Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 -t Nýtt flutnings- og meðferðarkerfi fyrir fiskikassa: Gjörbreytir vinnubrög’ð- um um borð í fiskiskipum - segir Signrður Jóhannsson framkvæmdastjóri Plasteinangrunar hf. PLASTEINGANGRUN hf. vinnur nú að þvf að búa til flutnings- og meðferðarkerfi fyrir hefðbundna fiskikassa i samvinnu við Slipp- stöð Akureyrar, Vélsmiðjuna Odda og norska fyrirtækið Per Strandberg. Gert er ráð fyrir að hægt verði að markaðssetja nýja kerfið á næsta ári, en á næstu mánuðum verður það prófað um borð í fiskiskipum Útgerðarfé- lags Akureyringa. Sigurður Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Plasteinangrunar hf., sagði í samtali við Morgunblaðið að nýja kerfíð yrði til þess að gjör- breyta vinnubrögðum um borð í fískiskipum. Stefnt væri að því að Morgunblaðið/GSV Á æfingu í Sjallanum fyrir skömmu. Frá vinstri: Grétar Ingvarsson, Grímur Sigurðsson, Inga Eydal, Snorri Guðvarðarson og Ingimar Eydal. Stjömur Ingimars „skína“ í Sjallanum r Zebra opnar einnig í kvöld koma á algjörri sjálfvirkni í skipun- um við meðhöndlun og tilfærslu fískikassanna. „Frá því að notkun á fiskikössum hófst upp úr 1970 hefur engin framþróun átt sér stað um borð í veiðiskipunum. Inni í frysti- húsunum hefur meðhöndlunin aftur á móti verið leyst meðal annars með kassaklóm og kassalosurum og spar- ar sá sjálfvirki búnaður vinnuafl. Fyrirtækin, sem sameiginlega vinna að verkefninu, hafa áður starf- að saman að markaðsmálum. Sigurður sagði að markaðurinn væri farin að krefjast þess að fískurinn yrði stærðarflokkaður um borð í veiðiskipunum. Til þess þyrfti að fínna leiðir til að gera þá vinnslu léttari á sjó með minni starfsafla og meiri sjálfvirkni. „Þetta þróunar- verkefni er flárfrekt og flokkast sem forgangsverkefíii hjá okkur. Einnig á þetta kerfí að koma að notum þegar ferskur fiskur er fluttur út í gámum. Nokkuð er farið að bera á því að farið er að nota fískikör um borð í skipum og þegar alit að 450 kg af físki eru komin í slík kör, má ætla að mikill þrýstingur myndist og rýmun fylgi í kjölfarið." Plasteinangrun hf. framleiðir 70 og 90 lítra fiskikassa sem áfram yrðu við lýði þrátt fyrir sjálfvirkn- ina. Annars vegar miðaði kerfíð að þvi að koma upp einhverri sjálf- virkni í hefðbundin fískiskip, en ef um nýsmíði væri að ræða yrði að sjálfsögðu að taka tillit til kerfisins við smíðina. Steftit væri að því að gera lestimar mannlausar við losun og lestum skipanna, að sögn Sigurð- Við vígslu Fiskmarkaðar Norðurlands hf. Fiskmarkaður Norðurlands hf.: A Utgerðarmenn óttast þrýsting áhafna sinna „VERIÐ er að leggja síðustu hönd á tæknímálin og vil ég ekki fara af stað fyrr en þau eru kom- in á hreint,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmda- stjóri Fiskmarkaðar Norður- lands hf., í samtali við Morgunblaðið. Búist hafði verið við að fyrsta uppboð færi fram sl. þriðjudag, en hætt var við það sökum smávandamála sem upp komu viðvíkjandi tengingum við gagnanet markaðarins. Sigurður sagði að líklega mjmdi fyrsta uppboðið fara fram upp úr helginni. Ætlunin væri að bjóða aðeins upp lítið magn í fyrstu, ef til vill um tíu tonn í tveimur til þremur