Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 35

Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 35 Svipmyndir úr borginni / óiafur Ormsson „ Alltaf að vera viss, frændi“ Það rigndi næstum eins og hellt væri úr fötu. Þarna stóð fisk- salinn við búðarborðið, með síða gúmmísvuntu utan um sig og var að afgreiða eldri konu sem keypti saltfísksflak. Það var þriðjudagur í lok septembermánaðar og mán- aðarkaupsmenn farið að lengja í glaðninginn sem yfírleitt kemur fyrsta dag hvers mánaðar. Fisk- salinn hefur árum saman verið í verslunarmiðstöð í austurbænum og ávallt með þannig vöru á boð- stólum að hann á trygga við- skiptavini sem láta sig ekki muna um að aka heilu bæjarleiðimar til þess að ná tali af físksalanum og verða sér úti um glænýjan fisk. Fisksalinn er kominn á miðjan aldur og er sérfræðingur í sjósókn og trillubátaútgerð. Hann er oft- ast í góðu skapi. Þennan þriðju- dagsmorgun var hann þó eitthvað argur og mér datt helst í hug að rigningin væri að ergja hann. Það var nú öðru nær. Hann sagði aldr- ei meiri viðskipti en einmitt í rigningarveðri. Aftur var það umferðin í borginni sem hann var ekki sáttur við. Ég fer yfírleitt aldrei Kringlu- mýrarbrautina út úr bænum þegar ég fer suður í Keflavík. Ég ek Breiðholtsbrautina. Þar er nokkurn veginn óhætt að aka um án þess að hafa áhyggjur af næsta bíl. Ég ók eitt sinn nú í haust um Kringlumýrarbrautina á suður- Jeið. Skyndilega ekur upp að mér jeppabifreið á ofsahraða. Það var þama pollur á götunni og allt í einu sá ég ekki út úr augum. Það var engu líkara en að ég væri með bílinn á bílaþvottastöð. Ég missti um stund stjóm á sendi- ferðabílnum, sem ég ók, og þegar ég loks sá út um rúðumar þá var bíllinn minn upp á gangstétt, at- aður aur og skít og ökuníðingur- inn víðs fjarri. — Náðirðu ekki númerinu á bílnum? spurði ég. — Nei, það var enginn mögu- leiki. Jeppabifreiðin fór eins og hvirfílvindur um götuna, ók ekki undir eitt hundrað kílómetra hraða. Þá var físksalinn ekki síður gagnrýninn á þá þróun að þjón- ustugreinar ýmiss konar væm að soga til sín allan vinnukraft í landinu á meðan atvinnurekendur í sjávarútvegi hefðu ekki efni á að borga mannsæmandi laun. — Þjónninn, afgreiðslustúlkan, skóbustarinn, maðurinn í fata- henginu, hafa kannski margföld laun á við fólkið sem vinnur að aðalútflutningsvöru landsmanna. Þetta getur bara ekki gengið. Og hvar er Jakinn? Er ekki Verka- mannasambandið að klofna? Gera þeir annað en að vera með neftó- baksdósirnar á lofti fyrir framan myndatökuvélar sjónvarpsmann- anna? Og allt þetta bmðl í þjóð- félaginu, þessi gegndarlausa eyðsla. Það er ekkert hugsað um að spara enda hlaðast upp erlend- ar skuldir. Og hvar endar þetta? Auðvitað í skuldafangelsi. Hvar annars staðar? Nei, Ólafur, útlitið er ekki glæsilegt, sagði físksalinn og fór síðan í símann og þegar hann kom fram að búðarborðinu aftur eftir örskamma stund sagð- ist hann sakna þess að hafa ekki lengur í rikisstjóm menn eins og Matthías Bjamason og Sverri Hermannsson. — Menn með reynslu. Ég er sjálfstæðismaður, orðinn þreyttur á þessu fijálshyggjuliði, Hannesi Hólmsteini og hans bræðmm, sagði hann og allt í einu komu tvær blómarósir, stúlkur rétt rúm- lega tvítugar inn í fiskbúðina og viðskiptin farin að blómstra. Frændumir, sem áður hafa komið við sögu hér í Svipmynda- greinum og hafa það fyrir venju að hittast á haustin, höfðu sam- band nú nýlega. Sá eldri, verktaki á sextugsaldri var að kaupa nýj- an, amerískan fólksbíl, glæsivagn og bauð þeim yngri í bfltúr. Sá yngri er rúmlega fertugur og vinnur á verkstæði og heitir