur verið íslenska, reikningur, danska, enska, landafræði, saga, söngfræði, heilsufræði, hjúkrunar- fræði, barnauppeldi og hjálp í viðlögum. Þar stendur meðal ann- ars þetta: Meðgjöf námsmeyja var á sl. vetri 55 aurar á dag og greið- ist að hálfu fyrirfram. Stúlkum sem þess óska er leyft að fæða sig sjálf- ar óg fá til þess aðstöðu í eldhúsi. Áhöld verða þær að eiga sjálfar og panta verður eldivið fyrirfram. í minningarritinu er skrá yfir þá muni sem unnir voru í skólanum veturinn 1892—93. Flest er það handsaumað en nokkuð þó vél- saumað. Eru taldir upp 1.000 munir. Nemendur þann vetur voru 26. Eftir því sem næst verður komist hafa 310 námsmeyjar stundað nám í Kvennaskólanum eldri á Lauga- landi, lengur eða skemur. Er skrá yfir þessa nemendur í minningarrit- inu. Séra Benjamín Kristjánsson safnaði æviágripi og myndum af þessum námsmeyjum. Er það til í handriti en honum entust ekki starfskraftar til þess að ljúka þessu verki og vantar ennþá upplýsingar um nokkrar námsmeyjar. Á árunum 1877 til 1882 voru gerðar tilraunir í þá átt að skólinn yrði gerður að fjórðungsskóla fyrir Norðurland og byggt yrði gott skólahús. Sú hugmynd varð að engu þegar Skagfirðingar og Húnvetn- ingar sameinuðust um skóla á Ytri-Ey. Ætlast var til að skólinn væri tveggja vetra skóli en margar námsmeyjar voru aðeins einn vetur og sumar nokkra mánuði. Nem- endafjöldi var misjafn, allt frá 12 fyrsta veturinn í 39 veturinn 1890—91. Oftast voru þær um 20 til 30. Var oft mjög þröngt búið. Ekki rættist úr með húsnæði skól- ans og var þá ákveðið að flytja skólann til Ákureyrar 1896. Átti að byggja yfir hann þar, sem aldrei var gert. Var hann nokkur ár í gamla bamaskólanum en lengst í húsi Snorra Jónssonar við Strand- götu. Fj'árhagslega var skólinn ekki illa stæður því þegar hann hætti átti hann um 9 þúsund krónur í sjóði. Sýslunefnd fór árið 1907 fram á það við Alþingi að veita 10 þús- und krónur til byggingar kvenna- skóla í grennd við Akureyri gegn sama framlagi frá sýslunni. Ekki fékkst þetta samþykkt og féll þá skólahaldið niður þar til kvenna- skóli var aftur reistur á Laugalandi og tók til starfa 1937. Stofnaður nýr skóli á Laugalandi Eftir að Kvennaskólinn var flutt- ur frá Laugalandi og lognaðist útaf á Akureyri var öðru hvoru minnst á stofnun nýs skóla og þegar sam- þykkt voru lög um húsmæðraskóla á Norðurlandi 1917 töldu margir að málið væri í höfn. Sú varð ekki raunin á, því eftir samþykkt lag- anna, hófst togstreita um staðarval sem endaði á því að reistur var myndarlegur húsmæðraskóli á Laugum og Kvennaskólanum á Blönduósi var breytt í hússtjómar- skóla. Áfram héldu umræður um þessi mál og þegar Héraðssamband ey- firskra kvenna var stofnað í desember 1933, var það í þeim til- gangi að hrinda í framkvæmd byggingu kvennaskóla. Á fyrsta fundi sambandsins talaði formaður- inn, Rósa Einarsdóttir, fyrir nauðsyn þess að fá sem fyrst kvennaskóla innan fjarðar og kvað það mesta áhugamál eyfirskra kvenna. Var þá þegar búið að senda bréf frá sambandinu inn á sýslufund til þess að óska eftir stuðningi sýslunefndar við þetta áhugamál kvenfélaganna. Vom þá strax kosn- ir þrír menn af hálfu sýslunnar til þess að vinna að málinu með hon- um. Voru það þeir Stefán Stefáns- son, Varðgjá, Valdimar Pálsson, Möðruvöllum og Davíð Jónsson, Kroppi og var hann kosinn formað- ur nefndarinnar. Rósu Einarsdóttur var þökkuð ágæt framsöguræða og var mikill einhugur og áhugi fyrir málinu. Kosnar voru fjórar konur í nefnd sem falið var að vinna þegar að stofnun skólans. Þessar konur voru kosnar: Guðrún Jónasdóttir, Möðru- völlum, Helga Hannesdóttir, Dvergstöðum, Rósa Einarsdóttir, Stokkahlöðum og Sólveig Kristjáns- dóttir, Munkaþverá. Á fundi um haustið 1934 skýrir Rósa Einarsdóttir frá störfum nefndarinnar. Hafði nefndin ritað bréf til ríkisstjómarinnar og óskað eftir fjárveitingu til þess að byggja kvennaskóla á Laugalandi. Héraðs- sambandið sendi kvenfélögum utan Akureyrar bréf og fór þess á leit að þau styddu kvennaskólamálið og söfnuðu eða legðu fram eitthvert fé til byggingarinnar. Kvennaskólanefndin tók ötullega til starfa við undirbúning að skóla- byggingunni með fjársöfnun í héraði, útvegaði teikningar að hús- inu og fleira. Þegar fyrir lá fjárveit- ing frá ríkinu 1935, var haldinn auka sýslufundur um málið og kosnir fjórir menn til viðbótar í nefndina og henni gefíð leyfi til þess að heíja skólabyggingu, svo fremi sem kostnaður færi ekki yfir 90 þúsund krónur. Sigurður Egg- erts var kosinn formaður nefndar- innar. Var verkið hafið um haustið 1935 og því lokið um nýár 1936—37. Samin hafði verið reglu- gerð fyrir skólann og kosin skóla- Húsmæðraskólinn eftir stækkun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.