einingum, svo menn næðu almennilegum tökum á því nýstár- lega kerfí sem um væri að ræða, en námskeið voru haldin í síðustu viku fyrir hluthafa. „Við fáum einfaldlega ekki stóra farma á þessum tíma, bæði vegna brælu og lélegra gæfta á miðunum. Vinnslustöðvamar eru margar hveijar hálftómar hér norðanlands þessa dagana, en maður vonar auð- vitað að hrejrfíngin verði þó nokkur þó að tíminn sé tiltölulega óheppi- legur til að he§a rekstur nýs fískmarkaðar." Sigurður sagði að nokkurs ótta gætti á meðal útgerð- armanna sem tengdust vinnslu einnig. Menn óttuðust að áhafnir þeirra myndu þrýsta á um hærra verð sem í raun og veru væri ekki óeðlilegt. Ef útgerðarmenn létu undan slíkum þrýstingi myndu þeir svelta eigin vinnslur. Hinsvegar léki ekki nokkur vafí á því að markað- imir greiddu hærra verð fyrir fískinn og gerði Sigurður ráð fyrir því, að fyrir hvert kg af meðal- þorski fengjust 40 til 45 krónur miðað við 32 til 35 krónur sem greiddar em fyrir sama magn í stöðvunum hér norðanlands. 50 ára nemendamót húsmæðraskólans að Laugalandi: Þarf ekki lengur próf tíl að giftast Samkomulag’ við röntgentækna FSA — segir Þóra Hjaltadóttir talsmaður undirbúningsnefndar Skemmtídagskráin „Stjöraur Ingimars Eydals í 25 ár“ verður frumsýnd i kvöld í Sjallanum. Dag- skráin hefur verið samin í tilefni af þvi að 25 ár eru nú liðin siðan Ingimar hóf að skemmta lands- mönnum. í liði með Ingimari nú verða flest- ir þeir sem skemmt hafa með honum i gegnum tfðina og má þar nefna auk hljómsveitar hans, Þorvald Halldórs- son, Bjarka Tryggvason, Helenu Eyjólfsdóttur og Grím Sigurðsson og Ingu Eydal. Auk þeirra koma fram Árni Ketill Friðriksson, Snorri Guð- varðarson, Friðrik Bjamason, Finnur Eydal, Þorsteinn Kjartansson og Grétar Ingvarsson. Dansarar frá Dansstúdíói Alice sýna dansa. Kjmn- ingar annast Gestur Einar Jónasson og Ólöf Sigríður Valsdóttir. I kvöld opnar jafnframt nýr veit- ingastaður á Akureyri sem hlotið hefur nafnið Zebra. Veitingastaður- inn er við Hafnarstræti 100, þar sem H-100 var áður til húsa. HALLDÓR Jónsson framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar vOdi koma á framfæri eftirfarandi athugasemd við frétt sem birtíst í gær í Morgunblaðinu um samkomulag sem gert var við röntgentækna. „í staðinn fyrir að breyta tveimur með yfírlýsingu f gildandi kjarasamn- stöðum röntgentækna f tvær stöður deildarröntgentækna þann 1. janúar 1988, fékkst heimild með samkomu- laginu um að flýta því um þijá mánuði. Auk þess lýsti stjóm FSA því jnfír að hún mjmdi beina því til kjarasamninganefnda að taka bæri ■ laun röntgentækna á bakvakt til at- hugunar og vísar um leið f bókun ingi þar sem kveðið er á um að mögulegt sé að endurskoða kjara- samning um leið og endurskoðun á launaliðun fer fram.