Bald- ur. Eldri frændinn hefur lengi verið illa sáttur við það að sá yngri vinni þetta fjórtán til sextán tíma á sólarhring, fímm daga vik- unnar. Þeir óku um Vesturbæinn fram hjá gamla kirkjugarðinum, upp Suðurgötuna og út í Skerja- fjörð þar sem sá eldri tók að ávíta þann yngri og kallaði hann allt í einu Garibalda. Greinarhöfundur var með í för. — Ertu eitthvað verri frændi? Af hvetju kallarðu mig Garibalda? Þú veist að ég heiti Baldur. - Þú ert eitthvað svo garaleg- ur, svo svakalegur, stressaður og þreytulegur. Þú vinnur alltof mik- ið, frændi. Og þú ert bara einn. Hefur ekki fyrir neinum að sjá nema þér og henni mömmu þinni, frænku. Af hverju vinnurðu ekki eins og ég, bara átta stunda vinnudag? spurði sá eldri. — Ég er á tímakaupi, frændi, og iðnaðarmenn hafa ekki betri laun. Þú ert sjálfstæður atvinnu- rekandi, frændi, og hefur efni á því að kaupa þér nýjan, amerískan fólksbfl á meðan ég ferðast um á reiðhjóli. Mig langar í amerískan fólksbíl og er að safna mér fyrir svoleiðis bíl. — Já, en það var tekið af þér bflprófíð, væni minn, fyrir um það bil sex árum. Ertu viss um að þú sért fær um að aka bíl að nýju, frændi, sagði sá eldri, verktakinn. — Tekið af mér? — Já, þú manst þegar þú varst að koma á bílnum þínum úr Þjóð- leikhúskjallaranum og ókst yfír að Glæsibæ í öfugum frakkanum. Manstu hvað þeim fannst það skrítið lögreglunni? - Já, ég ætla nú samt að fá mér bíl, frændi. Nú er ég annar og betri maður. - Alltaf að vera viss, frændi, eins og segir í auglýsingunni frá Samvinnutryggingum, sagði þá sá eldri, verktakinn ... Leiðrétting: Björgunarsveit frá Grundar- firði tók einnig þátt í leitinni SÉRA Jón Þorsteinsson, sóknar- prestur á Grundarfirði, hafði samband við Moegunblaðið og vildi koma á framfæri athuga- semdum við frétt blaðsins á þriðjudag um leit að ölvuðum mönnum á báti frá Grundarfirði. Auk þeirra leitarflokka, sem get- ið er f frétt Morgunblaðsins, var Björgunarsveitin í Grundarfirði kölluð út strax á laugardagskvöld og leitaði þá svæðið frá Búlands- höfða að Kvíabryggju og strax í birtingu daginn eftir svæðið frá Brimilsvöllum að Eyrarodda. Einnig voru allar björgunarsveitir í Stykk- ishólmi, á Ólafsvík og Rifí í við- bragðsstöðu og leituðu allar hafnir á þessu svæði. Þá vildi séra Jón leiðrétta þann misskilning, sem lesa má út úr nið- urlagi fréttar blaðsins, að Eðvarð Ámason er ekki aðeins yfirlögreglu- þjónn á Grundarfírði, heldur í allri Snæfells- og Hnappadalssýslu og reyndar búsettur á Stykkishólmi. Ummæli hans þess eðlis, að þetta sé þriðja tilvikið af þessu tagi, sem kæmi upp í umdæminu á stuttum tíma, ætti því við alla sýsluna, enda könnuðust Grundfírðingar ekki við önnur tilfelli hjá sér en þetta eina. Séra Jón sagði síðan: „Grund- fírskir sjómenn eru ekki einasta harðduglegir og samviskusamir heldur líka sérstök snyrtimenni með báta sína og útgerð, svo eftir er tekið. Af frétt þessari má ráða að annar bragur sé á. Ég er ekki að afsaka þetta einstaka tilvik og er að sönnu þakklátur fyrir alla hjálp og fyrirhöfn, sem hlýtur þó alltaf að vera sjálfsögð þegar minnsti grunur leikur á að hætta sé á ferð- um. En ég get ekki sætt mig við að kastað sé rýrð á byggðarlagið og þá stétt manna sem ber það uppi með ónákvæmum fréttaflutn- ingi.“ *Kjóll 1.985,- Trefill 288,- Sokkabuxur 274,- Peysa 789,- Bolur 785,- Gallabuxur 1.085,- *Hjól 6.560,- Mikið úrval af vönduöum bamafatnaöi JXL A1IKLIG4RDUR MIKIÐ FYRIR LtTIÐ Litla fólkid þarf sitt Peysa 1.885,- Flauelsbuxur 1.495,- Peysa 1.235,- ®Bolur 795,- muxur 1.075,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.