“ Halldór sagði að engin loforð um niðurstöðuna fælust f samkomulaginu enda gæti stjóm FSA ekki sagt kjara- samninganefnd fyrir verkum. YFIR 800 fyrrverandi nemendur húsmæðraskólans að Laug’alandi í Eyjafirði fjölmenna á nemendamót sem haldið verður á Akureyri um helgina, en nú eru 50 ár liðin síðan skólinn var settur í fyrsta sinn og 110 ár síðan kvennaskól- inn að Syðra-Laugalandi hóf starfsemi sína. Akureyri óskar eftir fólki á öllum aldri til að bera út Morgunblaðið strax og það kemuríbæinn. „Hressandi morgunganga" Hafiðsamband! flfaKjgtmliIftfrifr Hafnarstræti 85, Akureyri, sími 23905. Mótið verður haldið í íþróttahöll- inni á Akureyri. Setning fer fram kl. 19.30 í kvöld og verður hún mjög svo óhefðbundin, að sögn Þóru Hjaltadóttur talsmanns undir- búningsnefndar. Borinn verður fram kvöldverður í íþróttahöllinni sem Bautinn sér um auk þess sem ávörp verða flutt og fleiri uppákom- ur settar á svið. í því sambandi vildi Þóra sérstaklega benda á tískusýningu, sem spannar allt aft- ur til ársins 1937. Skemmtiatriði eru öll „heimatilbúin", en meiru vildi Þóra ekki uppljóstra um dag- skrá kvöldsins. íþróttaráð Akur- eyrar hefur lánað Höllina af þessu tilefni og mun Lionsklúbburinn Hængur sjá um annað sem til þarf. Gífurlegur áhugi „Segja má að hugmjmdin að 50 ára nemendamóti hafí vaknað fyrir um 30 árum, þegar fyrsti árgangur skólans kom saman til að halda upp á 20 ára nemendamót. Þá varpaði Benjamín Kristjánsson, einn kenn- aranna, því fram að veglegt nemendamót skyldi haldið á 50 ára afmæli skólans. Hann óraði hins- vegar þá ekki fyrir því að skólinn yrði aflagður þá,“ sagði Þóra. Starf- semi skólans lauk árið 1975 og höfðu j)á 1.245 nemendur útskrif- ast. „A þessum tölum sést því hve gífurlegur áhugi er fyrir mótinu og með samtakamættinum hefur þetta tekist. Ég veit að margar eru langt að komnar, til dæmis kemur ein frá Stokkhólmi. Haft var samband við eina í hveijum árgangi og sá sú hin sama um að hóa í hinar í sama árgangi. Vfst er að mótið hefði aldr- ei verið haldið ef þær 40 til 50 konur, sem unnið hafa að því, hefðu ekki lagt mikla vinnu á sig. Við fórum ekki af stað fyrr en 13. ágúst svo það hefur verið í nógu að snú- ast þessa sfðustu daga. Að minnsta kosti hefur Póstur og sími grætt vel á þessu móti,“ sagði Þóra. Tveir karlmenn Á morgun, laugardag, verða tvær rútur í ferðum til og frá skólanum og geta gömlu nemendumir heim- sótt skólann sinn og rifjað upp gamlar minningar. Um kvöldið má síðan ætla að allir salir, sem til eru á Akureyri, verði uppteknir, en þá munu árgangamir einir og sér geta ráðstafað kvöldinu að eigin vild. Yfír 20 kennarar hafa skráð sig til þátttöku, enda er ekkert nemenda- mót haldið án kennara, að sögn Þóru. Auk þeirra ætla nokkrar kon- ur sem sóttu svokölluð vomámskeið að mæta. Tveir karlmenn verða í hópnum sem báðir eru nú prestar í þokkabót og var þeim hlejrpt inn í kvennahópinn eingöngu þess vegna, sagði Þóra. Annar þeirra kenndi kristinfræði við skólann, en hinn var nemi. Próf tíl að giftast Þóra sagði að vissulega væri sárt að sjá skólann ekki starfræktan lengur, en vissulega væri það skilj- anlegt að ekki væri hægt að reka skóla án aðsóknar. „Það þarf ekki lengur próf til að giftast. Hús- mæðraskólinn veitti engin réttindi, en fólk fer vissulega í skóla gagn- gert til að ná sér í eitthvað umfram aðra — einhver réttindi," sagði hún að lokum. Sjá nánar „Þættir úr sögu kvennaskólans og húsmæðra- skólans á Laugalandi" eftir Gerði Pálsdóttur á bls. 16 og 17. ii 1 ); r > 1 n f: i»: • í j t ni,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.